Fréttablaðið - 26.01.2015, Blaðsíða 50
26. janúar 2015 MÁNUDAGUR| SPORT | 22SPORT
ÚRSLIT
16 LIÐA ÚRSLIT
Austurríki - Katar 27 - 29 (14-13)
Slóvenía - Makedónía 30 - 28 (16-15)
Króatía - Brasilía 26 - 25 (14-15)
Spánn - Túnis 28 - 20 (18-9)
LEIKIR DAGSINS
16L: Þýskal. - Egyptal. kl. 15.30
16L: Pólland - Svíþjóð kl. 15.30
16L: Ísland - Danmörk kl. 18.00
16L: Frakkl. - Argentína kl. 18.00
Síðumúli 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
Verslun opin mán - fös 8.30 - 17.00
Glös fyrir stór
og smá tilefni
Hjá Fastus fæst mikið úrval af glösum fyrir
stóra og litla veitingastaði. Komið í verslun
okkar að Síðumúla 16 og látið fagmenn
hjálpa ykkur við að velja réttu glösin.
FA
S
TU
S
_H
_0
3
.0
1
.1
5
HANDBOLTI Guðmundur Guðmundsson breytti út af vananum og gaf ekki færi
á viðtölum við einstaka fjölmiðla eftir blaðamannafund sinn á hóteli danska
landsliðsins í Doha í gær. Þjálfari danska liðsins sagðist þurfa að nýta allan
þann tíma sem hann gæti til að undirbúa sína menn fyrir slaginn gegn Íslandi
í dag.
„Það er ekki erfitt fyrir mig að mæta Íslandi,“ sagði hann á fundinum. „Þetta
er handboltaleikur og ég einbeiti mér að því, sama hver andstæðingurinn er.“
Guðmundur vildi ekki gefa mikið um leikáætlun sína fyrir leikinn í kvöld enda
augu allra íslenskra fjölmiðla á honum. Hann sagði þó að liðið hefði bætt sig
mikið frá því í tapleiknum gegn Íslandi í Álaborg í upphafi mánaðarins.
Guðmundur lét af störfum sem þjálfari Íslands eftir Ólympíuleikana 2012 og
Aron Kristjánsson tók við. Fréttablaðið spurði Guðmund hvað hefði breyst í
leik íslenska liðsins undir stjórn Arons.
„Það er erfitt að segja og ég vil ekki fara út í nein smáatriði. Það er margt
svipað, bæði í vörn og sókn, en hver þjálfari hefur sínar áherslur og Aron hefur
þjálfað Ísland í tvö og hálft ár.“ - esá
Guðmundur heldur spilunum þétt að sér
ÞEKKJAST VEL Guðmundur stýrði
Íslandi um árabil. FRÉTTABLAÐIÐ/EVA BJÖRK
HANDBOLTI Aron Kristjánsson
segir að það sé sérstök tilfinning
sem fylgi því að spila gegn Dan-
mörku. Aron er í dag þjálfari Dan-
merkurmeistara KIF Kolding og
hefur starfað lengi þar í landi, fyrst
sem leikmaður og nú sem þjálfari.
„Þekking liðanna hvors á öðru
er mikil. Nokkrir íslenskir leik-
menn hafa spilað í Danmörku og
ég er að þjálfa einhverja af dönsku
leikmönnunum. Guðmundur þjálf-
aði íslenska landsliðið og marga
af þeim leikmönnum sem eru hér
– þjálfarann líka,“ sagði hann og
brosti. „Menn verða ekki í því að
finna upp hjólið í þessum leik.“
Aron segir að það sé þægilegra
að undirbúa liðið fyrir leik gegn
Dönum en til að mynda Egyptum.
„Danir spila vörn og sókn sem við
þekkjum vel en þetta mun snúast
um hvort okkur takist að leysa þau
vandamál sem koma upp.“
Hann segir lykilatriði að Ísland
spili agaðan og árangursríkan
sóknarleik. „Við þurfum að klára
okkar sóknir vel til að geta stillt
upp vörninni okkar eins og við
viljum hafa hana. Danir eru mjög
grimmir í að sækja hratt á lið og
refsa fyrir mistök. Við þurfum að
geta staðið það af okkur til að eiga
möguleika.“
Það hefur gengið á ýmsu hjá
íslenska liðinu á mótinu til þessa
og liðið spilað frábærlega á köfl-
um en svo skelfilega illa þess á
milli. „Miðað við allt sem á undan
er gengið er hægt að segja með
fullri vissu að strákarnir gefi allt
sem þeir eiga í þetta. Það hefur
verið góður andi í hópnum og ein-
beitingin góð. Það verður öllu
fórnað og svo er það bara dags-
formið og ástand liðanna sem
ræður úrslitum þegar svo langt
er komið.“
Aron sagði að nafni sinn Pálm-
arsson væri á góðum batavegi
eftir höfuðhöggið sem hann fékk
gegn Tékklandi en í dag verður til-
kynnt hvort hann spilar með gegn
Dönum. Þá var Björgvin Páll Gúst-
avsson veikur í gær auk þess sem
aðrir hafa verið slappir. - esá
Lykilatriði að klára sóknirnar vel
Aron Kristjánsson segir að allt verði gefi ð í leikinn gegn Dönum á HM í kvöld.
ÖGURSTUND Aron og strákarnir eru úr
leik með tapi. FRÉTTABLAÐIÐ/EVA BJÖRK
HANDBOLTI Bent Nyegaard, fyrr-
verandi handboltaþjálfari og einn
þekktasti sérfræðingur Dana
um íþróttina, var ánægður með
að Danmörk fékk Ísland í 16-liða
úrslitum HM í handbolta. Liðin
eigast við í kvöld.
„Eins og staðan er núna finnst
mér að Ísland standi hvergi nærri
danska landsliðinu. Ég sé í raun
ekki fyrir mér að Ísland eigi mögu-
leika en við þekkjum þó söguna og
vitum að leikir liðanna hafa oft
verið jafnir og spennandi,“ sagði
Nyegaard í samtali við Fréttablað-
ið í gær.
Helsti munurinn á liðunum
er breidd leikmannahópsins og
markvarðastöður liðanna að mati
Nyegaard. „Þar hafa Danir mikla
yfirburði,“ segir hann en bætir við
að Ísland geti, á góðum degi, verið
hættulegur andstæðingur líkt og
liðið sýndi í æfingaleik liðanna í
byrjun mánaðarins.
„Þá tókst okkur ekki að leysa
hlaupin hjá Snorra [Steini Guð-
jónssyni] og línuspilið á [Róbert]
Gunnarsson. Danir spiluðu afar
illa í þeim leik en engu að síður
sé ég bara ekki fyrir mér að Dan-
mörk eigi í vandræðum með lið
þar sem gæðamunurinn í nokkrum
stöðum er svo yfirgnæfandi mikill,
Danmörku í hag.“
Erfitt að meta íslenska liðið
Þegar viðtalið var tekið var óvíst
hvort Aron Pálmarsson myndi
spila með íslenska liðinu í kvöld
eftir höfuðhöggið sem hann fékk
gegn Tékklandi í síðustu viku.
Aron missti af leiknum gegn
Egyptalandi sem tryggði strákun-
um sæti í 16-liða úrslitum keppn-
innar.
„Ég vona að Aron spili með í
leiknum því ég tel að það sé betra
ef lið undirbýr sig að spila gegn
sterkasta mögulega liði andstæð-
ingsins,“ segir Nyegaard og bætir
við að það hafi verið erfitt að meta
íslenska liðið út frá frammistöðu
þess til þessa.
„Alexander Petersson er leik-
maður í hæsta gæðaflokki en
hann hefur átt erfitt í þessu móti.
Þá hefur Ásgeir [Örn Hallgríms-
son] komið inn og staðið sig vel.
Guðjón Valur [Sigurðsson] skor-
aði þrettán mörk gegn Egypta-
landi en ekkert gegn Tékklandi.
Svo átti [Björgvin Páll] Gústavs-
son skyndilega góðan leik gegn
Egyptalandi. Maður veltir fyrir
sér í hvaða stöðu liðið er.“
Væri stórslys að tapa
Nyegaard segir að staðan á danska
liðinu sé ágæt þó svo að hann
telji að það eigi enn mikið inni.
Frammistaða liðsins gegn Póllandi
hafi gefið það í skyn.
„Það er meira í vændum frá
danska liðinu ef allt gengur upp
í 60 mínútur. Pólland er ekki and-
stæðingur í hæsta gæðaflokki.
Liðið gerði 17 mistök í gær en Dan-
mörk 12. Þetta var því ekki topp-
leikur í gær, hvernig sem á það er
litið,“ segir hann.
„En vörnin hefur verið að þétt-
ast hjá Dönum og ég á erfitt að sjá
fyrir mér að Snorri muni valda
jafn miklum usla í danska liðinu og
hann gerði fyrir tveimur vikum.“
Það kæmi honum þó ekki á
óvart að Ísland myndi stíga upp
og spila góðan leik þrátt fyrir allt
sem á undan er gengið. „Ég hins
vegar býst við að Danir geri það
líka. Enda væri það stórslys fyrir
danskan handbolta að detta út á
þessu stigi mótsins. Miðað við
stöðuna á íslenska liðinu finnst
mér það góður kostur að mæta
Íslandi nú. Guðmundur og Aron
eru báðir klókir þjálfarar og afar
færir en Guðmundur hefur nú for-
skot á Aron því hann er með langt-
um betra lið í höndunum. Hvað
mig varðar er það bara svo ein-
falt.“
Danska liðið langtum betra
Bent Nyegaard er þess fullviss að Danmörk vinni Ísland í leik liðanna á morgun í 16-liða úrslitum á HM.
„Gott að fá Ísland í 16-liða úrslitum,“ segir einn helsti sérfræðingur Danmerkur um handbolta.
SIGURVISS Bent Nyegaard hefur ekki teljandi áhyggjur af leiknum í dag þar sem
danska liðið er miklu betra en það íslenska að hans sögn. FRÉTTABLAÐIÐ/EVA BJÖRK
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson í Katar
eirikur@frettabladid.is
HANDBOLTI Aroni Pálmarssyni, skyttu íslenska landsliðsins, leið betur í gær
eftir höggið sem hann fékk gegn Tékkum á fimmtudaginn. Hann var með
einkenni heilahristings og hvíldi gegn Egyptum, en Aron fékk meiri áreynslu
á æfingu í gær. „Það gekk mjög vel með hann í gær
[fyrradag],“ sagði Örnólfur Valdimarsson, læknir liðsins,
við Fréttablaðið í gær. „Það er ekki útilokað. Það er von,“
bætti hann við.
„Hann er allur að jafna sig, en þetta er bara tímaspurs-
mál. Við sjáum bara til í dag hvernig honum líður og
kannski prófum við hann aðeins. Hann fær líklega smá
áreynslu í dag.
Engin ákvörðun verður þó tekin um það hvort Aron
Pálmarsson spilar með íslenska landsliðinu gegn Dönum á
HM í handbolta fyrr en í dag. Allt er gert til að koma Aroni
í stand, en í gær var hann í nálastungu á andliti til að
koma honum í gang fyrir stórleikinn gegn Dönum í dag.
Ákvörðun tekin um Aron í dag
HANDBOLTI Patrekur Jóhannesson
og lærisveinar hans í Austurríki
voru svo gott sem flautaðir úr
keppni í gær þegar þeir töpuðu
gegn heimamönnum frá Katar,
29-27, í 16 liða úrslitum.
Þrátt fyrir að vera út af í 8 mín-
útur á móti 2 í fyrri hálfleik voru
Austurríkismenn engu að síður
marki yfir, 14-13. Sumir brott-
rekstrarnir voru algjör þvæla og
stóð Patreki ekki á sama.
Mikil spenna var í leiknum
undir lokin, en Austurríkismenn
reyndu hvað þeir gátu að elta
heimamenn sem fengu góða hjálp
frá króatíska dómaraparinu.
Patrekur sagði ekkert um
dómarana eftir leik. „Ég passaði
mig á því að segja ekkert við fjöl-
miðlamenn um dómgæsluna svo
ég verði ekki dæmdur í bann. En
ég neita því ekki að sumir dóm-
arnir voru undarlegir,“ sagði Pat-
rekur við íþróttadeild - tom
Sagði ekki orð
um dómarana
ERFITT Patrekur Jóhannesson átti varla
orð á hliðarlínunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
7
E
-5
7
B
C
1
7
7
E
-5
6
8
0
1
7
7
E
-5
5
4
4
1
7
7
E
-5
4
0
8
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K