Fréttablaðið - 26.01.2015, Blaðsíða 40
KYNNING − AUGLÝSINGRekstrarráðgjöf MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 20158
Heildrænt kerfi 7 venja til árangurs hjálpar einstaklingum,
fyrir tækjum og stofnunum að ná meiri árangri í lífi og starfi og
byggir á mest seldu stjórnunarbók allra tíma: 7 Habits of Highly
Effective People, eftir Stephen Covey.
María Ellingsen, leikkona og leikstjóri, er vottaður þjálfari
frá FranklinCovey í 7 Habits og 5 Choices. Hún er með margra
ára reynslu sem stjórnendaþjálfari og fyrirlesari og hefur unnið
með námsefni FranklinCovey síðan 2007. „7 venjur eru verk-
færi til að beisla hugmyndir og gera þær að raunveruleika. Þær
hafa breytt miklu fyrir mig sem listamann og hjálpað mér að ná
árangri og mér finnst mjög gaman að miðla þeim til annarra,“
segir María.
Í vinnusmiðju um 7 venjur lærir fólk aðferðir til að taka
frumkvæði, skilgreina gildi sín og hlutverk og móta sér stefnu.
Einnig að nota tímann og orkuna markvisst og búa til jafn-
vægi sem gerir það að verkum að það endurnýjar sig stöðugt
en brennur ekki út. „Þegar þessi grunnur er kominn bætast við
leiðir til bættrar samvinnu við aðra með því að læra skilnings-
ríka hlustun og endurgjöf. Með þetta veganesti verður fólk hæf-
ara til að ná árangri í starfi og ná fram mikilvægustu mark-
miðum fyrirtækis síns. Það bætist svo við að námsefnið er sett
fram á lifandi og skemmtilegan hátt, með myndböndum og ótal
verkefnum sem þátttakendur leysa einir sér eða saman.“
Elín María Björnsdóttir er Education-leiðtogi FranklinCovey
á EMEA-svæðinu og leiðbeinir skólastjórnendum við að virkja
börn og efla skólastarf með „The Leader in Me“ hugmynda-
fræði 7 Habits. Í starfi sínu ferðast hún um allan heim við að
þjálfa skólastjórnendur og innleiða venjurnar 7 í skólanámskrá.
Hún vinnur með nokkrum skólum hér á landi. „Það eru forrétt-
indi að vinna með jafn öflugum hópum að jafn metnaðarfull-
um og mikilvægum þáttum í okkar samfélagi,“ segir hún.
7 venjur til árangurs
Elín María Björnsdóttir, Education-leiðtogi FranklinCovey á EMEA-svæðinu,
og María Ellingsen, vottaður þjálfari frá FranklinCovey í 7 Habits og 5 Choices.
FranklinCovey er leiðandi al-
þjóðlegt þekkingarfyrirtæki sem
sérhæfir sig í árangri einstak-
linga, vinnustaða, og liðsheilda
með þjálfun, ráðgjöf og rann-
sóknum. Hlutverk fyrirtækis-
ins er að auka árangur fólks og
fyrirtækja um allan heim. „Sýn
okkar er að hafa afgerandi áhrif
á hvernig fólk um allan heim
lifir, vinnur og nær sínum mikil-
vægustu markmiðum,“ segir
Sif Sigfúsdóttir, viðskiptastjóri
FranklinCovey á Íslandi.
FranklinCovey er með þjónustu í 149 löndum og er skráð í Kauphöll-
ina í New York. „Námskeiðin okkar hafa hlotið fjölda alþjóðlegra viður-
kenninga, meðal annars frá Training Industry. Fleiri en tólf milljón-
ir manna hafa sótt 7 Habits-námskeiðin okkar síðastliðin tíu ár. Níutíu
prósent af Fortune100-fyrirtækjunum hafa verið viðskiptavinir Frank-
linCovey og 75 prósent af fyrirtækjum á Fortune500-listanum auk fjölda
opinberra skóla og stofnana. Þessar tölur tala sínu máli um gæði þeirrar
þjónustu sem við bjóðum upp á. Hér heima vinnum við með framsækn-
um íslenskum vinnustöðum, meðal annars í sjávarútvegi, fjármálastarf-
semi, framleiðslu, opinberri þjónustu, lyfjageiranum, flutningaþjón-
ustu, ferðaþjónustu, skólum og víðar,“ útskýrir Sif.
Hún bætir við að sérhæfing þeirra hjá FranklinCovey liggi á sjö
línum. „Það er forysta, framkvæmd, framleiðni, traust, sala, verkefna-
stjórnun og menntun.“ Sif útskýrir hvern þátt fyrir sig nánar: „Varðandi
forystuhlutann, þá þróum við árangursríka stjórnendur og leiðtoga sem
virkja fólk, ferli og framtíðarsýn til framúrskarandi árangurs. Við gerum
vinnustöðum kleift að hrinda í framkvæmd stefnu og snúa orðum í at-
hafnir. Á sviði framleiðni, þá leiðbeinum við fólki við að stjórna ákvörð-
unum sínum, athygli og orku til að uppskera í lífi og starfi. Við byggj-
um vinnustaðamenningu á grunni trausts, samstarfs og helgunar sem
leiðir af sér aukin afköst og minni kostnað. Við umbreytum sambandi
seljenda og kaupenda með kerfisbundinni nálgun og því hugarfari að
hjálpa viðskiptavinum að skara fram úr. Verkefnastjórnunin lýtur að
því að við virkjum framlag allra með hagnýtri nálgun við stjórnun fólks,
ferla og árangursríkra verkefna og að lokum er það svo menntunarþátt-
urinn en við aðstoðum skóla til bættrar frammistöðu með því að leysa
úr læðingi einstakt framlag allra nemenda og kennara. Vaxandi þáttur
í starfi okkar er að votta innri þjálfara íslenskra vinnustaða, sem sjá um
þjálfun starfsmanna og stuðning við árangur með lausnum Franklin-
Covey.“
Hafa afgerandi áhrif á
líf og starf einstaklinga
Sif Sigfúsdóttir, viðskiptastjóri FranklinCovey
á Íslandi.
Þjálfarar FranklinCovey eru með víðtæka reynslu úr ís-lensku atvinnulífi og hafa
náð einstökum árangri með við-
skiptavinum hér heima og erlend-
is. „Við erum þekktust fyrir vinnu
okkar með 7 Habits og 5 Choices
lausnirnar en vinna okkar með
innleiðingu stefnu, verkefnastjórn-
un, sölustjórnun og leiðtogaþjálf-
un er mjög vaxandi þáttur í starfi
okkar,“ segir Guðrún Högnadóttir,
framkvæmdastjóri og meðeigandi
FranklinCovey á Íslandi og Norður-
löndunum. „Okkur er annt um að
auka árangur viðskiptavina okkar
með gjöfulu langtímasamstarfi.“
Minni framleiðni hér á landi
Guðrún segir íslenskt viðskiptalíf
standa frammi fyrir stórum áskor-
unum því rannsóknir sýna að hér
á landi nái vinnustaðir minni ár-
angri en sambærilegir vinnustaðir
erlendis og starfsmenn vinni undir
miklu álagi og fjölbreyttri ábyrgð.
„Þegar horft er til framleiðni á
Norðurlöndunum kemur í ljós að Ís-
lendingar vinna mun lengri vinnu-
viku en til dæmis Norðmenn. Við
vinnum um 1.900 vinnustundir að
meðaltali á ári á meðan Norðmenn
vinna bara um 1.400 tíma á ári. Á
sama tíma ná Norðmenn hins vegar
að skapa meiri verðmæti en við.“
Betra skipulag og meiri agi
Ástæðuna f y rir minni fram-
leiðni telur Guðrún vera eitthvað
sem markvisst sé hægt að breyta.
„Þegar horft er á þessar ólíku tölur
um framleiðni eru það oftar þætt-
ir sem snúa að skipulagi, aga og
forgangsverkefnum starfsmanna
sem munur er á frekar en á þátt-
um sem tengjast stærð markaðar-
ins eða legu landsins. Við aðstoð-
um vinnustaði við að auka fram-
leiðni og ánægju starfmanna með
ferli sem heitir 5 Choices. Vinnu-
stofan sameinar klassískar kenn-
ingar um árangursstjórnun og nýj-
ustu rannsóknir á sviði taugavís-
inda sem hjálpa fólki að stjórna
betur ákvörðunum sínum, tíma,
athygli og orku. Þannig nær það að
einbeita sér að mikilvægustu verk-
efnunum, halda einbeitingu og
hámarka afköst og árangur í bæði
einkalífi og starfi. Bókin kom út um
áramótin og fór beint í fjórða sæti
Wall Street Journal-metsölulistans.
Meiri tími í það sem skiptir máli
Árangur er alltaf mældur fyrir
og eftir þátttöku á vinnustof-
um FranklinCovey. „Rannsókn-
ir okkar á íslenskum fyrirtækjum
hafa meðal annars leitt í ljós að
eftir vinnustofur nær fólk að verja
um þrjátíu prósent meiri tíma í þau
verkefni sem skipta mestu máli og
skila árangri. Þá er unnið með ag-
aðri hætti í stað þess að bregðast
stöðugt við öllum áreitum og reyna
að hlaupa hraðar. Við kennum
fólki hvernig það getur náð betri
tökum á sínum veruleika, skipu-
lagt sig betur og unnið með beitt-
ari og skemmtilegri hætti og þann-
ig náð sínum markmiðum, og haft
nægan tíma og orku í önnur lífsins
verkefni.“
Þegar horft er til þess hvernig
fyrirtæki geti haldið samkeppnis-
forskoti segir Guðrún það sem að-
greini fyrirtækin ekki vera hvað
þau geri heldur hvernig þau geri
hlutina. „Það skiptir mestu máli
hvernig menningu starfsfólkið
skapar. Þar komum við til sögu,
FranklinCovey vinnur að því að
umbreyta menningu vinnustaða
þannig að hún tryggi stöðugan
árangur.“
Aukinn árangur íslensks atvinnulífs
„Við förum á fætur til að aðstoða fólk og fyrirtæki við að bæta frammistöðu með skemmtilegu og áhrifaríku umbreytingarferli.“
Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri og meðeigandi FranklinCovey á Íslandi og
Norðurlöndunum. MYNDIR/VILHELM
FARSÆL INNLEIÐING STEFNU MEÐ 4DX
„Við hjá Expectus höfum unnið með ýmis
verkfæri til að aðstoða fyrirtæki og stofnanir
við stefnumótun og innleiðingu stefnu,“ segir
Ragnar Guðgeirsson ráðgjafi, sem er einn af
vottuðum þjálfurum félagsins í 4DX-aðferða-
fræði FranklinCovey. „Það sem reynst hefur
erfiðast er að ná að tryggja þátttöku starfs-
fólks í innleiðingu stefnunnar. Stefnumótun
er fag sem kennt er í skólum en þjálfun í inn-
leiðingu stefnu hefur vantað í skólakerfið.“
4 Disciplines of Execution byggir á markvissri
þjálfun ásamt sex mánaða stuðningsferli þar
sem stjórnendur og starfsfólk taka aðferða-
fræðina og flétta hana inn í starfsemi vinnu-
staðarins. Í grundvallaratriðum gengur inn-
leiðing stefnu út á þrenns konar breytingar:
• Pennastrik (aðgerðir sem kalla á ákvarðanir
eða verkefni sem unnin eru einu sinni).
• Aðlögun á daglegum rekstri (það sem við
höfum verið að gera og mæla og ætlum
okkur að halda áfram með á sömu braut eða
bæta).
• Hegðunarbreytingar (það sem kallar á
að við förum út fyrir þægindahringinn og
breytum okkar daglegu hegðun).
„4Dx er aðferðin sem snýr að síðasta þætt-
inum af þessum þremur. Með öðrum orðum
til að ná árangri sem við höfum aldrei áður
náð, þurfum við að fara að gera hluti sem
við höfum aldrei gert áður. Aðferðin gengur
jafnframt út á að taka einn þátt stefnunnar
fyrir í einu og ná settu marki, síðan er næsti
þáttur tekinn fyrir og innleiðingu haldið
áfram. Með þessu eru stjórnendur þjálfaðir í
að virkja starfsfólkið með sér til að ná árangri
sem hópur.“
Ragnar Guðgeirsson er einn af vottuðum þjálf-
urum FranklinCovey í 4Dx-aðferðafræðinni.
Franklin Covey, Laugavegi 178, 105 Reykjavík. sími 775-7077.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
7
D
-D
2
6
C
1
7
7
D
-D
1
3
0
1
7
7
D
-C
F
F
4
1
7
7
D
-C
E
B
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K