Fréttablaðið - 16.07.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 16.07.2015, Blaðsíða 4
16. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 Jóhann, þurfið þið að lúta í gras fyrir veðrinu? „Já, hérna er allt við sama heygarðs- hornið.“ Heyskapur er enn ekki hafinn hjá Jóhanni G. Jóhannssyni, kúabónda á Austurlandi. Gríðar- legar rigningar hafa staðið í vegi fyrir slætti. Heyskapur fer hægt af stað um land allt. KJARAMÁL Hjúkrunarfræðingar felldu í gær kjarasamning með 88,4 prósentum greiddra atkvæða en kjörsókn var 84,8 prósent. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra segir niðurstöðuna ekki óvænta. „Miðað við það hvernig umræðan hefur þróast frá því að samningurinn var gerður. Það var enginn talsmaður fyrir því að samningurinn væri samþykktur, ekki einu sinni innan félagsins eða af hálfu þeirra sem undirrituðu samninginn sjálfan,“ segir Bjarni. Ólafur G. Skúlason, formað- ur Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga, hafnar því að enginn hafi talað fyrir samningnum hjá félaginu. „Með fullri virðingu fyrir fjármála- og efnahagsráð- herra þá var hann ekki staddur á þessum 15 kynningarfundum um þennan samning þar sem við fórum yfir tækifærin sem í honum fólust sem og bókanir sem honum fylgja,“ segir Ólafur. Tekin hafi verið ákvörðun um að reyna að ná eins góðum samningi og hægt væri og leggja hann í dóm félagsmanna. Ólafur telur nú réttast að setj- ast að samningaborðinu að nýju. Bjarni er ósammála því og segir málið mjög einfalt. Lögin mæli fyrir um að ef ekki takist samn- ingar skuli gerðardómur kveða upp úr um kjör hjúkrunarfræð- inga. „Nú er ljóst að ekki hafa tek- ist samningar og þá er það alveg skýrt í mínum huga að þá á gerðar- dómur að taka til starfa og starfa í samræmi við ákvæðið.“ Ólafur segir að Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga ásamt lög- manni þess túlki lögin með þeim hætti að ekki sé hægt að skipa gerðardóm. Samningur hafi verið undirritaður eins og lögin kveða á um, þótt hann hafi síðan verið felldur. Félagið muni höfða mál til að fá skipun dómsins hnekkt. Bjarni telur þessa lagatúlkun „loftfimleika“. „Það á ekki að dylj- ast neinum sem kynnir sér frum- varpið sem var lagt fyrir þingið, umræður um frumvarpið og þann grundvöll, sem er undir þessum lögum, hver þingviljinn var í þessu máli og annað eru bara einhverjir útúrsnúningar,“ segir Bjarni. Alls hafa 311 starfsmenn Land- spítalans sagt upp störfum undan- farnar vikur, þar af yfir 250 hjúkr- unarfræðingar. Ólafur segist hafa miklar áhyggjur af því að fleiri uppsagnir muni fylgja í kjölfarið standi skip- un gerðardóms, sem gæti komist að lakari niðurstöðu fyrir hjúkr- unarfræðinga. Kristján Þór Júlíusson heilbrigð- isráðherra segir framhaldið óljóst. „Við bíðum bara í sömu óvissunni áfram þar til að niðurstaða fæst fyrir gerðardómi. Í millitíðinni hef ég átt viðræður og fundi með forstjóra Landspítalans til þess að meta hvernig við því verði brugð- ist ef þessar uppsagnir standa og ekki næst viðunandi niðurstaða í gerðardómi.“ Lilja Stefánsdóttir, fram- kvæmdastjóri skurðlækningasviðs Landspítalans og staðgengill for- stjóra, segir að engin aðgerðaáætl- un sé farin af stað til að bregðast við uppsögnum. Verði þær ekki dregnar til baka muni það hafa ófyrirséðar afleið- ingar fyrir starfsemi spítalans. „Spítalinn, í þeirri mynd sem hann er rekinn núna samkvæmt því skipulagi sem nú er, gengur ekki án þess að hafa alla þessa starfsmenn í vinnu. Þannig að frá okkar bæjardyrum séð sem hér vinnum og stýrum þarf að finna lausn á deilunni umfram allt,“ segir Lilja og bætir við: „Spítal- inn má ekki við öðrum vetri þar sem allt verður undirlagt í vinnu- deilum.“ fanney@frettabladid.is Hjúkrunarfræðingar í mál við ríkið Mikill meirihluti hjúkrunarfræðinga felldi kjarasamning við ríkið. Fjármálaráðherra og formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga takast á um lagatúlkun á hvort gerðardómur skuli kveða upp úr um kjörin. Landspítalinn þarf að bregðast við standi uppsagnir 311 starfsmanna. SEGJA UPP Hjúkrunarfræðingar ætla í hart og munu stefna ríkinu á næstunni til að fá skipun gerðardóms hnekkt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHLEM ÓLAFUR G. SKÚLASON BJARNI BENEDIKTSSON Talsmenn stjórnar- andstöðunnar eru uggandi yfir þeirri stöðu sem uppi er eftir að hjúkr- unarfræðingar höfnuðu samningi sínum við ríkið. „Eins og við vöruðum við þá gat lagasetning á verkföll aldrei leyst þetta mál og nú sitjum við eftir með vandann óleystan. Ríkisstjórn sem taldi það eðlilegt að bæta einum hópi úr samfélaginu fyrir gengisfall krónunnar verður að svara öðrum heilbrigðisstéttum því af hverju þær eiga ekki líka að fá bætur fyrir krónuna, og svo sem öðrum launamönnum líka,“ segir Árni Páll Árnason, formaður Sam- fylkingarinnar. Katrín Jakobsdóttir, for- maður Vinstri grænna, tekur í sama streng. „Það heyrir upp á stjórnvöld að grípa til aðgerða til að verja okkar opinberu heilbrigðisþjónustu. Þó að lög á verkfallsaðgerðir hafi staðist fyrir rétti er ég þeirrar skoðunar að þetta hafi eigi að síður verið óskynsamleg og röng lagasetning fyrir stöðuna á vinnumarkaði í heild, en ekki síst fyrir stöðu velferðarkerfisins. Ég vona að sú verði ekki raunin en það eru þær áhyggjur sem ég held að flestir hafi haft þegar þessi lagasetning var rædd, að hún kynni að hafa mjög alvarlegar langtímaafleið- ingar.“ Lagasetningin leysti ekki vandann KATRÍN JAKOBSDÓTTIR KJARAMÁL Bandalag háskólamanna (BHM) hyggst áfrýja dómi Héraðs- dóms Reykjavíkur, um að að rík- inu hafi verið heimilt að setja lög á verkfall BHM, til Hæstaréttar Íslands. BHM hefur sótt um flýti- meðferð vegna málsins. Þórunn Sveinbjarnardóttir, for- maður BHM, segir að von sé á svari við beiðni um flýtimeðferð í dag. Verði fallist á flýtimeðferð vonist hún til þess að málið verði þingfest fyrir Hæstarétti á morgun. Ástráður Haraldsson, lögmað- ur BHM, dregur í efa að dómur- inn standist fyllilega skoðun. „Mér sýnist að með dómnum sé leyst úr hlutum að því er varðar það sem íslenska ríkið taldi nauðsynlegt, að setja bann á verkföll allra félag- anna. Mér finnst niðurstaða að því er varðar það ákaflega sérkenni- leg og ósannfærandi og ekki stand- ast mjög vel lögfræðilega skoðun,“ segir Ástráður. Hins vegar hafi mátt búast við því að málareksturinn yrði erfið- ur. „Það kemur í sjálfu sér ekkert á óvart og það er ekkert nýtt að við þessar aðstæður eigi stéttar- félögin á brattann að sækja og það snýst ekki nema að takmörkuðu leyti um lögfræði. Það snýst nátt- úrulega um það að það þarf ákaf- lega mikið til að koma að dóm- stólar haggi við því hvort að lög standist,“ segir Ástráður. - ih Formaður BHM segir að málið gæti verið þingfest í Hæstarétti á morgun: BHM áfrýjar til Hæstaréttar Í HÉRÐASDÓMI Þórunn Svein- bjarnardóttir, formaður BHM, og Páll Halldórs- son, formaður samninganefndar BHM, ganga út úr réttarsal í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR KJARAMÁL Meirihluti félagsmanna innan Samiðnar samþykkti kjarasamning við Samtök atvinnulífsins í dag. Félag járn- iðnaðarmanna á Ísafirði hafnaði þó samn- ingnum auk þess sem samningur Samiðnar við Meistarafélag pípulagningamanna var felldur. Hjá Rafiðnaðarsambandinu felldu þrjú félög samninginn en það voru Rafiðnaðar- félög Suðurnesja og Norðurlands auk Félags rafiðnaðarmanna á Suðurlandi. Tæplega 58 prósent félagsmanna í félagi vélstjóra og málmtæknimanna (VM) felldu kjarasamning félagsins við SA. Guðmundur Ragnarsson, formaður VM, segir niðurstöðuna afgerandi. „Þessi launaþróunartrygging fór mjög illa í menn og menn vildu bara fá meiri hækkanir í grunninn. Síðan er náttúrulega hvernig hlutirnir þróast út samninginn og hvernig dregst saman á milli lægstu launa í landinu og okkar félagsmanna,“ segir hann. Guðmundur segir verkfallsaðgerðir und- irliggjandi þrátt fyrir að þeim hafi verið aflýst við undirritun kjarasamninga þann 22. júní. „Það stendur eftir 15. september ótíma- bundin vinnustöðvun.“ - hks, srs Formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna útilokar ekki að endurvekja verkfallsaðgerðir: Félagsmenn VM felldu samninginn við SA FORMAÐURINN Guðmundur segir að félagsmenn hafi ekki sætt sig við samninginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SPURNING DAGSINS 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 5 -2 5 3 C 1 7 5 5 -2 4 0 0 1 7 5 5 -2 2 C 4 1 7 5 5 -2 1 8 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.