Fréttablaðið - 16.07.2015, Blaðsíða 22
16. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 22TÍMAMÓT
Dóttir mín, systir okkar og mágkona,
INGIBJÖRG SVAVA GUÐJÓNSDÓTTIR
lést á Landspítalanum 3. júlí 2015. Útför
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug.
Þórdís Ágústsdóttir
Sigrún Tryggvadóttir Kristján H. Sigurgeirsson
Ágúst Guðjónsson Anna Guðjónsson
Örn Þór Guðjónsson
Svandís Guðjónsdóttir Skúli Skúlason
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARTHA MARÍA SANDHOLT
Hátúni 8, Reykjavík,
lést á Borgarspítalanum aðfaranótt
10. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 17. júlí kl. 13.00. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á KFUM og KFUK á
Íslandi.
Jenny Irene Sörheller Haraldur Hjartarson
Stefanía Sörheller Einar Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR ÞORSTEINN
NIKULÁSSON
lést á heimili sínu 10. júlí. Útför hans fer fram
frá Lindakirkju, föstudaginn 17. júlí, kl. 15.00.
Ingibjörg Þórdís Sigurðardóttir
Steinunn Helga Sigurðardóttir Gunnar Páll Gunnarsson
Sigrún Sigurðardóttir Jón Þorgeir Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
„Þetta þýðir bara að það séu fimm
ár í fimmtugt, og það eru sko tíma-
mót í lagi,“ segir Sigríður Lund Her-
mannsdóttir, sem flestir kannast við
sem Siggu Lund fjölmiðlakonu.
Afmælisbarn dagsins hefur sannar-
lega vent kvæði sínu í kross og titl ast
nú sem sauðfjárbóndi, en flestir lands-
menn kannast við hana úr útvarpinu,
svo sem þegar hún stjórnaði morgun-
þættinum Súper á FM957 við gríðar-
góðan orðstír.
Nú hefur Sigga sest að á bænum
Vaðbrekku í Jökuldal á Austurlandi,
og kæmist að öllum líkindum ekki
lengra frá Reykjavík. Þar dekrar
hún við heimalninga og mokar skít
svo eitthvað sé nefnt. „Þetta hefur
verið mikil u-beygja sem ég hef
tekið undanfarið árið. Ég hef búið í
höfuðborginni alla mína hunds- og
kattartíð, fyrir utan þegar ég var
barn í Vestmannaeyjum,“ útskýrir
hún.
Sigga segir hlutskipti sitt nú að
öllu leyti ólíkt því sem hún átti að
venjast fyrir um ári. „Þetta er sann-
arlega áskorun fyrir mig, og ég
viðurkenni fúslega að ég hef alveg
hugsað með mér eftir að hafa lokið
við að moka skítinn úr fjárhúsun-
um, hvað í ósköpunum ég sé að gera
hérna, og hve mikið óskaplega væri
fínt að hoppa inn í stúdíó og bjóða
áheyrendum góðan dag í staðinn,“
segir Sigga og rekur upp hláturroku
eins og henni einni er lagið.
Segist Sigga þó býsna ánægð með
stöðuna og finna sig vel í náttúrunni,
enda mikið náttúrubarn. „Þetta er
svo hollt. Maður fer að spá allt öðru-
vísi í hlutina og hvaðan þeir koma.
Ég missti næstum andlitið þegar ég
áttaði mig á að orðið tað þýðir hrein-
lega kúkur, og við kaupum okkur
ægilega fínt taðreykt hangikjöt úr
Melabúðinni án þess að láta hugann
reika að einhverjum kúk,“ bendir
Sigga réttilega á og skellir upp úr.
„Ég er samt ekki búin að grafa
mig niður hérna úti í buskanum fyrir
austan, ég gæti alveg hugsað mér að
eiga afturkvæmt í fjölmiðlabransann
og verð líklega svolítið með annan
fótinn í Reykjavík,“ bendir Sigga á
og bætir við að hún eigi svo ljómandi
fínan mann að svoleiðis bardús ætti
alveg að geta gengið upp.
Einhverra hluta vegna hefur Sigga
verið lítið í að halda upp á afmælið
sitt í gegnum tíðina, þótt hún elski að
fá pakka og kveðjurnar líkt og mörg
afmælisbörn. Hún bregður lítið út af
vananum í þetta skiptið, en í tilefni
dagsins segist Sigga ekki hafa planað
nein ósköp. „Ég reikna með að bregða
mér af bæ í dag og kíkja í sushi á nýjum
veitingastað á Seyðisfirði,“ segir Sigga
og kveðst nokkuð sátt við að fá frí frá
lambakjötinu. gudrun@frettabladid.is
Pollróleg næstu fi mm ár
Flestir kannast við ljúfa rödd Sigríðar Lund Hermannsdóttur útvarpskonu, sem nú er fj ár-
bóndi austur á landi. Hún fagnar fj örutíu og fi mm ára afmælinu í dag með sushi-ferð.
Í FÍNUM MÁLUM Afmælisbarn dagsins ætlar að bregða sér af bæ og smakka sushi á Seyðisfirði og skála jafnvel í hvítvíni. MYND/AÐSEND
SIGGA LUND Fjölmiðlakona og fjárbóndi. MYND/AÐSEND
Þetta hefur verið mikil u-beygja
sem ég hef tekið undanfarið árið. Ég
hef búið í höfuðborginni alla mína
hunds- og kattartíð, fyrir utan þegar
ég var barn í Vestmannaeyjum
MERKISATBURÐIR
1627 Sjóræningjar frá Alsír
stíga á land í Vestmannaeyj-
um þennan dag. Koma þeir
á þremur skipum og drepa í
kjölfarið 34 eyjaskeggja og
taka með sér 242 gísla.
1661 Fyrstu peningaseðlar
í Evrópu líta dagsins ljós, en
þeir eru gefnir út af Stokk-
hólmsbanka.
1917 Flutningaskipið Vesta
sekkur eftir að tundurskeyti
frá þýskum kafbáti hæfir það
á ferð þess til Englands. Sekk-
ur skipið á aðeins einni mín-
útu og farast fimm manns, en
tuttugu er bjargað. Þeir koma
á land í Færeyjum.
1930 Haile Selassie, skrifar
undir allra fyrstu stjórnarskrá
Eþíópíu.
1951 Skáldsagan Catcher in the Rye eftir J. D. Salinger kemur út
í Bandaríkjunum þennan dag, en hana þekkja Íslendingar undir
nafninu Bjargvætturinn í grasinu, í þýðingu Flosa Ólafssonar.
1955 Dwight D. Eisenhower, for-
seti Bandaríkjanna gerir stutt
stopp á Íslandi þennan dag, en
hann er á leið frá Bandaríkjunum
til Evrópu.
1991 Jarðskjálfti ríður yfir Filipps-
eyjar með þeim afleiðingum að
rúmlega sextán hundruð manns
láta lífið.
1992 Richard von Weizsäcker, for-
seti Sambandslýðveldisins Þýska-
lands kemur í tveggja daga opin-
bera heimsókn til Íslands.
1994 Borgarastríði í Rúanda lýkur.
1999 Flugvél ferst á leið sinni
yfir Atlantshafið þar sem John F.
Kenn edy yngri, Carolyn Bessette
Kennedy, eiginkona hans, og syst-
ur hennar, eru farþegar. Allir um
borð láta lífið.
2005 Bókin Harry Potter og blend-
ingsprinsinn kemur út og allt verð-
ur vitlaust, enda gríðarlega vinsæl-
ar bókmenntir.
2009 Kosið er um aðildarumsókn
að Evrópusambandinu þennan dag
og samþykkt að láta slag standa.
Litlu munar, en 33 þingmenn sam-
þykkja á meðan 28 hafna, tveir sitja hjá. Klofna allir flokkar á
þingi í málinu, nema Samfylkingin.
Ljóðskáldið og dægurlagahöfundurinn
Kristján frá Djúpalæk fæddist þennan dag
árið 1916, að Djúpalæk í Skeggjastaða-
hreppi. Var hann nemandi við Eiðaskóla,
og sinnti svo almennum sveitastörfum
samhliða.
Um tvítugt hóf hann svo nám við
Menntaskólann á Akureyri, en staldraði
fremur stutt við og lauk rétt fyrsta árinu.
Hafði hann þá kynnst heimasætunni frá
Staðartungu í Hörgárdal meðan hann var
í Eiðaskóla og varð þar yfir sig ástfanginn.
Úr varð að þau giftu sig og bjuggu saman
allt þar til hann lést.
Hjónin bjuggu til að byrja með í Staðar-
tungu og lögðu fyrir sig búskap, en gáfust
fljótt upp á slíku og fluttu til Akureyrar.
Vann Kristján verksmiðjuvinnu ýmiss
konar, en þótti hún heldur leiðinleg.
Þrátt fyrir vinnuleiðindin blómstraði
sköpunargáfan og samdi hann mikið af
ódauðlegum perlum á meðan hann stóð
sína plikt í verksmiðjunum.
Árið 1949 fluttu þau hjón til Hvera-
gerðis. Þá var Kristján orðinn þekktur
fyrir hæfileika sína. Hann lifði þó ekki
á listinni og var barnaskólakennari í
Hveragerði og í Þorlákshöfn. 1961 sneri
hann svo aftur í heimahagana og bjó á
Akureyri til dauðadags, 15. apríl 1994.
ÞETTA GERÐIST 16. JÚLÍ 1916
Íslenskt ljóðskáld kemur í heiminn
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
6
-1
7
2
C
1
7
5
6
-1
5
F
0
1
7
5
6
-1
4
B
4
1
7
5
6
-1
3
7
8
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K