Fréttablaðið - 16.07.2015, Page 15
FIMMTUDAGUR 16. júlí 2015 | SKOÐUN | 15
Grikkir gengu í ESB 1981. Land-
ið var þá fátækt og að ýmsu leyti
frumstætt. Aþenu svipaði þá
að ýmsu leyti frekar til sumra
Afríkuborga en Evrópuborga.
Aðeins sjö árum fyrr, 1974,
höfðu Grikkir hrundið af hönd-
um sér einræðisstjórn. Herfor-
ingjarnir sem höfðu rænt völd-
um í landinu 1967 sátu sumir
enn bak við lás og slá. Grikkir
kunna að taka til hjá sér þegar
mikið liggur við.
Stakkaskipti
Höfuðrök þeirra sem kusu aðild
Grikkja að ESB voru þau að með
aðild gæti Grikkland hraðað för
sinni inn í meginstraum lýð-
ræðis, hagsældar og velferðar
að evrópskum sið og upprætt
ýmsar landlægar meinsemdir
með aðstoð að utan. Það tókst
bærilega í ýmsum greinum.
Grikkland tók stakkaskiptum.
Kaupmáttur þjóðartekna á mann
í Grikklandi 1990 nam rösk-
lega þrem fjórðu af kaupmætti
þjóðartekna á mann í Finnlandi
til viðmiðunar og hlutfallið var
óbreytt 2009. Grikkir héldu
m.ö.o. sama dampi og Finnar í
efnahagslegu tilliti 1990-2009.
Hvorugu landinu varð sýnilega
meint af evrunni sem Finnar
tóku upp 1999 og Grikkir 2001.
Kannast nokkur við þetta?
Ýmislegt vantaði þó á að Grikkj-
um gengi sem skyldi. Grikkir
stóðu ólíkt Finnum á veikum
og vanræktum grunni. Alex-
is Tsipras, forsætisráðherra
Grikklands, lýsti vandanum vel
í ræðu sinni í Evrópuþinginu á
dögunum þegar hann sagði:
„Ég er ekki einn þeirra stjórn-
málamanna sem kenna „vondum
útlendingum“ um ófarir lands
míns. Grikkland rambar á barmi
greiðsluþrots þar eð fyrri ríkis-
stjórnir landsins gerðu landið að
rentusóknarríki árum saman,
muldu undir spillingu, umbáru
og ýttu undir náið samneyti sér-
hagsmuna í stjórnmálum og við-
skiptum og létu umfangsmikil
skattsvik óáreitt.“
Land sem svo var ástatt
fyrir var ekki líklegt til að
fara vel með allt það lánsfé
sem streymdi þangað inn að
utan árin fram að 2008 þegar
efnahagslíf Bandaríkjanna og
margra Evrópulanda fór út á
yztu nöf vegna óráðsíu í banka-
málum.
Samábyrgð ESB
Fráleitt væri að halda því fram
að Grikkir beri enga ábyrgð á
óförum sínum. Grískir kjós-
endur kusu stjórnmálamenn og
flokka sem keyrðu Grikkland
nánast í þrot. Spillingin i stjórn-
málum og viðskiptum teygir
anga sína um allt þjóðlífið.
Ábyrgðin liggur þó víðar.
Þjóðverjum, Frökkum og öðrum
forustuþjóðum ESB bar að
bregðast við óskum grískra
kjósenda um hraðferð inn í meg-
instraum evrópskra stjórnmála
með því að veita grískum stjórn-
völdum aðhald. Allir máttu vita
að ríkisbókhald Grikkja var ekki
rétt. Gríski hagstofustjórinn á
samt yfir höfði sér fangelsis-
dóm fyrir að hafa leiðrétt bók-
haldið til samræmis við grísk
og evrópsk lög. Allir vissu um
forréttindadekrið, spillinguna
og skattsvikin. ESB hefði með
lagni átt að beina Grikklandi inn
á rétta braut en gerði það ekki.
Þjóðverjar hafa það þó sér til
málsbóta að átta árum eftir inn-
göngu Grikklands í ESB hrundi
Berlínarmúrinn og ESB stóð þá
frammi fyrir inngöngu Austur-
Evrópuríkjanna í ESB. Það var
brýnt verkefni. En ESB á að geta
haft fleiri bolta en einn á lofti í
einu. Þarna brást Þjóðverjum og
Frökkum bogalistin. Við bætt-
ist að ESB sá ekkert athuga-
vert við ótæpilegar lánveiting-
ar þýzkra og franskra banka
til Grikklands eins og enginn
væri morgundagurinn. ESB
svaf á verðinum eins og reyndar
Bandaríkjastjórn gerði líka.
Alvarlegasta skyssa Þjóðverja
var þó sú að þýzka stjórnin tók
forustu fyrir þríeyki ESB, AGS
og Seðlabanka Evrópu í samn-
ingum við Grikkland um lausn
á skuldavanda landsins og beitti
mikilli hörku. AGS varaði við
afleiðingum of mikils niður-
skurðar í ríkisfjármálum úr því
að ekki var hægt að bregðast við
niðurskurðinum með vaxtalækk-
un til mótvægis þar eð Grikk-
land er evruland, en Þjóðverjar
féllust ekki á röksemdir sjóðs-
ins. Við bættist að sjóðurinn
reiknaði skakkt í byrjun, hann
vanmat afleiðingar niðurskurð-
arins og baðst forláts á mistök-
unum, en þýzka ríkisstjórnin
situr við sinn keip og hefur enga
slíka auðmýkt sýnt enn sem
komið er.
Þýzka ríkisstjórnin ætti í ljósi
sögunnar að skilja öðrum betur
að á enga þjóð má leggja þyngri
byrðar en hún getur borið. Þýzk-
um stjórnmálamönnum fer ekki
vel að vanda um við Grikki með
því að hamra á að þeir verði
hvað sem það kostar að standa
full skil á skuldum ríkisins svo
að ríkisstjórnir Grikklands í
framtíðinni gangi ekki á lagið.
Hitt skiptir einnig máli að þýzka
ríkisstjórnin átti frumkvæði
að uppgjöri við þýzka banka
og aðra vegna skulda Grikk-
lands til að leysa þá úr snörunni
með mun hóflegri klippingu en
hefði þurft eins og ég lýsti hér á
þessum stað 2. júlí sl. Klippingin
var rausnarleg, rétt er það, en
hún dugði samt ekki til eins og
AGS hefur nú viðurkennt. Þýzka
ríkisstjórnin hefði mátt vanda
einnig um við þýzku bankana
svo þeir gangi ekki á lagið.
Nú liggur loksins fyrir samn-
ingur um að halda Grikkjum
innan ESB og evrusamstarfsins
eins og þeir kjósa helzt sjálfir.
Það spillir áliti ESB og Þýzka-
lands að svo mjóu hafi munað
að málið leystist ekki í tæka tíð.
Það er eins og söguskynið hafi
brostið og dýrmætar lexíur for-
tíðarinnar hafi gleymzt líkt og
gerðist í Bandaríkjunum eftir
1990. ESB þarf einnig að taka
sér tak.
Grikkland, Þýzkaland, ESB
Í DAG
Þorvaldur
Gylfason
hagfræðiprófessor
Ábyrgðin liggur
þó víðar. Þjóð-
verjum, Frökkum og öðrum
forustuþjóðum ESB bar að
bregðast við óskum grískra
kjósenda um hraðferð inn
í meginstraum evrópskra
stjórnmála með því að
veita grískum stjórnvöldum
aðhald.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
www.renault.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
70
0
36
*M
ið
að
v
ið
u
p
p
g
ef
na
r
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
d
a
um
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
b
lö
nd
uð
um
a
ks
tr
i
RENAULT MASTER MINI BUS
16/17 MANNA – DÍSIL, BEINSKIPTUR
VERÐ: 7.580.000 KR. TIL HÓPFERÐALEYFISHAFA
Eyðsla 8,1 l/100 km*
EIGUM RENAULT 16/17 MANNA
TIL AFGREIÐSLU STRAX
Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi . Sendu greinina þína á
greinar@visir.is og við komum henni á framfæri hið snarasta.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
4
-9
6
0
C
1
7
5
4
-9
4
D
0
1
7
5
4
-9
3
9
4
1
7
5
4
-9
2
5
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K