Fréttablaðið - 16.07.2015, Síða 42

Fréttablaðið - 16.07.2015, Síða 42
16. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 30 Teiknimyndin Minions, eða Skósvein- arnir eins og hún kallast á okkar ylhýra, fékk gríðarlega góðar viðtökur í kvikmyndahúsum vestanhafs um frumsýningarhelgina og sópaði inn rúmum hundrað og fimmtán milljónum Bandaríkjadala. Þar með slær hún út, Despicable Me, þar sem Minions komu fyrst fram á hvíta tjaldinu. Sú mynd átti miklum vinsældum að fagna, en hún halaði inn rúmar fimmtíu og sex milljónir dala. Skósveinar slá Aulann út BÍÓFRÉTTIRAFMÆLISBARN DAGSINS Ant-Man 3D Hasar- og Sci-Fi mynd Helstu leikarar: Paul Rudd, Michael Douglas og Corey Stoll. Frumsýnd 16. júlí Paper Towns Rómantísk gamanmynd Helstu leikarar: Cara Delevingne, Halston Sage, Nat Wolff Frumsýnd 22. júlí André Rieu á tónleikum í Maastricht 2015 Söngur og dans André nýtur stuðnings Johann Strauss Orchestra. Að auki koma við sögu frægir tenórar. FRUMSÝNINGAR 8/10 73% 7.3/10 Í ár eru liðin tuttugu ár frá því að kvikmyndin Batman Forever leit dagsins ljós. Leikstjóri myndar- innar er Joel Schumacher, en hann leikstýrði svo Batman & Robin sem kom út árið 1997, eða tveimur árum á eftir Batman Forever. Val Kilmer tók að sér hlutverk Leður- blökumannsins, en hann fetaði þar í fótspor Lewis G. Wilson, Roberts Lowrey, Adams West og Michaels Keaton. Þá leika þau Nichole Kidman, Jim Carrey, Drew Barrimore, Tommy Lee Jones, Chris O’Donn- ell og Michael Gough stórar rullur í myndinni. Í tilefni tvítugsafmælisins er kjörið að grípa í nokkra mola um myndina og það sem gerðist að tjaldabaki. Tuttugu ára afmæli Batman Forever Leðurblökumaðurinn barðist við ófétin Two Face og The Riddler í myndinni, en innan leikarahópsins logaði allt í ósætti og veseni. BATMAN, JÁ TAKK! Þegar Joel Schumacher var valinn til að leikstýra myndinni vildi Michael Keaton ekki halda áfram sem Batman. Hann valdi því Val Kilmer, sem greip gæsina strax og samþykkti að leika í myndinni áður en hann las handritið. SKELFILEGUR BÚNINGUR Kilmer kvartaði mikið undan búningn- um og sagði nær ómögulegt að heyra nokkuð í honum og alveg útilokað að bregða sér á kló- settið. Hann sagði jafnframt að það hefði farið í skapið á sér. Kannski það útskýri stemninguna á settinu samkvæmt Schumacher. UPPFÆRÐUR DOKTOR Nicole Kidman fór með hlutverk hinnar töfrandi og eiturkláru Dr. Chase Meridian, en hún fetaði þar í fótspor Rene Russo sem fram til þessa hafði leikið hana. Þótti Russo orðin of gömul fyrir hlutverkið, og var því skipt út. ALVÖRU ROKK Írsku ofurtöffararnir í U2 voru beðnir um að birtast í mynd- inni þar sem þeir myndu flytja lag í einu atriðinu. Þeir bættu um betur og sömdu titillag myndarinnar, ‘Hold Me, Thrill Me, Kiss Me, Kill Me’. Náði lagið gríðarlegum vinsældum og nældi sér til að mynda í fyrsta sæti Billboard Album Rock Tracks. Bono, söngvari sveitarinnar, lýsti laginu á þann hátt að það endurspeglaði hvað virkilega þýddi að vera í rokkhljómsveit. HELVÍITIÐ HANN CARREY Tommy Lee Jones samþykkti að leika skúrkinn Two Face, þar sem sonur hans, þá ellefu ára gamall, hafði sérstakt dálæti á þeim karakter. Hann hefur líklega bölvað honum á einhvern tímann, því Two Face og The Riddler sem Jim Carrey lék, voru mikið samtvinnaðir í myndinni, en Carrey sagði síðar frá því að Jones hefði hatað sig innilega og verið duglegur við að láta hann vita af því á meðan á tökum stóð. TAKIÐ MIG ALVARLEGA Þegar Drew Barrymore lék Sugar, hjálparhellu Two Face, var hún í óðaönn við að hrista af sér barnastjörnustimpilinn sem festist við hana eftir kvikmyndina um geimveruna ET. Þótti henni takast ágætlega til, en Sugar var áberandi kynþokkafullur karakter. 27 ára AnnaLynne McCord, leikkona, leikstjóri, handritshöf- undur og fyrrverandi fyrirsæta Þekktust fyrir: Nip/Tuc, 90210 og Excision BATMAN OG ROBIN Þóttu félagarnir standa sig vel, en Val kilmer átti ekki afturkvæmt í gallann. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 4 -9 6 0 C 1 7 5 4 -9 4 D 0 1 7 5 4 -9 3 9 4 1 7 5 4 -9 2 5 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.