Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.07.2015, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 16.07.2015, Qupperneq 46
16. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 34 Hárgreiðslukonan Katrín Sif Jónsdóttir tók í síðustu viku þátt í því að greiða fyrir sýningu Bowie Wong á Haute couture-sýn- ingu hans sem er hluti af Paris Fashion Week. Aðaltískuvikan í París fer fram í september næstkomandi en Haute cout- ure-sýningarnar eru haldnar fyrr. Katrín hefur áður tekið þátt í að greiða fyrir tískuviku þó þetta sé að hennar sögn sú stærsta sem hún hefur tekið þátt í. „Ég hef farið tvisvar á tískuvikuna í Prag í gegnum Kevin Murphy sem er áströlsk hársnyrtivara,“ segir Katrín, sem er part- ur af Kevin Murphy-teyminu. Katrín fór með teyminu á tískuvikuna í Prag og var þar beðin um að vera einnig í teyminu á Haute couture-sýningunni í París og segist hlæjandi hafa verið fljót að svara þeirri bón játandi. Hún segir upplifunina í París talsvert ólíka þeirri í Prag. „Í París eru mörg hús að sýna í einu, þetta er miklu meiri nákvæmnisvinna og miklu meiri tími sem fer í hvern og einn hönnuð. Allt þarf að vera alveg fullkomið,“ segir Katrín en hver hönnuður er með sitt hárgreiðslu- teymi. Greiðslan sem gerð var fyrir sýninguna ber nafnið Cicada og er hönnuð af Masimo More og innblásin af samnefndu skordýri og gerði Bowie Wong handgerðar söngtif- ur sem settar voru í hár fyrirsætnanna fyrir sýninguna. Katrín var alsæl með að hafa komist út til Parísar og að hennar sögn hefur hana alltaf dreymt um að taka þátt í tískuvikum. „Ég fór í fyrsta skipti á tískuvikuna í Prag fyrir þremur árum og var alveg þrjú ár fyrir það að koma mér upp tengiliðum og komast að því hvernig ég kæmist út,“ segir Katrín. Hún útskrifaðist sem hárgreiðslukona árið 2009 og stofnaði stofuna Sprey í kjöl- far útskriftar og segist hafa stefnt ómeð- vitað á að verða hárgreiðslukona frá unga aldri. „Það var alltaf draumurinn. Ég er búin að vera að gera hár síðan ég var svona tíu ára.“ Katrín vonast til að verkefnið muni opna henni fleiri dyr og segir gott að vera búin að skipa sér fastan sess í teyminu og að fólk sé farið að þekkja vinnubrögð hennar. gydaloa@frettabladid.is Hárskrautið handgerðar söngtifur Katrín Sif Jónsdóttir fór með teymi frá Kevin Murphy á Haute couture-tískuvikuna í París og greiddi fyrirsætum fyrir sýningu Bowie Wong. ALSÆL Katrín Sif var ánægð með það að fá tækifæri til þess að greiða á Paris Fashion Week. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRIMARINÓ BJALLAN Hér má sjá handgerðar söngtifur sem set- tar voru í hár fyrirsætnanna. NORDICPHOTOS/GETTY NÓG AÐ GERA Það var allt á fullu fyrir sýninguna og Katrín segir gaman að hafa fengið að taka þátt. MYND/KATRÍNSIF Það var alltaf draumur- inn. Ég er búin að vera að gera hár síðan ég var svona tíu ára. Hljómsveitin Grúska Babúska vakti eftirtekt þegar hún gaf út sína fyrstu plötu árið 2013 á USB-lykli með útlit babúsku. Hljómsveitin var stofnuð árið 2012 og segir Harpa Fönn Sigur- jónsdóttir, einn meðlima, þær koma úr ólíkum áttum en allar hafa átt sameiginlegan draum um að stofna hljómsveit og vinna þær nú að því að gefa út nýtt efni. Lögin sem gefin verða út í ár eru fimm talsins og verða þau öll gefin út sem smáskífur ásamt myndbandsverkum eftir ólíka leikstjóra sem allir eiga það sam- eiginlegt að vera kvenkyns. „Það var eiginlega hálf óvart, fyrsta myndbandið sem við gerð- um unnum við með konu og líka númer tvö og það gekk svo vel,“ segir hún glöð í bragði og held- ur áfram: „Þegar maður fer að leita að leikstjóra á Íslandi detta manni fyrst í hug karlmenn. Konurnar eru kannski ekki með eins tækifæri þar og við fórum að skoða hvaða konur væru að leikstýra tónlistarmyndböndum og það var bara heill hellingur þegar maður fór að skoða og það var rosalega gaman.“ Meðlimir hljómsveitarinnar eru fimm talsins, þær Harpa Fönn Sigurjónsdóttir hljómborðs- leikari, Arndís Anna Kristínar- og Gunnarsdóttir flautuleikari, Dísa Hreiðarsdóttir trommu- leikari, Guðrún Birna La Sage de Fontenay gítarleikari og Björk Viggósdóttir, synþa-leikari. Í dag verður myndband við lagið Fram frumsýnt á Vísi en myndbandinu er leikstýrt af Björk Viggósdóttur sem í kring- um samvinnuna varð meðlimur í hljómsveitinni. - gló Kom á óvart hversu margar konur leikstýra myndböndum Grúska Babúska gaf út sína fyrstu plötu á USB-lykili og gefur nú út fi mm nýjar smáskífur á þessu ári. Hljómsveitina skipa fi mm tón- listarkonur sem dreymdi um að stofna hljómsveit. Smáskífunum fylgja tónlistarmyndbönd sem leikstýrt er af konum. HRESSAR Hljómsveitin Grúska Babúska hefur verið starfandi frá árinu 2012. MYND/MATTEISMAN Konurnar eru kannski ekki með eins tækifæri þar og við fórum að skoða svona hvaða konur voru að leikstýra tónlistarmyndböndum og það var bara heill hell- ingur þegar maður fór að skoða og það var rosalega gaman. FRÁ LEIKSTJÓRA BRIDESMAIDS OG THE HEAT ANT-MAN 3D 5, 8, 10:30(P) SKÓSVEINARNIR 2D 2, 4, 6 SKÓSVEINARNIR 3D 2, 4 MINIONS - ENS TAL 2D 6, 8, 10 TED 2 10:35 JURASSIC WORLD 2D 8 INSIDE OUT 2D 2 TILBOÐ KL 2 TILBOÐ KL 2 POWERSÝNING KL. 10:30 SÝND í 2D OG 3D SÝND MEÐ ÍSL OG ENS TALI KRINGLUNNI AKUREYRIKEFLAVÍK EGILSHÖLLÁLFABAKKA bio. siSAM CINEMABLEND SEGÐU MANNINUM ÞÍNUM AÐ ÞAÐ SÉ STELPUKVÖLD Í KVÖLD! ÍSLANDSVINURINN CHANNING TATUM ER SJÓÐHEITUR Í ÞESSARI SKEMMTILEGU SUMARMYND METRO NY NEW YORK DAILY NEWS SPARBÍÓ IN TOUCH VARIETY CHICAGO SUN TIMES FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR AVENGERS OG GUARDIANS OF THE GALAXY EMPIRE TOTAL FILMVARIETY 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 5 -C 3 3 C 1 7 5 5 -C 2 0 0 1 7 5 5 -C 0 C 4 1 7 5 5 -B F 8 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.