Fréttablaðið - 16.07.2015, Side 54

Fréttablaðið - 16.07.2015, Side 54
16. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 42 SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is „Við erum að skjóta nýtt mynd- band núna sem verður vonandi tilbúið á næstu dögum,“ segir tón- listarmaðurinn Páll Óskar Hjálm- týsson. Hann er þessa dagana á fullu við að vinna nýtt myndband ásamt framleiðslufyrirtækinu Silent. Myndbandið er við nýtt lag sem kallast Líttu upp í ljós og sér Daníel Bjarnason um leikstjórn, Snædís Snorradóttir um fram- leiðslu og Hákon Sverrisson um stjórn kvikmyndatöku. „Ég er virkilega ánægður með þetta lag. Það er samið og útsett, af Jakobi Reyni Jakobssyni og Bjarka Hallbergssyni en þeir mynda teymi sem kallast Dusk. Við þrír erum búnir að vera að vinna mikið af músík saman,“ segir Palli um lagið og nýtt sam- starf sitt í tónlist við Dusk-teym- ið. „Við byrjuðum að vinna saman fyrir rúmum tveimur árum og nú er kominn alveg ágætis grunn- ur að virkilega fínum lögum. Ég hlakka til að leyfa fólki að heyra og það er kominn tími til,“ bætir Palli við. Hann sendi síðast frá sér í apríl lagið Ást sem endist. Gert er ráð fyrir að myndbandið líti dagsins ljós í næstu viku og þá getur fólk einnig að nálgast lagið ókeypis á palloskar.is. „Þessar smáskífur mínar eru ekki til sölu, heldur eru þær gefins á netinu.“ Sumarið er annasamur tími hjá Palla og er nóg að gera hjá honum. „Það eru einhvers konar bæjar- hátíðir allar helgar og ég er á þeim öllum,“ bætir Palli við léttur í lundu. - glp Kominn tími til að leyfa fólkinu að heyra Páll Óskar Hjálmtýsson hefur í nógu að snúast og er um þessar mundir að taka upp nýtt tónlistarmyndband. HÁSKÓLABÍÓ 15. ÁGÚST 2015 ROKKABILLÝBANDIÐ TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á MIÐI.IS HEIÐURSTÓNLEIKAR FLOTTUR Páll Óskar Hjálmtýsson tekur upp nýtt myndband. Bandaríski rapparinn Snoop Dogg sem treður upp í Laugardalshöll- inni í kvöld undir nafninu DJ Snoop adelic, sendir allajafnan ítar- legan lista á tónleikahaldara með ýmsum kröfum. Á svokölluðum „ræder-lista“, sem kappinn hefur sent á tónleikahaldara og Frétta- blaðið hefur undir höndum er ætl- ast til þess að ákveðnir hlutir séu til staðar svo að allt fari vel fram. Á listanum kemur fram að Snoop vilji fá nokkrar gæðateg- undir af ýmsu áfengi. Hann biður um fjórar flöskur af ísköldu Moet Rosay kampavíni, tvær flösk- ur af ísköldu Ciroc Vodka, tvær flöskur af ísköldu Patrón tekíla og tvær flöskur af Hennesy XO koníaki. Allar flöskurnar skulu vera að minnsta kosti 750 ml. Ofan á allt þetta fer Snoop fram á að fá 24 flöskur af ísköld- um Red Bull orkudrykk, 36 flöskur af ísköldum Premium bjór og 24 flöskur af ísköldu vatni. Þá eru ávaxtasafar eins og ananas- og appelsínusafar einnig á listanum. Hvað varðar snæðing, þá vill rapparinn samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fá djúpsteiktan kjúkling og er það mjög mikilvæg máltíð. Að auki vill hann hafa val um tvo aðra rétti sem að jafnaði eru ýmist steiktur fiskur, BBQ-rif, lasanja eða nautakjöt. Kappinn gerir einnig ráð fyrir að grípa í sígar- etturnar hér á landi og gerir kröf- ur um að sex pakkar af Marlboro Lights séu til staðar fyrir hann. Að ógleymdum nýjum, hreinum og hvítum handklæðum þegar Snoop þarf á þeim að halda. „Það kom maður á hans vegum á mánudag til landsins, sem er að taka út svæðið. Snoop sendir fólk á undan sér til að kanna hvort allt sé ekki örugg- lega nógu gott og hvort allt sé til staðar,“ Kristinn Bjarnason, einn skipuleggjenda tónleikana. Hann neitar þó að tjá sig frekar um kröf- ur kappans. Snoop lendir hér á landi í dag á einkaþotu sinni. Slíkur reynslubolti og kanóna gerir að sjálfsögðu miklar kröfur hvað varðar samgöngur enda hefur hann ferðast um allan heim í fjölda ára. Kröfurnar eiga einnig við um samgöngu- hætti hér á landi, því hann vill eingöngu ferðast á milli staða á svartri extra stórri Merce- des Vito lúxus sendi- bifreið og tekur fram að hann vilji ekki sjá limósínur. Það sem kemur hvað helst á óvart er að hann gerir ekki kröfu um leikjatölvu í þetta skiptið því undanfarin ár hefur kappinn viljað geta gripið í Play Station-tölvu eða Xbox-tölvu á tónleikaferðalögum sínum. Laugardalshöllinni hefur nú verið breytt í heljarinnar klúbb og mun Snoop stýra tæplega þriggja klukkustunda partíi. „Það er búið að setja upp brjálað hljóðkerfi og ljósakerfi sem ekki hefur verið sett upp áður í Höllinni. Þetta verður hipphopp-tónlistarveisla sumarsins, sem verður á heims- mælikvarða og upplifun sem eng- inn má missa af,“ segir Kristinn fullur tilhlökkunar. Ásamt Snoop Dogg koma fram Blaz Roca, Úlfur Úlfur, DJ Benni B-Ruff, Shades of Reykjavík og KSF ásamt Alvia Is- landia. Miðasala fer fram á midi. is. gunnarleo@frettabladid.is Snoop Dogg vill alls ekki sjá limósínur Bandaríski rapparinn Snoop Dogg heldur risapartí í kvöld í Laugardalshöllinni. Hann vill fá ýmsar gæðavörur hér á landi en lætur leikjatölvuna vera í þetta sinn. SVALUR SNOOP DOGG Bandaríski rapparinn ætlar að stýra risapartíi í Laugardalshöllinni í kvöld. NORDICPHOTOS/GETTY ➜ Hann biður um fjórar flöskur af ísköldu Moet Rosay kampavíni, tvær flöskur af ísköldu Ciroc Vodka, tvær flöskur af ísköldu Patrón tekíla og tvær flöskur af Hennesy XO koníaki. Allar flöskurnar skulu vera að minnsta kosti 750 ml. „Ég fæ mér banana, djús og heilsutvennu. Þegar ég er í stuði og um helgar finnst mér gaman að fá mér fínni bröns og þá eru amerískar pönnukökur með smjöri, bláberjum, bönunum, súkkulaðispæni og sírópi klisjulegur og góður kostur.“ Edda Sif Pálsdóttir, umsjónarkona Íslands í dag MORGUNMATURINN 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 4 -E E E C 1 7 5 4 -E D B 0 1 7 5 4 -E C 7 4 1 7 5 4 -E B 3 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.