Fréttablaðið - 16.07.2015, Page 56
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Afrek Gunnars Nelson í blönd-uðum bardagalistum vekja
misjafnar tilfinningar í brjóst-
um okkar. Sjálfur tilheyri ég
þeim hópi sem er einfaldlega
að rifna úr stolti. Ég er enn að
jafna mig eftir glæsilega fram-
göngu hans í magnaðri keppni
síðastliðna helgi. Þegar ég hugsa
um Gunnar verður mér ósjálf-
rátt hugsað til Brennu-Njáls
sögu. Þar er að finna þessa fal-
legu mannlýsingu.
GUNNAR var mikill maður
vexti, sterkur og allra manna
best vígur. Hann hljóp meir en
hæð sína með öllum herklæðum
og eigi skemmra aftur en fram
fyrir sig. Eigi var sá leikur að
nokkur þyrfti við hann að keppa
og hefir svo verið sagt að engi
væri hans jafningi. Hann var
vænn að yfirliti og ljóslitaður,
bláeygur og snareygur og rjóður
í kinnum, hárið mikið, gult, og
fór vel. Manna var hann kurteis-
astur, harðger í öllu, ráðhollur
og góðgjarn, mildur og stilltur
vel, vinfastur og vinavandur.
ÞARNA er minn maður holdi
klæddur. Stolt okkar Íslendinga
í tæp þúsund ár og nú er hann
snúinn aftur í MMA. En ekki eru
þó allir jafn hrifnir. Ríkiskirkju-
prestur greindi frá því að hann
hefði ásamt syni sínum komist að
þeirri niðurstöðu að líklega verki
íþróttin á sömu heilastöðvar og
hefðbundið klám. Hann segir
klámið og UFC-menninguna vera
andstæða hagsmunum kvenna og
barna.
SEM mótvægi við þessi slæmu
áhrif nefnir presturinn svo til
sögunnar séra Friðrik nokkurn
barnavin. Prestar hafa jú löngum
sótt stíft í að starfa með börn-
um. Friðrik vann sér það helst til
frægðar að stofna félög þar sem
drengir hlupu um á stuttbuxum.
Stóð hann þá á hliðarlínunni og
lagði áherslu á að kappið bæri
fegurðina ekki ofurliði. Drengir
séra Friðriks skyldu verða góðir
drengir og hermenn Guðs. Þetta
er auðvitað ósköp fallegt. Ég held
hins vegar að MMA og UFC eigi
miklu meira erindi við okkar
yngstu drengi í dag heldur en
KFUM og KFUK.
Fegurðin
og klámið
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
B O S S - K O N U R M E N N K R I N G LU N N I 5 3 3 4 2 4 2
útsala
50%
afsláttur af öllum
vörum
útsala
50%
afsláttur af öllum
vörum
útsala
50%
afsláttur af öllum
útsöluvörum
Allt sem þú þarft ...
Höfuðborgarsvæðið, meðallestur á
tölublað 18–49 ára. Prentmiðlakönnun
Gallup, jan.– mar. 2015
YFIRBURÐIR
Fréttablaðsins staðfestir
53,7%
19,6%
FB
L
M
BL
BAKÞANKAR
Frosta
Logasonar
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
4
-4
2
1
C
1
7
5
4
-4
0
E
0
1
7
5
4
-3
F
A
4
1
7
5
4
-3
E
6
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K