Morgunblaðið - 25.06.2015, Page 5

Morgunblaðið - 25.06.2015, Page 5
Hópmálsókn fyrrum hluthafa í Landsbanka Íslands hf. gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni Fyrrum hluthafar í Landsbanka Íslands hf. hafa unnið með Landslögum að undirbúningi málsóknar á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni. Hefur rannsókn og gagnaöflun leitt til þess að fram eru komin gögn sem gefa sterklega til kynna að Björgólfur Thor hafi; i) með saknæmum hætti komið í veg fyrir að hluthafar fengju upplýsingar um umfangsmiklar og líklega ólögmætar lánveitingar tengdar honum, ii) brotið gegn reglum um yfirtökuskyldu. Kynningarfundur um væntanlega hópmálsókn verður haldinn fimmtudaginn 25. júní næstkomandi kl. 17.00 í sal V101 í Háskólanum í Reykjavík. Þeir sem eiga hlutabréf í Landsbanka Íslands hf. geta tekið þátt í hópmálsókninni. Hægt er að skrá sig í málsóknarfélag um hópmálsóknina á vefsíðunni: malsokn.landslog.is Frekari upplýsingar eru veittar í síma 520-2917 eða í gegnum netfangið: malsokn@landslog.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.