Morgunblaðið - 25.06.2015, Síða 12

Morgunblaðið - 25.06.2015, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2015 Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Sjávarútvegsráðherra hefur lagt til breytingartillögu á makrílfrumvarpi sínu sem felur í sér að makríllinn verði einungis kvótasettur í eitt ár, út árið 2016. Breytingartillagan á að koma til móts við kröfur undir- skriftalistans á vegum Þjóðareignar og liðka fyrir samkomulagi um þing- lok. Makrílfrumvarp sjávarútvegs- ráðherra hefur verið bitbein þings- ins síðastliðna mánuði og umræðan oft á tíðum verið flókin. Í frumvarp- inu er lagt til að makrílveiðar verði hluti af aflahlutdeildarkerfinu. Síð- ustu ár hefur sú leið verið farin við úthlutun veiðiheimilda á makríl að sjávarútvegsráðherra úthluti veiði- leyfum árlega út frá veiðireynslu í reglugerð. Sumir þingmenn leggjast gegn því að tekið sé það skref að aflahlutdeildarsetja makrílinn og aðrir setja sig upp á móti útfærsl- unni. Þegar frumvarpið var fyrst sett fram var gert ráð fyrir tímabundn- um aflaheimildum þar sem afla- hlutdeild mætti ekki skerða eða af- nema nema með sex ára fyrirvara. Er þetta ekki ólíkt húsaleigusamn- ingi þar sem leigusali getur ekki rift samningnum nema með sex ára fyr- irvara. Í athugasemdum með frum- varpinu kemur fram að þessi leið hafi verið farin til að tryggja fyr- irsjáanleika í veiðunum sex ár fram í tímann, án þess að skapa útgerð- unum sömu réttmætu væntingar og ef aflahlutdeildinni væri úthlutað varanlega. Sex ára leiðinni hafnað Gagnrýni á þetta fyrirkomulag kom úr öllum áttum. Samtök fyr- irtækja í sjávarútvegi töldu sex ára aflahlutdeildina ganga of skammt í að tryggja rekstraröryggi útgerða og ekki væru rök fyrir því að tíma- binda hlutdeild í makríl fremur en öðrum fisktegundum. Á hinn bóginn kom sú gagnrýni fram á frumvarpið, sem átti eftir að leggja grunninn að undirskriftalista kenndum við Þjóð- areign, að það styrkti lagalega stöðu útgerðanna. Þá væri verið að gera löggjafanum erfiðara að breyta fyrirkomulagi fiskveiða, þar sem það þyrfti að vera þinglegur vilji yfir tvö kjörtímabil til að skerða eða afnema makrílkvótann. Brást þá ráðherrann við með því að leggja til að gildistími frumvarps- ins yrði styttur í þrjú ár og nú fyrir tveimur dögum í eitt ár, út árið 2016. Ein vika í umsagnir Atvinnuveganefnd ákvað í gær að senda frumvarpið aftur út til um- sagnar í ljósi breytinga ráðherrans. Ferlinu verður gefin ein vika og tek- ur þá nefndin frumvarpið aftur fyr- ir. Óljóst er hvort málamiðlun ráð- herrans róar stjórnarandstöðuna. Þingmenn Vinstri-grænna vilja ekki setja makrílinn inn í aflahlutdeild- arkerfið og þingmenn annarra þing- flokka stjórnarandstöðunnar hafa talað fyrir því að makríllinn verði settur á uppboð. Smábátaeigendur ósáttir Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir því að veiðar smábáta á makríl verði kvótasettar, en þær hafa verið frjálsar síðustu ár. Styr stóð um þá breytingu meðal smábátaeigenda og var sérstaklega deilt um hve hátt hlutfall aflahlutdeildar ætti að fara til smábáta. Síðastliðin ár hafa veið- ar smábáta á makríl verið frjálsar, enda hefur fjöldi smábáta á makríl- veiðum margfaldast á þeim tíma. Hinn 16. júní setti sjávarútvegs- ráðherra reglugerð um makrílveiðar fyrir árið 2015. Aðalbreytingin í þeirri reglugerð frá reglugerðum fyrri ára var að veiðiheimildum var úthlutað til smábáta. Var þá bund- inn endi á frjálsar veiðar smábáta á makríl og bátum úthlutað út frá veiðireynslu. Landssamband smá- bátaeigenda sagði vinnubrögð ráð- herrans forkastanleg og mótmælti reglugerðinni harðlega í yfirlýsingu. Makríllinn klýfur þingheim í tvennt  Umdeilt makrílfrumvarp aftur sett í umsagnarferli Morgunblaðið/Árni Sæberg Deilur Landssamband smábátaeigenda gagnrýndi sjávarútvegsráðherra fyrir að binda enda á frjálsar veiðar smábáta á makríl hinn 16. júní. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Vegagerðin stefnir að því að opna Öskjuleið síðar í vikunni. Veghefill fór frá Mývatnssveit í gær til að ryðja snjó frá. Vegurinn yrði þá ann- ar fjallavegurinn sem opnast, en hleypt er á undanþágum í Land- mannalaugar. Enn er gríðarlegt fannfergi á hálendinu og ástand fjallvega á einn veg. Þeir eru lokaðir. „Hálendið opnast þegar það opn- ast. Það er enn snjór yfir öllu og há- lendið því lokað,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. Björgunarsveitir Slysavarna- félagsins Landsbjargar stefna á að hefja hálendisvakt þann 3. júlí á þremur stöðum. Selflytur fólk á snjótroðara Gísli Rafn Jónsson, eigandi Mý- vatn Tours, sem býður upp á ferðir upp í Öskju, mun aðstoða Vegagerð- ina með snjótroðara. „Veghefillinn er farinn af stað og mun reyna að komast áleiðis upp í Herðubreiðarlindir. Svo heldur hann áfram í átt að Drekagili á morgun [í dag]. Við erum að standsetja snjó- troðarann okkar til að fara með hann með Vegagerðinni. Það er svo mikill snjór að við munum þurfa að sel- flytja fólk með honum því það er engin leið að komast upp á bílaplan í Drekagili. Það vantar líklega um fimm kílómetra upp á,“ segir Gísli, en framan á snjótroðaranum er mik- il ýta og aðstoðar troðarinn veg- hefilinn og léttir honum störfin. „Ég geri ekki ráð fyrir því að við komumst eins langt og í fyrra, það er enn svo mikill snjór. Stefnan er að opna leiðina á föstudag, þar fyrir of- an er algjörlega óljóst hvenær verð- ur hægt að opna.“ Óljóst með Gæsavatnaleið Fáir, ef einhverjir, vita meira um Öskjusvæðið en Gísli og segir hann að afleiðingarnar af eldsumbrot- unum í Holuhrauni eigi enn eftir að koma í ljós, hvort Gæsavatnaleið verði opnuð á ný. Það muni ekki koma í ljós fyrr en snjóa leysi og hvort áin flæði þá yfir gömlu leiðina. Hvenær það verði sé hins vegar ómögulegt að spá fyrir um. „Eins og staðan er núna er hægt að fara gömlu Gæsavatnaleiðina, nema um Flæðurnar. Þá þarf að fara yfir hraunið og þar er allt harðlokað og verður ekki opnað í bráð,“ segir Gísli Rafn. Öskjuvatnaleið Jökulsá á Fjöllum Dyngjufjöll Herðubreið Mývatn Askja Grunnkort/Loftmyndir ehf. Reyna á að opna Öskjuleið í vikunni Ljósmynd/Gísli Rafn Jónsson Rutt Frá aðgerðum í fyrra. Látið okkur sjá um þvottinn fyrir heimilið Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • Sími 553 1380 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Gefið þvottaklemmum frí í sumar Örnólfur Árnason fararstjóri kynn- ir Moggaklúbbsferð til Singapúr og Balí í dag klukkan 17:30 í húsa- kynnum Ferðaskrifstofunnar Órí- ental á Suðurlandsbraut 22 í Reykjavík. Örnólfur segir þar frá ferða- tilhögun og svarar spurningum sem kunna að vakna en ferðin verður farin í september á þessu ári. Fyrr á þessu ári hefur Örnólfur leitt tvo hópa á vegum Mogga- klúbbsins um Balí og nú hefur Singapúr verið bætt við. Þar verður dvalið í þrjár nætur og það mark- verðasta skoðað í tveimur dags- ferðum. Á Balí verður haldið til Úbúd á miðri eynni og þaðan farnar kynnisferðir til annarra staða á eyj- unni. Síðustu dögunum verður var- ið í strandbænum Sanúr. Morgunblaðið/Ómar Mannlíf Kátir krakkar á Balí í Indónesíu. Kynnir Mogga- klúbbsferð í dag Rúmlega 40 mál komu upp hér á landi fyrr í mánuðinum í alþjóð- legri aðgerð gegn fölsuðum og ólöglegum lyfjum sem seld eru á netinu. Embætti tollstjóra og Lyfja- stofnun tóku sameiginlega þátt í aðgerðinni og nutu atbeina ríkis- lögreglustjóra og tengslaskrifstofu embættisins hjá Europol. Fram kemur á vef tollstjóra, að í sendingunum, sem stöðvaðar voru hér á landi, hafi aðallega verið um að ræða nikótínvökva. Í tengslum við aðgerðina var jafnframt lagt hald á 28 sendingar með fæðubótarefnum sem inni- héldu lyfjavirk efni eða jurtir með lyfjavirkni. Þær höfðu m.a. að geyma örvandi efni, hormóna, grenningarefni og „detoxunar- efni“. Lögðu hald á fölsuð og ólögleg lyf Veiðidagur fjölskyldunnar verður sunnudaginn 28. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í 32 vötnum víðsvegar um landið. Landssamband stangaveiðifélaga hefur staðið fyrir veiðidegi fjöl- skyldunnar í á þriðja áratug ásamt veiðiréttareigendum. Hugmyndin á bak við daginn er að kynna stangveiði sem fjöl- skylduíþrótt. Veiðidagur fjölskyld- unnar á sunnudag STUTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.