Morgunblaðið - 25.06.2015, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 25.06.2015, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2015 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is SKODA OCTAVIA AMBIENTE COMBI 4X4 03/2011, ekinn 95 Þ.km, dísel, 6 gíra. Verð 3.250.000. Raðnr.253695 BMW 730D. Árg. 2004, ekinn 199 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, leður, lúga ofl.Verð 3.790.000. Raðnr.252643 BMW X5 4.8IS 09/2007, ekinn 98 Þ.km, sjálfskiptur, leður, gler- toppur ofl.Verð 6.480.000. Raðnr.253710 AUDI A4 TFSI QUATTRO 12/2005, ekinn 89 Þ.km, sjálfskiptur, leður, lúga ofl.Verð 2.290.000. Raðnr.253666 ALINER COLUMBIA EXPEDITION Árg. 2003, fortjald ofl. aukahlutir. Verð 1.390.000. TILBOÐSVERÐ 1.190.000 Raðnr.252352. Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Bez t á fi skinn Skúli Halldórsson sh@mbl.is Jens Stoltenberg, framkvæmda- stjóri NATO, sagði í gær að banda- lagið myndi ekki láta draga sig inn í vopnakapphlaup við Rússa. Hins vegar yrði það að bregðast við „her- skáum aðgerðum“ Rússa í Úkraínu. Féllu ummælin á fundi bandalags- ríkjanna sem hófst í gær og lýkur í dag. Búist er við að á fundinum muni varnarmálaráðherrar ríkjanna sam- þykkja auknar varúðarráðstafanir, þar á meðal rúma tvöföldun á svo- kölluðu hraðliði NATO, sem ætlað er að bregðast skjótt við hvers kyns ógnum. Þá tilkynntu Bandaríkin á þriðjudag að þau myndu flytja þungavopn og ýmis hergögn til eystri ríkja bandalagsins. Rússar hafa fordæmt aðgerðirnar og líkja þeim við ögranir sem minni á tíma kalda stríðsins. Á sama tíma eru Rússar að uppfæra eigin herafla ásamt því að vopna hann 40 nýjum kjarnorkueldflaugum. „Viðbrögðin eru til varnar“ „Það sem Rússland hefur gert í Úkraínu ber ekki einkenni varnar,“ sagði Stoltenberg og bætti við að innlimun Krímskagans hefði verið árás að fyrra bragði. Hann reyndi að slá á ótta um að ástandið í álfunni hyrfi aftur til þess sem ríkti á verstu tímum kalda stríðsins. Staðhæfði hann að viðbrögð bandalagsins væru „til varnar, í réttu hlutfalli við ógn- ina og í samræmi við allar alþjóð- legar skuldbindingar“. Tók hann fram að áhyggjuefni væri frekar ef NATO hefði ekki brugðist við og að bandalagið væri sífellt að sækjast eftir uppbyggilegri tengslum við Rússland. „Rússar halda áfram að senda hermenn og birgðir til Austur- Úkraínu. Enginn vafi ríkir um að Rússland sé ábyrgt fyrir árásum í Evrópu.“ Rússar hafa þvert á móti neitað að hafa nokkur bein tengsl við átökin í Úkraínu, sem staðið hafa í 15 mánuði og kostað 6.500 manns lífið. Bandalagið styrkir herafla sinn NATO hefur ráðist í töluverðar aðgerðir undanfarið til að bregðast við því sem bandalagið telur vera árásargjarna hegðun Rússa. Skipuð hefur verið sérstök háhraða við- bragðssveit auk hins svokallaða hraðliðs, en búist er við að hermönn- um í hraðliðinu verði fjölgað frá 13 þúsundum upp í 40 þúsund. Munu verja bandamenn sína Æfingar eru mun tíðari en áður og hafa þotur og skip verið sendar til bandalagsríkja í Austur-Evrópu sem eitt sinn voru undir járnhæl Sovétríkjanna. Þá hafa Bandaríkin og önnur ríki bandalagsins lýst því yfir að NATO standi við skuldbind- ingar sínar ef eitt ríkjanna verði fyr- ir árás. „Þó að við sækjumst ekki eftir köldu stríði, og hvað þá heitu stríði, við Rússland, munum við verja bandamenn okkar,“ sagði varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, Ashton B. Carter, á fundi NATO- ríkjanna, en þetta er fyrsti fundur hans fyrir hönd Bandaríkjanna. Vopnakapp- hlaup ekki á dagskrá NATO  Bandalagið verði samt að bregðast við herskáum aðgerðum Rússa AFP Stoltenberg Framkvæmdastjóri NATO vill forðast vopnakapphlaup. Andar köldu » Eystrasaltsríkin, auk Búlg- aríu, Rúmeníu og Póllands munu fá þungavopn og her- gögn frá Bandaríkjunum. » Leiðtogar NATO samþykktu í september að auka útgjöld til varnarmála upp í tvö prósent af árlegum fjárlögum. » Búist er við að varnar- málaráðherrar bandalagsríkja muni samþykkja rúma tvöföld- un á hraðliði NATO. Maður gengur framhjá veggmálverki í Aþenu í gær. Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, gagn- rýndi Alþjóðagjaldeyrissjóðinn harðlega í gær og sagði að sjóðurinn hefði neitað að samþykkja nýjustu aðhald- stillögur grískra stjórnvalda. Lánardrottnar gríska ríkisins þurfa að samþykkja aðhaldstillögurnar svo að þeim verði tryggð frekari neyðarlán, en Grikkir þurfa að greiða upp 1,5 milljarða evra lán í lok júní. AFP Enn kreppir að Grikkjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.