Morgunblaðið - 25.06.2015, Síða 24

Morgunblaðið - 25.06.2015, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2015 Ýmislegt Óvissuferðir, ættarmót, hvataferðir, fyrirtækjaferðir, skemmtiferðir! Heklusýning, hótel, veitingahús. Tjaldstæði, hestaleiga, veiði, göngu- leiðir. Skipuleggjum viðburði ef óskað er. Uppl. á www.leirubakki.is og í síma 487-8700. TILBOÐ - TILBOÐ - TILBOÐ 50% AFSLÁTTUR og jafnvel meira Til dæmis þessir: Teg. 226-19 Fisléttir sumarskór úr leðri. Stærðir: 36 - 40. Verð áður: 10.885. Tilboðsverð: 2.500.- Teg. 202-05 Þægilegir dömuskór úr leðri. Litir: svart /hvítt og brúnt/hvítt Stærðir: 36 - 40. Verð áður: 16.500.- Verð nú: 8.250.- Teg. 327-08 Mjúkir og þægilegir dömuskór úr leðri. Stærðir: 37 - 40. Verð áður: 15.885. Verð nú: 7.940.- Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14. Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf. Sendum um allt land www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. - meðmorgunkaffinu ✝ Kristjana Stein-unn Leifsdóttir fæddist á Akureyri 25. júní 1924. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 10. mars 2015. Foreldrar Kristjönu voru Sigurbjörg Þor- steinsdóttir frá Flugumýri í Skaga- firði, f. 16. mars 1901, d. 15. desem- ber 1975 og Leifur Kristjánsson frá Hallgilsstöðum í Fnjóskadal, f. 26. september 1888, d. 8. júní 1956. Kristjana ólst upp á Akur- eyri, 24. ágúst 1951 gekk hún að eiga Þorstein Sigurðsson frá Brúarreykjum, f. 5. febrúar 1922, d. í Reykjavík 23. maí 2008. Þau hjónin hófu búskap á Brúar- reykjum árið 1951 og bjuggu þar til 1990 er þau fluttu að Hraunteig 23 í Reykjavík og stuttu seinna á Kópavogs- braut og síðar í Gullsmára í Kópavogi. Síðustu 12 árin dvaldi Kristjana á Hrafn- istu í Reykjavík. Kristjana og Þorsteinn ólu upp þrjár dætur, þær: a) Bryndísi Ósk Haralds- dóttur, f. 29. febrúar 1952, b) Steinunni Þorsteinsdóttur, f. 11. október 1956, maður hennar er Sigurður Sigurðsson, c) Sigríði Þorbjörgu Þorsteinsdóttur, f. 26. febrúar 1966, eiginmaður henn- ar er Bjarni Bjarnason. Börn Bryndísar og fyrrverandi maka, Gísla Grétars Björnssonar, eru Þorsteinn, Sigurlaug, Fjölnir og Ýmir Páll. Synir Steinunnar og fyrrverandi maka, Guðmundar Arnars Guðmundssonar, eru Hjalti Már, Haukur Daði og Hörður Valur. Börn Sigríðar og Bjarna Bjarnasonar eru Þórir og Ingunn. Barnabarnabörnin eru átta. Útför Kristjönu fór fram frá Reykholtskirkju 19. mars 2015. Úr lágum bæ á háum hól, má horfa yfir sveit, þar lærði ég um lífið allt, það litla sem ég veit. Að allt sem lifir á sinn hátt, þar engu spilla má. Þitt lán er mest að lifá í sátt við land- ið sem þig á. Er kyrrð og fegurð fölskvalaus varð fast í hugann greypt, eignaðist ég auðlegð þá sem enginn getur keypt. Þótt stærri hús ég hafi gist með höfð- inglegri brag, í lágum bæ á háum hól er heima enn í dag. (Hjálmar Freysteinsson.) Englablessun, Bryndís Ósk (Dísa). Mig langar til að minnast móður minnar, nú á afmælisdegi hennar. „Ég veit ekki hvort ég verð hér þegar þú kemur til baka úr fríinu, elskan mín.“ Þetta sagði hún móðir mín við mig þegar við kvöddumst í hinsta sinn núna í lok febrúar áður en ég fór í frí. Hún vissi greinilega að hverju stefndi, því hún kvaddi þessa jarðvist 10. mars sl. á 91. aldursári. Ég var bara nokkra mánaða þegar mamma og pabbi ætt- leiddu mig, fyrir höfðu þau tekið að sér eldri systur mína hana Bryndís Ósk, síðar bættist Sig- ríður Þorbjörg í hópinn. Þvílík forréttindi að alast upp í sveit hjá foreldrum sem unnu okkur, jörðinni, dýrunum og nutu þess að rækta, byggja upp og hlúa að sínu. Margt er í sjóði minninga þegar ég rifja upp samveru- stundir með mömmu, nostur heima í eldhúsi við bakstur eða matargerð, stúss við gegningar, verið að hlúa að dýrum, ferðir í sund á Varmalandi, vorferðir við að keyra féð á fjall upp á Holta- vörðuheiði, við mamma á Land Rover með kerru fulla af lömb- um og sungum alla leiðina, pabbi og Dísa á gamla Lettanum með ærnar á undan og allar þessar dásamlegu tengingar við annir og leik hverrar árstíðar. Hún mamma var dugnaðar- og atorkukona frá Akureyri, fór sem kaupakona eitt sumar suð- ur í Borgarfjörð og fann þar pilt sem heillaði hana upp úr skón- um og ákvað að eyða lífinu með honum á hans ættaróðali að Brúarreykjum í Borgarfirði. Þar hófust þau handa að byggja upp, nýtt íbúðarhús var byrjun- in og svo var haldið áfram að byggja og breyta, tún stækkuð, vélakostur nútímavæddur og búskaparháttum breytt úr blönduðu búi í kúabú. Mamma vílaði ekki fyrir sér að ganga í öll verk jafnt úti sem inni, hvort sem það var að sinna gegningum og hlúa að dýrunum, sitja á dráttarvélum að slóða- draga, heyja eða ganga í það sem til féll, ásamt því að vera með stórt heimili og vera mjög myndarleg húsmóðir. Hún mamma var mjög list- ræn, það sást á fallegu heimili þeirra pabba sem hún skreytti af natni og listfengi, m.a. með því sem hún gerði sjálf í gler-, flos- og útskurðarlistaverkum. Hún hafði unun af að rækta og kom sér upp fallegum garði við heimili sitt ásamt því að gróðursetja fleiri þúsund trjá- plöntur í skógræktarlandi Brú- arreykja þar sem þau pabbi voru búin að koma sér upp sum- arhúsi sem þau dvöldu í lang- tímum saman á sumrin meðan heilsa leyfði eftir að þau hættu búskap. Ekki er hægt að sleppa fé- lagsmálaáhuga mömmu. Hún var öflug í starfi Kvenfélags Stafholtstungna, ásamt Sjálf- stæðiskvennafélagi Borgar- fjarðar og síðar í Sinawik ásamt fleiri félagsstörfum eftir að hún flutti í höfuðborgina. Hún hafði líka ánægju af því að ferðast og saman ferðust mamma og pabbi bæði innan- og utanlands sér til mikillar gleði. Elsku mamma mín, það var þér líkn og lausn að yfirgefa þessa jarðvist, hafðu hjartans þakkir fyrir þína mildu móður- og ömmuhönd sem studdi og styrkti. Að lokum vil ég færa starfs- fólki Hrafnistu í Reykjavík bestu þakkir fyrir umönnun mömmu þessi ár hennar þar. Bið ég þér blessunar, mamma mín, blessuð sé minning þín. Þín dóttir, Steinunn Þorsteinsdóttir. Kristjana Steinunn Leifsdóttir HINSTA KVEÐJA Nú er hún Kristjana Steinunn kvödd, kona, með lífið þakklát og södd. Komin til himna og hittir nú hópinn, sem bíður við himnabrú. Og einn er búinn að bíða þín í Borgarfirði, með plássin fín. En við, sem kveðjum, þökkum þér þína tilvist á jörðu hér. (HB) Hjartans samúðarkveðj- ur til ástvina. Þorsteinn, Hrafnhildur og fjölskyldur. Þann 23. maí sl. kvaddi þennan heim stórkostleg kona, Bára Anders- dóttir, en hún hefði orðið 66 ára 18. júní sl. Mig langar að minn- ast hennar með örfáum orðum. Báru tengdamóður minni kynntist ég þegar við unnum saman á Lækjarási. Það var gott að vinna með Báru og hún var að mörgu leyti fyrirmynd Bára Andersdóttir ✝ Bára And-ersdóttir var fædd í Reykjavík 18. júní 1949. Hún lést 23. maí 2015. Útför hennar fór fram 4. júní 2015. mín í samstarfi okkar, en það fólst m.a. í því að annast fólk með þroska- hömlun. Hún hafði einstakt lag á sum- um, náði bara svo góðum tengslum við fólkið og öllum þótti vænt um Báru og fólk bar mikla virðingu fyr- ir henni, því hún bar virðingu fyrir því. Bára var góðhjörtuð kona og hafði sterka réttlætiskennd. Hvort sem var í vinnunni eða fjölskyldu mátti hún ekki heyra að brotið væri á sínu fólki, hún beitti sér fyrir rétti þeirra sem henni þótti vænt um. Okkur varð vel til vina og við fórum nokkrar ferð- ir saman til Spánar með Sveini. Það voru góðar stundir, alltaf var glatt á hjalla og kom Bára öllum í gott skap ef einhver var fúll á móti. Bára á einn son, Vigga, og grínaðist hún stund- um með að hún ætti góðan son sem ég mætti fá, við yrðum bara að hittast og allt myndi smella. En það fór ekki alveg svo, við þurftum að láta örlögin sjá um það, sem þau og gerðu. Það var erfitt að halda því leyndu fyrir Báru þegar við hittumst á förnum vegi, hún spurði mig út í ástarmálin og ég sagði henni að ég væri búin að kynnast góðum manni, meira fékk hún ekki að vita að sinni. Síðan einn góðan veðurdag ákváðum við Viggi að birtast saman í Jöldu og koma henni á óvart. Það gekk svo sannarlega, við stóðum saman við útidyrnar þegar hún kom til dyra og hélt hún að ég hafði komið á ná- kvæmlega sama tíma og Viggi í kaffi en hann var að fara að keyra hana á BSÍ. Bára sagði mér kurteislega eftir gott kaffi- spjall að hún yrði því miður að fara því hún átti að fara með rútunni til Stykkishólms til baklæknis og Viggi væri að fara að skutla henni niður á BSÍ. Ég sagðist alveg vita það og sagði henni að ég ætlaði með, við Viggi hefðum komið saman til þess. Það var gaman að sjá hve undrandi hún varð og alla leiðina var hún eitt stórt bros, ég var svo heppin að vita þá hve góða og yndislega tengdamóður ég fengi að eiga. Ég á eftir að sakna þess að kíkja í kaffi til hennar eftir vinnu og ræða um heima og geima. Það var alltaf tekið vel á móti manni, alltaf til nýlagað kaffi og með því. Samtalanna mun ég sakna mest og hlýj- unnar sem stafaði frá henni, nærvera hennar var svo góð og manni leiddist aldrei í kringum hana. Maturinn hennar á jól- unum, páskunum, eða hvenær sem hún hristi hann fram úr erminni, var ekkert slor, kökur og kræsingar líka, ekkert hálf- kák þar. Elsku Þór,Viggi, Freyr og Edda, nú verðum við öll að standa saman og halda minn- ingunni um þessa stórkostlegu konu á lofti alla tíð en það verð- ur nú ekki erfitt því hún verður alltaf með okkur í hjarta. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Ásdís Kristjánsdóttir. Kæri tengdafaðir minn, Kristinn Lúð- víksson. Það er með trega og söknuði sem ég rita þessi orð þó að ég viti að þú sért kominn á besta stað- inn þar sem allt er í blóma hjá Drottni. Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast þér en minn- ing þín mun ávallt lifa í huga mínum um alla framtíð. Guð blessi þig. Kynni mín af tengdaföður mínum Kristni Lúðvíkssyni heitnum hófust árið 1995 og fannst mér strax að þarna færi maður sem væri bæði viljasterk- ur og þrautseigur. Auðsýndi hann mér aldrei annað en kurt- eisi og velvilja frá fyrstu stundu þegar ég ókunnugur maðurinn var allt í einu orðinn hluti af fjöl- Kristinn Lúðvíksson ✝ Kristinn Lúð-víksson fæddist 12. október 1934. Hann lést 12. júní 2015. Kristinn var jarðsunginn 22. júní 2015. skyldu hans á þess- um árum. Mestan sinn starfsaldur stundaði Kristinn sjó- mennsku bæði sem launþegi en aðal- lega þó fyrir eigin útgerð. En þó að sjómennskan hafi verið hans aðals- merki var hann vel að sér í ýmsum iðn- greinum, svo sem trésmíði og múrverki, og starfaði hann við smíðar og þess háttar eftir að hann hætti útgerðinni. Kiddi til- heyrði þessari dugnaðarkynslóð sem átti stóran þátt í þeirri gríð- arlegu uppbyggingu sem átti sér stað á Íslandi upp úr 1950, en segja má að hann hafi undirstrik- að það sjálfur með þeim hand- verkum sem eftir hann liggja. Skal það snotra hús Hjarðarhóll 14 á Húsavík fyrst nefnt í því sambandi sem þau Þóra Rós- mundsdóttir eftirlifandi eigin- kona hans byggðu af eigin rammleik yfir fjölskyldu sína sem óðum stækkaði. Kiddi var skynsamur maður og húmorinn var aldrei langt undan með smá slatta af stríðni. Minnist ég fjörugra samræðna milli náinna fjölskyldumeðlima og hans á góðum stundum þegar hin ýmsu málefni bar á góma og góðlátleg skot gengu á milli. Skal minnst á golfið og briddsið, en þar var Kiddi á heimavelli og eru medalí- ur og bikarar sem hann hlaut fyrir góðan árangur vitnisburður um kappið og eljuna í honum. Aldrei hugnaðist honum að sitja með hendur í skauti og alltaf voru einhver viðfangsefni í gangi bæði í leik og starfi og ekki var að sjá að hann væri neitt að draga úr slíku þrátt fyrir aldur. Ávallt var hann tilbúinn að að- stoða sína nánustu við hinar ýmsu framkvæmdir, stórar sem smáar, en handverksmaður var hann góður og fjölhæfur eins og áður var minnst á. Þótt alvarleg veikindi settu mark sitt á tengdaföður minn þessi síðustu ár bar hann sig ávallt vel og kvartaði aldrei, æðruleysið og baráttuandi hans í þessum veik- indum líða mér ekki úr minni. Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. (Jóhannes úr Kötlum) Óskar Þorsteinsson. „Vitur maður hefur sagt að næst því að missa móður sína sé fátt hollara úngum börnum en missa föður sinn.“ Þessa speki Nóbels- skáldsins í Brekkukotsannál hef ég aldrei getað skilið. Þó held ég að það hræðilegasta og það sem allir foreldrar óttast sé að missa barnið sitt. 17 ára stúlka í blóma lífsins hrifsuð burt frá fjölskyldu sinni, stúlka sem átti lífið fram undan, stúlka sem hafði mikla hæfi- leika. Ég kynntist Ingibjörgu Mel- korku þegar hún kom í Heið- arskóla í Hvalfjarðarsveit í 7. bekk, þá var ég skólastjóri við þann skóla. Maður sá strax að þarna var á ferð sérstakur per- Ingibjörg M. Ásgeirsdóttir ✝ Ingibjörg Mel-korka Ásgeirs- dóttir fæddist 8. mars 1998. Hún lést 2. júní 2015. Útför hennar fór fram 12. júní 2015. sónuleiki. Hún fór sínar eigin leiðir, var ótrúlega list- ræn og skapandi þó að hún rækist ekki alltaf í því sem kallað er hefð- bundið. Hún kom oft með ótrúlegar spurningar og var að velta fyrir sér allt öðrum hlutum en jafnaldrar henn- ar. Þarna fór sérstakt eintak af manneskju með stórt hjarta sem vildi að öllum liði vel. Ég gat því miður ekki fylgt Ingi- björgu síðasta spölinn vegna fjarveru erlendis en skrifa þessi fátæklegu orð í minningu hennar. Þarna fór hæfileikarík stúlka sem hefði án efa sett svip sinn á samtímann hefði hún lifað. Elsku Kristín, systur og fjöl- skyldur, megi minningin um Ingibjörgu Melkorku lifa í hjörtum okkar allra sem vorum svo lánsöm að kynnast henni. Helga Stefanía Magnúsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.