Morgunblaðið - 25.06.2015, Síða 28

Morgunblaðið - 25.06.2015, Síða 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Orð þín munu falla í frjóan jarðveg ef þú bara ert sannur/sönn. Vissulega eru fleiri en ein leið til að skoða hlutina. 20. apríl - 20. maí  Naut Hafir þú farið eftir eigin brjóstviti hefur þú ekkert að óttast. Vinkona finnur sig knúna til þess að létta á hjarta sínu við þig, gefðu henni tíma þinn og veittu góð ráð. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það kemur jafnan að því í lífinu að maður þarf að skipta um áherslur og í augnablikinu þarft þú að einbeita þér að heimili þínu og fjölskyldu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ekki gera lítið úr draumum þínum. Eitthvað á eftir að koma þér svo á óvart að þú munt undrast þín eigin viðbrögð. Gakktu hægt um gleðinnar dyr. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Sérhver manneskja á jörðinni finnur einhvern tíma til líkamlegrar eða andlegrar vangetu. Láttu það ekki á þig fá og taktu það bara rólega í dag. Þolinmæðin þrautir vinnur allar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú stendur frammi fyrir vali sem getur haft mjög örlagaríkar afleiðingar í framtíðinni. Ef þú ætlar þér að hafa vit fyrir öðrum kanntu að rata í harðar deilur í dag. 23. sept. - 22. okt.  Vog Taktu það rólega núna, þú átt inni smá hvíld eftir amstur síðustu daga. Gáfurnar skína af þér og það fer ekki fram hjá nein- um í dag. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Nú þarft þú að komast að nið- urstöðu í máli sem þú hefur lengi velt fyrir þér. Samskipti þín við aðra verða lág- stemmd en ánægjuleg. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Tafir og ergelsi sem þú fannst nýverið fyrir heyra nú sögunni til. Rannsóknarhæfileikar þínir njóta sín svo sannarlega nú á komandi tímum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það getur oft reynst erfitt að fá aðra á sitt band. Gerðu eitthvað í dag sem er skapandi og krefst frumlegrar hugsunar. Þú getur það alveg. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þig þyrstir í einhverja spennu núna svo þú ert meira en til í að yfirgefa þægindin fyrir ævintýri. Besta leiðin úr vandræðum er ávallt beint af augum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú stendur á tímamótum og ættir ekki að líta um öxl. Það er um að gera að sætta sig við sjálfa/n sig. Fólk vill vera með þér af því að þú ert mannleg/ur. Kerlingin á Skólavörðuholtinufagnaði afmæli sínu á fésbók- inni 19. júní. Hún orti vísu í tilefni dagsins sem er auðvitað sjálfslýsing: Innra logar óheft bál, ekki er mér stirt um mál. Ég er væn en viðkvæm sál. Vinir góðir, SKÁL! Ingólfur Ómar Ármannsson sendi henni kveðju: Kerlu ei er stirt um stef stökusnilldin flæðir. Dálæti á henni hef hróður andans glæðir. Sá gamli er annar skrítinn fugl á fésbók. Hann orti til hennar: Hræðir menn og hrellir elli hrikalega sporlétt; eins og fleiri ellismelli ætlar þig í forrétt! Þá Helgi Björnsson: Kærar skalt þú kerling fá kveðjur mínar. Kem ég ekki kossi á kinnar þínar. Guðbrandur Þorkell Guðbrands- son sendi henni kveðju í bundnu máli og hún svaraði að bragði: Viltu ekki hróið hreyfing fá og hressa upp á þig? Komdu þá strax og kíktu á kerlinguna mig. Hann svaraði því til að stundum væri of langt á milli og rifjaði upp vísu eftir Egil Jónasson á Húsavík: Úr því mér er engin leið opin til þín, vina, sendi ég þér salta reyð seinna færðu hina. Kerlingin svaraði að bragði: Þótt fastur sértu fyrst um sinn, við fúsk og annað hversdagsjag, þá kvíddu engu karlinn minn komdu bara á mánudag. Annars heyrðist síðast frá kerl- ingunni í apríl þegar hún kastaði fram limru: Oft fer ég illa að slaga, öl þegar kneyfa til baga. Vottast það hér að víst hefur hver sinn eigin djöful að draga. Um þetta var ég að hugsa þegar í gær ég sá karlinn á Laugaveginum storma upp Frakkastíginn með rósir í annarri hendinni og rauðvíns- flösku í hinni tautandi fyrir munni sér: Skyldi ég mega skammast mín! Skrítið að gleyma deginum. – Þú veist að ég kem í kvöld til þín karlinn á Laugaveginum! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Afmæli kerlingarinnar Í klípu ÞEIR HORFÐUST Í AUGU. SPENNAN Á MILLI ÞEIRRA - VILJAVERK. VANDRÆÐALEG ÞÖGN ER MJÖG ÓÞÆGILEG FYRIR FUGLAHRÆÐUR. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „MÍN MISTÖK! ÉG HÉLT ÉG HEYRÐI LÆTI HÉRNA NIÐRI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hrjóta í takt. ÉG ER Í PRÓFI, GRETTIR. HVAR ERU LIT- IRNIR MÍNIR? ÞETTA VORU SJÁLFKRAFA MÍNUS TÍU STIG. ,,Á HVAÐA ÞROSKA- STIGI ERTU?” ÞEIR GÆTU VERIÐ AÐ REYNA „ÖFUGSÁLFRÆÐI“ Á OKKUR. Þú veist nákvæmlega hvernig flug-ið þitt verður þegar það hefst á því að náunginn fyrir framan þig ákveður að halla sætinu eins langt aftur og það kemst. Það eina sem bjargaði eiginkonu Víkverja frá þeim örlögum að geta talið nákvæm- lega flösukornin í strípuðum kolli samferðamannsins var að viðkom- andi náði í leiðinni að brjóta sætis- bakið í vélinni, þannig að það þurfti að finna fyrir hann annað sæti. Eftir sem áður sat Frú Víkverji eftir með sætisbakið í fanginu. x x x Í annarri flugferð stuttu síðar, semvar sem betur fer mun styttri, ákvað einn ferðalangurinn, fjögurra ára stelpa, að láta í ljós óánægju sína með það að hún sæti ekki við hliðina á pabba sínum alla flugferðina. Stúlkan, sem upprunnin var af Bret- landseyjum, hreinlega öskraði á pabba sinn. Öskrin hættu ekki þó að pabbinn kæmi og tæki sér sæti við hliðina á henni, og ekki heldur þegar látið var undan ekki svo frómum óskum hennar um gluggasæti. „Glugginn er of lítill!“ bergmálaði þá á mjög skýrri engilsaxnesku um far- þegarými vélarinnar, og var skiljan- lega lítið hægt að gera í því, í ljósi þess að flugvélin var þá löngu komin úr verksmiðjunni. x x x Sú flugferð hefði eflaust orðið ögnþolanlegri ef vélin hefði farið af stað á réttum tíma, en flugstjórinn tilkynnti að ferðin hefði tafist „vegna tæknilegra örðugleika í vélinni, sem búið væri að gera við“. Líklega þótti engum af farþegunum það sérstak- lega hughreystandi útskýring, sér í lagi þar sem allir vissu að flugstjór- inn var að fara mjög frjálslega með sannleikann. Ástæða tafanna var nefnilega einföld. Farþegi í vélinni sem var við hliðið á undan þessari ákvað að fara ekki um borð fyrr en á nákvæmlega sömu mínútu og hún átti að taka á loft. Farþegarnir sem biðu þess að fara um borð gátu því séð þegar þeirra eigin vél beið eftir því að hin færi af stað og lagði að hliðinu. Einhverra hluta vegna þótti flugfélaginu þó skárra að kenna „vélarbilun“ um, svona til að róa taugarnar. víkverji@mbl.is Víkverji Og eins og vér höfum borið mynd hins jarðneska, munum vér einnig bera mynd hins himneska. (I. Kor. 4:16.) Ármúli 32, 108 Reykjavík Sími 568 1888 www.parketoggolf.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.