Fréttablaðið - 13.07.2015, Page 10

Fréttablaðið - 13.07.2015, Page 10
13. júlí 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10 MEXÍKÓ Yfirvöld í Mexíkó hafa hafið gríðarmikla leit að eitur- lyfjabaróninum Joaquin Guzman eftir að hann slapp úr fangelsi. Þetta er í annað sinn sem Guzman nær að flýja úr þarlendu fangelsi. Verðir í Altiplano-fangelsinu uppgötvuðu að Guzman, oft kall- aður El Chapo sem útleggst sem „hinn smávaxni“, var ekki í klefa sínum á laugardag. Hann hafði gert holu í klefa sínum sem leiddi í mílulöng göng til frelsis. Yfirvöld hafa ekki aðeins hafið mikla leit að strokufanganum held- ur hefur millilandaflugvellinum í Toluca, skammt frá Altiplano, verið lokað. Guzman er um sextíu ára gam- all en ekki er víst hvenær hann fæddist. Hann er foringi Sinaloa- gengisins, sem er eitt allra skil- virkasta dópgengi veraldar. Það sendir kókaín, marijúana og met- amfetamín með flugi, bátum, kaf- bátum, dráttarvélum og í raun með öllum hugsanlegum fararskjótum. Guzman var handtekinn árið 1993 og dvaldi átta ár í fangelsi áður en hann náði að strjúka. Í febrúar í fyrra var hann handsam- aður að nýju en nú tók það hann aðeins rúmt ár að komast út fyrir múra fangelsisins á ný. Hann er í tíunda sæti yfir ríkustu menn Mexíkó og hefur iðulega ratað á lista Forbes yfir valdamestu menn heimsins. Forbes hefur kallað hann stærsta eiturlyfjabarón sög- unnar og vill meina að veldi hans sé stærra en það sem Pablo Escob- ar byggði upp. - jóe Tíundi ríkasti maður Mexíkó er á flótta undan réttlætinu. Dópveldi hans er það stærsta sem sögur fara af: Eiturlyfjabarón strauk aftur úr fangelsi HÁLL SEM ÁLL Fjölmenni flutti „hinn smávaxna“ í fangelsið og fjölmenni leitar hans. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA SAMFÉLAG Undirritaður hefur verið samningur um kaup á fim- leikaáhöldum og búnaði fyrir nýtt fimleikahús sem er í byggingu við Egilshöll. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fasteigna- félaginu Reginn hf. Að lokinni verðkönnun var boð Altís ehf. metið hagstæðast að teknu tilliti til verðs og gæða. Altís er rótgróið fyrirtæki sem flutt hefur inn íþróttabúnað um árabil. Verkís var ráðgjafi Regins við verðkönnun og samningagerð vegna verksins. - ngy Nýtt fimleikahús við Egilshöll: Samningur um fimleikaáhöld NÁTTÚRA „Þetta virðist hafa dott- ið niður og fallið í ljúfa löð. Undar- leg var uppákoman,“ segir Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, um lúsmý, flugu sem virtist hafa náð fótfestu hér á landi í fyrsta sinn. Margir voru illa bitnir af lúsmýi í lok síðasta mánaðar, helst þeir sem voru á suðvesturhorni landsins. „Ég geri mér ekki grein fyrir því enn hvað það var sem hleypti þessu af stað,“ segir Erling og bætir við að enn hafi hann ekki fengið stað- fest heiti á tegundinni. „Það er maður erlendis að hjálpa mér með greininguna.“ - ngy Heiti á tegundinni ekki staðfest: Lúsmý ekki eins áberandi LÚSMÝ Jóhann Gunnar Arnarson varð fyrir barðinu á lúsmý. MYND/JÓHANN SAMGÖNGUR Írska lágfargjalda- flugfélagið Ryanair lækkar verð á öllum farmiðum til Grikklands um 30 prósent til október. Far- miðar með Ryanair milli nokk- urra staða í Grikklandi kosta næstu tvær vikurnar miklu minna en áður eða aðeins 4,99 evrur. Talsmenn flugfélagsins segjast hafa boðist til að fljúga ókeypis næstu vikur hefðu flugmálayfir- völd í Grikklandi aflétt flugvallar- gjöldum á sama tíma. Ekki var orðið við beiðni flugfélagsins. - ibs Ryanair lækkar verð: Grikklands- ferðir á útsölu GRIKKLAND Fjármálaráðherrar evruríkjanna funduðu í yfir tíu klukkustundir í gær til að finna lausn á skuldavanda Grikkja. Er fundi þeirra lauk tók við fund- ur leiðtoga ríkjanna í kjölfarið. Lagabreytinga er þörf á gríska þinginu svo af aðstoð verði og verða þær að vera afgreiddar frá þinginu fyrir 15. júlí. Meðal þess sem lagt var fram á fundinum var fjögurra síðna plagg með stífum skilmálum evruríkjanna fyrir áframhald- andi aðstoð til handa Grikkjum. Er það mál manna að það muni reynast Grikkjum erfitt að upp- fylla skilyrðin sem þar eru sett fram fyrir áframhaldandi aðstoð. Á listanum má finna hluti á borð við að einkavæða raforku- flutningskerfi landsins og gagn- gerar endurbætur á ellilífeyris- kerfinu. Verði af nýju neyðarláni er talið að það nemi allt að 86 milljörðum evra en til að það gangi í gegn heimta lánardrottn- ar að Grikkir framselji yfirráð yfir fjölda ríkiseigna til þeirra. Verðmæti eignanna nemur um fimmtíu milljörðum evra. Skuldir Grikkja nema nú um 320 milljörðum evra, eða í kringum 180 prósentum af vergri landsframleiðslu. Aukin aðstoð þýðir að skuldir þjóðar- innar fara yfir 200 prósenta múrinn. Gríska ríkisstjórnin, með Alexis Tsipras forsætisráð- herra í broddi fylkingar, féllst í gærkvöldi á drög að úrbótum þó að enn eigi eftir að fínpússa samninginn. Verði ekki geng- ið að samningnum er sá mögu- leiki á borðinu að Grikkir yfir- gefi evrusamstarfið og taki upp drökmu á nýjan leik í fyrir fram ákveðinn tíma til að ná stjórn á vandanum. Úr herbúðum Finna hafa þær fregnir borist að þeir hyggist ekki samþykkja nýtt neyðar- lán. Ólíklegt er að vægi þeirra sé slíkt að það hafi úrslitáhrif. Pirrings gætir hjá fleiri þjóðum en Finnum. Matteo Renzi, forsæt- isráðherra Ítalíu, lét þau orð falla við komu til Brussel að það væri tímabært að Evrópa sneri sér aftur að hlutum sem hún yrði að gera. Nefndi hann í því samhengi ástandið í Líbíu, Úkraínu og Íran. „Ég man ekki eftir svipaðri stöðu á mínum ferli,“ segir Mart- in Schulz, forseti Evrópuþings- ins. „Þetta snýst í raun allt um ESB. Ef taka á ESB alvarlega á alþjóðavettvangi verður það að sýna að það geti tekið á eigin vandamálum.“ Hann er andvíg- ur því að Grikkir yfirgefi sam- bandið, jafnvel þó að það sé í stutta stund. Er fréttir bárust af því að drög að samkomulagi væru í höfn mátti sjá megna óánægju Grikkja á samfélagsmiðlinum Twitter. Margir tístu undir myllumerkinu #TsiprasLeave EUSummit. Vildu þeir meina að stjórnin væri að fara á svig við vilja þjóðarinn- ar en 61 prósent kjósenda vildi að Grikkir höfnuðu samningum við Evrópusambandið í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Niðurstaða spekúlanta um framhaldið virðist ával lt vera sú sama. Aðeins tíminn getur leitt í ljós næstu skref. johannoli@frettabladid.is Tíminn geymir næstu skref Maraþonfundir fóru fram í Brussel í gær. Drög að samkomulagi liggja fyrir sem þýðir að skuldir Grikkja fara yfir 200 prósent af vergri landsframleiðslu. Óvissa ríkir um framhaldið, næstu skref og hvað þau hafa í för með sér. MANNAMÓT Leiðtogar evruríkjanna funduðu er fjármálaráðherrar þjóðanna höfðu lokið sér af. Hér má sjá, talið frá vinstri, Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikkja, Jean-Claude Juncker, forseta framkvæmdastjórnar Evrópuráðsins, Francois Hollande Frakklandsforseta og Charles Michel, forsætisráðherra Belgíu, ráða ráðum sínum fyrir fundinn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Þetta snýst í raun allt um ESB. Ef taka á ESB alvarlega á alþjóðavett- vangi verður það að sýna að það geti tekið á eigin vandamálum. Martin Schulz, forseti Evrópuþingsins. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :5 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 1 -A 7 8 C 1 7 5 1 -A 6 5 0 1 7 5 1 -A 5 1 4 1 7 5 1 -A 3 D 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 4 8 s _ 1 2 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.