Fréttablaðið - 02.12.2015, Síða 22
Sigtryggur Baldursson segir að þeir sem séu að gera tónlist af einhverri alvöru hafi æ minna val en áður um að þurfa að fara úr landi mín sína músík og finna stærri áheyrendahóp. FréttaBlaðið/GVa
Mikil gróska hefur verið í íslensku tón-listarlífi undanfarin ár. Iceland Airwa-ves er ekki lengur
eina stóra tónlistarhátíðin, þrjár
nýjar hátíðir hafa bæst við á jafn
mörgum árum, ATP, Sónar og Sec-
ret Solstice, sem skila milljörðum í
tekjur af erlendum ferðamönnum.
Fjöldi tónleika erlendis með íslensk-
um hljómsveitum tvöfaldaðist milli
áranna 2012 og 2013 og voru þeir
yfir 1.400 síðara árið. Fjöldi tónleika
erlendis verða framvegis fleiri en
þúsund á ári að mati Sigtryggs Bald-
urssonar, framkvæmdastjóra Útóns,
útflutningsskrifstofu íslenskrar tón-
listar. Hann segir smæðina á Íslandi
ala af sér ungt fólk sem finnst það
alveg eiga heima á alþjóða tónlistar-
markaði. Þeir sem séu að gera tón-
list af einhverri alvöru séu einnig
meira knúnir en áður til að fara með
tónlist sína úr landi og finna stærri
áheyrendahóp.
Útón er kynningar- og upplýs-
ingabatterí fyrir íslenska tónlist.
„Við reynum að sinna kynningu á
íslenskri samtíma-, klassískri og
djasstónlist. En við erum mest að
kynna pop- og indie-músík af því
að það er langmesta eftirspurnin
eftir því,“ segir Sigtryggur sem hefur
verið framkvæmdastjóri Útóns frá
árinu 2012.
Sigtryggur segist hafa fundið
fyrir mikilli grósku í tónlist frá
því að hann tók við starfinu. „Það
hafa bæst við þrjár tónlistarhá-
tíðir á þremur árum og allar þessar
hátíðir hafa verið vaxandi í sölu og
umfangi.“ Sigtryggur segir tekju-
módel hátíðanna vera mismunandi,
enda hafi þær allar mismunandi
fókus. Iceland Airwaves er til dæmis
með meiri fókus á íslenska tónlist
en hinar. „Á síðasta Airwaves voru
um 180 íslenskar hljómsveitir og
70 erlendar, því var meira en tveir
þriðju íslensk músík og fer hlutfallið
vaxandi.
Ég held við séum með fleiri og
fjölbreyttari flóru en áður hefur
verið af hljómsveitum. Við erum
með mjög sterkt vörumerki sem er
Icelandic Music, það fer batnandi og
það er yfirleitt gott og styrkir hljóm-
sveitir að tengjast þessu vörumerki,“
segir Sigtryggur.
tæki til útflutnings batnað
Sigtryggur telur að útrás íslenskra
hljómsveita megi meðal ann-
ars rekja til þess að tæki og tól
til útflutnings hafi batnað til
muna undanfarin árin. Hann segir
það hafa breytt tekjumódelinu
með því að víkka út tíðnisviðið.
„Tekjumódel síðustu ára hafa verið
að breytast mjög mikið og smæð
íslenska markaðarins hefur í raun-
inni valdið því að þeir sem eru
að gera tónlist af einhverri alvöru
hafa æ minna val en áður um það
að þeir bókstaflega þurfa að fara úr
landi með sína músík, þeir þurfa að
finna stærri áheyrendahóp,“ segir
Sigtryggur og bætir við að þetta sé
meira áberandi á Íslandi en í öðrum
minni ríkjum, eins og Noregi.
Sigtryggur segir að þessi mikli list-
ræni vöxtur sem hafi átt sér stað og
það að við séum með mjög jákvætt
vörumerki gagnvart aðilum erlendis
þýði það að íslenskar hljómsveitir
hafi greiðan aðgang inn á tónlistar-
hátíðir, og jafnvel inn á bókunar-
skrifstofur og útgáfufélög.
„Við erum með mjög pósi-
tíft vörumerki gagnvart aðilum
erlendis. Það eru margir sem líta
til íslenskrar tónlistar með mjög
pósitífu hugarfari. Þetta þykir
frekar kreatíf og áhugaverð tónlist
sem kemur úr þessu krummaskuði
hérna. Þetta er það sem við erum
að vinna með hér, að búa til þessa
tengslamyndun inn í útgáfufélög og
tónlistarhátíðir og þessar viðskipta-
hliðar bransans,“ segir Sigtryggur.
Hann telur að viðhorfið gagnvart
íslenskum hljómsveitum hafi orðið
jákvæðara með árunum, enda sé
það bara keðjuverkun.
Sprotafyrirtækið Ásgeir trausti
Minnkandi diskasala hefur haft
áhrif á geirann. „Það þýðir minnk-
andi fjárfestingu í geiranum, það
hefur þau áhrif að færri hljómsveitir
ná að skapa sér nafn sem vöru-
merki,“ segir Sigtryggur. Hann telur
að með breyttu tekjumódeli tón-
listarmanna þurfi að skoða hlutina
frá öðrum sjónarhóli.
„Ég byrjaði fyrir nokkrum árum
að skoða það út frá þeim sjónar-
hóli að tónlistarmenn séu eins og
sprotafyrirtæki. Það hefur enginn
skoðað tónlistarbransann áður
með þessum formerkjum. Það
þarf bara að stoppa, staldra við og
hugsa aðeins út fyrir boxið,“ segir
Sigtryggur. „Vissulega eru margir
fjárfestar sem myndu gjarnan vilja
eiga í fyrirtækinu Ásgeiri Trausta,
þó ég sé ekki viss um að hann vilji
það kannski sjálfur. Oft virka fjár-
festar eins og lánastofnun, stundum
hafa þeir áhuga á þolinmóðari fjár-
festingu, það eru alls konar mögu-
leikar. En samtalið er mikilvægt
og það eykur möguleikana í okkar
bransa. Tekjumódel tónlistarinn-
ar hefur breyst svo mikið á síðustu
árum. Með minnkandi diskasölu fer
fólk að leita annað.“
Sigtryggur bendir á að með auk-
inni framleiðslu á sjónvarpsefni,
bæði þáttum og heimildarmyndum
og öðru, sé aukin þörf fyrir tónlist
í sjónvarpið. „Stefgjöld og tónlist í
sjónvarpsefni eru því orðin stærri
hluti af tekjumódelinu en áður.
Einnig hefur orðið mikil aukning í
tónlistarhátíðum á heimsvísu, sem
borga ágætlega.“
Drifkraftur í skjóli fámennis
Sigtryggur telur að stuðningskerfið
í kringum íslenskar hljómsveitir
sem hyggjast leggja land undir fót sé
betra en það var áður. Útflutnings-
sjóður íslenskrar tónlistar mætti
þó vissulega vera stærri. „En þessi
sjóður virkar á mjög skilvirkan hátt
þannig að hann er aðallega að veita
ferðastyrki til tónlistarmanna sem
eru að fara út að spila. Þannig að
þeir geti yfirleitt reynt að nýta tekj-
urnar sem myndast á túrnum til að
borga kostnaðinn við ferðalögin og
vonandi einhver laun.“
Sigtryggur telur almennt að
hljómsveitirnar séu duglegar að
koma sér á framfæri. „Það er ann-
álað í bransanum hvað íslenskar
hljómsveitir eru mikið spútnik og
duglegar að koma sér áfram. Þetta
fólk er að gera hlutina að mjög
miklu leyti sjálft. Það er ákveðinn
drifkraftur í fólki héðan sem kemur
til að sumu leyti vegna þess hvað við
erum fámenn þjóð. Það eru hlutir
sem gerast hér í skjóli fámennis
sem ég kalla ákveðinn „pósitífan
ignorance“. Ungu fólki sem er að
byrja að gera tónlist finnst það alveg
eiga heima á alþjóðamarkaði. Ef það
þekkir sjálft engan sem hefur farið
að túra alþjóðlega, þá hlýtur einhver
í hljómsveitinni þeirra að gera það.
Tengslanetið er svo lítið og áhrifin
sem það hefur er að ungu fólki
finnst það geta gert þetta. Hugurinn
ber þig hálfa leið. Það að þú ætlir að
gera það og finnist þú eiga heima
þar og eiga erindi þá ertu kominn
verulega á leið og það er rosa gott
forskot. Svo eru íslenskar hljóm-
sveitir að styðja hver við aðra, það
er hluti af þessu tónlistarsamfélagi
sem við búum hérna við.“
Sigtryggur telur að tónlistarlífið
á Íslandi hafi mikil áhrif á ferða-
mannastrauminn og að fólk sé orðið
mun upplýstara um það. „Þessi
nýja bylgja ferðamanna síðustu
fimm ár er mjög frábrugðin ferða-
mönnunum sem komu áður. Þetta
er fjölbreyttari og yngri hópur af
fólki og mjög margir hafa kynnst
Íslandi í gegnum tónlist. Við vitum
það að tónlistin hefur mjög mikil
áhrif á upplifun fólks og kynningu
á landinu.“
Hann telur að stafræn dreifing
á tónlist hafi að hluta til valdið
þessu. „Þegar tónlistin er í stafrænni
dreifingu þá eru miklu meiri tengsl
við uppruna hennar. Þetta styrkir
okkur. Nýjar dreifingarleiðir í tón-
list sem hafa miklu meiri landfræði-
legan grunn eru hluti af velgengni
vörumerkisins Icelandic Music.
Það er annálað í
bransanum hvað
íslenskar hljómasveitir eru
mikið spútnik og duglegar
að koma sér áfram...Það er
ákveðinn drifkraftur í fólki
héðan sem kemur til að
sumu leyti vegna þess hvað
við erum fámenn þjóð.
Tónlistarmenn eins og sprotafyrirtæki
Sigtryggur Baldursson segir hljómsveitaflóruna aldrei hafa verið eins fjölbreytta hér á landi. Með breyttu tekjumódeli tónlistarmanna
mætti líta á tónlistarmenn meira eins og sprotafyrirtæki. Margir fjárfestar myndu ef til vill vilja eiga í fyrirtækinu Ásgeiri Trausta.
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@frettabladid.is
2 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I K U d A G U r6 markaðurinn
0
2
-1
2
-2
0
1
5
1
0
:5
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
4
9
-3
B
1
8
1
7
4
9
-3
9
D
C
1
7
4
9
-3
8
A
0
1
7
4
9
-3
7
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
1
2
_
2
0
1
5
C
M
Y
K