Fréttablaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 32
Markaðurinn
Miðvikudagur 25. nóvember 2015fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál |
Stjórnar -
maðurinn
@stjornarmadur
ftsE 100
6.395,65 -28,26
(0,62%)
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskiptiwww.visir.is
29. 11. 2015
Hann ætlar enn og aftur að taka sér það
hlutverk að vera hlífiskjöldur yfir við-
kvæmri þjóð. Hann ætlar að leiða okkur í gegnum
þetta. Við þurfum bara lýðræði. Við þurfum
ekkert karl á sjötugsaldri sem leiðir okkur í
gegnum þetta. Þetta er afburðamaður og við
eigum margt að þakka honum. En hann þarf
ekkert að hjálpa okkur að komast í gegnum
þetta. Þóra Tómasdóttir, verðandi ritstjóri.
Landsvirkjun hefur tilkynnt að fyrir-
tækið hafi samið um útgáfu skulda-
bréfs til 7 ára að fjárhæð 5 milljónir
Bandaríkjadala, eða sem samsvarar 660
milljónum króna. Bréfið mun bera 3,9%
fasta vexti sem greiðast ásamt höfuð-
stól í einu lagi á lokagjalddaga. Andvirði
útgáfunnar verður nýtt til almennrar
fjármögnunar Landsvirkjunar.
660 milljóna króna
skuldabréf gEfið út
Þjónustuviðskipti við útlönd skiluðu
meiri afgangi á 3. fjórðungi en þau
hafa áður gert á einum ársfjórðungi.
Tekjur af þjónustuútflutningi námu
190 milljörðum króna en gjöld vegna
þjónustuinnflutnings voru 99,5 millj-
arðar samkvæmt tölum Hagstofunnar.
Afgangurinn, um 90 milljarðar, er 13
milljörðum meiri en á sama tíma í fyrra.
13 milljarða aukning í
þjónustuViðskiptum
POTTURINN OG PANNAN
Í JÓLAELDHÚSINU
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16
Opið mán - fös 8:30 - 17:00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
FASTUS býður upp á mikið úrval
af stórglæsilegum, vönduðum pottum, sem
eru hverju eldhúsi til sóma.
Ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi…
Áhugavert verður að fylgjast með
hvernig Fréttatímanum reiðir af í
höndum nýrra eigenda, en hópur
undir forystu Gunnars Smára
Egilssonar hefur keypt allt hlutafé
í rekstrarfélagi miðilsins. Ásamt
Gunnari Smára koma að kaupunum
sterkir fjárfestar, þeir Árni Hauksson,
Hallbjörn Karlsson, Sigurður Gísli
Pálmason og Valdimar Birgisson.
Gunnar Smári er vissulega frum-
kvöðull á sviði íslenskrar fjölmiðlunar
og sá sem hvað stærstan hlut átti í að
gera Fréttablaðið að útbreiddasta og
mest lesna dagblaði landsins. Í þetta
skiptið mun hann, samhliða því að
eiga verulegan hlut í félaginu, einnig
starfa sem ritstjóri.
Vonandi er fyrir Gunnar Smára og
aðra hluthafa að betur verði farið með
fé en í tíð hans á forstjórastóli í því
félagi sem nú heitir 365 miðlar.
Meðal gæluverkefna Gunnars
Smára á þeim tíma var hin íslenska
CNN stöð, NFS, sem flutti fréttir af
engu allan sólarhringinn, Talstöðin,
útvarpsstöðin sem aldrei spilaði tón-
list með tilheyrandi dagskrárkostn-
aði, og síðast en ekki síst dönsk útgáfa
Fréttablaðsins – Nyhedsavisen.
Öll fara þessi verkefni á spjöld
sögunnar í íslenskri fjölmiðlun, og þá
frekar fyrir fádæma metnað á litlum
markaði en arðsemi.
Frelsum
leigubílstjóra
Framsæknir og metnaðarfullir
leigubílstjórar hljóta að berjast fyrir
því að leigubílaakstur verði gefinn
frjáls í landinu.
Akstur leigubifreiða á Íslandi er
einokunarbransi. Þeir einir sem
fengið hafa atvinnuleyfi frá Sam-
göngustofu og tengdir eru bifreiða-
stöðvum geta ekið leigubíl á Íslandi.
Gjaldskrá leigubifreiða er sam-
ræmd, þú greiðir eftir sömu gjaldskrá
hvar sem þú stígur upp í leigubíl,
óháð gæðum bifreiðar, reynslu
bílstjórans eða öðrum þáttum sem
kunna að skipta máli.
Ástand sumra bifreiða er vægast
sagt lélegt. Gamlir bílar sem skrölta
áfram af gömlum vana og anga jafn-
vel af reykingalykt. Lítið mætti fara
úrskeiðis ef til að mynda er ekið eftir
Keflavíkurvegi.
Síðan getur maður líka dottið í
lukkupottinn og lent á spánnýrri bif-
reið með öllum þægindum.
Hvernig má það vera að sama
gjald sé greitt fyrir ferðina í báðum
tilvikum? Núverandi kerfi leyfir þeim
sem eru framúrskarandi ekki að njóta
sín og tryggir ekki öryggi farþega.
Best væri að afnema úrelt kerfið og
láta markaðinn um afganginn. Það
hefur gefist vel annars staðar og nægir
að nefna Uber í því samhengi.
Smári snýr aftur
0
2
-1
2
-2
0
1
5
1
0
:5
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
4
9
-4
E
D
8
1
7
4
9
-4
D
9
C
1
7
4
9
-4
C
6
0
1
7
4
9
-4
B
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
1
2
_
2
0
1
5
C
M
Y
K