Fréttablaðið - 17.11.2015, Síða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 6 9 . t ö l u b l a ð 1 5 . á r g a n g u r þ r i ð j u d a g u r 1 7 . n ó v e M b e r 2 0 1 5
Fréttablaðið í dag
lÍfið Varnarmaður var
með „Skólarapp“ á
heilanum í strembn-
um landsleik, að því
er fram kemur í nýrri
bók Björns Braga
Arnarssonar. 28-30
skoðun Ísland hefur alla burði
til að verða eftirsóknarverður
valkostur fyrir ungt fólk, segir
Katrín Jakobsdóttir, formaður
VG. 12-13
sport Tvær hliðar íslenska
landsliðsins í knattspyrnu. 14
Menning Leiðbeint um gerð
ofureinfaldrar Snickers-epla-
köku. 25
plús sérblað l fólk
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
HJÁLPA
ÐU
okkur
að hjálpa ÖÐ
RUM
Landssöfnun Samhjálpar
SÍMI 905-2002 TIL AÐ GEFA 2.000 KR.
SÍMI 905-2004 TIL AÐ GEFA 4.000 KR.
SÍMI 905-2006 TIL AÐ GEFA 6.000 KR.
SÍMI 905-2010 TIL AÐ GEFA 10.000 KR.
TAKTU ÞÁTT!
www.samhjalp.is
Jólatónleikar Pálma Gunnarssonar
ásamt Ragnheiði Gröndal í Eldborg Hörpu
19. desember kl. 21:00
Miðasala á harpa.is, tix.is og í síma 528 5050
viðskipti Fulltrúar þriggja stærstu líf-
eyrissjóða landsins, LSR, Gildis og Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna, funduðu í
gærmorgun með slitastjórn Kaupþings
þar sem þeir lýstu yfir áhuga á að hefja
viðræður um kaup á Arion banka.
Samkvæmt stöðugleikaskilyrð-
unum skal Kaupþing stefna að sölu á
87 prósenta hlut sínum í Arion banka
fyrir árslok 2016, svo lengi sem viðun-
andi verð fáist. Bókfært virði hlutarins
nemur 152 milljörðum króna.
Árni Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Gildis lífeyrissjóðs, segir þeim
hafa verið vel tekið og slitastjórnin
hafi áhuga á að halda viðræðunum
áfram. Hann býst við að fundað verði
á ný í næstu viku. Ekki sé farið að ræða
neinar verðhugmyndir.
Lífeyrissjóðirnir stefna að því að í
kjölfar kaupanna, ef af verður, verði
Arion banki skráður á markað. „Hugs-
unin á bak við þetta er að það verði
bara lífeyrissjóðir í fyrstu atrennu en
almenningur og þá aðrir fjárfestar í
framhaldinu. En þetta á allt eftir að
móta frekar þegar við áttum okkur á
því hvort við fáum þær undirtektir sem
við þurfum,“ segir Árni.
Ekki hefur komið til tals að fá
erlenda fjárfesta með í viðræðurnar.
Árni útilokar hins vegar ekki að af því
verði. Þá hefur öðrum lífeyrissjóðum
verið greint frá áformunum.
„Ef af samningi verður, þá verður
öllum lífeyrissjóðum boðið að taka
þátt,“ segir Haukur Hafsteinsson, fram-
kvæmdastjóri LSR. Lífeyrissjóðirnir
hafi ekki áhuga á að fara með virkan
eignarhlut í fjarmálafyrirtæki þannig
að eignarhlutur hvers yrði alltaf undir
tíu prósentum.
Ljóst er að um talsverða fjárfestingu
yrði að ræða fyrir lífeyrissjóðina. Sjóðir
sem eru á eftir LSR, Gildi og Lífeyris-
sjóði verslunarmanna að stærð áttu
um síðustu áramót ríflega 150 millj-
arða eign hver. Því gæti tæplega tíu
prósenta eignarhlutur í Arion banka
numið tíu prósentum af heildareign-
um minni lsjóða. – ih
Lífeyrissjóðir vilja skrá Arion á markað
Þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins funda með slitastjórn Kaupþings um kaup á Arion banka. Aðrir lífeyrissjóðir bíða á hliðarlínunni.
Hugsunin á bak við
þetta er að það verði
bara lífeyrissjóðir í fyrstu
atrennu.
Árni Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Gildis lífeyrissjóðs
frakkland „Við munum nota
allan mátt okkar, innan ramma
laganna, til þess að sigrast á
hryðjuverkamönnum,“ sagði
François Hollande í ávarpi á sam-
einuðu þingi í gær.
Frakkar munu herða árásir
sínar á Daesh-samtökin í Sýr-
landi og senda flugmóðurskipið
Charles de Gaulle á vettvang.
Hollande mun á næstu dögum
leita eftir aðstoð Rússa og Banda-
ríkjamanna vegna þessa.
Fréttamaður Stöðv-
ar 2, sem staddur
er í París, segir
lífið þar ganga
sinn vanagang
þrátt fyrir að
b o r g a r b ú a r
syrgi enn. – gb, srs
/ sjá síðu 8
Hollande heitir
hefndum
„Við krefjumst jafnréttis,“ hrópuðu stúlkur í Hagaskóla í siguratriði sínu á Skrekk, árlegri hæfileikakeppni grunnskólanna í Reykjavík.„Þetta var ótrúlega kraftmikið og í rökréttu framhaldi
af þessum byltingum á samfélagsmiðlum nema að stelpurnar í Hagaskóla gerðu þetta algjörlega að sínu,” segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Fréttablaðið/Ernir
1
7
-1
1
-2
0
1
5
1
3
:4
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
F
9
-3
A
5
8
1
6
F
9
-3
9
1
C
1
6
F
9
-3
7
E
0
1
6
F
9
-3
6
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
C
M
Y
K