Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Síða 4
Laugardagur 3. janúar 20084 Fréttir Sandkorn n Meðlimir úr mótmælenda- hreyfingunni Raddir fólksins gengu á fund Árna Mathiesen fjármálaráð- herra í gær og afhentu honum yfir- lýsingu þar sem þess er krafist að hann segi af sér vegna þáttar hans í efnahagsástandinu í þjóðfélaginu. Hörður Torfason tónlistarmaður fór fyrir hópnum og segir hann að mótmælendurnir hafi rætt við Árna í um eina og hálfa klukku- stund í fjármálaráðuneytinu og sett fram margvísleg rök fyrir því af hverju Árni ætti að segja af sér. „Listinn með rökunum gegn Árna er orðinn svo svakalega langur að ég veit bara ekki hvar ég á byrja,“ segir Hörður. n Ýmsir í forystu Samfylkingar- innar eru hugsi yfir útspili Geirs H. Haarde, formanns Sjálfstæðis- flokksins, um tvöfalda þjóð- aratkvæða- greiðslu. Sú fyrri ætti þá að svara spurning- unni hvort sækja ætti um aðild að Evr- ópusambandinu. Þykir sumum sem þetta beri vott um ákvarð- anatökufælni Geirs og jafnvel að hann reyni með þessu að blíðka heimastjórnararm flokksins, sem stýrt er úr Seðlabankanum. Í besta falli gæti slík þjóðarat- kvæðagreiðsla upplýst eitthvað um fordóma nei-fólksins og vonir já-fólksins. Samfylkingarmenn furða sig á þessu og benda á að engin þjóð hafi farið þessa leið. Eru sumir þeirra orðnir þykkju- þungir og þykir forsætisráðherr- ann vera búinn að haardera nóg. n Stjórnmálakerfið er úrelt, segir Þráinn Bertelsson rithöf- undur. Hann segir lítinn mun á stjórnmálaflokkum og pakka- ferðum ferðaskrifstofanna. Þannig séu stjórnmálaflokkarnir ferðaskrifstofur inn í framtíðina. Þeir bjóði upp á hugmynda- fræðilegar pakkaferðir sem taka fjögur ár og meðan á því ferða- lagi stendur þýði hvorki fyrir al- menning að æmta né skræmta, þetta sé spurning um allt eða ekkert og þýðir ekkert múður. „Ég er ein- staklingur. Ég hugsa oftar en á fjögurra ára fresti,“ segir Þráinn á bloggi sínu og krefst breytinga. Glæpaklíka Geira Smart kristján hreinsson skáld skrifar. „Skálum fyrir pakkinu sem þiggur kryddsíld og kampavín á meðan þúsundir Íslendinga eru að missa atvinnuna.“ Einhverju sinni var því haldið fram í mín eyru að ýmiskonar læknamistök í fyrir-sögnum væru best til þess fallin að selja dagblöð. Eins hefur því verið hvíslað að mér að fyllirí og lýtalækningar fræga fólksins geti selt blöð sem allajafna þykja ódýr pappír. Mér hef- ur svo í þokkabót verið tjáð, að ærlegheit, heilindi og fáguð framkoma teljist til þeirra kosta sem hve bestir þykja í fari fólks. Þetta nefni ég við þig, þjóð mín góð, á þeim tímamótum sem við upplifum nú. Núna mætast gamli tíminn, með ranglæti og óheiðarleika, og nýr tími, með réttlæti og heiðarleika. Og okkur opnast ný leið: Ef við viljum breyta þá er kominn tími til að skoða söguna – kíkja vel á læknamistök valdhafanna og krefjast þess að þeir sem sukk- uðu burt eigur okkar og fóru í lýtaaðgerðir á okkar kostnað, verði nú látnir svara til saka. Þessi leið er réttur þinn, þjóð mín góð. Fyrir einu ári lofaði Geir Haarde góðærið og þá gósentíð sem hann og Dabbi litli bankamað- ur höfðu skapað þjóðinni með aðstoð manna sem ættu allir sem einn að vera á sakaskrá og á lista yfir eftirlýsta glæpamenn. Áfram hélt Geir að mæra sjálfan sig og verk sinna manna. Jafnvel þótt færustu hagfræðingar heimsins héldu því fram að íslenska glæpaklíkan væri gjaldþrota, sagði Geir að hér væri allt í lagi. Eftir næturfund með seðla- bankaklíkunni laug Geir því að þjóðinni að þetta hefði bara verið venjulegur fundur. Hann laug og hann laug. Geir sagði þjóðinni ósatt, hann beitti skreytni og hann laug. Og svo kemur annar lyga- mörðurinn fram og lýgur því að hann sem lítill bankamaður hafi varað við og sagt að allt ætti eftir að fara á versta veg. Og þegar Dabbi litli er beðinn um að sanna orð sín þá ber hann við bankaleynd, brosir einsog púki og hverfur inní musterið. Í nýjasta einkaáramótaskaupi Geirs Haarde segir hann okkur að ef hann hafi hugsanlega gert eitthvað rangt, þá þyki honum það leitt. Verum stolt! Fögnum sigrum! Fögnum með stjórnmálaflokkunum sem nýverið tvöfölduðu þau framlög sem til þeirra renna úr ríkissjóði. Skálum fyrir pakkinu sem þiggur kryddsíld og kampavín á meðan þúsundir Íslendinga eru að missa atvinnuna. Fögnum því að við erum fyrst með kreppuna! Mesta þjóðarskömmin er okkar! Lygnustu stjórnmálamenn veraldarsögunnar eru Íslendingar. HÚRRA, HÚRRA, HÚRRA, HÚRRA! Að sverta aula ekki má, það illu kann að valda, en æruþvott þeir einir fá sem á því þurfa að halda. Skáldið Skrifar Lýðræðið er í hættu Endalok Ameríku Frí heimsending http://www.eshop.is/bendill Pöntunarsímar: 567-9818 / 897-9818 Guðmundur Kristjánsson hæstarétt- arlögmaður ætlar í skaðabótamál gegn íslenska ríkinu vegna skipun- ar Þorsteins Davíðssonar í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Norð- urlands eystra. Þorsteinn tók við hér- aðsdómaraembættinu þann 1. jan- úar í fyrra. Umboðsmaður Alþingis, Tryggvi Gunnarsson, sendi frá sér álit þann 30. desember 2008 þar sem kom- ist var að þeirri niðurstöðu að mikl- ir annmarkar hefðu verið á skipun Þorsteins í embættið og að ekki lægi fyrir rökstutt mat um að hæfasti um- sækjandinn hefði verið valinn í emb- ættið. Guðmundur var metinn mjög vel hæfur til að gegna embættinu af nefnd sem mat hæfi umsækjenda á meðan Þorsteinn var metinn hæfur. Þorsteinn Davíðsson er sonur Davíðs Oddssonar fyrrverandi for- sætisráðherra og fyrrverandi aðstoð- armaður Björns Bjarnasonar, dóms- og kirkjumálaráðherra. Björn vék sæti sem ráðherra þegar skipað var í embættið og skipaði Árni Mathiesen fjármálaráðherra Þorstein í embætt- ið sem settur dóms- og kirkjumála- ráðherra. Árni var ekki sammála mati nefndarinnar sem mat hæfi umsækj- andanna, meðal annars taldi hann að ekki hefði verið tekið nægilega mikið tillit til starfsreynslu Þorsteins Dav- íðssonar sem aðstoðarmanns Björns Bjarnasonar um fjögurra ára skeið. Ömurleg stjórnsýsla Guðmundur Kristjánsson segir að niðurstaða umboðsmanns Alþingis hafi verið sú sem allir bjuggust við og að hún hefði ekki getað orðið önnur. „Þessi stjórnsýsla er ömurleg. Þetta er ekki nokkru lagi líkt. Skipun Þorsteins var rammpólitísk og andstæð öllum reglum. Hann fékk embættið fyrst og fremst af því að hann er sonur Davíðs Oddssonar,“ segir Guðmundur. Hann segir að meginatriði málshöfðunar- innar gegn ríkinu sé að fá endanlega úr því skorið hvort skipun Þorsteins hafi verið óréttmæt eða ekki; málið snúist ekki um peninga. „Þetta er fyrst og fremst prinsippmál,“ segir hann. Guðmundur segir að hann muni hefjast handa við það bráðlega að undirbúa stefnuna gegn ríkinu. Tveir aðrir umsækjendur íhuga málsókn Annar umsækjandi um embættið, Pétur Dam Leifsson, lektor við Há- skóla Íslands og Háskólann á Ak- ureyri, segist enn ekki hafa ákveðið hvort hann muni fara í skaðabótamál gegn ríkinu. Pétur var metinn mjög vel hæfur til að gegna embættinu líkt og Guðmundur. „Ég hef ekki enn ákveðið hvort ég ætla að fara í skaða- bótamál en ég útiloka það alls ekki,“ segir Pétur Dam Leifsson. Hann segir að skipun Þorsteins hafi verið alger- lega óforsvaranleg að mörgu leyti, líkt og komi fram í áliti umboðsmanns Alþingis. Ragnheiður Jónsdóttir, fulltrúi hjá sýslumanninum á Húsavík, sem einnig sótti um embættið útilokar heldur ekki að hún fara í mál vegna skipunar Þorsteins. Ragnheiður var metin hæf til að gegna embættinu líkt og Þorsteinn. „Þetta er greinilega pólitísk skipun frá a til ö,“ segir Ragn- heiður. Fimmti umsækjandinn um emb- ættið, Halldór Björnsson, sem einn- ig var metinn mjög vel hæfur líkt og Guðmundur, var skipaður héraðs- dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur í haust. Í gær náðist ekki í Þorstein Davíðs- son og Árna Mathiesen til að spyrja þá hvort þeir hygðust segja af sér vegna niðurstöðu umboðsmanns um emb- ættisskipunina. Guðmundur Kristjánsson mun stefna ríkinu út af skipun Þorsteins Davíðssonar í emb- ætti héraðsdómara. Umboðsmaður Alþingis taldi mikla annmarka á skipun Þorsteins í embætti. Þorsteinn er sonur Davíðs Oddssonar og fyrrverandi aðstoðarmaður Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra. Gengið var framhjá Guðmundi og Pétri Dam Leifssyni við skipun í embættið en báðir voru metnir hæfari en Þorsteinn. Pétur og Ragnheiður Jónsdóttir, annar umsækjandi, íhuga einnig málsókn. Ætlar í mál vegna skipunar Þorsteins InGI F. VILhJáLmssOn blaðamaður skrifar ingi@dv.is „Þessi stjórnsýsla er ömurleg. Skipun Þor- steins er rammpólitísk.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.