Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Blaðsíða 14
Laugardagur 3. janúar 2008 14 Helgarblað Jón Ásgeir er sagður vera glaumgosi sem ætli sér að kaupa upp allt Bret- land. Lögfræðingar Jóns Ásgeirs eru sagðir hafa gert alvarlegar athuga- semdir við efni bókarinnar. Kristján B. Jónasson, bókaútgef- andi og formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, greindi frá því nýlega á bloggsíðu sinni að útgáfufélagið John Blake ætti í deilum við lögfræð- inga Jóns Ásgeirs. Kristján skrifar: „Samkvæmt þeim er það lögfræð- ingahjörð Jóns Ásgeirs sem stoppar bókina og þau segjast ekki nenna að fara með hana lengra þar sem úti- lokað sé að hún selji upp í kostnað- inn sem hlýst af málavafstrinu. En þau segja jafnframt að þetta sé í eina skiptið sem þau hafi lent í vandræð- um með útgáfubækur sínar, og kalla þau ekki allt ömmu sína í því sam- bandi.“ Þrátt fyrir margítrekaðar til- raunir hefur DV ekki náð tali af höf- undum bókarinnar. Með bíladellu Eins og fram kom í fjölmiðlum flutti Jón Ásgeir inn forláta Rolls Royce-bif- reið til að keyra hann og Ingibjörgu frá Fríkirkjunni í Reykjavík þar sem þau gengu í það heilaga. Bílferðin var ekki löng, því veislan var haldin í Listasafni Reykjavíkur. Jón Ásgeir hefur smekk fyrir dýrum lúxusbílum og raunar er hann sagður vera forfallinn bíladellu- karl. Flest sem tengist hvers konar mótorsporti vekur áhuga hans, hvort sem það er kappakstur, Formúla 1, vél- sleðar, sæþotur eða gókart-bílar. Árið 2005 tók Jón Ásgeir, ásamt Hannesi Smárasyni, þátt í kappakstr- inum Gumball 3000 þar sem sportbíl- um er ekið um þrjár heimsálfur. Marg- ir heimsþekktir skemmtikraftar og auðmenn hafa tekið þátt í kappakstr- inum í gegnum tíðina. Jón Ásgeir ók ásamt æskuvini sínum Guðmundi Inga Hjartarsyni á Bentley GT Flying Spur sportbíl. Annar æsku- vinur Jóns Ásgeirs, Ragnar Agnarsson, tók einnig þátt í kappakstrinum. Síð- asti leggur leiðarinnar lá um Kaliforn- íufylki í Bandaríkjunum og lauk við Playboy-setrið þar sem slegið var upp heljarinnar veislu þegar keppendur komur í mark. Þátttaka þeirra félaga markar að margra mati hápunktinn í góðærinu, þykir bera vott um tilgangs- laust fjáraustur auðmanna. Fjölmiðlamógúll Engar fjárfestingar Jóns Ásgeirs hafa verið eins umdeildar og fjölmiðla- fjárfestingar hans. Fjölmiðlar í eigu hans hafa ítrekað verið sakaðir um að ganga erinda hans. Jón Ásgeir keypti Norðurljós af Jóni Ólafssyni árið 2003. Sagt er að þeir hafi hist á laugardagsmorgni síðla þess árs að undirlagi Sigurðar G. Guðjónssonar hæstaréttarlögmanns. Þennan morg- un fóru þeir yfir hugsanleg kaup Jóns Ásgeirs á fjölmiðlasamsteypunni. Strax sama kvöld hafði Jóni Ólafssyni borist tilboð í ráðandi hlut í félaginu sem var samþykkt. Norðurljós urðu að 365, sem gaf út tvö dagblöð, fjölda tímarita og rak útvarps- og sjón- varpsstöðvar þegar best lét. Í grein Mannlífs í apríl 2005 segir frá því þegar Jón Ásgeir reiddist mjög vegna framgöngu Þórhalls Gunnars- sonar og Jóhönnu Vilhjálmsdóttur gagnvart Jóhannesi Jónssyni í þætt- inum Ísland í bítið á Stöð 2. Þáttar- stjórnendur lögðu fram gögn sem sýna áttu óeðlilega hækkun vöru- verðs á leiðinni frá Bandaríkjunum í verslanir Baugs og gagnrýndu Baug mikið og deildu hart við Jóhannes. Sigurður G. Guðjónsson sagði þá í viðtali við blaðið að Jón Ásgeir hefði sent honum tölvupóst og tilkynnt honum að fyrirtæki hans myndu ekki auglýsa í fjölmiðlum Norður- ljósa framar. Baugur varð síðar stór hluthafi í Norðurljósum. Fullyrt var í grein Mannlífs að Jón Ásgeir hefði haft sér- stakan áhuga á að koma Jóhönnu Vilhjálmsdóttur úr starfi. Síðar hættu bæði hún og Þórhallur Gunnarsson á Stöð 2 og fóru yfir á Ríkisútvarpið. Tók Séð og heyrt úr sölu Spurningar hafa vaknað um hvað vakir fyrir Jóni Ásgeiri með því að eiga fjölmiðla. Rekstur þeirra hefur verið þungur og fáir skilað hagnaði. Í sömu grein í Mannlífi er sagt frá því þegar Sigurði Hólm Gunnarssyni, þáverandi blaðamanni Vísis, var sagt að eyða út frétt af vefnum um ásakan- ir Jóns Geralds Sullenberger á hend- ur Jóni Ásgeiri. Sigurður vildi ekki verða við því en bauð Jóni Ásgeiri að bregðast við fréttinni, það hafi hann hins vegar ekki viljað. Skömmu síðar hvarf fréttin og skýring Soffíu Stein- grímsdóttur, þáverandi ritstjóra, var að sögn Sigurðar að hafa þyrfti í huga hver eigandi miðilsins væri. Betra væri að hafa samband við forsvars- menn Baugs áður en slíkar fréttir væru birtar. Annað dæmi hefur verið nefnt um bein afskipti Jóns Ásgeirs af rist- jórnum fjölmiðla en það var þegar Séð og heyrt birti myndir af snekkj- unni frægu Thee Viking. Jón Ásgeir er sagður hafa brugðist illa við og tekið tölublaðið úr sölu í nokkrum búðum Baugs. Í fyrsta tölublaði Ísafoldar frá 2006 kemur fram að eigendur Frétta- blaðsins hafi afhent blaðinu ákær- urnar í Baugsmálinu á undan öll- um öðrum fjölmiðlum. Skilmálarnir voru að lögmenn Baugs myndu fá að lesa greinarnar fyrir birtingu. Síðar kom í ljós að þeir hlutuðust einnig til um hvenær ákærurnar yrðu birt- ar. Fréttablaðið var komið í þá stöðu að stinga fréttum ofan í skúffu þar til það hentaði eigendunum. Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri DV, segist aldrei hafa fundið fyrir eigendaþrýstingi á meðan hann ritstýrði blaðinu og Jón Ásgeir var aðaleigandi. „Nei, bara alls ekki. Ég hafði einu sinni samband við hann að fyrra bragði og það var til að tala við hann um kappakstur. Að öðru leyti talaði ég aldrei við hann. Allan þann tíma sem ég var þarna var sam- bandið nánast ekki neitt.“ Álítur sig ekki sökudólginn Deilt er um hversu mikla ábyrgð Jón Ásgeir ber á þeirri stöðu sem upp er komin í íslensku viðskipta- og efna- hagslífi. Margir hafa bent á hann sem einn helsta sökudólginn í hruni íslenska fjármálaheimsins. Sjálfur segist hann ekki finna til sektar og hefur bent til baka á Seðlabanka Ís- lands og sinn forna fjandmann Dav- íð Oddsson. Í aðsendri grein í Morg- unblaðinu á milli jóla og nýárs undir yfirskriftinni „Setti ég Ísland á haus- inn?“ segist hann ekki bera ábyrgð á ástandinu og segir meðal annars: „Hversu mjög sem ég leita í huga mér að slíkri ábyrgð þá finn ég hana ekki. Og vonandi ekki aðrir þeir sem horfa á þessar staðreyndir af yfirveg- un. Vissulega eru mörg fyrirtæki sem tengjast mér í vanda þessa dagana, eins og nær öll fyrirtæki í landinu. En það er afleiðing af hruni efnahags- lífsins, ekki orsök þess. Bankarnir hrundu yfir fyrirtækin, ekki fyrirtæk- in yfir bankana.“ Vilhjálmur Bjarnason, formað- ur félags fjárfesta, er ekki sammála. „Ábyrgð hans er töluverð. Hann kemur að FL Group, hann kemur að Glitni og ýmsum öðrum stofnunum. Hann skuldar örugglega eithvað í Landsbankanum sem er fjármagn- aður af IceSave. Þannig að hann ber ríkulega ábyrgð,“ segir hann „Líkt og um blóðhefndir væri að ræða“ Sænska viðskiptablaðið Affärsvärl- den lýsti samskiptum Jóns Ásgeirs og Davíðs með því að segja að það hefði sérlega djúpar víddir. Árum saman hafa þeir tekist á líkt og um blóð- hefndir væri að ræða. Ef til vill mætti lýsa þessu sem sjónvarpssápu eða nútíma Íslandssögu; lystisnekkjur, starfsmenn haldnir hefndarþorsta sem kjafta frá, ókeypis dagblöð með greinum sem koma andstæðingun- um illa, húsleitir og gegndarlaust skítkast. Þá segir blaðið að þegar Davíð Oddsson, sem stendur í framvarð- arsveit valdaelítunnar, neitaði að lána Glitni, banka Jóns Ásgeirs, hafi umfangsmiklar samsæriskenningar um persónulegar hefndir fengið byr undir báða vængi. Davíð varðist þessu vitanlega með því að segja að hann hefði ein- faldlega ekki getað veitt einkabanka svo stórt lán af skattfé borgaranna. En ákvörðun hans var engu að síður gagnrýnd af öðrum ástæðum. Í sjálfheldu Hvað sem því líður er staða Jóns Ás- geirs erfið og sannkallaður lífróð- ur í gangi. Hann á miklar eignir, en erfitt er að koma þeim í verð til þess að mæta þeim miklu skuldum sem á þeim hvíla. Breska blaðið Financ- ial Times greindi frá því á milli jóla og nýárs að svo kynni að vera að ís- lenska ríkið eignaðist hluta í breskum verslanakeðjum hans. Má þar nefna House of Fraser, Hamleys, Iceland og Karen Millen. Ástæðan fyrir þessu er að skuldum Baugs við íslenska banka verði breytt í eignarhlut í verslunun- um. Ekki sé vitað hversu háum skuld- um yrði breytt í eignarhlut með þessu fyrirkomulagi, en hins vegar verði ekki af þessum áformum náist ekki samningar við Landsbankann um að affrysta eigur Landsbankans í Bret- landi og aflétta hryðjuverkalögum sem sett voru á bankann í október. Í Svilar í brúðkaupi Baltasar Kormákur er kvæntur Lilju Pálmadótt- ur, systur eiginkonu jóns Ásgeirs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.