Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Qupperneq 17
Laugardagur 3. janúar 2008 17Umræða
Hver er maðurinn?
„grétar Þorsteinsson.“
Hvað drífur þig áfram?
„Trú á náungann og bjartsýni.“
Hvar ólstu upp? „Ég ólst upp
austur á rangárvöllum.“
Hvað lékstu þér helst við sem
barn? „Það var svo sem sitthvað en
þótt það þyki nú væntanlega ekki
merkilegt í dag þá lék ég mér meðal
annars að ýmiss konar húsdýrum í
formi dýrabeina. Ég rak þar stórbú.“
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? „Lambakjöt.“
Strengdir þú áramótaheit?
„Ég er enn að hugsa það.“
Hvaða þýðingu hefur riddara-
kross hinnar íslensku fálkaorðu
fyrir þig? „jú, auðvitað hefur þessi
heiður ákveðna þýðingu fyrir mig, en
ég lít öðrum þræði á hann sem
viðurkenningu fyrir störf verkalýðs-
hreyfingarinnar þar sem ég hef verið
þátttakandi í allmörg ár.“
Hvað ertu búinn að starfa lengi í
þágu alþýðunnar? „Ég er búinn að
starfa í verkalýðshreyfingunni frá því
árið 1965 svo það eru komin allmörg
ár síðan ég byrjaði.“
Finnst þér verkalýðsfélögin eiga
langt í land með sína baráttu?
„Verkalýðshreyfingin er auðvitað
alltaf að fást við þau verkefni að
koma málefnum verkalýðsins til betri
vegar á hverjum tíma og mun
væntanlega gera það um ókomna
framtíð. Verkefnin sem eru fram
undan núna eru auðvitað ævintýra-
lega stór og erfið.“
Hvað er fram undan sem helsta
baráttumál verkalýðsins, að
þínu mati? „alltaf, og ekki síst þegar
ástandið er eins og það er í dag, er
grundvallaratriðið að tryggja sem
best hlutskipti þeirra sem búa við
lægstu kjörin.“
Hver er draumurinn? „Það sem er
manni efst í huga er að við komumst
sem allra fyrst út úr þessum
hremmingum sem íslenska þjóðin er
komin í og engan óraði fyrir.“
Hvernig verður árið 2009?
„Það verður vonandi betra en síðasta ár.“
Petra Kolbrún PéturSdóttir
16 ára nemi
„Það verður fínt, betra en síðasta ár. Ég
ætla til Svíþjóðar að vinna í sumar.“
Jón Örn bogaSon
19 ára píparanemi
„Það verður frábært.“
ÁSdíS Sigrún PéturSdóttir
15 ára nemi
„árið 2009 verður frábært, alveg
klárlega. Það byrjar vel og endar vel.“
gunnar JóHannSSon
22 ára öryggiSVörður
Dómstóll götunnar
grétar ÞorSteinSSon
fyrrverandi forseti aSí er einn af þeim
ellefu sem sæmdir voru riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu. grétar
hlaut orðuna fyrir störf sín í þágu
verkalýðs en hann hefur barist fyrir
málefnum hans í yfir 40 ár.
Trúir á náungann
„gjaldþrot og lítil vinna.“
JaKob Marel ViðarSSon
19 ára nemi
maður Dagsins
Undanfarið hafa staðið umræður um
verðtryggingu og nokkur hópur telur
að verðtrygging sé óhagstæð lántak-
endum. Svo langt hefur þessi kenn-
ing náð, að tveir stjórnmálaflokkar
vilja afnema hana eða draga úr henni.
Undirritaður hefur gert rannsókn á
þessu og hefur komið í ljós að und-
anfarin 20 ár hafa raunvextir á óverð-
tryggðum kröfum verið á bilinu 1,5%
til 2% hærri en vextir á vertryggðum
kröfum (sá niðurstöður á heima-
síðu undirritaðs http://www3.hi.is-
/~lobbi/U/lan%20og%20raunvx.
htm, sjá svipaðar niðurstöður í Pen-
ingamálum 2003/2 síðu 91 http://
www.sedlabanki.is/uploads/files/
PM032_8.pdf)
Hér fyrir neðan sést hvaða kostn-
að það hefði í för með sér ef verð-
trygging væri afnumin og neyt-
endur hefðu einungis úr að velja
óverðtryggðum lánum, ef þróun
undangenginna ára héldist.
Verðtrygging
kjallari
guðMundur ólaFSSon
hagfræðingur skrifar
Afnám verðtryggingar myndi
að öllum líkindum kosta
lántakendur 10-13,5 millj-
ónir króna í viðbót við
það sem þarf að borga af
venjulegum verðtryggð-
um lánum nú.
Tafla um 40 ára lán þar sem ekkert
væri greitt af láninu fyrr en eftir 40 ár.
Verðtryggt 20 5,00 120,8
óverðtryggt 20 6,50 228,3 107,5
óverðtryggt 20 7,00 279,5 158,7
lÁnStíMi
40 Ár
lÁn MKr.
% Á Ári
Vextir eF eKKi
er greitt aF
lÁninu
Hærri Vaxta-
greiðSlur aF
óVerðtryggðuM
lÁnuM
Tafla um lán þar sem væri greitt upp
á 40 árum með jöfnum árlegum
greiðslum(annuitet).
Verðtryggt 20 5,00 26,6
óverðtryggt 20 6,50 36,6 9,9
óverðtryggt 20 7,00 40,0 13,4
lÁnStíMi
40 Ár
lÁn MKr.
% Á Ári
Vextir eF eKKi
er greitt aF
lÁninu
Hærri Vaxta-
greiðSlur aF
óVerðtryggðuM
lÁnuM
Hér að ofan sést í töflu til hægri
að afnám verðtryggingar myndi að
öllum líkindum kosta lántakendur
10-13,5 milljónir króna í viðbót við
það sem þarf að borga af venjulegum
verðtryggðum lánum nú og þykir víst
öllum nóg um.
mynDin
ÁraMótaStilla Stillan við Hafnarfjarðarhöfn gaf fyrirheit um það blíðviðri sem búast má við næstu daga. Við sjónarröndina rís nýtt hverfi bæjarins og gefur von um betri
tíð á nýju ári. Mynd raKel óSK Sigurðardóttir