Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Side 18
Laugardagur 3. janúar 200818 Fókus
u m h e l g i n a
Arnaldur Indriðason ber enn höf-
uð og herðar yfir aðra íslenska rit-
höfunda þegar kemur að vinsæld-
um. Nýjasta bók hans, Myrká, sló
Íslandsmetið í sölu íslenskrar skáld-
sögu á einu hausti, að sögn Egils
Arnar Jóhannssonar, framkvæmda-
stjóra Forlagsins, sem gefur út bæk-
ur Arnaldar. „Harðskafi sló öll met
í fyrra en Myrká gekk töluvert bet-
ur,“ segir Egill. Ekki er hægt að full-
yrða neitt um endanlegar sölutöl-
ur á þessum tímapunkti en Myrká
var prentuð í þrjátíu þúsund ein-
tökum. Það er stærsta fyrsta upplag
sem nokkur íslensk bók hefur verið
prentuð í.
„Nánast ómögulegt er að segja
hvernig þetta mun fara því skilin eru
eftir. Þau geta vegið ansi mikið, allt
upp í þriðjung af seldum bókum fyr-
ir jól. Það er því erfitt að segja hver
lokastaðan verður en þó er ljóst að
margir höfundar voru að ná met-
sölu með bækur sínar,“ segir Eg-
ill. Þar nefnir hann auk Arnaldar til
að mynda Einar Kárason, Guðrúnu
Evu Mínervudóttur, Auði Jónsdótt-
ur, Kristínu Helgu Gunnarsdóttur
og Gerði Kristnýju. Ef bækur þess-
ara höfunda komi í meðaltalsskil-
um sé líklega hægt að slá því föstu
að þeir hafi aldrei selt meira af ein-
um titli á einni jólavertíð.
„Einar er sannarlega með sína
mest seldu jólabók, og líklega lang-
mest seldu,“ bætir Egill við en bók
Einars, Ofsi, fór yfir tíu þúsund ein-
taka múrinn. Hún fékk mjög góða
dóma gagnrýnenda, var tilnefnd
til Íslensku bókmenntaverðlaun-
anna og var valin skáldsaga ársins af
starfsmönnum bókaverslana.
Þrjár uppseldar hjá Bjarti
Guðrún Vilmundardóttir hjá Bjarti
er mjög ánægð með uppskeru árs-
ins. Þrjár bækur seldust upp hjá for-
laginu fyrir jólin, þar af varð ein líka
uppseld í verslunum, Rökkurbýsn-
ir eftir Sjón. Hún var prentuð í tvö
þúsund eintökum. Hinar tvær bæk-
urnar eru spennusagan Vargurinn
eftir Jón Hall Stefánsson, sem prent-
uð var í fjögur þúsund eintökum,
og Skuggamyndir úr ferðalagi eftir
Óskar Árna Óskarsson en tvö þús-
und eintök af henni komu úr prent-
smiðjunni.
„Þetta gekk ívið betur en við
bjuggumst við. Þegar bækur seljast
upp nokkrum dögum fyrir jól er það
mikið fagnaðarefni,“ segir Guðrún.
Bækur Sjóns og Óskars Árna fenguð
báðar afbragðsdóma gagnrýnenda
og voru tilnefndar til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna í desember-
byrjun sem ætla má að hafi hjálpað
til í sölunni á þeim.
Þýdda spennusagan Karlar sem
hata konur eftir Stieg Larsson og ít-
alska matreiðslubókin Silfurskeiðin
seldust einnig vel hjá Bjarti í haust.
Þá var góð sala í kiljum sem gefnar
voru út fyrr á árinu að sögn Guðrún-
ar, til að mynda Friðþægingu eft-
ir Ian McEwan en bíómynd byggð
á bókinni var sýnd við miklar vin-
sældir í kvikmyndahúsum framan af
ári. Til marks um það er Friðþæging
í fimmta sæti yfir mest seldu kiljur
ársins hjá Eymundsson og Máli og
menningu og tíunda sæti á heildar-
lista ársins.
Þriggja vikna stopp vegna
bankahrunsins
Guðrún segir bókavertíðina hafa
verið nokkuð undarlega í ár vegna
bankahrunsins. „Það stoppaði eig-
inlega allt í þrjár vikur. En svo tók
þetta vel við sér og maður fann þegar
hjólin byrjuðu að snúast að það var
ákveðinn meðbyr. Maður heyrði líka
á mörgum að þeir ætluðu að gefa bók
á línuna í jólagjöf þetta árið.“
Bók Steinars Braga, Konur, fékk
framúrskarandi dóma í haust og
seldist upp töluvert fyrir jól. Bókin
átti að koma út hjá Bjarti en í miðju
bókaflóðinu í haust var tilkynnt
að Steinar hefði sagt skilið við for-
lagið og bókin kom svo út hjá Ný-
hil. „Hann ákvað að hag sínum væri
betur borgið annars staðar, en við
skildum í sátt,“ segir Guðrún. Að-
spurð hvort þau hjá Bjarti vilji reyna
að ná saman við Steinar á nýja árinu
segir Guðrún ekkert í deiglunni með
það. Steinar verði auðvitað að ráða
því hvar hann telji hag sínum best
borgið.
Arnaldur og Þórarinn efstir hjá
Eymundsson
Myrká er mest selda bók ársins 2008
samkvæmt sölulista Eymundsson
og Bókabúðar Máls og menning-
ar. Í öðru sæti er kiljuútgáfa Þús-
und bjartra sóla eftir Khaled Hoss-
eini, höfund Flugdrekahlauparans.
Barnaævintýrið Dísa ljósálfur er í
þriðja sæti en þar á eftir kemur önn-
ur íslensk spennusaga, Aska í kilj-
uútgáfu, eftir Yrsu Sigurðardóttur.
Hún kom úr í harðspjaldaútgáfu
árið á undan en nýjasta bók Yrsu,
Auðnin, nær ekki á topp tíu yfir mest
seldu bækurnar í öllum flokkum.
Auðnin er aftur á móti í þriðja sæti
á listanum yfir innbundin skáld-
verk ársins. Að sögn Péturs Más Ól-
afssonar, útgáfustjóra Veraldar, sem
gefur út bækur Yrsu, fór Auðnin út í
eitthvað á þrettánda þúsund eintök-
um. Það sé fjórðungi betra sala en á
Ösku í fyrra.
Sumarkiljan Áður en ég dey er í
fimmta sæti heildarlista Eymunds-
son og Máls og menningar en næsta
íslenska verkið á lista er Ofsi sem
vermir sjöunda sætið. Á lista inn-
Fingramálverk í kjallara
nú stendur yfir málverkasýning sænsku listakonunnar Ebbu Hammarski-
öld í kjallara norræna hússins. Sérstaða verkanna er að listakonan
málaði þau með fingrunum. Sýningunni lýkur um næstu helgi en
sýningarsalurinn í kjallara NorræNa HússiNs er opinn þriðjudaga til
sunnudaga frá kl. 12 til 17.
Jón Sæmundur Auðarson verð-
ur í listamannsspjalli í Hafn-
arhúsi Listasafns Reykjavíkur
á morgun, sunnudag. Jón Sæ-
mundur er einn listamann-
anna sem á verk á sýningunni
ID-LAB sem þar fer nú fram en
hann hefur haft mikil áhrif á
reykvíska götutísku.
Slagorð Jóns Sæmundar, Sá
sem óttast dauðann kann ekki
að njóta lífsins, endurspeglar
persónulega stöðu hans sem
HIV-smitaðs einstaklings sem
samið hefur frið við dauðann
en lifir heilbrigðu lífi af krafti
og óttaleysi. Myndlistarverk
hans sem byggt er á hauskúpu
og texta hefur orðið að nokkurs
konar vörumerki sem borið hef-
ur hugmyndfræði listamannsins
langt út fyrir myndlistarheim-
inn og haft áhrif á tískustrauma
samtímans.
ID-LAB er sýning á verkum
listamanna sem nota kraftmik-
il auðkenni tísku og hönnun-
ar til að skoða tíðaranda sam-
tímans. Listamennirnir eru
allir þekktir fyrir vinnu sína sem
myndlistarmenn en hafa einn-
ig flestir unnið að verkefnum á
sviði hönnunar og þannig haft
áhrif á tísku og tíðaranda. Aðrir
sem eiga verk á sýningunni eru
Gjörningaklúbburinn, Hrafn-
hildur Arnardóttir, Huginn Þór
Arason og Katrín Ólína Péturs-
dóttir en sýningarstjóri er er
Ólöf K. Sigurðardóttir. Sýning-
unni lýkur 11. janúar.
Þess má jafnframt geta að
tveimur sýningum lýkur á Kjar-
valsstöðum á morgun: yfirlits-
sýningu á lykilverkum Kjarvals
og hinni rómuðu sýningu Braga
Ásgeirssonar, Augnasinfóníu.
Jón Sæmundur Auðarson verður í Hafnarhúsi á sunnudaginn:
Spjall við óttalausan mann
Óvissa í
lost horse
Óskar Ericsson stendur nú fyrir sinni
fyrstu einkasýningu í Reykjavík í
Gallery Lost Horse, Skólastræti 1. Á
sýningunni gefur að líta þrjú mynd-
bandsverk sem öll eru unnin á ný-
liðnu ári. Umfjöllunarefni sýningar-
inar er tvíeðli og óvissa. Óskar nam
vídeólist við AKI Academy of Visual
Arts and Design í Hollandi 2003-
2007 en hann hefur tekið þátt í fjölda
sýninga þar í landi. Hér á landi vakti
hann mikla athygli fyrir vatnsskúlpt-
úr sinn, Þvottakórinn, á síðastliðinni
Menningarnótt í Reykjavík. Sýningin
stendur til næsta mánudags, 5. jan-
úar, en safnið er opið frá klukkan 13
til 19 eða samkvæmt samkomulagi.
sýningarlok
hjá sigrúnu
Sýningu Sigrúnar Eldjárn í Start
Art, Kyrralíf, lýkur næsta miðviku-
dag og því fer hver að verða síð-
astur að berja verk sýningarinnar
augum. Á tímum hrynjandi banka
og fallandi krónu er gott að staldra
við frammi fyrir kyrralífsmynd.
Þar eru engin læti á yfirborðinu en
undir niðri geta leynst heilu sög-
urnar. Sigrún Eldjárn er þjóðþekkt
fyrir myndir sínar og barnabækur.
Nú síðast sendi hún frá sér bókina
Eyja sólfuglsins fyrir jólin sem fékk
afar jákvæð viðbrögð.
sýningarlok
og djass
Sýningunum, Sveinn Björnsson -
Sjórinn og sjávarplássið og Char-
lottenborgarárin - tækifæri og ör-
lög, lýkur á morgun, sunnudag. Á
fyrrnefndu sýningunni eru valin
málverk Sveins Björnssonar (1925-
1997) sem sýna vel hve nátengdur
hann var sjónum og sjávarútvegi í
listsköpun sinni. Charlottenborgar-
árin er sýning sem setur verk Sveins
í samhengi verka eftir lítinn hóp
málara sem lagði stund á nám við
Listaakademíuna í Kaupmannahöfn
og sýndi saman á Charlottenborg
á tímabilinu 1961-´68. Á morgun
klukkan 16 verður boðið upp á síð-
degisdjasstónleika með Tríó Björns
Thoroddsens í kaffistofu Hafnar-
borgar en Sveinn var mikill djass-
unnandi.
Jón Sæmundur Auðarson
Hefur samið frið við dauðann.
Íslandsmet á jólum
káldve kanna
Arnaldur Indriðason sló nýtt Íslandsmet í bóka-
sölu með nýjustu bók sinni, Myrká. Fólk virðist
sækja meira í skáldskap eða hreinar og beinar
staðreyndir eftir bankahrunið. DV tók púlsinn
á bókaforlögum og -búðum sem eru í óðaönn að
púsla saman sölutölum jólabókaflóðsins.