Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Qupperneq 32
Laugardagur 3. janúar 200832 Sport
Usain Bolt
Þjóðerni: jamaískur
Íþrótt: Spretthlaup
Fæddur: 1986
n Hversu hratt getur einn maður
hlaupið? usain Bolt er sá líklegasti til að
svara því. Tvö hundruð metra hlauparinn
sem setti eiginlega óvart heimsmet í 100
m hlaupi. Bætti það svo umtalsvert á
Ólympíuleikunum þótt hann hafi nánast
farið á handahlaupi yfir marklínuna.
Bolt bætti einnig heimsmet Michaels
johnson í 200 metra hlaupi sem enginn
átti að geta bætt. Það verður vissulega
áhugavert að fylgjast með Bolt á árinu,
aðeins til þess að sjá hversu hratt þessi
hrokagikkur getur farið. Þeir sem eru
á hinum brautunum geta hins
vegar strax farið að hugsa um
silfrið. Þessi maður verður ekki
sigraður.
Nýtt íþróttaár er hafið. Það hefst þó ekki með stór-
móti í handbolta, aldrei þessu vant, en af nógu
verður að taka eins og á hverju ári. Hverjir munu skara fram úr í
ár? Hverjum þarf að fylgast með? Það eru auðvitað tugir og hundr-
uð íþróttamanna- og kvenna sem verðugt er að fylgjast með en DV
tók saman lista yfir átta einstaklinga, íslenska og erlenda, sem
sérstaklega gott er að hafa auga með á komandi ári.
DaviD Haye
Þjóðerni: Enskur
Íþrótt: Hnefaleikar
Fæddur: 1980
n Er Haye maðurinn sem mun lífga við
þungavigtina í hnefaleikum? Eitt er víst
að eitthvað mikið þarf til þar sem
úkraínsku bræðurnir Vladimir og Vitali
Klitscho ráða ríkjum í þungavigtinni og
hafa undir höndum öll beltin sem í boði
eru. Haye tókst að verða óumdeilanlegur
heimsmeistari í cruiservigt sem er
þyngdarflokki neðar. Hann hefur skilað
öllum beltunum og ætlar að þyngja sig
upp í þungavigtina. Þar ætlar Haye sér
að gera atlögu að einveldi Klitscho-
bræðra. Það þarf mikið til og því er meira
en verðugt að fylgjast með þessum
geðþekka Breta á árinu 2009.
arnór smárason
Þjóðerni: Íslenskur
Íþrótt: Knattspyrna
Lið: Heerenveen
Fæddur: 1988
n akurnesingurinn ungi sem nánast
enginn vissi hver var áður en Ólafur
jóhannesson kallaði hann allt í einu í
landsliðið. Fyrir því er góð ástæða. arnór
hefur frá árinu 2004 verið hjá Heeren-
veen og farið í gegnum unglingastarfið
þar og varaliðið. Þolinmæði hans og
vinnusemi, ásamt óumdeilanlegum
hæfileikum, hefur skilað honum í
aðalliðið þar sem hann hefur verið að fá
smjörþefinn af úrvalsdeildinni í Hollandi.
Árangurinn er heldur ekki svo slæmur ...
fimm leikir og tvö mörk. Íslenska
landsliðið vantar alltaf góða menn í
framlínuna. Kannski að hann finnist í
síðhærðum akurnesingi árið 2009?
anDrei arsHavin
Þjóðerni: rússneskur
Íþrótt: Knattspyrna
Lið: Zenit St. Pétursborg
Fæddur: 1981
n arshavin er orðinn vel þekktur í
knattspyrnuheiminum. Frammistaða
hans með Zenit, sem varð Evrópumeist-
ari félagsliða í vor, ásamt árangri hans
með rússneska landsliðinu hefur gert
hann að einum heitasta leikmanni
Evrópu. Hann ætlar sér nú loks að
yfirgefa rússland og færa sig yfir í stærri
deildir. arsenal er talið líklegast til að
hreppa hnossið og veitir ekki af liðstyrk
þar á bæ. arshavin er frábær knatt-
spyrnumaður og verður verðugt verkefni
fyrir hann að standa sig í stórri deild.
Einnig verður frábært fyrir hinn almenna
knattspyrnuáhugamann að sjá arshavin
leika í hverri viku.
margrét lára
viðarsDóttir
Þjóðerni: Íslensk
Íþrótt: Knattspyrna
Lið: Linköping
Fæddur: 1986
n Margrét Lára Viðarsdóttir er ekki
nýjasta nafnið í kvennaknattspyrnunni
en 2009 er ár þar sem vert er að fylgjast
með þessarri langbestu knattspyrnu-
konu landsins. Eftir þriðja Íslandsmeist-
aratitilinn í röð og enn einn markakóngs-
titilinn með Val samdi hún loks, já loks,
við erlent félagslið, sænska liðið
Linköping. Þar fær Margrét Lára mikla
samkeppni og tekur nýjum áskorunum.
Einnig verður Ísland í lokakeppni EM í
sumar þar sem Margrét Lára getur svo
sannarlega skotið sér enn hærra upp á
stjörnuhimininn.
Dan gosling
Þjóðerni: Enskur
Íþrótt: Knattspyrna
Lið: Everton
Fæddur: 1990
n undrabarnið frá Brixham, dan gosling,
er eitt mesta efnið á Englandi og er
talinn framtíðarstjarna landsliðsins.
goslin hóf að leika 16 ára með Plymouth
í næstefstu deild á Englandi og fór
frammistaða hans tæpast fram hjá
nokkru liði í úrvalsdeildinni. Hann samdi
að lokum við Everton þar sem hann
leikur nú og lék sinn fyrsta leik á annan í
jólum. Þar byrjaði hann inn á og lék allan
leikinn sem framliggjandi miðjumaður
gegn Sunderland og kórónaði frábæra
frammistöðu sína með marki. Hann
hefur leikið með u17, u18 og u19 ára
landsliðum Englands. Sparkspekingar
þar í landi segja stutt í að kallið frá
Capello komi í a landsliðið.
aron Pálmarsson
Þjóðerni: Íslenskur
Íþrótt: Handknattleikur
Lið: FH
Fæddur: 1990
n Þokkaleg eftirvænting var hjá mörgum handknattleiksunn-
endum fyrir tímabilið í ár. Vitað var að ungur drengur, sem var
að gera góða hluti með FH, ætti eftir að spila á meðal þeirra
bestu. Þessi strákur sem fólk hafði heyrt um úr Hafnafirðinum
er aron Pálmarsson. Sá hefur ekki valdið neinum vonbrigðum
og verið besti maður Íslandsmótsins. Hann var langbesti
maður u18 ára landsliðsins sem lék í úrslitakeppni u18 ára í
sumar og fékk tækifæri með a-landsliðinu fyrr í haust. Þar lék
hann eins og hann hefði alla tíð verið í landsliðinu og þegar
tekur að hausta á þessu herrans ári 2009 verður aron
Pálmarsson að berjast um leikstjórnendastöðuna hjá besta
félagsliði heims, Kiel frá Þýskalandi. Hann er einnig búinn að
negla niður landsliðssæti og fær enn frekar tækifæri til að
sanna sig þar á æfingamóti nú strax í janúar.
DaviD BeckHam
Þjóðerni: Enskur
Íþrótt: Knattspyrna
Lið: aC Milan (að láni frá La galaxy)
Fæddur: 1975
n Skærasta stjarna knattspyrnunnar er komin
aftur í „alvöruna“. Ekkert Bandaríkjarugl,
Beckham verður næstu mánuði lánsmaður hjá
stórliði aC Milan á Ítalíu. Er Beckham búinn eða
mun hann áfram dæla boltunum inn í teiginn
og vera maður sem lyftir leik aC Milan? Eitt er
ljóst og það er að nú verða það heimsklassa-
menn sem mæta á fyrirgjafirnar hans. Það er
langt á milli Schevchenko og Inzagi og svo Cobi
jones, með fullri virðingu fyrir honum. Beckham
í meistaradeildinni aftur. Árið 2009 er strax orðið
áhugavert fótboltaár.