Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Blaðsíða 38
Laugardagur 3. janúar 200838 Tónlist
Roman splæsti í RokkaRa Íslandsvinurinn og milljarða-
mæringurinn roman abramovich fékk rokkarana í Kings of Leon
til að skemmta fjölskyldu sinni og vinum í new York yfir hátíðirnar.
Hljómsveitarmeðlimir tóku hins vegar ekki í mál að yfirgefa sínar
eigin fjölskyldur svona í kringum jólin nema fyrir rétta upphæð og
samkvæmt erlendum fréttamiðlum ku roman hafa borgað sveitinni
heilar fimmtíu og fimm milljónir fyrir að fljúga frá nashville til new
York og spila á einum tónleikum.
umsjón: Krista HaLL, krista@dv.is
eRlendu
plötuR áRsins
Bon Iver
For Emma, Forever ago
Bon Iver, eða Justin Vernon, sendi
frá sér sína fyrstu plötu á árinu og á
fyllilega skilið hrós fyrir þetta meist-
araverk. Hér er á ferðinni einkar vel
unnin og metnaðarfull plata sungin
af manni með englarödd. Það verð-
ur því spennandi að fylgjast með Bon
Iver í framtíðinni.
Nick Cave
Dig!!! Lazarus Dig!!!
Þessi fjórtánda plata eilífðarrokkar-
ans Nicks Cave og hljómsveitar hans
The Bad Seeds á svo sannarlega
heima á lista yfir bestu plötur ársins.
Að auki er þetta ein besta plata Nicks
Cave til þessa. Platan er full af svört-
um húmor í anda Nicks Cave og gríð-
arlega kraftmikil. Ómissandi í tón-
listarsafni allra sannra rokkara.
Portishead
Third
Eftir ellefu ára bið gaf hljómsveit-
in Portishead út langþráða fjórðu
breiðskífu sína (að tónleikaplötunni
Roseland NYC Live meðtaldri.) Það
er nokkuð greinilegt að hljómsveit-
in hefur notað þessi ellefu ár vel og
útkoman varð þessi stórkostlega og
kraftmikla plata sem svíkur engan
sannan Portishead-aðdáenda.
TV on the Radio
Dear Science
Hljómsveitin TV on the Radio sendi
frá sér sína þriðju breiðskífu á árinu.
Dear Science er metnaðarfull og vel
mótuð plata þar sem undurfagrar
raddir þeirra Tunde Adepimbe og
Kyp Malone njóta sín vel. Platan hef-
ur víðast hvar fengið frábæra dóma
og ef þú átt hana ekki ennþá ættirðu
svo sannarlega að festa kaup á þess-
ari.
MGMT
Oracular Spectacular
Nokkrir nýliðar eiga sæti á listan-
um yfir bestu plötur ársins og einn
þeirra er sveitin MGMT. Lagið Time
To Pretend fór eins og eldur um sinu
um heiminn og stimplaði MGMT
sig vel inn hjá tónlistarspekúlöntum
jafnt sem öðrum. Fyrsta breiðskífa
þeirra Oracular Spectacular er heil-
steypt og góð og býður upp á hvern
slagarann á fætur öðrum.
Fleet Foxes
Fleet Foxes
Líkt og Bon Iver og MGMT sendi
Seattle-hljómsveitin Fleet Foxes frá
sér sína fyrstu breiðskífu á árinu.
Öllum að óvörum var hér á ferðinni
ein besta plata ársins 2008. Tónlist
Fleet Foxes er í anda tónlistarmanna
á borð við Bob Dylan, Neil Young og
fleiri tónlistarmanna sem voru áber-
andi á sjöunda áratugnum. Fersk og
frábær frumraun.
Goldfrapp
Seventh Tree
Fjórða breiðskífa elektró-dans-
drottningarinnar Goldfrapp kom út í
byrjun árs. Seventh Tree var heldur
frábrugðin plötunum Supernature
og Black Cherry. Ekki eins poppuð
en þess í stað undurfögur og seið-
andi plata með góðum textum sem
nutu sín vel með vel mótaðri og fal-
legri rödd Alison Goldfrapp.
Kings Of Leon
Only By the Night
Sitt sýndist hverjum um þessa fjórðu
breiðskífu Kings of Leon. Gallhörð-
um aðdáendum fannst sveitin verða
of „commercial“ með útgáfu plöt-
unnar en raunin er sú að hér er á
ferðinni vel unnin og góð plata sem
inniheldur hvern slagarann á fætur
öðrum. Söngvarinn Caleb Followill
er með rödd sem aldrei syngur feil-
nótu og er lagið Sex on Fire án efa eitt
vinsælasta lag ársins.
Lil‘ Wayne
The Carter III
Hinn smágerði og kjaftfori Lil´Wayne
átti rappárið 2008. Hann átti besta
lagið (A Milli) og bestu plötuna (Tha
Carter III). Með sinn óhefðbundna
stíl og sinni hráu rödd stimplaði
Wayne sig rækilega inn. Það er fátt
í persónuleika Waynes sem bendir
til annars en að hann sé kominn á
toppinn til þess að vera.
Það er af mörgu að taka þegar velja skal erlendu plötur ársins en á endanum eru alltaf nokkrar sem standa upp
úr. Listinn yfir bestu erlendu plötur ársins er heldur breiður og inniheldur allt frá hipp hoppi til eðalrokks.
mgmt