Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2009, Side 40
Laugardagur 3. janúar 200940 Lífsstíll
umsjón: koLbrún páLína heLgadóttir, kolbrun@dv.is
náðu þér eftir jólin
nú í upphafi árs eru margir að huga
að því að koma líkamanum í gott
form eftir jólin. jólamaturinn er oft
bæði saltur og reyktur og fer
stundum illa í fólk. margar þungar
máltíðir í röð, ásamt kaffi og
konfekti, geta tekið sinn toll. ef þið
finnið fyrir því að vera uppþembd,
þrútin, með höfuðverk, liðverki eða
slen þá er gott að taka sér tak og
hreinsa til í kerfinu. margar leiðir eru
til og eru þær mishraðvirkar. til að
fara milliveginn er best að vera með-
vitaður um að bæta hollri og góðri
fæðu inn á milli annarra máltíða og
passa auk þess að hreyfa sig
reglulega því það hjálpar mikið til.
Góð fæða
fyrir kroppinn:
Vatnsmelónur
Vatnsmelónur eru hvað áhrifaríkast-
ar ef tilgangurinn er að losa
úrgangsefni úr líkamanum. Þær eru
vatnslosandi og trefjaríkar og er
dásamlega gott að búa til drykk úr
þeim. Þá er melónan sett í mixara
og klökum bætt út í. ef steinarnir
eru hafðir með þá er drykkurinn að
auki orðinn trefjaríkur og þá afar
hreinsandi fyrir meltingarveginn.
Greip
greip eru líka vatnslosandi og
vítamínrík. Fyrir þá sem spekúlera
mikið í basískri og súrri fæðu þá er
greip gott til að gera líkamann
basískari en súr líkami er uppspretta
vöðvabólgu og liðverkja.
Grænt te
grænt te er fullt af andoxunarefnum
og ætti að skipta út einum til
tveimur kaffibollum á dag fyrir
skammt af tei til að ná sér niður eftir
hátíðarnar. Fyrir þá sem ekki drekka
grænt te eru til margar tegundir af
tei sem eru hreinsandi fyrir
líkamann. má þar á meðal nefna
engifer- og sítrónute.
Grænmeti
allt grænmeti er gott fyrir melting-
arkerfið sem kann að vera þreytt
eftir jólamatinn.
Hafrar
gott er að byrja nýtt ár á hafragraut í
morgunmat en hafrar eru mjög
trefjaríkir og fara vel í maga.
Vatn, Vatn oG
aftur Vatn
ekki er til betri leið til að hreinsa
líkamann af óæskilegum efnum en
vatnsdrykkja.
Boost
ávaxta- og grænmetis-boost eru
kjörin fæða til að ná sér eftir jólin.
auk þess að vera léttir í maga þá eru
svona drykkir stútfullir af vítamínum.
engifer er eitt besta bætiefnið fyrir
líkamann. bættu smáengifer í
drykkinn og hann verður helmingi
hollari fyrir vikið.
Í vor verða þunnir treflar og klútar áberandi. Þú gætur glætt einföldustu dress nýju
lífi með flottum klút eða fallegum trefli. Við skulum rifja upp nokkrar útfærslur á
klútum frá sýningarpöllunum í haust. Þar mátti sjá klúta notaða sem belti, bundna
um hárið, gerða að slaufum og notaða eins og vesti.
láttu þér
líða Vel
1byrjum á hárinu. berðu góða djúpnæringu í hárið frá eyrum og niður. settu plastpoka eða sturtuhettu yfir hárið á meðan þú skrúbbar
líkamann frá toppi til táar með líkamsskrúbbi, því næst
skaltu raka fótleggina. skolaðu líkamann og hárið vel
með volgu vatni og endaðu svo sturtuna á að skella þér
undir kalda bunu í nokkrar sekúndur.
2 notaðu sólarvörn alla daga ársins til að koma í veg fyrir hrukkumyndun. Þetta er svo sem ekkert leyndarmál en þú munt verða afar þakklát eftir
nokkur ár fyrir þetta góða ráð.
3 gefðu húðinni extra fallegan blæ með því að blanda smá glimmeri eða annarskonar glans út í rakakremið.
4 berðu andlitsfarðann á þig með förðunarbursta með góðum hárum. áferðin verður náttúruleg og fersk.
5 ekki nudda hyljarann ofan á farðann heldur berðu hann varlega á með fingurgómunum. Þannig hylur þú það sem hylja þarf.
6 berðu nokkur lög af maskara á augnhárin, þannig gefa þau augnhárunum einstaklega góða lyftingu og draga fram augun.
7 burstaðu augabrúnirnar vel og gefðu þeim aukna fyllingu með mildum, brúnum augn-skugga.
8 berðu gloss með smá lit í á varirnar og þú ferð að verða tilbúin að hitta vini og vandamenn lítandi glæsilega út.
9 Þurkkaðu hárið, hvolfdu höfðinu á meðan hárið er enn heitt, vefðu hárinu því næst í hnút og hafðu það þannig á meðan þú farðar þig. rétt
áður en þú ferð út tekurðu hnútinn úr, hvolfir höfðina á
ný og spreiar það létt og þú munt sveifla þokkafullum
og liðuðum lokkum.
10Veldu að lokum föt sem draga fram það besta á líkama þínum og þér líður vel í.
margar konur uppLiFa eFtir jóLin að Þær haFi borðað oF mikið, soFið
óregLuLega og hugsað iLLa um sig að einhVerju Leyti og taka ÞVí samkVæm-
isboðum ekkert endiLega Fagnandi Þessa dagana. dV tók saman nokkur
Frábær ráð tiL að ná Fram ÞVí besta á sVipstundu.
áramótaHeit nú gamla árið er liðið og strengja marg-
ir ýmis heit um breyttan og betri lífsstíl þessa dagana. margir
hverjir hafa hins vegar ekki mikla trú á því að strengja áramóta-
heit og velja því frekar að skrifa niður markmið sín fyrir nýja árið.
hvort sem þú strengir eitt áramótaheit eður ei er hugmyndin
að markmiðasetningunni góð. sestu niður með blað og penna
og ritaðu niður þau markmið sem þú vilt ná á árinu, markmiðin
mega snúa að persónulega lífinu sem og menntun og starfi.
klútar út
um allt
Inn undir beltið Þessi svarthvíti
hlébarðaklútur er mjög kúl í
þessari útfærslu temperley.
strekktur beinn innan undir beltið
og líkist helst gæjalegu vesti.Djarfa dressið gareth
pugh fer ætíð óhefðbundnar
leiðir en hér nýtur fallegur
og einfaldur klútur sín vel
við annars speisað dressið.
Þunnur í lit hjá dkny
var meðal annars notast
við þunnan skærgræn-
an trefil til að lífga upp á
bláan kjólinn.
Splæstu í nælu
einsog sjá má hjá dolce & gabbana
getur ein stór og falleg blómanæla
klætt bæði klútinn og dressið nýju
lífi.
Svarthvít og gróf Christian
Lacroix blandaði saman ýmiss
konar útfærslum af svörtu og hvítu
munstri og hikaði ekki við að skella
stórum röndóttum klút bundnum í
slaufu við svarthvítt dressið.
Bleik og dúlluleg marc jacobs lét
kjólinn og trefilinn passa vel saman
í sama bleika litnum en rokkaði
dressið upp með svörtu hálsmeni
vöfðu um klútinn. mjög smart.
Klútur - trefill - belti paul smith fór
óhefðbundnu leiðinni og skellti
klútnum um mittið á módelinu. ef
manni verður svo kalt er hentugt að
luma á einum vænum klút um mittið
til að vefja um hálsinn.
Gæjaleg og glæsileg gucci sýndi
það og sannaði að hægt er að vera
glæsileg gella en töffaraleg á sama
tíma. klúturinn minnir á óbundið
silkibindi og er flottur með
dragtinni.