Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2009, Qupperneq 2
þriðjudagur 10. febrúar 20092 Fréttir
Seðlabankastjórarnir Davíð Odds-
son og Eiríkur Guðnason gerðu mót-
mælendum það ekki til geðs að láta
sjá sig við Seðlabankann í gærmorg-
un en þar biðu þeirra um 60 manns
með það fyrir augum að varna þeim
inngöngu í bankann. Blaðamaður
og ljósmyndari DV náðu hins veg-
ar fundum Davíðs fyrir utan heimili
hans um klukkan tíu um morguninn.
Davíð var á leið inn í BMW-glæsibif-
reið Seðlabankans þegar blaðamað-
ur reyndi að ná tali af honum. Davíð
þagði og gaf til kynna með handar-
hreyfingum að blaðamaður skyldi
láta sig hverfa á braut. Davíð sat í far-
þegasæti bifreiðarinnar þegar henni
var ekið frá húsinu en virtist þó að-
eins fara stuttan hring með bílnum
áður en hann fór aftur heim. BMW-
inum var síðan ekið á braut með bíl-
stjóra Davíðs einan innanborðs.
Fór ekki í klippingu
Um 15 mínútum síðar var sendibif-
reið ekið upp að dyrum á húsi Dav-
íðs en fljótlega snúið við og keyrt í
burtu þegar bílstjórinn varð var við
ljósmyndara DV. Sendibifreiðin sást
síðar aka niður í bílageymslu Seðla-
bankans og grunaði viðstadda að
verið væri að flytja bankastjórana
til vinnu með bifreiðinni. Hvað sem
gekk á í sendibílnum er ljóst að þar
var Davíð fjarri góðu gamni því stuttu
síðar yfirgaf hann heimili sitt og
keyrði sjálfur á jeppa sínum vestur í
bæ, lagði fyrir framan blokk og gekk
þar inn. Á bílastæði bak við blokkina
beið svo einkabílstjóri seðlabanka-
stjóra rólegur í BMW-inum á með-
an Davíð dvaldi í blokkinni í um 20
mínútur. Í fyrstu var talið að Davíð
hefði farið í klippingu þar sem hár-
greiðslustofa er á annarri hæð húss-
ins. Blaðamaður spurði hárgreiðslu-
mann sem var þar við vinnu hvort
Davíð væri í klippingu hjá honum.
Hann sagði svo ekki vera, móðir Dav-
íðs byggi hins vegar í húsinu og hann
væri líklega hjá henni. Einkabílstjóri
Davíðs hélt síðan á brott en stuttu
síðar kom Davíð út og keyrði á sínum
eigin bíl upp á Landspítala.
Sagðist vera að fara í
læknisskoðun
Um 60 mótmælendur biðu, eins og
fyrr segir, seðlabankastjóranna við
bankann í gærmorgun en gripu í
tómt. Mótmælin leystust upp í há-
deginu en þá hafði fréttastofa RÚV
eftir Stefáni Jóhanni Stefánssyni í
Seðlabankanum að báðir banka-
stjórarnir hefðu sinnt störfum sínum
um morguninn, bæði innan húss og
utan þótt hann gæti ekki svarað því
nákvæmlega hvar þeir væru stadd-
ir þá stundina. Davíð virðist þó hafa
haft í nógu öðru að snúast þennan
morgun og vart haft mikinn tíma til
að gegna embættisverkum. Þegar
hann yfirgaf heimili móður sinnar
hélt hann upp á Landspítala.
Fyrir utan Landspítalann innti
blaðamaður Davíð eftir svörum og þá
sagði hann: „Sérðu ekki að ég er að
fara í læknisskoðun? Hvernig stend-
ur á því að þú eltir mig hér?“ Að svo
mæltu hélt Davíð rakleiðis inn á spít-
alann. Þegar blaðamaður ók í burtu
tók hann eftir að einkabílstjórinn
hafði komið sér fyrir í glæsibifreiðinni
Eiríksgötumegin um það bil mínútu
eftir að Davíð gekk inn í hinum enda
hússins. Í þann mund sem blaðamað-
ur lagði bílnum við Eiríksgötu kom
hann auga á Davíð á leið út af spítal-
anum um snúningsdyr. Þegar Dav-
íð sá blaðamann hætti hann við, hélt
áfram í snúningsdyrunum, fór heilan
hring og aftur inn á spítalann. Einka-
bílstjórinn hvarf á braut, einn síns
liðs, eftir 20 mínútna bið. Eftir rúma
klukkustund gafst blaðamaður upp á
því að bíða eftir að ná tali af Davíð.
Móðgar heila þjóð
„Hann verður bara að fara. Þetta
gengur ekki svona lengur,“ sagði
Hörður Torfason, forsvarsmað-
ur Radda fólksins, fyrir utan Seðla-
bankann í gær. „Þetta er móðgun,
ekki bara gagnvart forsætisráðherra,
heldur gagnvart heilli þjóð. Við mun-
um halda þessum aðgerðum áfram
þangað til hann fer.“ Lögreglan var
með viðbúnað við bankann fyrir há-
degi en mótmælin fóru með öllu frið-
samlega fram svo ekki þurfti að grípa
til neinna aðgerða.
Klukkan tvö staðfesti ritari Dav-
íðs að hann væri mættur til vinnu og
væri kominn á fund. Allar tilraun-
ir til að fá svör frá formanni stjórnar
Seðlabankans um framtíðaráform
hans reyndust því gagnslausar í gær.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra telur ríkisstjórnina ekki hafa
lagaheimildir til þess að reka seðla-
bankastjórana tvo sem þráast við
og neita að ganga til viðræðna um
starfslok. Hún treysti hins vegar á að
Alþingi muni samþykkja breytingar
á lögum um Seðlabanka Íslands en
þær kveða á um að störf bankastjór-
anna verði lögð niður.
Davíð Oddsson seðlabankastjóri lagði
á flótta undan spurningum blaðamanns
DV í gær. Glæsileg BMW-bifreið Seðla-
bankans, einkabíll Davíðs og sendibifreið
komu við sögu í þeytingi Davíðs um borg-
ina með viðkomu heima hjá móður hans
og á Landspítalanum. Þegar blaðamaður
DV náði að skiptast á orðum við Davíð
sagðist seðlabankastjórinn vera á leið í
læknisskoðun. Hann staldraði þó stutt við
á Landspítalanum og fór heilan hring í
snúningsdyrum til þess að koma sér und-
an frekari spurningum.
„Sérðu ekki að ég er að
fara í læknisskoðun?
Hvernig stendur á því
að þú eltir mig hér?“
BOði lOgaSOn
blaðamaður skrifar bodi@dv.is
Á landspítalanum
davíð sagðist vera að fara í
læknisskoðun.
MynD Rakel ÓSk SigURðaRDÓTTiR
Beið fyrir utan
bílstjóri bifreiðar
Seðlabankans beið fyrir
aftan spítalann.
MynD Rakel ÓSk SigURðaRDÓTTiR
Vildi ekki tala við
blaðamann
davíð vildi ekki svara hvort
hann ætlaði að hitta jóhönnu
Sigurðardóttur í gær.
MynD Rakel ÓSk SigURðaRDÓTTiR
Davíð flúði spurningar