Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2009, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2009, Side 3
þriðjudagur 10. febrúar 2009 3Fréttir Stjórnunarstíll Davíðs Oddssonar var umdeildur í tíð hans sem borgarstjóra og síðar forsætisráðherra. En stíllinn virt- ist færa honum undirgefni samverkamanna og mikil völd. Vinir Davíðs telja að stjórnvöld hafi nú í hótunum við hann og stundi hreinsanir. Hótanir og agavald davíðs Alvarlegar hótanir Davíðs, sem heimildir eru um, snúa að Morg- unblaðinu og ritstjórnum þess seint á síðasta áratug. Davíð tor- tryggði Styrmi Gunnarsson og völd Morgunblaðsins. Þegar við bættust tíð og illskeytt skrif Sverris Hermannssonar í Morgunblaðinu í garð Davíðs og ríkisstjórnar hans sauð upp úr árið 1998. Stjórnvöld höfðu þá fyrr um árið komið bankastjórum Lands- bankans, þeirra á meðal Sverri, úr bankastjórastóli. Mogginn Óundirritað bréf barst Matthíasi Johannessen ritstjóra um þetta leyti. Þar segir að umræður um Landsbankamálið kunni að bera í bakkafullan lækinn og tilgangur Morgunblaðsins sé sá einn að verja Sverri Hermannsson því hann fái að „… ryðja úr sér óþverranum á síðum blaðsins.“ Ritstjórarnir muni fá að kenna á slíku framferði. Löngu áður en þetta gerðist höfðu menn úr innsta hring Sjálf- stæðisflokksins, þeirra á meðal Davíð, dreift sögum um tugmillj- óna skuldir Styrmis. Svo rammt kvað að söguburðinum að snemma árs 1997 gekk Styrmir á fund Dav- íðs og baðst vægðar. Ljóst er að hótanirnar koma úr innsta hring Sjálfstæðisflokksins. Hverjir aðrir gátu haft í hótunum við ritstjóra Morgunblaðsins? Sjö mínútna kast Samflokksmenn, vinir og aðrir, kannast við reiðiköst Davíðs. Frá einu slíku segir Matthías Johann- essen í dagbókum sínum. 12. júní 1998 voru ritstjórar Morgunblaðs- ins í boði hjá Sverri Sigfússsyni, þá forstjóra Heklu, ásamt Davíð Oddssyni, Ólafi Skúla- syni, þá- verandi biskupi, og fleirum. „Þegar við höfðum sezt inn í stofu og vorum að tala um eitthvað hundómerki- legt, hóf hann skyndilega harða gagnrýni á mig út af Sverris-mál- inu … Gagnrýni Davíðs átti rætur að rekja til þess, að við skyldum hafa birt úr bréfi hans til Sverris Hermannssonar og mynd af því. Við værum því brotlegir og þátt- takendur í árás á hann.“ Séra Örn Bárður „Það er athyglisvert að í kynningu á „smásögu“ þar sem forsætisráð- herranum er lýst sem landráða- manni (manni sem selur fjallkon- una) og landsölumanni er gefið til kynna að sendingin sé á vegum fræðslustarfs kirkjunnar.“ Þetta er úr bréfi sem Davíð skrifaði biskupi Íslands fyrir um tíu árum en umrædd smásaga er eftir séra Örn Bárð Jónsson. Eftir birtingu sögunnar, sem lesa mátti sem ádeilu á stóriðjustefnu, var séra Örn Bárður settur af sem ritari Kristnihátíðarnefndar. Kaupþing 20. október 2007 sótti fjöldi Íslend- inga aðalfund Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins í Washington. Að honum loknum var haldin veisla á vegum Seðlabanka Íslands. Í veislunni veittist Davíð að Sigurði Einars- syni, meðal annars vegna kröfu stjórnenda Kaupþings um að fá að færa bókhald og rekstur bankans í evrum en ekki íslenskum krón- um. Gegn þessu hafði Davíð lagst af þunga. Sigurður hefur sagt það eitt að Davíð hafi látið stór orð falla og haft í hótunum um að knésetja Kaupþing á skömmum tíma. Hann nafngreindi vitni úr Seðlabankanum sem hafa ekki viljað tjá sig um atvikið. Umboðsmaður Í átökum um fjölmiðlafrum- varpið í maí 2004 gegndi Dav- íð Oddsson forsætisráðherra embætti dómsmálaráðherra í fjar- veru Björns Bjarnasonar. Hann fékk um þetta leyti í hendur álit Tryggva Gunnarssonar, umboðs- manns Alþingis, um skipan Björns Bjarnasonar á Ólafi Berki Þor- valdssyni, frænda Davíðs, í emb- ætti hæstaréttardómara. Sagt er að Davíð hafi mislík- að niðurstaða umboðsmanns og haft í hótunum við hann í símtali. Tryggvi lýsti því svo við trúnaðar- menn sína að Davíð hefði hótað að endurnýja ekki við hann ráðning- arsamning enda gengi hann erinda annarra umsækjenda. Var Tryggva brugðið eftir símtalið og íhugaði að tilkynna málið til Alþingis. „Þetta er miklu alvarlegra en að taka höfund Bláu handarinn- ar, Hallgrím Helgason, á teppið. Það er óhjákvæmilegt að taka mál- ið upp á vettvangi Alþingis. Þing- ið verður að verja sjálfstæði sitt og eftirlitsstofnana sinna,“ sagði Helgi Hjörvar í umræðum um málið á Alþingi. Vextir Landsbankans Í bókinni Sverrir – skuldaskil frá árinu 2003 er birt hótunarbréf Davíðs frá árinu 1996 til Sverr- is Hermannssonar, þáverandi bankastjóra Landsbankans. Dav- íð, þá forsætisráðherra, vildi lækka vexti en viðskiptabankarnir hækk- uðu þá. Davíð þoldi þetta illa og sendi Sverri nótu: „Ef þið lagið ekki þvæluna, sem þið gerðuð í síðasta vaxtaóðagoti, er það endanlegt dæmi þess að þið vitið ekki hvað þið eruð að gera og þá mun ég sjá til þess fyrr en nokkurn grunar að menn komi að bankanum sem viti hvað þeir eru að gera. Ég vil fá svar frá þér annað en skæting í fjölmiðl- um strax því ég mun ekki sitja leng- ur kyrr.“ Jóhann haUKSSOn blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Tryggvi lýsti því svo við trúnaðarmenn sína að Davíð hefði hótað að endurnýja ekki við hann ráðningarsamning enda gengi hann erinda annarra umsækjenda. Var Tryggva brugðið eftir símtalið og íhugaði að tilkynna málið til Alþingis. Sigurður Einarsson davíð hafði í hótunum um að knésetja Kaupþing í veislu hjá alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington 20. október 2007. Séra Örn Bárður Jónsson Settur af sem ritari Kristnihátíðar- nefndar eftir að ádeilusaga hans á stóriðju birtist í Morgunblaðinu. Davíð Oddsson Varla leikur vafi á því að völd davíðs hafa byggst á eins konar persónubundnu náðarvaldi sem stjórnmálamenn dreymir um að öðlast. hætti við davíð tók heilan hring í þessum snúningsdyrum þegar hann varð var við blaðamann. MynD RaKEL óSK SIGURÐaRDóTTIR Fámáll blaðamaður náði ekki tali af davíð í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. MynD RaKEL óSK SIGURÐaRDóTTIR davíð flúði spurningar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.