Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2009, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2009, Page 10
an gæsalappa, lífeyrissjóðirnir og gamla fólkið,“ útskýrir hann og spyr hvers vegna eldra fólk þurfi ekki að leggja sitt af mörkum. Aðeins þannig myndi líf kynslóðanna þróast í jafn- vægi en að öðrum kosti gæti hér orð- ið kynslóðastríð. „Ung kona skrifaði mér um daginn og sagðist ekki sjá það fyrir sér að afarnir og ömmur litlu barnanna sinna gætu haft gleði af því að horfa á þessar kynslóðir í eilífðarbasli,“ segir hann alvarlegur í bragði. Nefndin brást ráðherranum Benedikt hefur undanfarna mánuði viðrað hugmyndir sínar á bloggsíð- unni blogg.visir.is/bensi en hann var einnig einn framsögumanna á opnum borgarafundi í Háskólabíói fyrir áramót. Spurður hvort hann hafi fengið viðbrögð frá stjórnmála- mönnum við hugmyndum sínum segir hann að Jóhönnu Sigurðardótt- ur, nú forsætisráðherra, hafi orðið á mistök þegar hún skipaði nefnd sem ætti að skoða vandann vegna verð- tryggingarinnar. „Þeir sem þar sátu, meðal annarra Gylfi Arnbjörnsson hjá ASÍ og Þorgeir Helgason stærðfræðingur, komu upp með hugmyndina um greiðslujöfn- unarvísitölu. Sú hugmynd gengur út á það að fresta vandanum þannig að fólk borgar meira síðar. Það er hugs- að sem skammtímaúrræði en gerir ástandið verra ef ekkert fylgir í kjöl- farið. Ég leyfi mér að halda því fram að Þorkell og Gylfi hafi brugðist ráð- herranum. Stillt var upp aðferð til að verja verðtrygginguna en ekki til að komast út úr henni,“ segir hann og bætir því við að það sé óraun- hæf hugmynd að reka húsnæði fjöl- skyldna með þeim hætti að fólk borgi sífellt af lánum með höfuðstól sem sé langt umfram mögulegt markaðs- verð. „Það gerir enginn. Það er ekki boðleg framtíðarsýn.“ Réttlætinu gróflega misboðið Ríkisstjórnin hefur sagst ætla að slá skjaldborg um heimilin og að hún muni koma þeim til hjálpar sem eru á barmi gjaldþrots. Benedikt verður 57 ára í apríl. Hann segir að hans ald- urshópur hafi verið fyrstur til að taka verðtryggð náms- og íbúðarlán. Fólk á hans reki hafi því setið í súpunni þegar ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafi fryst laun- in 1983 til 1984 en hafi látið láns- kjaravísitöluna leika lausum hala. Við þær aðstæður hafi lánskjaravísi- talan mælt næstum því tvöföldun á greiðslubyrði yngstu fjölskyldnanna. Það hafi sett stóran hóp fólks í þrot. „Þá stofnaði ríkisstjórnin til svo- kallaðra „greiðsluörðugleikalána“. Ég var einn þeirra sem sótti um lán og taldi mig eiga rétt á slíku láni þar sem greiðslubyrðin hefði vaxið um nær 100 prósent. Mér var synjað á þeim forsendum að ég ætti ekki í vanskil- um,“ segir Benedikt sem telur að rétt- lætinu verði gróflega misboðið ef fólki sem berst við að standa í skilum verði ekki rétt hjálparhönd á meðan þeir sem ekki borgi fái aðstoð. Benedikt Sigurðarson segir að fram verði að fara svokölluð kreppuleiðrétting vegna þess hve vísitala neysluverðs leiki húsnæðiseigendur grátt. Færa verði höfuðstólinn niður til þess sem hann var 1. mars 2008. Hann segir að einstaklingar og fjármálastofnanir muni verða fyrir mun meiri skaða ef ekkert verður að gert. Ef lífeyrissjóðirnir og eldra fólk taki ekki á sig hluta skerðingar- innar geti hér orðið stríð á milli kynslóða. þriðjudagur 10. febrúar 200910 Neytendur „Þessi vísitöluhækkun síðustu mán- aða er byggð á óraunsærri mælingu. Vísitala neysluverðs mælir hækkun á sama tíma og allir aðrir mælikvarðar sýna að neysla heimilanna hefur ver- ið að dragast saman. Ef við værum með rétta neysluvísitölu, sem endur- speglaði neyslu síðustu þrjá, sex eða tólf mánuði, þá kæmi lækkun í ljós,“ segir Benedikt Sigurðarson, fram- kvæmdastjóri Búseta á Norðurlandi. Benedikt hefur afar sterkar skoð- anir á því hvernig stjórnvöld eigi að vinna úr þeim vanda sem skuldsett- ir eigendur húsnæðis standa frammi fyrir. Mikil verðbólga gerir það nú að verkum að miklar verðbætur leggjast á íslensk húsnæðislán. Á sama tíma hefur húsnæði fallið í verði svo ekki sér fyrir endann á. Eins og greint hef- ur verið frá mun því, áður en langt um líður, myndast bil á milli lán- anna og þess sem húsnæðiseigendur geta fengið fyrir fasteignir sínar; lán- in verða hærri. Benedikt spáir því að hér gæti skapast kynslóðastríð, verði ekkert að gert. Höfuðstóllinn verði lækkaður Benedikt bendir á að ástandið sem við stöndum nú frammi fyrir sé í alla lund óeðlilegt. Þó séu til leið- ir út úr vandanum. Ein þeirra sé sú að færa niður höfuðstól húsnæðis- lána, til þess sem hann stóð í 1. mars 2008. Það kallar hann „kreppuleið- réttingu“. „Verðtryggingin gerir bara ráð fyrir verðþenslu, mismikilli. Hún var ekki hugsuð til að takast á við kreppuhrun. Vísitölumælingin og verðtryggingin er lögvarin, það er að segja bæði heimildin til að verð- tryggja lánaskuldbindingar og verð- mælirinn. Það er skylda stjórnvalda að leiðrétta þetta. Fara þarf í almenna niðurfærslu höfuðstóls á verðtryggð- um lánum, sem nemur þessu óraun- sæja yfirskoti frá 1. mars 2008 til 28. febrúar 2009,“ segir hann. Fyrirbyggja stærra tjón Spurður hvort fjármagnseigend- ur, það er bankarnir og aðrar lána- stofnanir, eigi að taka skellinn, segir Benedikt að ef fólk hætti upp til hópa að geta greitt af lánum sínum muni vanskilin leiða til miklu meira verð- falls á fasteignum. Fjármálastofnan- ir verði með fangið fullt af eignum ef ástandinu verður ekki afstýrt. „Ef þær sitja uppi með tjónið mun miklu alvarlegra markaðsástand skapast, jafnvel greiðslufall hjá einhverjum af þessum fjármálastofnunum. Þessi aðgerð, að færa niður höfuðstólinn, er nauðsynleg til að fyrirbyggja mun stærra tjón,“ segir hann. Hann bendir þó á að þessi aðgerð myndi ekki ein og sér koma í veg fyrir að höfuðstólar fasteignalána hækk- uðu umfram verðmæti veðsettra eigna. Hún myndi hins vegar draga verulega úr þeim tilvikum. Bene- dikt vill taka upp nýja vísitölu. „Ég hef talað fyrir því að það væri rökrétt að innleiða vísitölu fasteignaverðs sem speglaði verðþróun húsnæðis. Ef fasteignaverð hækkar, þá hækk- ar höfuðstóllinn og öfugt. Þannig myndast ekki bil á milli þess sem þú skuldar og þess sem þú getur fengið fyrir húsið,“ útskýrir Benedikt. Kynslóðastríð Benedikt spáir því að fasteignamark- aðurinn hrynji ef ekki verði ráðist í al- mennar aðgerðir í ætt við þær sem að ofan eru taldar. Hann óttast árekstra á milli kynslóða. „Meginþunginn af skuldum heimilanna er á kynslóð- inni sem er 45 ára og yngri. Þessi hóp- ur mun bera langstærsta hlutann af þeim kostnaði sem fylgir því að end- urreisa bankakerfið og borga skaða- bætur vegna IceSave-klúðursins,“ segir hann og bætir við að þeir sem eigi fjármagnið séu varðir fyrir afleið- ingum kreppuhrunsins. Þeir muni fá aukna ávöxtun vegna óraunsærrar mælingar vísitölu neysluverðs. „Það er algjörlega út í hött að reikna með því að unga fólkið, 45 ára og yngra, vilji taka þátt í að bera tvöfaldan þunga af tjóninu, bæði sem skattþegnar og líka að tryggja aukaávöxtun til fjármagnseigenda, sem margir segja að séu í raun, inn- Kynslóðastríð eftir Kreppu BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is „Ung kona skrifaði mér um daginn og sagðist ekki sjá það fyrir sér að afarnir og ömmur litlu barnanna sinna gætu haft gleði af því að horfa á þessar kyn- slóðir í eilífðarbasli.“ „Það er ekki boðleg framtíðarsýn“ benedikt segir að ekki sé hægt að bjóða fólki upp á að borga sífellt af lánum sem séu mun hærri en markaðsvirði íbúða. MYND SIGTRYGGUR ARI Breytinga er þörf benedikt Sigurðarson, framkvæmdastjóri búseta á akureyri, segir nauðsynlegt að búa til vísitölu fasteignaverðs til að komast hjá því að milljóna bil myndist á milli markaðsvirðis og höfuðstóls lána. MYND HeIÐA GUÐMUNDSDÓTTIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.