Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2009, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2009, Page 16
ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 200916 Ættfræði Þorbjörg G. Pálsdóttir myndhöggvari og húsmóðir Þorbjörg fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún stundaði nám við Verzlunarskóla Íslands, stundaði nám í ljósmyndun við Iðnskólann í Reykjavík og stundaði nám við Berg- grens Målarskola og við Konstfack í Stokkhólmi. Eftir heimkomu frá Sví- þjóð, 1961, stundaði hún nám hjá Ásmundi Sveinssyni, hjá Sigurjóni Ólafssyni og hjá Jóhanni Eyfells. Þorbjörg stofnaði Myndhöggv- arafélagið í Reykjavík, 1972, ásamt nokkrum myndhöggvurum, og 1997 var hún gerð að heiðursfélaga þess. Þorbjörg tók virkan þátt í útisýn- ingum myndlistarmanna á Skóla- vörðuholti í mörg ár og þar var verk- ið Dansleikur fyrst sýnt árið 1970. Það hefur síðan verið steypt í brons og sett upp við Perluna. Ef marka má internetið er ljóst að margur ferða- maðurinn telur nauðsynlegt að taka mynd af því. Þorbjörg hefur haldið nokkrar einkasýningar á verkum sínum sem og tekið þátt í samsýningum, bæði hér heima og erlendis. Verk eftir Þorbjörgu eru í eigu ýmissa aðila, þ.á m. Listasafns Íslands og Lista- safns Reykjavíkur. Fyrir framlag sitt til myndlist- ar hefur Þorbjörg hlotið starfslaun myndlistarmanna. Fjölskylda Þorbjörg giftist 6.8. 1942 Andrési Ásmundssyni, f. 30.6. 1916, d. 30.10. 2006, lækni. Börn Þorbjargar Guðrúnar og Andrésar: Ásmundur, f. 1950, d. 1952; Hildur, f. 1953, d. 1955; Stefán, f. 1953, áfangastjóri, en kona hans er Þórunn Andrésdóttir sérkennari; Katrín, f. 1953, íþróttakennari, en maður hennar er Gunnar Kristjáns- son útibússtjóri; Þóra, f. 1957, hjúkr- unarfræðingur en maður hennar er Gunnar Halford Roach bankamað- ur; Andrés Narfi, f. 1958, arkitekt, en kona hans er Ása Sjöfn Lórensdótt- ir hjúkrunarfræðingur; Þorbjörg, f. 1960, d. 1983, bankamaður. Barnabörn Þorbjargar eru átj- án talsins en langömmubörnin eru fjögur. Systkini Þorbjargar: Stefán Páls- son, f.13.6. 1915, d. 25.7. 1969, tann- læknir; Ingibjörg Pálsdóttir Eggerz, f. 18.7. 1916, d. 2.2. 1999, listmálari og sendiherrafrú; Ólöf Pálsdóttir, f. 16.4. 1920, myndhöggvari og sendi- herrafrú; dr. Jens Ólafur Páll Páls- son, f. 30.4. 1926, d. 17.4. 2002, for- stöðumaður Mannfræðistofnunar HÍ. Foreldrar Þorbjargar voru Páll Ólafur Ólafsson, f. 30.8. 1887, d. 15.2. 1971, framkvæmdastjóri, út- gerðarmaður og ræðismaður, og Hildur Stefánsdóttir, f. 28.2. 1893, d. 10.5. 1970, húsmóðir. Ætt Meðal systkina Páls voru Jón Ólafs- son, læknir í Bandaríkjunum; Krist- ín Ólafsdóttir, fyrsti kvenlæknir hér á landi, kona Vilmundar landlæknis og amma Þorsteins heimspekings, Vilmundar ráðherra og Þorvalds hagfræðiprófessors Gylfasona, sem og Ólafs, sérfræðings við HÍ og Kristínar cand.mag; Guðrún, móð- ir Ólafs Björnssonar hagfræðings og prófessors og Ásthildar, konu Steins Steinars; Ásta í Brautarholti, móðir Ólafs Ólafssonar, fyrrv. landlæknis. Páll var sonur Ólafs, prófasts í Hjarðarholti Ólafssonar, kaup- manns í Hafnarfirði Jónssonar. Móðir Páls var Ingibjörg Páls- dóttir Mathiesen, pr. í Arnarbælli Jónssonar, pr. þar Matthíassonar, á Eyri Þórðarsonar, ættföður Vigur- ættar, bróður Ingibjargar, ömmu Jóns forseta. Þórður var sonur Ólafs, ættföður Eyarættar Jónssonar. Móð- ir Páls Mathiesen var Ingibjörg, syst- ir Gríms, langafa Ásgeirs Ásgeirs- sonar forseta, og systir Margrétar, langömmu Margrétar, móður Ólafs Thors forsætisráðherra. Systkini Hildar; Eiríkur, prófast- ur á Torfastöðum, Björn, prófast- ur á Auðkúlu, faðir Ólafs hagfræð- ings; Lárus, b. og bankamaður; Hilmar bankastjóri, faðir Stefáns bankastjóra; Sigríður, móðir Auð- ólfs yfirlæknis og dr. Hólmfríðar Gunnarsbarna. Hildur var dóttir Stefáns, pr. í Auðkúlu Jónssonar, bókara í Reykjavík Eiríkssonar. Móðir Hildar var Hólmfríður Bjarnadóttir, stúdents á Stóra-Ási Thorarensen. Móðir Hólmfríðar var Anna Jónsdóttir, sýslumanns í Víðidalstungu Jónssonar, og Hólm- fríðar Ólafsdóttur, systur Ingibjarg- ar, langömmu Elísabetar, móður Sveins Björnssonar forseta. Ingi- björg var einnig langamma Þor- valds, afa Vigdísar Finnbogadóttur. Móðir Hildar var Þorbjörg Hall- dórsdóttir. Móðir Þorbjargar var Hildur, systir Jóns, bókara Eiríks- sonar. Tryggvi Þórhallsson forsætisráð- herra lauk stúdentsprófi frá MR, embættisprófi í guðfræði frá HÍ og hugðist feta í fótspor föður síns og hasla sér völl á sviði guðfræði og kristindóms. Hann var biskupsrit- ari 1912-13, prestur á Hesti í Borg- arfirði 1913-17 og settur dósent í guðfræði við HÍ 1916-17. Hann sótti þá um dósentstöðuna en var hafn- að. Það varð örlagaríkt því Tryggvi söðlaði nú um, snéri sér að pólitík og gerðist ritstjóri Tímans. Þar með varð hann, ásamt Jónasi frá Hriflu, annar leiðtogi „Tímaklíkunnar‘‘ sem hélt uppi harðri stjórnarand- stöðu við íhaldsstjórnina frá 1924, og ásamt Jónasi, helsti arkitekt að kosningasigri Framsóknarflokks- ins 1927 sem markar upphafið að hinu langa valdatímabili flokksins, – meira og minna fram að Viðreisn, 1959. Tryggvi þótti ábyrgari og naut mun meira trausts meðal þing- flokks framsóknarmanna en Jónas. Tryggvi varð því formaður Fram- sóknarflokksins 1927 og forsætis- ráðherra í fyrstu vinstristjórninni, 1927-31, hreinni framsóknarstjórn með stuðningi Alþýðuflokksins. Jónas varð hins vegar dómsmála- og menntamálaráðherra. Þessi ríkisstjórn var mjög at- hafnasöm en missti stuðning Al- þýðuflokksins 1931, í upphafi kreppunnar, vegna ágreinings um kjördæmamál. Tryggvi rauf þá þing og uppskar í kjölfarið gífurleg mót- mæli sem verða helst borin saman við mótmælin á Austurvelli undan- farnar vikur. Þingrofið og afleiðingar þess áttu eftir að kosta Framsókn mikla flokkadrætti, og ósætti milli Jónas- ar og Tryggva, sem lauk með því að Tryggvi sagði sig úr flokknum og stofnaði Bændaflokkinn 1934. En þrátt fyrir þingrofsmótmæl- in átti Tryggvi það sameiginlegt með fyrrv. forsætisráðherra, Geir H. Haarde, að njóta töluverðra, al- mennra vinsælda og trausts og virðingar pólitískra andstæðinga, jafnt sem samherja. Hann var fríð- ur sýnum, fyrirmannlegur leiðtogi þjóðarinnar á Alþingishátíðinni 1930 og þótti drenglundaður og hjartahlýr. Foreldrar Tryggva voru Þórhall- ur Bjarnason, biskup í Laufási við Laufásveg, og Valgerður Jónsdóttir. Systir Tryggva var Dóra Þórhalls- dóttir, síðar forsetafrú. Tryggvi Þórhallsson f. 9. febrúar 1889, d. 31. júlí 1935 „Ég finn voðalega lítið fyrir þessu þar sem ég er svo ung í anda og sprell- fjörug,“ segir Harpa Guðmundsdótt- ir hress í bragði en hún er afmælis- barn dagsins og fagnar þeim áfanga að verða fertug. „Lífið hefur ekkert lengur með aldur að gera og það er nú bara rétt að byrja núna,“ segir hún og rifjar upp þegar hún var í fertugsafmæli móður sinnar en þá fannst henni allt fólkið í veislunni vera fjörgamalt. „Það verður að segjast að ég get ekki fundið það í dag en þau voru auðvit- að bara ung þá.“ Harpa hefur ofsalega gaman af því þegar fólk hittist og gleðst saman og hefur verið dugleg að halda upp á stórafmælin sín í þeim tilgangi að hitta fólkið sitt. Í sumar langar hana að halda afmælisdansleik þar sem hún vonast til að geta hitt alla sína gömlu, góðu vini. „Kannski verður þetta bara garðdansleikur með al- vöru tónlist og skemmtilegum dansi.“ Hörpu finnst því tilvalið að fólk sem þetta les fari að undirbúa sig fyrir herlegheitin. Fari að æfa danssporin sem og skemmtiatriðin. „Danskort- um verður svo útdeilt,“ segir hún og hlær. Á sjálfan afmælisdaginn býst hún við að gera eitthvað smávegis. „Ég verð kannski með kjötsúpu handa nánustu fjölskyldunni,“ segir hún auk þess að njóta lítillar skemmtilegrar hefðar sem kemur frá sænskum eig- inmanni hennar en það er morgun- verður í rúmið. „Það er allt gert fyrir afmælisbarnið með skemmtilegum morgunmat, alls kyns álegg og got- terí. Fjölskyldan safnast þá saman yfir því og pakkaopnun.“ Harpa sem er menntaður kenn- ari í Alexandertækni á tvö börn sem hún segir líka halda sér afar ungri. Auk þess vinnur hún með ungum mæðrum í Hinu húsinu. „Það er afar skemmtilegt og gefandi starf,“ seg- ir hin hressa fertuga kona að lokum sem ekki ætlar sér að eldast meir. „Ég hætti sko að telja þegar ég var 27 ára gamall námsmaður í London og hef ekki elst neitt síðan.“ asdisbjorg@dv.is Harpa Guðmundsdóttir er fertug í dag: Ógleymanlegur dansleikur 30 ára n Krzysztof Jasielski Smiðshöfða 8, Reykjavík n Rafal Andrzej Szulborski Unufelli 21, Reykjavík n Urszula Sokól Básenda 8, Reykjavík n Þröstur Magnússon Engjavöllum 5a, Hafnar- fjörður n Bjarney Bjarnadóttir Klausturstíg 9, Reykjavík n Sigrún Guðjohnsen Gvendargeisla 21, Reykjavík n Davíð Ingi Jóhannsson Vallarási 12, Njarðvík n Brynjólfur Helgi Reynisson Álfholti 56c, Haf- narfjörður n Guðbjörn Logi Björnsson Hagamel 46, Reykjavík n Ágústa Ringsted Asparholti 3, Álftanes 40 ára n Maria L C Alcaraz Brekkutanga 14, Mosfellsbær n Tomasz Krysztof Chomiak Urðargötu 5, Patreks- fjörður n Robert Komow Grenivöllum 12, Akureyri n Þórdís Ingadóttir Hólmgarði 7, Reykjavík n Axel Jónsson Bakkastöðum 91, Reykjavík n Hrafn Stefánsson Hólabraut 20, Akureyri n Svava Huld Þórðardóttir Dalbraut 15, Akranes n Kristinn Valur Wiium Fjallalind 53, Kópavogur n Ari Jóhannes Þorsteinsson Skaftahlíð 12, Rey- kjavík n Birgir Hafliði Steinarsson Vallnaholti 4, Egilsstaðir n Harpa Guðmundsdóttir Seljavegi 11, Reykjavík n Ingunn Jóna Gísladóttir Bakkastöðum 161, Rey- kjavík n Þorkell S Símonarson Ytri-Görðum, Snæfellsbær n Gunnhildur Imsland Hagatúni 9, Höfn n Agnar Már Olsen Hólagötu 31, Njarðvík 50 ára n Andri Thanh Bui Stóragerði 24, Reykjavík n Anna Björg Hjartardóttir Sörlaskjóli 7, Reykjavík n Þuríður Jörgensen Einidal 6, Njarðvík n Anna Björg Elísdóttir Laugalæk 44, Reykjavík n Halla Magnúsdóttir Grenimel 30, Reykjavík n Sigurjón Rúnar Jónsson Álfheimum 36, Reykjavík n Rúnar Helgason Hátúni 39, Reykjanesbær n Ragnheiður Skúladóttir Maríubaugi 53, Reykjavík n Heiða Rósa Sigurðardóttir Dvergagili 40, Akureyri n Elfar Gunnlaugsson Ásklifi 2, Stykkishólmur n Baldur Sigurðsson Réttarheiði 23, Hveragerði n Helga Jónasdóttir Lindasmára 48, Kópavogur n Erlingur Garðarsson Neðra-Ási 1, Sauðárkrókur n Lilja Jósteinsdóttir Hvammsdal 7, Vogar n Sigríður Sveinbjörnsdóttir Lyngholti, Fosshóll n Guðjón Jóel Björnsson Háalundi 1, Akureyri n Kristín Þóra Kristjánsdóttir Suðurbraut 20, Haf- narfjörður 60 ára n Þórður Grétar Bjarnason Snorrabraut 40, Rey- kjavík n Marta Kristín Sigmarsdóttir Logalandi 25, Rey- kjavík n Jón Guðmundsson Norðurgötu 10, Seyðisfjörður n Unnur Ríkey Helgadóttir Lautasmára 1, Kópa- vogur n Ragnhildur Blöndal Dísarási 1, Reykjavík n Þórhalla Gísladóttir Kambaseli 42, Reykjavík n Herdís Sigurjónsdóttir Eyrarholti 6, Hafnarfjörður 70 ára n Sigrún Andrésdóttir Markarflöt 15, Garðabær n Birgir Magnússon Espigerði 2, Reykjavík n Eva Elsa Sigurðardóttir Laugarásvegi 65, Rey- kjavík n Svanbjörg Gísladóttir Smárahlíð 8a, Akureyri 75 ára n Margrét Sigurbjörnsdóttir Bessahrauni 6, Vest- mannaeyjar 80 ára n Sigríður Löve Laugarnesvegi 87, Reykjavík n Guðný Jónsdóttir Ásgarðsvegi 10, Húsavík n Sigríður Einarsdóttir Aðalgötu 19, Reykjanesbær 85 ára n Gunnþórunn Sigurðardóttir Valshólum 2, Rey- kjavík 90 ára n Agnar Tryggvason Laufásvegi 48, Reykjavík Til hamingju með afmælið! merkir Íslendingar 90 ára Í dag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.