Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Page 6
föstudagur 13. febrúar 20096 Fréttir Sandkorn n Heimsókn forsetahjónanna í Hvolsskóla á Hvolsvelli vakti athygli og þá ekki síður sú staðreynd að Sámur, nýr hundur forsetahjón- anna, var með í för. Það er kannski ekki tilviljun ein sem ræður því að Sámur var með í för. Þegar forseta- hjónin heim- sóttu annan skóla á síðasta ári upphófst nefnilega mikil umræða meðal nem- enda um hvort forsetahjónin ættu hund og þegar ljóst var að svo var ekki hvernig hund þau ættu að fá sér. Og nú eru þau sem sagt komin með hund. n Magnús Hlynur Hreiðarsson hefur oft vakið athygli með frétta- innslögum sínum í Sjónvarpinu. Hann átti góða stund í frétt sinni um forsetaheimsóknina í Hvols- skóla þegar hann spurði Ólaf Ragnar Grímsson forseta hvort hundurinn Sámur hlýddi forsetanum. „Já, svona nokkuð vel, nokkuð vel. Það mætti nú vera aðeins betur, en það er nú eins og með fleira,“ svaraði Ólafur Ragn- ar. Í ljósi orðaskipta forsetans og forsetafrúarinnar í frægu viðtali við Condé Naste Portfolio, þar sem Ólafur reyndi að þagga niður í Dorrit Moussaieff án árangurs, kynni einhverjum detta í hug að hann hefði haft hana í huga í þessu svari. Enda forsetafrúin ekki alltaf sú hlýðnasta. Gunnar Þorsteinsson, forstöðumað- ur Krossins, hefur efasemdir um að það sé jákvætt að samkynhneigð kona starfi nú sem forsætisráðherra landsins. „Það eru blendnar tilfinn- ingar. Ég held að við þurfum að skoða þetta í því samhengi að íslenskt efna- hagslíf er brunarúst og orðspor okk- ar á undir högg að sækja. Við erum aðhlátursefni þjóðanna. Fjölmiðlar eins og Berlingske Tidende birta á forsíðu að lesbísk flugfreyja eigi að bjarga Íslandi. Þetta er ekki alveg það sem við vildum sjá í þessu samhengi. En ætli við getum ekki sagt að skel hæfi skolti,“ segir hann. Gunnar hefur sem forstöðumað- ur Krossins talað fyrir því að samkyn- hneigð sé ekki þóknanleg Guði. Hlynntur Bjarna Ben Spurður hvort hann túlki umfjöll- un á borð við þá sem hann nefnir á þann hátt að verið sé að gera grín að Íslendingum segir Gunnar: „Heims- byggðin hlær.“ Fjöldi erlendra blaða, til dæmis breska Times, hefur hins vegar slegið því upp á jákvæðan hátt að hér hafi tekið við völdum lesbía sem lengi starfaði sem flugfreyja og sérstaklega fjallað um að hún njóti trausts þjóð- arinnar. Gunnar fagnar því þó að kona hafi valist til starfans. „Það er ánægjulegt. Við brutum blað þegar við völdum konu til að vera forseti. Vigdís [Finn- bogadóttir] var okkur til sóma um all- an heim. Ég vona að Jóhanna muni feta sömu slóðir. Ég held að hún sé afbragðskona,“ segir Gunnar. Hann býst hins vegar fastlega við að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í kom- andi kosningum. „Ef svo lánlega fer að Bjarni Benediktsson verði for- maður hef ég nú trú á því að hug- myndafræði þeirra falli afskaplega vel að mínum hugmyndum um frelsi einstaklingsins og frelsi samtaka og safnaða til frjálsra starfa,“ segir Gunnar. Hjónabandið heilagt Hrifning Gunnars á Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, er þó öllu minni en á Bjarna Benediktssyni. „Til eins valdamesta embættis í heim- inum hefur valist ungur og óreynd- ur maður sem við vitum í raun ekk- ert hver er. Ég sé að hann hefur hrint í framkvæmd ýmsu sem mér fellur ekki í geð. Hann hefur til dæmis ýtt undir endurskilgrein- ingu hjónabandsins og hefur hafið baráttu fyr- ir því sem kallast „parti- al-birth abortion“ eða fóstureyðing þar sem eyða má fóstri alveg fram að fæðingu. Það er nokkuð sem ég get ekki sætt mig við,“ segir Gunnar. Kosning Obama er hins veg- ar gleðiefni að mati Gunnars að öðru leyti. „Ég gleðst mikið yfir því að maður með dökkt hörund skuli vera forseti Bandaríkjanna og að þarna séu svört lítil börn að leika sér á lóðinni við Hvíta húsið. Það gleður hjarta mitt verulega. En hver er þessi maður? Ég hef ekki hugmynd um hver hann er,“ segir Gunnar. Hann bætir við að Obama eigi auðvelt með að hrífa fólk með sér. „Hann er alveg framúrskarandi ræðu- maður, myndarlegur maður og á yndis- lega fjölskyldu,“ segir hann. „Ég gleðst mikið yfir því að maður með dökkt hörund skuli vera for- seti Bandaríkjanna og að þarna séu svört lítil börn að leika sér á lóðinni við Hvíta húsið.“ Gunnar Þorsteinsson í Krossinum ber blendnar tilfinningar í brjósti vegna þess að forsætisráðherra Íslands er lesbía. Hann telur að við verðum að athlægi erlendis vegna þess að samkynhneigð fyrrverandi flugfreyja eigi að bjarga íslensku efnahagslífi. Gunn- ar er heldur ekki sáttur við stefnu Baracks Obama þegar kemur að fóstureyðingum. „HEIMSBYGGÐIN HLÆR“ Erla Hlynsdóttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is sjálfstæðismaður gunnar í Krossinum stefnir á að kjósa sjálfstæðisflokkinn í komandi kosningum, sér í lagi ef bjarni benediktsson verður formaður. Mynd Gunnar GunnarssOn Myndarlegur gunnar segir Obama vera myndarlegan og framúrskarandi ræðumann. Mynd GEtty afbragðskona Jóhanna sigurðardóttir er afbragðskona að mati gunnars en telur að kynhneigð hennar geti skaðað orðspor Íslands. Mynd HEiða HElGadóttir ÞÚ FÆRÐ TÍMARITIN HJÁ OKKUR Skeifan 550-4110, Smáralind 550-4140, Kringlan 550-4130, Hafnarfjörður 550-4120, Selfoss 550-4190, Vestmannaeyjar 550-4180, Egilsstaðir 550-4160, Akureyri 550-4150, Ísafjörður 550-4170 20%A F S L ÁT T U RAF AMERÍSKUM OG ENSKUM TÍMARITUM Nýtt kortatímabil

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.