Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Page 8
föstudagur 13. febrúar 20098 Fréttir „Það var svakalegt sjokk fyrir mig að lesa svona rugl. Það er eng- inn fótur fyrir þessum ásökun- um. Hann gerði ekki neitt. Ég bjó með honum í sjö ár þannig að ég veit hvernig maður hann er. Hann gæti ekki gert svona. Hann er mjög góður og ljúfur strákur,“ segir móð- ir stúlkunnar. Maðurinn var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykja- ness á mánudaginn fyrir kynferð- isbrot gegn dóttur sinni. Brotin áttu sér stað frá sumri 2006 fram í nóvember 2008. Stúlkan var rúm- lega eins árs þegar brotin hófust en er nú tæplega fjögurra ára. Heimilislaus í Reykjavík Eins og fram kemur í dómnum sem féll á mánudaginn fékk faðir stúlkunnar fullt forræði yfir henni þegar hann og barnsmóðir hans skildu árið 2007. „Ég gerði samkomulag við hann um að hann fengi fullt for- ræði yfir stelpunni þegar við skild- um þar sem ég var heimilislaus á þeim tíma. Við tókumst í hendur fyrir framan sýslumann og gerðum munnlegan samning. Það líta allir framhjá þessum munnlega samn- ingi og þar af leiðandi er ég rétt- laus og get ekki fengið forsjá yfir barninu mínu. Félagsmálayfirvöld vilja meina að ég hafi afsalað mér öllum rétti yfir dóttur minni en svo er ekki. Ég var heimilislaus í eitt og hálft ár í Reykjavík og mér fannst ekki hægt að bjóða barninu upp á það. Ég er klár í hausnum og vissi að ég þyrfti að hafa öruggan stað til að ala upp barnið mitt út af því að ég er góð móðir. Þetta kalla ég þroska. Ég var nýkomin með íbúð þegar löggan bankaði upp á og spurði mig út í þetta mál. Ég fékk sjokk. Þetta er það heimskulegasta sem ég hef heyrt. Ég fór að gramsa í kollinum á mér en ég sá aldrei svona hegðun hjá honum.“ Vitleysan byrjaði á leikskóla Á spjallsvæði þar sem hinn dæmdi skrifar kemur fram að barnsmóðir hans sé ofbeldisfull og hafi marg- sinnis reynt að ráðast á hann með hnífum. Hún kannast ekki við þetta enda hafi samband þeirra ávallt verið gott og mikil ást sé enn þar á milli, en nú aðeins á vinaleg- um nótum. „Við skildum út af því að við átt- um ekki samleið lengur. Við erum bæði skapstór og við rifumst en við gerðum það aldrei fyrir framan barnið. Ef við vorum eitthvað að kíta fór ég út í göngutúr eða hann í tölvuna til að slaka aðeins á og svo ræddum við málin þegar stelpan var farin að sofa. Ég fór frá þeim árið 2007 en var mikið með þeim þegar þau fluttu í annað bæjarfélag. Það var bara venjulegt heimilislíf þótt við værum ekki saman. Ég hef aldrei séð grun- samlega hegðun í hans fari og ég er mjög skeptísk manneskja. Ég fylgd- ist með hvernig hann hélt á henni og baðaði hana og ég sá aldrei neitt sem gæti bent til þess að hann væri að skaða barnið,“ segir móðir stúlk- unnar sem telur að hún hafi lært orðið „tyggja“ á leikskólanum. Það orð notaði hún yfir kynlífsathafnir og notaði dúkkur og bangsa til að útskýra þær við yfirheyrslur. „Stelpan byrjaði á þessari vit- leysu þegar hún byrjaði á leik- skóla. Við tókum þá bara dúkk- urnar af henni og það hætti. Ég vildi ekki að hún færi í leikskóla því krakkar læra alls kyns ósiði og ljót orð á leikskólum. Hann leit- aði hjálpar hjá félagsmálayfirvöld- um út af þessu eins og umhyggju- samur faðir myndi gera. Síðan er honum hent í fangelsi án nokkurra sannana.“ Allt tekið úr samhengi „Þetta er mjög misskilið mál. Hlut- ir eru teknir út og settir inn til að láta okkur líta illa út. Félagsmálayf- irvöld hafa lagt okkur í einelti síð- an hún fæddist og hafa troðið sér inn á heimili okkar. Við leyfðum þeim það svo þau myndu hætta að pikka í okkur og gerðum allt sem þau vildu. Við flugum til dæmis í gegnum hæfnismat,“ segir móðir stúlkunnar. Í dómnum sem féll á mánu- daginn segir meðal annars að lög- reglan hafi þurft að hafa afskipti af foreldrunum í júní árið 2005. Í kjölfarið var sálfræðingur feng- inn til að meta forsjárhæfni þeirra. Meginniðurstöður hans voru þær að hann teldi stefnuleysi, geðsjúk- dóma og ýmsa andlega bresti ein- kenna líf þeirra og hugsun þeirra væri of óskýr og dómgreind slök, ekki síst í tengslum við framtíð og uppeldi barns. „Maðurinn sem framkvæmdi sálfræðimatið tók allt úr samhengi sem við sögðum. Þetta er bara pjúra einelti. Þegar við lásum mat- ið vildum við fá nýtt mat en það var aldrei gert. Við fórum á SOS- námskeið þar sem við vorum með þeim hæstu. Okkur gekk meira að segja betur en þeim foreldrum sem voru þarna með annað og þriðja barn. Við leituðum okkur hjálpar því við vildum það sem er barninu fyrir bestu. Það er kjaftæði að fólk með geðræn vandamál geti ekki hugsað um barn. Ég er fullfær um að hugsa um barnið mitt.“ Á lyfjum vegna geðsjúkdóma Móðir stúlkunnar er öryrki líkt og pabbinn og stunda þau ekki vinnu. Móðirin hefur legið inni á geðdeild en er að vinna í sínum málum. „Ég er að vinna í sjálfri mér. Margir halda að ég sé geðsjúkling- ur og snælduvitlaus en það er ég ekki. Ég er ekki svona slæm. Ég er bi-polar 2 og með persónuleika- röskun. Þegar þessir tveir sjúk- dómar koma saman fylgir þeim þunglyndi, félagsfælni og kvíði meðal annars. Það hafa orðið mörg dauðsföll í kringum mig síð- an árið 2007 og ég er búin að vera langt niðri út af því. Ég er búin að missa tvær ömmur og á sömu vik- unni missti ég afa minn og kisuna mína. Ég hef verið á geðdeild og fór fyrst þangað inn út af fæðingar- þunglyndi en núna er ég að reyna að grafa mig upp úr þessu. Ég er á lyfjum og hef verið fín undanfar- ið.“ „Foreldrar mínir hata hann“ Við yfirheyslur sagði móðurafi stúlkunnar að foreldrar hennar væru ekki hæfir til að ala upp barn og að hann hefði haft áhyggjur af uppeldi og velferð barnsins. Þetta kemur móður stúlkunnar ekki á óvart því foreldrum hennar hefur aldrei verið vel við hinn dæmda. „Foreldrar mínir hata hann. Ég held að þau hafi reynt að segja eins slæmt um hann og þau gátu fyrir rétti svo hann myndi lenda í fangelsi. Þau hötuðu hann því við rifumst oft og hann var stundum leiðinlegur við mig. Þau halda að hann sé búinn að eyðileggja mig og vilja hann út úr mínu lífi og út úr lífi barnsins. Þau þekkja hann ekki neitt og reyndu ekki að kynn- ast honum. Þau dæmdu hann strax og standa á því að hann sé vondur maður.“ Geimvera í líkama barnsins Móðir stúlkunnar hitti dóttur sína síðast á Þorláksmessu og ætlar að berjast fyrir því að fá að sjá hana oftar. Hún lýsir dóttur sinni sem glaðværu og hamingjusömu barni en telur að fósturforeldrar sem hún er nú hjá séu búnir að gera barnið hennar að bældu barni. „Félagsmálayfirvöld gera allt til að halda mér frá henni en ég held áfram að berjast fyrir því að fá hana. Þegar ég hitti dóttur mína í síðasta skiptið áður en ég hitti hana fyrir jól þá var hún svo glað- vær og það ljómaði af henni. Ég var á geðdeild á þeim tíma því ég fékk áfall þegar amma dó. Augu hennar ljómuðu við að sjá mig og hún var svo ánægð að fá að hitta mig. Hún kom hlaupandi á móti mér og ég renndi mér eftir gólfinu og knús- aði hana. Þegar ég hitti hana á Þorláks- messu var þetta ekki barnið mitt. Ég fór mjög varlega að henni vegna meintra ásakana um föður henn- ar og spurði hana hvort hún vissi hver ég væri. Hún sagði: „Já, þú ert mamma mín.“ Ég fékk tár í augun og hélt utan um hana og fiktaði í hárinu á henni. Síðan sagði hún: „Mamma mín er í vinnunni.“ Það var mjög sárt því hún veit að ég er mamma hennar en ekki konan sem hugsar um hana núna. Hún var ekki glaðvær og ljósið í augun- um á henni var slokknað. Það er greinilega búið að skemma hana og gera hana að bældu og rólegu barni. Hún var alltaf hoppandi og skoppandi um allt eins og ég var þegar ég var lítil. Þarna var ekkert ljós í augunum á henni. Það var ógeðslegt að horfa á þetta. Þeg- ar ég bið hana um stubbaknús þá kreistir hún mig yfirleitt innilega en þarna var engin tilfinning. Hún sleppti mér eftir smástund en hún er vön að knúsa mig í liggur við hálftíma. Ég hugsaði bara: Hvar er barnið mitt? Það var eins og geim- vera væri búin að taka yfir líkama dóttur minnar. Ég brotnaði algjör- lega niður en ég leyfði henni ekki að sjá mig gráta. Síðan þurfti ég að ljúga að henni að ég myndi hitta hana fljótlega þegar ég vissi að ég fengi ekki að hitta hana,“ segir móðir stúlkunnar. Mjög andlega þroskuð Fyrir dómi var haft eftir sérfræð- ingum að stúlkan væri vanþroska miðað við jafnaldra sína og að málkunnátta hennar væri léleg. Þetta kannast móðir hennar ekki við. „Hún er mjög þroskuð and- lega og á undan öllum krökk- unum í leikskólanum. Ég veit að ég gæti útskýrt fyrir henni að hún þarf að búa hjá þessu fólki þangað til mamma væri búin að laga í sér hjartað. Ég sagði henni nefnilega alltaf að mér væri illt í hjartanu ef ég var langt niðri. Fólkið sem er með hana gerir sér enga grein fyrir hversu skiln- ingsrík og þroskuð hún er. Hún elskar að syngja og dansa og er aktíf og yndisleg. Svo er verið að tala um að hún sé vanþroska. Ég get ekki séð það.“ „Það er kjaftæði að fólk með geðræn vandamál geti ekki hugsað um barn. Ég er fullfær um að hugsa um barnið mitt.“ Fyrrverandi eiginkona og barnsmóðir mannsins sem dæmdur var fyrir kynferðisbrot gegn barnungri dóttur sinni er handviss um að hann hafi ekki misnotað dóttur þeirra. Hún segir hann vera umhyggju- saman föður sem gæti aldrei skaðað dóttur sína. Að sögn hennar hafa félagsmálayfirvöld lagt þau í einelti síðan barnið fæddist. Móðirin hefur ekki hitt dóttur sína síðan á Þorláksmessu. „Hvar er barnið mitt?“ LiLjA KAtRín GunnARsdóttiR blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is Breytt barn Móðir stúlkunnar segir dóttur sína hafa eitt sinn verið glaðvært barn en nú sé hún bæld. Hún telur það ekki vegna misnotkunar heldur hafi fósturforeldrar hennar breytt henni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.