Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Síða 14
Í gegnum tíðina hefur Andrés Önd þolað ítrekuð kjarasamningsbrot af hálfu auðjöfursins Jóakims Aðalandar. Hann hefur þurft að lepja dauðann úr skel vegna smán- arlegra launa sem hann fær greidd fyrir erfiðisvinnu. Þegar Andrés finnur fjársjóð fyrir Jóakim tekur Jóakim all- an gróðann, en þegar allt bregst tekur Andrés skellinn. Andrés Önd er alþýð- an holdi klædd. Íslenskum auðjöfrum er ekkert heilagt. Það var Svarthöfða end-anlega ljóst þegar hann fregnaði að Björgólfur Guðmundsson hefði skuldsett Andrés Önd og félaga um 400 milljónir króna. Og að síðan ætti að fella niður 300 milljónir af skuldunum. Auðjöfrarnir veðsettu allt: Auðlindina, fyrirtækin, heimili fólks og framtíð þjóðarinnar. Veðsetn- ingin á Andrési Önd er tákngervingur fyrir óskammfeilni hinnar óprúttnu yfirstéttar. Svarthöfða hefur oft liðið eins og Andrési Önd. Þegar færi-bandsvinnu hans lýkur, eins og hjá Andrési í smjörlíkisverk- smiðjunni, keyrir Svarthöfði heim á ljóta smábílnum sínum. Hann lendir iðulega í því að Range Roverar svína á honum, bruna aftan að honum, flauta á hann svo hann fari hraðar og skvetta yfir hann úr pollum. Range Roverarnir keyra um eins og þeir eigi hraðbraut- ina. En þeir áttu aldrei neitt í raun. Fengu það bara að láni, með veð í venjulega fólkinu. Hegðun þeirra er í besta falli andfélagsleg. Í nokkur skipti hefur Svarthöfði farið í göngutúr í miðbænum og þurft að stökkva undan Range Roverunum sem keyra jafnvel upp á gangstéttir á ógnarhraða til að komast sem fljótast í vinnuna til að millifæra meiri lán inn í landið. Árið 2007 var það þannig að ef einhver lagði ólöglega í miðborginni voru yf- irgnæfandi líkur á að það væri Range Rover eða önnur bifreið sem kostar meira en 7 milljónir króna. Það var ekki þannig að fátæku síbrotamenn- irnir væru siðlausastir í hversdagslegum athöfn- um eins og að keyra og leggja bifreið. Enda munaði moldríku banka- mennina lítið um umferðar- og stöðumæla- sektir upp á nokkra þúsundkalla. Ríka fólkið lét eins og það ætti Ísland og því var skít- sama um hina. Samt gerði þetta fólk lítið annað en að skuldsetja Andrésa þessa lands og hagræða bókhaldinu. Venjulegir Íslendingar gerðu ekkert rangt, en þurfa að gjalda fyrir siðleysi banka-manna. Svarthöfði undrast ekki að margir hyggist flýja land vegna óréttlætisins. Þetta eru einmitt al- geng viðbrögð hjá Andrési Önd þegar heimurinn hrynur í kringum hann. Svarthöfði hefur, eins og Andrés, fyrst og fremst tvo valkosti í ástandinu. Hvort á hann að flytja til Fjarskanist- ans eða Langt- burt- ist- ans? föstudagur 13. febrúar 200914 Umræða VIÐ OG ANDRÉS svarthöfði sandkorn n Mikil uppstokkun verður hjá sjálfstæðismönnum í Reykjavík við brotthvarf þingmannanna Björns Bjarnasonar og Geirs H. Haarde. Líklegast er talið að toppbaráttan í kjördæmun- um tveimur standi fyrst og fremst milli Guð- laugs Þórs Þórðarson- ar og Illuga Gunnars- sonar en sá síðarnefndi nýtur vaxandi fylgis. Guð- laugur Þór glímir aftur á móti við þá sködduðu ímynd sem hlotist hefur af setu hans sem óvinsæll heilbrigðisráðherra. n Aðrir þingmenn Reykjavík- urkjördæmanna eiga erfið- ara uppdráttar. Sigurður Kári Kristjánsson hefur ekki sýnt neina þá takta að metorð hans aukist. Þá er hinn lögfræði- menntaði Birgir Ár- mannsson í erfiðum málum eftir að hafa mælt því bót að neyðarlögin brytu gegn stjórnarskrá. Sá einstakl- ingur sem gæti blandað sér í toppslaginn væri helst Hanna Birna Kristjánsdóttir borgar- stjóri sem vakið hefur aðdá- un fyrir að koma böndum á borgarstjórnarhóp sjálfstæð- ismanna og tryggja frið. En Hanna Birna mun ekki vera á þeim buxunum að bjóða sig fram. n Sigurganga Bjarna Bene- diktssonar í áttina að hásæti Sjálfstæðisflokksins virðist ætla að verða óslitin. En Bjarni á sér and- stæðinga í flokknum og utan hans sem umfram allt vilja fella hann. Óljóst er með af- stöðu Moggans til frambjóð- andans en í ríkisblaðinu mátti sjá eftirfarandi fyrirsögn í umfjöllun um framboð hans: „Enn einn í framboði.“ Hugs- anlega er blaðið að láta hann vita að því séu hugleikin af- skipti hans af olíurisanum N-1. n Jón Axel Ólafsson, markaðs- stjóri Morgunblaðsins, er lif- andi sönnun þess að afbrota- menn geta ágætlega fótað sig eftir að afplánun lýkur. Jón Axel varð uppvís að fjármála- misferli og hlaut dóm í sam- ræmi við það. Hann er talinn handgenginn Björgólfi Guð- mundssyni athafnamanni sem fyrir áramót seldi honum þann hluta Eddu útgáfu sem fer með útgáfuréttinn á Andr- ési Önd. Nú gengur Jón Axel á milli lánardrottna og biður um að skuldir upp á 300 milljónir króna verði afmáðar. LyngháLs 5, 110 reykjavík Útgáfufélag: útgáfufélagið birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 70 50. umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Hann var voða kurteis og bréfið í hans stíl.“ n Jóhannes Benediktsson sem heldur úti síðunni woodyallen.com. Hann fékk bréf frá leikstjóranum sem var hæstánægður með síðuna. - DV „Maybe I should have.“ n Geir H. Haarde aðspurður í þættinum Hard Talk á BBC af hverju hann hefði ekki talað við Gordon Brown eftir að Bretar settu Íslendinga á hryðjuverkalistann fræga. - BBC „Hann hlýtur að eiga stóran amerískan ísskáp. Hann lítur allavega þannig út.“ n Guðjón Guðmundsson um vaxtarlag eins leikmanna þýska liðsins Wetzlar. – Stöð 2 Sport „Þegar maður er líka kominn á þennan aldur þarf maður að hætta hálftíma fyrr og fara hálftíma síðar. Eða mæta klukkutíma fyrr og fara á sama tíma.“ n Sigfús Sigurðsson handboltamaður um handboltaiðkun og hækkandi aldur. – Fréttablaðið „Að spá í framhaldið er eins og að spá í skýin.“ n Sagði Ingólfur H. Ingólfsson hjá spara.is. Hann segir ómögulegt að ráðleggja fólki með erlend lán nokkuð um þessar mundir. - DV Villigötur forsetans Leiðari Aldrei hefur embætti forseta Íslands átt eins mikið á brattann að sækja og nú. Ól- afur Ragnar Grímsson þarf að una því að vera í neikvæðri um- ræðu dag eftir dag. Að vísu er það þekkt staðreynd að ákveð- inn hluti Sjálfstæðisflokksins hefur af annarlegum ástæðum lagt fæð á forsetann allt frá því hann var fyrst kosinn og vilj- að láta leggja niður embættið. Einstakir fjölmiðlar hafa nært þá umræðu. En það hefur fjölg- að í hópnum. Vísbendingar eru uppi um að einungis helming- ur þjóðarinnar sé sáttur við störf hans. Það hlýtur að teljast vera áfall fyrir forsetann og aðra þá sem vilja embættinu vel. Forsetinn hefur sýnt bæði góðar og slæmar hliðar á löngum embætt- isferli sínum. Oftast hefur hann komið fram sem sameiningartákn þjóðarinnar í gleði sem sorg. Undanfarin ár hefur ímynd hans breyst í þá veru að hann hefur verið eins kon- ar söngstjóri útrásarinnar og lítið skeytt um þjóðina sem heima sat. Sú umræða hefur nú dúkkað upp að hann eigi að segja af sér. Ól- afur Ragnar reyndi í áramóta- ávarpi sínu að biðjast afsökunar á sínum þætti í stóru bólunni sem sprakk. Óljóst er hvort afsökun- arbeiðnin verður tekin til greina. Vandi Ólafs er hins vegar sá að hann og eiginkona hans, Dorrit Moussaieff, snobba fyrir erlend- um fjölmiðlum en sniðganga þá íslensku. Þar hafa þau misst fót- anna því deilur hjónanna hafa ratað inn í heimspressuna og til Íslands. Túlkuð ummæli Ólafs Ragnars um að Íslendingar eigi ekki að greiða það tjón sem spari- fjáreigendur erlendis verða fyrir hafa valdið miklum vandræðum. Embætti þjóðhöfðingjans hefur sett niður með þessu. Aldrei fyrr hefur svo neikvæð ímynd leikið um Bessa- staði. Forseti sem sniðgengur þjóð sína er á villigötum. Hann verður að taka sér tak og ná aftur hylli Íslendinga. Annars er eins gott að hann fari. ReyNIR TRAuSTASON RITSTjóRI SkRIfAR. Aldrei fyrr hefur svo neikvæð ímynd leikið um Bessastaði. bókstafLega Gleymum ekki góðum hugmyndum kRISTjáN hReINSSON SkálD SkRIfAR. Ég varaði meira að segja við bankahruni Á meðan við vorum ennþá ríkasta þjóð í heimi, áttum sterkustu karlana, falleg-ustu konurnar og allt það, voru menn hér að pæla í því að byggja blokkir í Vatns- mýrinni. Þétting byggðar var það kallað. Góð hug- mynd en hvorki á réttum tíma né á réttum stað. En núna blasa við okkur musteri græðginnar á ótrúlegustu stöðum og flugvöllurinn á dýrasta byggingarlandi veraldarsögunnar er líklega merk- isberi þess að enn er til skynsamt fólk – fólk sem telur á stundum réttast að doka við, bíða og sjá. Sumir reyna að gleyma því að hugmyndir um að flytja flugvöllinn hafi nokkurn tíma komið fram. Og núna þegar allt er hrunið og allir segjast hafa varað alla við öllu sem hugsanlega gat farið illa, þá veit ég að ég var einn af þeim sem sannanlega létu viðvörun hljóma. Ég varaði meira að segja við bankahruni – ekki bara á lokuðum fundi með inn- múruðum vinum. Nei, ég sá græðgina vaxa. En þegar ég hugsa til baka og velti því fyrir mér hverskonar hús við hefðum hugsanlega getað byggt í Vatnsmýrinni. Ja, ef við hefðum ætlað að sýna fyrirhyggju og láta göfuglyndi ráða för. Já, kæru vinir, þá hefðum við reist hér helling af gróð- urhúsum. Gróðurhús, segi ég og skrifa. Ylræktin er eitt af því sem bjargað getur okkur frá því að naga skósóla í hvert mál. Í stað háhýsanna og allra must- era græðginnar hefðum við getað ræktað matvæli. Í dag er gáfulegra að gefa – já, hreinlega gefa garð- yrkjubændum rafmagn. Allavega skárra en að selja það til stóriðju. Arðsemi í ylræktinni er slík að við komumst ekki hjá því að gera vel við þá sem grein- ina stunda. Hér má vissulega betur ef duga skal, því þjóðhagslegur sparnaður felst fyrst og fremst í því að hér verði hægt að nýta auðlindir okkur sjálf- um til framdráttar. Flugvöllurinn stendur á sínum stað, Tónlistar- húsið, Höfðatorg, Krepputorg, Bauhaus-báknið, raðhúsin öll og blokkirnar allar. Allt stendur þetta tómt. Ef við hefðum byggt af fyrirhyggju og ef við hefðum aldrei hlustað á ónefnda og innmúraða boðbera frjálshyggjunnar, þá ættum við kannski helling af arðbærum gróðurhúsum. Þá hefði okkur kannski tekist að lækka matvælaverð meira en sá ágæti maður Jóhannes í Bónus gerði hér í eina tíð. Sumir gleyma hvað þeir segja, aðrir gleyma hvað þeir sögðu ekki og enn aðrir því hvort þeir sögðu í raun og veru það sem þeir gleymdu að segja. Gleymskan hún er gírug trekt sem gleypir tilveruna og alltaf gerist ýmislegt sem enginn þarf að muna. skáLdið skrifar $$$! #%&#!!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.