Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Qupperneq 18
föstudagur 13. febrúar 200918 Helgarblað
Þó að Íslendingar vilji ekki viðurkenna það, situr þjóðin límd við skjáinn er Eurovision-keppnin er í
gangi og hjarta hvers manns slær örlítið hraðar þegar Íslendingar stíga á svið. Þrátt fyrir að hafa aldrei
unnið keppnina hafa mörg vinsæl lög komið út úr Eurovision, jafnvel lög sem komust ekki einu sinni í
úrslit hérna heima. DV tók saman nokkur ógleymanleg Eurovision-lög og rifjar upp gamlar stundir.
Lögin sem komust
Eurovision-kóngurinn sjálfur tap
ar
eurovision-kóngurinn okkar sjálfur getur lí
ka tapað. Það
er erfitt að slá í gegn tvisvar í röð en eiríku
r tók þátt í
keppninni árið eftir gleðibankann með lag
ið Lífið er lag.
Lagið náði jú í annað sætið og er það eflau
st bara rauða
hárið og sveiflan frá árinu áður sem hjálpa
ði til. Þessi ljúfa
ballaða kemst ekki í hálfkvisti við gleðiban
kann en þrátt
fyrir það getur hver fullorðinn einstaklingu
r raulað lagið
þó að það sé vont. eiríkur er eurovision!
ÚbErkÚl vöðvatröll
Merzedes Club kom sá og sigraði næstum því eurovision. aldrei áður hefur jafn vel vaxið fólk stigið á svið í eurovision-forkeppninni á Íslandi. Merzedes Club var skipuð af gillzenegger, Partý Hanz, Ceres 4, rebekku Kolbeinsdóttur og gaz manninum. Maðurinn á bak við lagið var enginn annar en barði Jóhannsson og hefði enginn trúað því að lagið Hey hey hey we say ho ho ho myndi vekja svona mikla athygli. Merzedes Club lenti í öðru sæti í forkeppninni og varð að lúta í lægra haldi fyrir eurobandinu.
rættist Úr brostnum draumi
björgvin Halldórsson tók þátt í söngvakeppni
sjónvarpsins árið 1986 með lagið Ég lifi í
draumi. Það var hins vegar Icy-hópurinn sem
sigraði eftirminnilega með laginu gleðibankinn
en eurovision-kempan eiríkur Hauksson var í
öðru sæti með lagið Þetta gengur ekki lengur
og svo bó í því þriðja með Ég lifi í draumi.
Þó svo að draumur björgvins um að verða fyrsti
keppandi Íslands í eurovision hafi ekki ræst
voru vinsældir lagsins í kjölfarið algjör draumur.
Lagið hefur lifað góðu lífi alla tíð síðan.
ópErulagið
söngkonan regína Ósk stimplaði sig
inn í hjörtu Íslendinga með lagið Þér
við hlið árið 2006 með gríðarlega flott
lag sem náði þó ekki hærra en annað
sætið þar sem skrípadrottningin silvía
Nótt þótti vinsælli. Lagið er þekkt
sem „óperulagið“ en það eru fáar
söngkonur sem hafa sýnt sinn styrk á
slíkan hátt og hún. regína sat ekki
lengi auðum höndum, gekk
í eurobandið, lærði euro-
vison-formúluna og
fór út fyrir hönd
okkar í fyrra.
Óperulagið
hennar lifir
samt lengur. bEljurokk af bEstu gErð
Það eru margir sem gráta það enn að lagið
eurovísa með hafnfirsku rokksveitinni botnleðju
hafi ekki unnið söngvakeppni sjónvarpsins
2003. Þremenningarnir slógu í gegn með kraft-
miklu rokklagi sem var á skjön við flest annað
sem áður hafði verið í keppninni. ekki nóg með
það heldur voru þeir íklæddir beljubúningum.
Það var hins vegar óskabarn þjóðarinnar á þeim
tíma, birgitta Haukdal, sem sigraði í keppninni
með laginu Open Your Heart. birgittu gekk þó
mjög vel og endaði í áttunda sæti keppninnar
og tryggði Jónsa þátttökurétt árið eftir.
mynd billi
sólEy Eldist vEl
barnastjarnan Katla María og söngvasjarm
örinn björgvin Hall-
dórsson fluttu saman lagið sóley í undank
eppni eurovision
árið 1990. Lagið hafnaði í fjórða sæti en he
fur þó náð að lifa
vel í minningunni og má segja að gæði lag
sins og fallegur
flutningur björgvins og Kötlu hafi tryggt þ
ví líf. Viðlagið er
grípandi og gott og má enn í dag heyra fó
lk á öllum aldri
raula með textanum : „sóley, sóley mín vo
n og trú.“
laut í lægra haldi fyrir
stjórninni
Árið 1992 tók söngvarinn og útvarps-
maðurinn vinsæli, bjarni arason, þátt
í undankeppni eurovision með lag
Jóhanns Helgasonar, Karen, við texta
eftir björn björnsson. Lagið sem enn
er talið meðal þeirra bestu
og langlífustu sem komið hafa fram í
undankeppni eurovision varð að lúta
í lægra haldi fyrir lagi siggu beinteins
og stjórnarinnar sem mættu með
lagið Nei eða já (time after time) og
keppti síðan fyrir okkar hönd þar sem
það hafnaði í 7. sæti keppninnar.
fjölhæf söngkona
„Þetta hafðist, og hélt ég þó að við myndum ekki ná inn,“
sagði Heiða eiríksdóttir kennd við hljómsveitina unun á
bloggsíðu sinni eftir að hafa flutt lagið Ég og heilinn minn
eftir dr. gunna í undankeppni eurovision árið 2007. atriði
Heiðu gleymist seint enda var söngkonan skreytt gylltum
samfestingi frá toppi til táar. Það sem einnig þótti eftirtektar-
vert við þátttöku söngkonunnar í söngvakeppninni var að á
sama tíma barðist hún fyrir sæti í suðurkjördæmi fyrir Vinstri
hreyfinguna - grænt framboð. geri aðrir betur.
rokkarar mEð gÚmmíhanska
Í langri og strangri undankeppni eurovision
á síðasta
ári var eitt gríðarlega rokkað og frábrugðið
lag, samið
af dr. gunna. Lagið Hvar ertu nú? sem hljóm
sveitin
dr.spock flutti svo eftirminnilega náði þó e
kki að
tryggja sér fyrsta sætið í forkeppninni heldu
r
hafnaði það í þriðja sæti keppninnar. Lagið
náði þó miklum vinsældum á útvarpsstöðv
-
um og lifði vel langt fram á síðasta sumar.
ek i áfram