Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Qupperneq 30
KR miKlu fljótaRa „Þetta verður erfitt fyrir Stjörnuna. Ef KR-vélin virkar verður erfitt fyrir Stjörnuna að hanga lengi í henni. Ef breiddin hjá KR nýtist og Jón og Jakob spila vel verður þetta enn erfiðara fyrir Stjörnuna.. En aftur á móti eru Stjörnumenn búnir að vera að spila glimrandi vel og eru fullir sjálfstrausts. Leikur þeirra í Ásgarði fyrr á tímabilinu var náttúrulega hörkuleikur. Til að vinna verður hraði Stjörnunnar að vera í lagi. Hún verður að stjórna hraðanum algjörlega því KR-liðið er miklu fljótara en Stjarnan. Ef það er einhver sem getur haldið hraðanum niðri og tekið leikinn til sín er það Just- in Shouse hjá Stjörnunni. Hann verður að eiga skínandi leik ef Stjarnan ætlar að eiga möguleika.“ Klukkan 14.00 á sunnudaginn hefja Íslandsmeistarar Keflavíkur leik gegn KR í úrslitaleik Subway-bikars kvenna. Tveimur klukkustundum síðar, klukkan 16.00, reynir KR-lið- ið, sem hefur gripið allar fyrirsagn- ir ársins í karlaflokki, að vinna sinn fyrsta „alvöru“ bikar þegar það mæt- ir Stjörnunni í bikarúrslitaleiknum. Sannarlega leikir sem enginn körfu- knattleiksáhugamaður má láta fram- hjá sér fara. KR búið að vinna Keflavík Það stefndi ekki í spennandi leik hjá konunum en þangað til fyrir viku höfðu Keflavík og KR mæst tvisvar á tímabilinu. Íslandsmeistarar Kefla- víkur höfðu þar sigur í bæði skiptin frekar örugglega. Íslandsmeistararn- ir unnu með tólf stiga mun í fyrsta leik liðanna 22. október, 72-60, og rúlluðu svo yfir KR-stúlkur í DHL- höllinni, 92-60, í byrjun desember. Fjórða febrúar síðastliðinn mættust liðin svo aftur eftir deildarskiptingu í DHL-höllinni og hafði KR þá betur með fjögurra stiga mun, 78-74. KR hefur því sýnt að það getur unnið KR og eins og allir vita getur allt gerst í bikarleik. Leiðirnar mismunandi Leið KR í úrslitin hefur verið jafn- mögnuð og spilamennska þess í ár. KR tapaði sínum fyrsta leik í öllum keppnum á mánudaginn var gegn Grindavík en áður en að því kom hafði liðið unnið sextán sigra í deild- inni í röð. KR vann lið Grindavíkur, Keflavíkur og Snæfells á leið sinni í bikarúrslitin ásamt auðveldum sigri á 1. deildar liði Fjölnis. Stjarnan fór ansi létta leið í undanúrslitin. Sigraði Mostra frá Stykkishólmi, 1. deildar lið ÍBV og Vals en vann síðan góðan sigur á Njarðvík á heimavelli í und- anúrslitum. Shouse mikilvægur DV bað fjóra spekinga að fara yfir leik KR og Stjörnunnar. Þá Val Ingimund- arson, þjálfara Njarðvíkur og stiga- hæsta leikmann Íslandsmótsins frá upphafi, Hlyn Bæringsson, spilandi þjálfara Snæfells og núverandi bik- armeistara, Sigurð Ingimundarson, þjálfara Íslandsmeistara Keflavíkur, og Einar Árna Jóhannsson, þjálfara spútnikliðs Breiðabliks í Iceland Ex- press-deildinni. Allir voru þeir sammála um að Justin Shouse, leikstjórnandi Stjörn- unnar, væri sá maður sem þyrfti að eiga stórleik ætlaði Stjarnan sér að eiga möguleika í KR-liðið. Hún verð- ur þó að passa eð einblína ekki aðeins á hann því þá á Stjarnan ekki glætu, segir einn spekingurinn. KR-liðið er miklu fljótara og verður Stjarnan að stjórna hraðanum í leiknum. Í því eru fáir betri en Shouse, segir Valur Ingimundarson. föSTudaguR 13. fEbRúaR 200930 Sport Kimi helduR áfRam að Ralla finnski formúlu 1-ökuþórinn Kimi Raikkonen ætlar að taka þátt í sínu öðru ralli síðar í mánuðinum. Ra- ikkonen, sem varð heimsmeistari í formúlu 1 árið 2007, tók þátt í sínum fyrsta rallakstri um daginn og stóð sig með mikilli prýði. Hann mun nú taka þátt í Vak- una-rallinu sem er partur af finnska meistaramótinu. Mótið er haldið stuttu eftir að ferrari prufukeyrir nýja bílinn sinn í barein og þarf Kimi því að vera snöggur til heimalandsins. Hann mun þó þurfa samþykki frá yfirmönnum ferrari til að fá að taka þátt í keppninni. Rallið virðist hafa góð áhrif á Kimi sem hefur oftar en ekki lítið gefið af sér. Hann hefur misst þó nokkur kíló og hefur hætt allri áfengisdrykkju. uMSJón: TóMaS ÞóR ÞóRðaRSon, tomas@dv.is / SVEinn WaagE, swaage@dv.is „KR hefuR eKKeRt uNNið eNNÞá“ TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Aðeins einn sigurveg- ari fyrirliðarnir halda þétt um bikarinn en aðeins annar tekur hann heim á sunnudaginn. MYND HEIÐA HELGADÓTTIR Það er bikarúrslitahelgi í körfunni. Á sunnudaginn leika Keflavík og KR í kvennaflokki og Stjarnan mætir KR hjá körlunum. KR er töluvert sigurstranglegra hjá körlunum en hefur þó ekkert unnið ennþá eins og einn af fjórum sérfræðingum sem DV ræddi við bendir á. Justin Shouse Leikstjórnandi Stjörnunnar verður að eiga stjörnuleik að mati sérfræðinganna. MYND HEIÐA HELGADÓTTIR miKið muN ReyNa á ShouSe „Stjarnan á ekki mikla möguleika. Það verður að segjast alveg eins og er. Hins vegar bendi ég á að þeir lentu í hörku- leik í garðabænum fyrir áramót þannig að Stjarnan getur alveg keppt við KR. Ef Stjarnan á að vinna verður hún að eiga mjög góðan dag og KR aftur á móti ekki. Ef KR spilar sinn besta leik þá vinna þeir. Shouse er mjög góður og stemningskall. Hefur það fram yfir marga Kana að hann getur drifið liðið með sér og gæti þannig hjálpað þeim eitthvað. Shouse þarf að passa sig á að lenda ekki í villuvandræðum. Það mun reyna mikið á hann bæði í vörn og sókn. Hann verður að eiga frábæran leik en það er ekki víst að það dugi einu sinni.“ KR hefuR eKKeRt uNNið eNNÞá „Stjarnan á möguleika og meira en það. KR hefur ekkert unnið ennþá þó því hafi gengið vel í byrjun. Stjarnan hefur spilað vel eftir áramót og í liði hennar eru þrír leikmenn sem hafa orð- ið bikarmeistarar en hjá KR er aðeins einn sem hefur orðið bikarmeistari. Það vegur þungt í þessum leikjum. Vissulega lítur KR-liðið betur út en það er ekkert pottþétt í þessu. Stjarnan verður að einblína sem minnst á að þetta sé í fyrsta skiptið sem liðið leikur bikarúrslitaleik. Það verður bara að mæta og hafa gaman af þessu, þá eiga Stjörnumenn séns. Jovan Zdravski og Justin Shouse þurfa að eiga stórleik báðir. Liðið má samt ekki detta í það að leita bara að þeim tveimur í leiknum. Þá á Stjarnan ekki glætu í þetta.“ ÞuRfa SiNN beSta leiK á feRliNum „Hann er langsóttur möguleiki Stjörnunnar en hann er til staðar. Stjarnan er á miklu skriði og þú ferð ekki með mikið meira sjálfstraust inn í bikarúrslitaleik heldur en Stjarnan hefur núna. Það eitt og sér er hið fínasta vopn. Þeirra styrkleiki liggur annars vegar í að Justin sé töluvert mikið með boltann og að bakverðirnir skjóti vel fyrir utan. Til þess að vinna KR þarf Stjarnan að eiga sinn besta leik á ferlinum. Ef KR spilar mjög vel aftur á móti er þetta dautt mál. Ég held líka að KR haf haft hressilega gott af því að tapa þessum leik gegn grindavík í vikunni. Stjarnan er þó með það ofarlega í huga að hún vann grindavík þannig að Stjörnumenn hafa eflaust trú á þessu.“ Einar Árni Jóhannsson, þjálfari breiðabliks: Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur: Hlynur Bæringsson, þjálfari Snæfells: Valur Ingimundarson, þjálfari njarðvíkur:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.