Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Page 31
föstudagur 13. febrúar 2009 31Sport Hiddink lengur Hjá CHelsea? guus Hiddink, nýráðinn þjálfari enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea, gaf það út um leið og hann var ráðinn að það væri aðeins tímabundið. Hollendingurinn sagði ráðninguna vinargreiða við rússneska auðjöfurinn roman abromovic og hann héldi áfram að stýra rússlandi af fullum krafti þegar tímabilinu lyki. Í viðtali við sport express stuttu eftir ráðninguna var komið annað hljóð í hann. „Við skulum ekkert vera að spá of langt fram í tímann. Ég hef ekkert hugsað um að vera lengur þar sem talað var um að þetta yrði einungis fram á sumarið. Þegar tímabilinu lýkur skulum við ræða málin,“ segir guss Hiddink. Ömmubakstur ehf. Kársnesbraut 96a | 200 kópavogi | S: 545 7000 Veljum íslenskt gott í dagsins önn... Ömmu kleinur Ömmu spelt flatkökur Ömmu flatkökur „kr HeFur ekkerT unniÐ ennÞá“ Swansea er þegar búið að tryggja sér ein frækilegustu úrslit bikarsins í ár, þegar liðið niðurlægði Portsmouth á Fratton Park. Liðið fær Fulham í heimsókn í fyrsta leik heilgarinnar. Fulham lenti í kröppum dansi gegn Kettering í síðustu umferð og verð- ur að vera meira vakandi og viðbúið gegn sjóðheitu Swansea-liðinu sem er komið í 7. sæti Championship- deildarinnar eftir gott gengi að und- anförnu. Erfitt á Ewood Aron Gunnarsson og félagar í Cov- entry fá talvert erfiðari andstæðinga nú en síðast þegar liðið rétt marði ut- andeildarliðið Torquay. Liðið sækir nú heim Stóra Sam og sveina hans í Blackburn á heimavelli þeirra Ewood Park. Coventry er um miðja Champ- ionship-deild og hefur átt sína spretti í vetur en verður að sýna sínar bestu hliðar gegn Blackburn sem lagði Sunderland í síðustu umferð. Boro undir hamarinn Middlesbrough vann góðan útisig- ur á toppliði Championship-deild- arinnar, Wolves, í síðustu umferð bikarsins en hefur verið arfaslakt í deildinni á meðan andstæðingarn- ir í 5. umferð, heimaliðið West Ham, hefur verið í fantaformi. Liðin gerðu 1-1 jafntefli á heimavelli Boro í haust en síðan hafa stórfljót runnið til sjáv- ar. Falldraugurinn vofir Boro á með- an Hamrarnir gera atlögu að Evr- ópusæti. En bikarinn er ekki deildin og fyrir Boro gæti árangur í þeirri keppni bjargað tímabilinu. Hidding í stúkunni Hið sögufræga lið Watford hefur átt betri tíma. Liðið stefnir niður í 1.deildina en sýndi klærnar í frækn- um 4-3 sigri gegn Cristal Palace. Lið- ið fær nú stórlið Chelsea í heimsókn í síðasta leik laugardagsins. Hingað til hefur tímabil heldur ekki verið neinn dans á rósum fyrir Chelasea eins og kunnugt er. Liðið mun mæta í þennan leik undir stjórn aðstoðarþjálfarans Rays Wilkins. Guus Hidding, nýráð- inn stjóri Chelsea, verður í stúkunni. Þetta verður athyglisvert. Watford er á heimavelli, hefur engu að tapa en leikmenn Chelsea verða að standa sig frammi fyrir nýjum stjóra. Ef Wat- ford heldur Chelsea niðri framan af leik gæti þetta orðið fjör. Stálinn stinn Stórleikur 5. umferðar verður í Liver- pool. Stuðningsmenn Everton hafa málað borgina bláa eftir frækinn sigur á Rauða hernum á Goodison Park en liðið mun þurfa á öðrum toppleik að halda til að sigra sjóð- heitt Aston Villa sem mætir heima- mönnum á sunnudaginn. Bæði lið hafa staðið sig með stakri prýði und- anfarið. Everton hefur klárað erfiða leiki án framherja og Villa er komið í bullandi toppbaráttu og er til alls líklegt í vor. Eitthvað þarf undan að láta í þessum leik og hægt verður að lofa brjálaðri baráttu um allan völl. Emile Heskey er í engu uppáhaldi hjá Everton og mun leggja sig allan fram til að hefna fyrir sína gömlu fé- laga í borginni. Golíat í heimsókn Tilhlökkunin á Pride Park yfir komu Englandsmeistara Manchester Un- ited hlýtur að vera kvíðablandin. Gestirnir virðast gjörsamlega ósigr- andi þessa dagana, þrátt fyrir fjar- veru Waynes Rooney. Heimamenn í Derby eru aftur á móti miklar bikar- hetjur og stóðu sig frábærlega gegn United í undanúrslitum Deildarbik- arsins. Getumunur liðanna er gríðar- legur en Derby hefur sýnt það ásamt öðrum minni liðum að lið geta spilað langt yfir getu ef óbilandi kjarkur og vilji er fyrir hendi. Sir Alex Ferguson tekur FA-bikarinn alvarlega og mun stilla upp alvöru liði gegn Derby sem verður að eiga leik tímabilsins til að eiga möguleika. Endurtekið á Emirates Arsene Wenger, stjóri Arsenal, stillti upp sínu sterkasta liði gegn 1.deildar liði Cardiff á heimavelli velska liðsins í fyrri leik liðanna en það dugði ekki til og úrslitin markalaust jafntefli. Seinni leiknum var síðan frestað en er nú settur á mánudaginn. Cardiff fór alla leið í úrslitin í fyrra og mun berjast til síðasta manns í Lundún- um en heimaliðið Arsenal, sem hefur mikla bikarhefð, mun reyna að klára þennan leik og komast sem lengst í bikarnum til að bæta upp dapurt gengi í deildinni. SPENNANDI BIKARHELGI Línur munu skýrast eftir 5. umferð FA-bikarsins um helgina. Eins og ávallt eru áhugaverðir leikir á dagskrá. Bikarhetjur úr neðri deildum etja kappi við Úrvalsdeildarlið og tvö af sterkustu liðunum á Englandi; Aston Villa og Everton, munu kljást í Bítla- borginni. Í banastuði gabriel agbonlahor og félagar í aston Villa mæta everton á goodison Park. FA-bikArleikir helgArinnAr, 5. umFerð laugardagur 14. febrúar 12:45 Swansea - Fulham 15:00 Blackburn - Coventry 15:00 Sheff. Utd - Hull 15:00 West Ham - Middlesbrough 17:30 Watford - Chelsea Sunnudagur 15. febrúar 14:30 Everton - Aston Villa 16:30 Derby - Man. Utd mánudagur 16. febrúar 19:45 Arsenal - Cardiff ( 4. umferð) SvEinn waaGE blaðamaður skrifar: swaage@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.