Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2009, Side 36
„Hugmyndin að Kaffi Loka fædd-
ist árið 2005 þegar við hjónin héld-
um ljósmyndasýningu í Hallgríms-
kirkju en við höfum tekið myndir af
kirkjunni í öllum veðrum undan-
farin fimmtán ár,“ segir Hrönn Vil-
helmsdóttir sem rekur Kaffi Loka
ásamt eiginmanni sínum Þórólfi
Antonssyni aðspurð hvernig hug-
myndin að kaffihúsinu kom til.
„Við sýndum yfir áttatíu mynd-
ir af kirkjunni og það komu yfir tíu
þúsund gestir á sýninguna yfir sum-
arið, átta þúsund þeirra kvittuðu í
gestabókina okkar og höfðu margir
orð á því að það hefði nú verið nota-
legt að geta tyllt sér með kaffibolla
eða keypt minjagrip tengdan kirkj-
unni. En engin slík aðstaða var fyrir
hendi.“ Þau hjónin fóru því að ræða
málin og voru sammála því að þarna
vantaði huggulega aðstöðu þar sem
fólk gæti fengið sér kaffi og með því.
Hrönn og Þórólfur stöldruðu ekki
lengi við hugmyndina heldur létu
verkin tala. Haustið sama ár fundu
þau draumahúsnæði til verksins
beint á móti kirkjunni eða á Loka-
stíg 28. „Draumurinn rættist.“
Ekki gekk þetta þó eins og þau
hjónin höfðu óskað sér því tvö og
hálft ár tók að fá rekstrarleyfi þar
sem nágrannarnir óttuðust hávaða-
mengun út frá staðnum, en allt gekk
upp að lokum. „Við vorum sannfærð
um að hugmyndin væri alveg brillj-
ant og biðum því þolinmóð þennan
tíma; þetta átti að gerast. Við seld-
um bara húsið okkar og fluttum inn
á meðan við tókum allt í gegn.“
Nýlega opnuðu þau hjónin svo
loks draumakaffihúsið sitt, Kaffi
Loka, þar sem heimilisleg og nota-
leg stemning ræður ríkjum. Íslensk-
ur heimilismatur er í boði, list á
veggjum og einnig er hægt að kaupa
minjagripi sem tengjast Hallgríms-
kirkju.
„Bóndinn bakar flatkökur, rúg-
brauð, speltbeyglur og fleira. Einnig
bökum við pönnukökur dag hvern.
Í hádeginu bjóðum við upp á ís-
lenska kjötsúpu og svo leggjum við
mikið upp úr smurbrauði með ís-
lensku ívafi, rúgbrauði með plokk-
fiski, flatkökum með laxi eða sviða-
sultu og fleira í þeim dúr.“
Kaffi Loka hefur verið tekið ein-
staklega vel af túristum en ekk-
ert síður af Íslendingum að sögn
Hrannar.
Það er þó fleira sem þau hjón-
in aðhafast í þessu huggulega húsi
því á neðstu hæð hússins er versl-
unin Textílkjallarinn til húsa en þá
verslun hefur Hrönn rekið um ára-
bil við miklar vinsældir. Í risi húss-
ins búa svo þau hjónin, það má því
með sanni segja að stemningin sé
heimilisleg á Lokastíg 28. „Ég hleyp
á milli hæða, það skapar bara nota-
lega stemningu og það er einmitt
það sem við lögðum upp með.“
Kaffi Loki er opnað klukkan tíu
á morgnana og lokað klukkan sex.
Einnig er opið um helgar og þá
er hægt að gæða sér á alíslensk-
um helgarverði. „Hér heitir þetta
ekki brunch heldur helgarverð-
ur og inniheldur hann flott brauð,
lummur eða pönnukökur og fleira
góðgæti.“ Á meðan gestir staðar-
ins gæða sér á eðalveitingum njóta
þeir einnig fallegra verka sem þekja
veggina þar sem listamenn geta
haldið sýningar á þessu huggulega
kaffihúsi.
kolbrun@dv.is
föstudagur 13. febrúar 200936 Lífsstíll
Kaffi beint frá bóndanum fyrir þá sem
vilja fá sér góðan kaffibolla er um að gera að kíkja
á Café Haiti í tryggvagötunni. Þetta litla, fallega
kaffihús selur eðalkaffi hvaðanæva úr heiminum, en
kaffið er keypt beint frá bændunum. Þetta kallast
sangjörn viðskipti en er oftast þekkt sem fair trade.
Óhætt er að segja að fólk njóti kaffibollans betur ef
það veit að það er að gera góðverk í leiðinni.
Pottréttir og súpur eru oftast hollur
matur, enda innihalda flestar upp-
skriftir talsvert magn grænmetis og
oft eru baunir notaðar í bæði pott-
rétti og súpur. Matur af þessu tagi
hentar því sérlega vel fyrir sykursjúka
einstaklinga og aðra sem kjósa að
neyta trefjaríks og holls matar. Þessa
gómsætu, sykurlausu súpuuppskrift
má finna í nýjasta tölublaðið Gest-
gjafans.
700 g lambakjöt, magurt
5 msk. olía
2 laukar, saxaðir
3 hvítlauksrif, söxuð
300 g kastaníusveppir, gróft skornir
1 rauð paprika, skorin í strimla
1 gul paprika, skorin í strimla
1 tsk. kóríanderduft
1 tsk. kummin-duft
½ tsk. cayenne-pipar
350 g grænmetissoð
1 krukka kjúklingabaunir
300 g paprikumauk í krukku
1 msk. tómatmauk
1 msk. dijon-sinnep
svartur, nýmalaður pipar
salt
skerið kjötið niður í strimla og fitu-
hreinsið það vel. Hitið tvær matskeiðar
af olíu á pönnu, saltið og piprið kjötið
og steikið síðan á pönnunni í u.þ.b. 5
mínútur eða þannig að það brúnist vel.
takið kjötið af pönnunni og setjið á disk
með eldhúspappír og setjið til hliðar.
Hitið nú restina af olíunni í stórum potti
og steikið laukinn þar til hann er orðinn
glær en passið að brúna hann ekki .
setjið svo hvítlaukinn og sveppina út
í og látið steikjast í 2-3 mínútur, bætið
þá paprikunum út í, stundum getur
þurft að bæta aðeins olíu við. Látið
blönduna malla í u.þ.b. 5 mínútur. setjið
nú kryddið út í ásamt soðinu, papriku-
maukinu, tómatmaukinu, sinnepinu og
kjúklingabaununum. Látið allt malla við
vægan hita í u.þ.b. 10 mínútur, setjið
þá kjötið út í og látið sjóða 10 mínútur
í viðbót. bætið við meira vatni ef þarf.
bragðbætið með pipar og salti eftir
þörfum. berið fram með fersku salati og
grófu brauði eða hrísgrjónum. Í þennan
rétt má í raun nota hvaða kjöt sem er
svo lengi sem það er magurt og einnig
má sleppa kjöti og setja meira grænmeti
þess í stað.
Í BOÐI GESTGJAFANS
PaPriKuPottréttur
umsjÓn: koLbrún páLÍna HeLgadÓttir, kolbrun@dv.is
matur fyrir
húðina
mataræði hefur mikið að segja fyrir
útlit og líðan. slæmt líferni sést
yfirleitt fyrst á húðinni. til eru
fæðutegundir sem virka sérstaklega
vel á húðina þar sem þær eru fullar
af andoxunarefnum.
Hafrar
Hafrar eru auðugir af kalsíum,
magnesíum, e-vítamíni, b-vítamíni,
prótíni og mörgu fleiru. Þeir eru
bæði góðir fyrir húðina sem og til
að draga úr streitu upp á. engin
furða að manni sé ráðlagt að borða
þá í morgunmat.
avókadó
avókadó (lárpera) er stútfullt af
andoxunarefnum, vítamínum og
góðum fitusýrum. Þá er avókadó
einnig besta vopnið gegn
hrukkunum.
fífill
Það er ekki verið að tala um að fara
út og tína fífla í garðinum en
fíflablöð sem notuð eru í te eru
frábær til að hreinsa eiturefni úr
líkamanum.
Melónur
Hvort sem þú vilt vatnsmelónur eða
cantaloupe-melónur eru þær
frábærar til að hressa líkamann. best
er að fá sér þær fyrst á morgnana til
að nýta andoxunarefnagjöfina sem
best.
Millet
Þessi korntegund er ein af þeim
mikilvægustu í heimi. Hún er
prótínrík, trefjarík, fitusnauð, b-
vítamínrík og járnrík. afskaplega
góð fyrir húð, tennur, augu og
neglur.
feitur fiskur
Það er staðreynd að feitur fiskur er
hollur fyrir líkamann en fólk veltir
eflaust fyrir sér hvaða fiskur telst til
þeirra feitu. bættu laxi, silungi,
sardínum og makríl, svo eitthvað sé
nefnt, í innkaupakörfuna.
Graskersfræ
að bæta handfylli af graskersfræj-
um út í morgunmúslíið er ein
auðveldasta leiðin til að fegra
húðina.
Jarðarber
jarðarber eru auðug af járni og og
frábær til að hreinsa líkamann. Þau
bragðast dásamlega og eru hollust
ef maður borðar þau ein og sér en
ekki með sykri eða rjóma.
vatnakarsi
frábær salattegund sem er full af a-
og C-vítamíni. Hann virkar einnig
eins og sýklalyf þar sem hann er
græðandi fyrir húðina.
baunaspírur
ein næringarríkasta og hreinasta
fæða sem til er. Þær eru tilvaldar út í
salat, á samlokur og í austurlenska
rétti. frábær leið til að gera matinn
hollari.
draumurinn
rættist
Árið 2005 fengu þau Hrönn vilhelmsdóttir og eiginmaður hennar, Þórólfur antons-
son, hugmynd að kaffihúsi sem þau voru sannfærð um að myndi virka vel. Þrátt fyrir
smávægilegar hindranir og tafir gáfu þau hugmyndina aldrei upp á bátinn. Í dag reka
þau heimilislegt kaffihús á Lokastíg 28 sem ber heitir kaffi loki og bjóða upp á alís-
lenskan mat og bakkelsi.
Heimilisleg stemning
Hrönn leggur mikið upp
úr því að stemningin sé
heimilisleg á kaffi Loka.
Mynd Heiða HelGadóttir
íslenskt og gott á
kaffi Loka má gæða
sér á íslensku og góðu
smurbrauði.