Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2009, Síða 3
þriðjudagur 3. mars 2009 3Fréttir
Andrés Pétur er meðal annars
ákærður fyrir að hafa ekki staðið skil
á tæplega fjögurra milljóna króna
virðisaukaskatti fyrir einkahlutafé-
lagið Eignarsalan Stuðlaberg á ár-
unum 2001 til 2002. Einnig fyrir að
hafa ekki greitt tæplega 2,5 milljóna
króna tekjuskatt af starfsemi sama
félags á árunum 2002 og 2003 og fyr-
ir að færa ekki lögboðið bókhald.
Auk þess er Andrés Pétur ákærð-
ur fyrir að hafa ekki greitt virðisauka-
skatt að upphæð tæplega tvær millj-
ónir af starfsemi einkahlutafélagsins
Upp árið 2004 og fyrir að færa ekki
lögboðið bókhald fyrir félagið.
Að lokum er Andrés Pétur ákærð-
ur fyrir að hafa lánað sjálfum sér
tæpar ellefu milljónir króna af fé
einkahlutafélagsins L 94 þar sem
hann var framkvæmdastjóri og fyrir
að að telja lánið ekki fram til skatts. Í
ákærunni kemur fram að með þessu
hafi Andrés Pétur komið sér hjá því
að greiða tæpar tvær milljónir króna
í tekjuskatt.
Þess er krafist í ákærunni að
Andrés Pétur verði dæmdur til refs-
ingar og til að greiða allan sakar-
kostnað.
„Misnotkun“ Andrésar
Andrés Pétur er skráður stofnandi
stuðningssíðu Guðlaugs Þórs Þórð-
arsonar á Facebook en hann er með-
al annars þekktur fyrir að hafa unnið
fyrir Guðlaug í prófkjörum í gegnum
tíðina.
Andrés Pétur komst í fréttir fyrir
síðustu helgi í tengslum við stuðn-
ing sinn við Guðlaug Þór þegar hann
hvatti meðlimi stuðningssíðu Geirs
H. Haarde á Fésbókinni að lýsa yfir
stuðningi við Guðlaug Þór í fram-
boði hans til fyrsta sætis í komandi
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Andr-
és Pétur er einnig einn af stofn-
endum Facebook-síðu Geirs. Eftir
að Geir greindi frá veikindum sín-
um hefur fjöldi fólks gerst meðlim-
ir á stuðningssíðunni og óskað Geir
góðs bata í veikindunum.
Andrés Pétur sendi meðlim-
um Fésbókarsíðu Geirs tölvupóst
þar sem hann sagði meðal annars:
„Guðlaugur Þór hefur ákveðið að
bjóða sig fram í 1. sætið á lista Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík. Langar
mig af því tilefni að benda ykkur á
stuðningssíðu sem sett hefur verið
upp hér á fésbókinni. Þið getið geng-
ið í grúppuna með því að fara inn á
meðfylgjandi slóð og smella á „join
group“ eða „ganga í grúppu“. Auðvit-
að væri svo gott ef þið gætuð boðið
vinum ykkar að ganga í grúppuna,
en það er gert með því að smella á
„invite a friend“ fyrir neðan mynd-
ina.“
Nokkrum af stuðningsmönnum
Geirs á síðunni fannst tölvupóstur
Andrésar ekki vera viðeigandi. Einn
þeirra, Kjartan Ólafsson Vídó, skrif-
aði meðal annars inn á stuðnings-
síðuna að sér þætti sendingin vera
„misnotkun á góðum hópi“.
Ölvunarakstur og uppákoma
Andrés Pétur hefur áður komist í
kast við lögin því hann var dæmd-
ur í tveggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi sumarið 2006 og var svipt-
ur ökuréttindum í tvö ár fyrir ölvun-
arakstur og uppákomu sem varð á
skemmtistaðnum Breiðinni á Akra-
nesi.
Andrés Pétur var að skemmta sér
á Breiðinni í árslok 2005. Hann ætl-
aði að aka heim af skemmtistaðn-
um en var stöðvaður af lögreglunni.
Áfengismagnið í blóði hans mældist
2,51 prómill og var hann látinn sofa
úr sér í fangageymslum. Morguninn
eftir vildi Andrés Pétur ekki tjá sig
um sakarefnin en neitaði síðar sök
við þingfestingu málsins.
LÖGREGLUmÖnnUm boðnaR mútUR
Stuðningsmaður Guðlaugs andrés Pétur sést hér með
andreu ingimundardóttur, ingibjörgu guðmundsdóttur,
Ágústu johnson og alþingismanninum guðlaugi þór þórð-
arsyni. andrés Pétur er mikill stuðningsmaður guðlaugs
og hefur unnið fyrir hann í kosningum. Hann stofnaði
stuðningssíðu ráðherrans fyrrverandi á Facebook.
Laganeminn andrés Pétur rúnarsson
er frægur gleðipinni úr samkvæmislífi
borgarinnar og er þekktur fyrir að
halda veglegar veislur við hin ýmsu
tækifæri þar sem þotuliðið kemur
saman og skemmtir sér.
Hann hélt meðal annars upp á 35
afmælið sitt á skemmtistaðnum Nasa
árið 2006 þar sem jónína Ben, jón
gerald sullenberger og Bobby Fischer
voru meðal gesta og Paparnir léku fyrir
dansi. Við það tækifæri sagði andrés
Pétur í samtali við dV: „það er eins gott
að gera þetta almennilega þá sjaldan
maður slær í klárinn,“ og brá þar fyrir
sig myndlíkingu úr hestamennskunni
en hann er einnig kunnur hestamaður
sem látið hefur þau orð falla að það að
eiga hest sé lykillinn að frelsi.
andrés Pétur er góðvinur margra
þekktra persóna úr þjóðlífinu, líkt
og myndirnar sýna, meðal annars
áðurnefndrar jónínu og hefur hann
látið þau orð falla um hana að betri
manneskju sé ekki hægt að eiga
sem vin, en jafnframt að verri óvinur
fyrirfinnist varla. Laganeminn hefur
einnig í gegnum tíðina átt í sambandi
við þekktar dívur, svo sem eins og
aðalheiði Ólafsdóttur idol-stjörnu.
andrés Pétur er líka þekktur fyrir annað
en glamúrlífið því hann er eitt helsta
tannhjólið í kosningavél guðlaugs þórs
þórðarsonar, alþingismanns sjálfstæð-
isflokksins, sem byrjar að vinna þing-
manninum í hag í aðdraganda próf-
kjöra og kosninga. Hann er byrjaður að
beita sér í komandi prófkjörsbaráttu
guðlaugs og stofnaði Fésbókarsíðu
til að styðja hann í fyrsta sætið á lista
sjálfstæðisflokksins í reykjavík í vor.
andrés Pétur mun einnig hafa unnið í
prófkjörum Vilhjálms þ. Vilhjálmssonar,
borgarfulltrúa og fyrrverandi borgar-
stjóra, en það mun að miklu leyti vera
sama fólkið sem stendur á bak við vel
útfærða prófkjörssigra þeirra beggja.
Fleira tengir andrés Pétur og
guðlaug því lögmaður hans, sveinn
andri sveinsson, er einnig kunnur
stuðningsmaður þingmannsins. Í
helgarviðtali við dV á seinni hluta
síðasta árs sagði sveinn andri: „Ég hef
áhuga á borgar- og landsmálum og
það hentar mér vel að vera í staðinn
fótgönguliði hjá vinum mínum, eins
og guðlaugi þór, sem verður án efa
formaður flokksins síðar meir,“ en
það er sennilega ekki ofmælt að kalla
andrés Pétur einnig fótgönguliða
þingmannsins.
ingi@dv.is
Tvö mál gegn Andrési Pétri Rúnarssyni þingfest í dag:
þekktur gLeðiPiNNi
og kosNiNgasmaLi
Ákærður fyrir meiri háttar brot tvö mál gegn andrési Pétri rúnarssyni,
laganema og fyrrverandi fasteignasala, verða þingfest í héraðsdómi í dag. Hann
sést hér með jóni gerald sullenberger og bandaríska bílasalanum ivan motta.
Í stjörnufans Laganeminn sést hér á góðri stundu með ella, eiganda Hard
rock, einkaþjálfaranum arnari grant og hárgreiðslumanninum Bödda.
Laganeminn, stjórnmálamaðurinn og lögmaðurinn andrés Pétur er kunnur fyrir að vera eitt helsta tannhjólið í frægri
kosningavél guðlaugs þórs þórðarsonar sem byrjar að vinna fyrir þingmanninn í aðdraganda kosninga og prófkjöra. Hér sést
andrés prúðbúinn ásamt guðlaugi þór og öðrum kunnum stuðningsmanni guðlaugs þórs, sveini andra sveinssyni, lögmanni
sínum, á nýársfagnaði á Hótel sögu í janúar árið 2008.