Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2009, Qupperneq 9
Álframleiðendur í heiminum búa
sig undir verulegan og langvinnan
samdrátt. Forsvarsmenn Century
Aluminium, sem á og rekur álverið
á Grundartanga og áformar að reisa
annað í Helguvík, segjast að óbreyttu
eiga rekstrarfé fram í júní á næsta ári
og telja framtíðarhorfur mjög dökkar.
Ekki verður þó hróflað við Grundar-
tangaálverinu um sinn en byggingu
álvers í Helguvík á vegum félagsins
hefur verið slegið á frest.
Dregið úr framleiðslu
Sama á við um Rio Tinto - Alcan sem
tilkynnt hefur um 11 prósenta sam-
drátt á þessu ári. Ólafur Teitur Guðna-
son, upplýsingastjóri félagsins hér
á landi, segir að ætlunin sé að loka
tveimur álverum á þessu ári, í Quebec
í Kanada og á Bretlandi sem Rio Tinto
á helmingshlut í.
„Straumsvíkurálverið fram-
leiddi 188 þúsund tonn í fyrra sem
er met. Það framleiðir nú upp í
pantanir eftir þörfum kaupend-
anna og engin áform um að þar
verði breyting á í bili,“ segir Ólafur
Teitur.
Alcoa, sem rekur Alcoa-Fjarða-
ál á Reyðarfirði, lokaði nýverið ál-
veri í Texas. Það eru einkum eldri
álver sem verða fyrir barðinu á
kreppunni. Þau notast yfirleitt við
óhagkvæmari tækni en þau nýrri.
Erna Indriðadóttir, upplýsinga-
stjóri Alcoa-Fjarðaáls, segir að ekki
standi til að draga úr framleiðslu eða
segja upp starfsfólki á Reyðarfirði.
Þar starfa 450 manns sem framleiða
nærri 350 þúsund tonn af áli á ári í
stærsta álverinu hér á landi.
Verðfall og birgðasöfnun
Álverð hefur fallið um þriðjung á ör-
fáum mánuðum og stóð í lok febrú-
ar í um 1.270 dollurum fyrir tonnið
á opna málmmarkaðnum í London.
Þess má geta að hæsta verð allra tíma
var um 3.300 dollarar fyrir áltonn-
ið um mitt ár í fyrra. Verðið nú hefur
ekki orðið svo lágt síðan árið 2001 og
er ekki fjarri því sem það var að jafn-
aði nær allan tíunda áratuginn.
Samkvæmt gögnum frá Cent-
ury veldur þetta því að þrjú af hverj-
um fjórum álverum í heiminum eru
rekin með tapi, kostnaðurinn við
að framleiða hvert áltonn er orðinn
hærri en það verð sem fæst fyrir það
á markaði.
Það sem veldur sérstökum
áhyggjum álframleiðenda er ekki að-
eins mjög mikil og snögg verðlækk-
un eftir að að það fór í hæstu hæðir
um mitt ár í fyrra, heldur einnig mik-
il birgðasöfnun í heiminum. Í gær
voru álbirgðir heimsins komnar í 3,2
milljónir tonna og því orðnar helm-
ingi meiri en árið 2007. Samkvæmt
gögnum DV virðist þetta koma ál-
markaðnum nokkuð í opna skjöldu
þar sem mikil verðlækkun ætti að
örva sölu.
Óvissar og dökkar horfur
Helsta úrræði fyrirtækjanna er að
draga úr framleiðslu og loka óhag-
kvæmustu álverunum. Það sem
einnig ræður viðbrögðum framleið-
endanna við þessum snöggu um-
skiptum til hins verra eru ytri þættir
eins og samningar um orkuverð sem
er afar þýðingarmikill þáttur þessa
orkufreka iðnaðar. Þannig er ætlunin
að loka álveri Rio Tinto Alcan í Que-
bec þegar orkusamningar renna út í
haust. Century leitast við að endur-
skipuleggja rekstur sinn alls staðar,
spara í yfirstjórn félagsins og skera
niður útgjöld vegna starfsemi sem
unnt er að vera án. Samdrátturinn
nemur 11 prósentum hjá félaginu
eins og áður segir. Þótt Century hafi
nú slegið framkvæmdum í Helguvík
á frest vegna sparnaðar í fjárfesting-
um er yfirstjórn félagsins áfram um
að standa vörð um hagsmuni sína
þar og halda áfram þegar aðstæð-
ur lagast. Þetta á einnig við um Al-
coa-Fjarðaál sem reynir að draga úr
útgjöldum eins og ferðakostnaði.
Framleiðslusamdráttur Alcoa nem-
ur 18 prósentum í öllum álverum fé-
lagsins í heiminum en það kostar um
13.500 manns vinnuna.
Verð á hlutabréfum í áliðnaði fell-
ur á heimsmarkaði og telja eigendur
Grundartangaálversins að verðmæti
Century séu verulega vanmetin sem
stendur. Í gögnum Century Alumini-
um segir að heimsmarkaðurinn sé
við lok gríðarlegs neysluhrings. Þrátt
fyrir að dregið hafi verið mjög hratt úr
framleiðslu á áli hafi birgðir safnast
upp engu að síður. Þess sé því ekki að
vænta að álverðið hækki og nái stöð-
ugleika á næstunni. Náin framtíð sé
afar óljós og horfur séu á minnkandi
eftirspurn í heiminum. Stjórnendur
félagsins gera því ráð fyrir að auka
þurfi hlutafé í lok þessa árs hafi eng-
in umskipti orðið þá. Enda hafi félag-
ið ekki laust fé til rekstrar nema fram
á mitt næsta ár að óbreyttu eins og
áður segir.
þriðjudagur 3. mars 2009 9Fréttir
inu. Gísli Árni Eggertsson, skrif-
stofustjóri Íþrótta- og tómstunda-
„Við lítum svo á að börnin séu
að taka þátt í formlegu frístunda-
starfi á frístundaheimilunum en
þar fer fram margs konar starf-
semi sem er sniðin að aldri þeirra
og þörfum. Þá taka ekki öll börn
sem sækja frístundaheimilin þátt
í öðru frístundastarfi og þótti
ástæða til að gefa foreldrum þeirra
möguleika á að nýta kortið til að
greiða niður dægradvölina. Það
skal þó tekið fram að full vistun á
frístundaheimili kostar um 8.000
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð
nýs Álftanesvegar milli Hafnarfjarð-
arvegar og Bessastaðavegar. Verkið
lýtur að því að leggja nýjan fjögurra
kílómetra langan veg frá Engidal að
Bessastaðavegi. Framkvæmdirn-
ar munu meðal annars felast í því að
gera mislæg gatnamót, ásamt að- og
fráreinum, við Hraunsholt í Engidal,
byggja tvenn göng fyrir gangandi um-
ferð og gera hringtorg við Bessastaða-
veg.
Hilmar Finnsson, deildarstjóri hjá
Vegagerðinni í Reykjavík, segir að
gamli Álftanesvegurinn uppfylli ekki
kröfur um umferðaröryggi og því hafi
verið ákveðið að leggja nýjan veg í
staðinn fyrir að gera við þann gamla.
„Burðarþol núverandi Álftanes-
vegar er orðið mjög lítið. Lega hans
og breidd, ásamt fjölda vegamóta og
tenginga við hann, uppfylla ekki kröf-
ur sem varða afköst og umferðarör-
yggi og eru gerðar til vega með þeirri
umferð sem þar er orðin en það eru
yfir fimm þúsund bílar á dag. Vegna
fjölda vegamótanna og tenginganna
við hann er ekki annað mögulegt en
að færa hann,“ segir Hilmar og bæt-
ir við að núverandi vegur um Garða-
hraun og Garðaholt verði að innan-
bæjargötu í Garðabæ eftir að hinn nýi
vegur verður ko inn í no kun.
Að sögn Hilmars verða tilboð opn-
uð 7. apríl næstkomandi og þá verða
kostnaðartölur birtar. Áætluð verklok
eru 31. ágúst 2010. liljakatrin@dv.is
Álftanesvegur gerður að innanbæjargötu í Garðabæ:
uppfyllir ekki kröfur
Mislæg gatnamót Framkvæmdirnar
felast meðal annars í því að gera mislæg
gatnamót við Hraunsholt í Engidal.
Það sem veldur sérstök-
um áhyggjum álfram-
leiðenda er ekki aðeins
mjög mikil og snögg
verðlækkun eftir að að
það fór í hæstu hæðir
um mitt ár í fyrra, held-
ur einnig mikil birgða-
söfnun í heiminum.
Kreppan
þrengir
að álinu
Horfur eru á miklum samdrætti álframleiðslunnar í veröldinni á næstunni. Álfélögin loka verksmiðjum
enda eru þrjú af hverjum fjórum álverum í heiminum rekin með halla. Eigendur Grundartangaálversins
eiga að óbreyttu rekstrarfé fram á mitt næsta ár og ætla að falast eftir auknu hlutafé um áramótin hafi
ástandið ekki lagast þá. Alcoa Fjarðaál Erna ind-
riðadóttir upplýsingastjóri
segir að hagkvæmt þyki að
framleiða ál hér á landi og
ekki sé ætlunin að draga úr
framleiðslu á reyðarfirði.
JÓhAnn hAuksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Reyðarfjörður Álframleiðendur eru ekki bjart-
sýnir og hafa margir þeirra lokað álverum, dregið
úr framleiðslu og sagt upp starfsmönnum.
MynDiR sigtRygguR ARi JÓhAnnsson
Vaxandi birgðir af
áli til loka febrúar
Hríðfallandi álverð