Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2009, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2009, Side 22
þriðjudagur 3. mars 200922 Fólkið Eva María Jónsdóttir, spyrill í Gettu betur, fékk heldur góða kveðju frá stigaverðinum Ásgeiri Erlendssyni í keppninni sem fór fram á laugardaginn. Eftir góða kynningu sneri Eva sér að Ás- geiri og spurði hann hvort það væri ekki ögrandi að vera stiga- vörður. „Hvenær ögrar starfið þér mest?“ spurði hún Ásgeir sem hugsaði sig um í smástund og sagði síðan hreinskilnislega: „Þessi kjóll þinn er til dæmis mjög ögrandi.“ Eva María klædd- ist sumarlegum blómakjól um kvöldið. Nemendur Verzlunar- skóla Íslands voru hæstánægð- ir með þetta komment Ásgeirs, stóðu upp og sungu fyrir stiga- vörðinn sem eitt sinn keppti fyrir hönd Verzló í keppninni frægu. Fésbókin bönnuð „Við erum að fara til Ameríku á mánu- daginn þar sem við munum spila á tónlistarhátíð í Toronto, Austin í Tex- as og á nokkrum tónleikum í New York,“ segir Bergur Ebbi Benedikts- son, söngvari Sprengjuhallarinnar. Sveitin hefur tekið upp átta laga kynningarstuttskífu þar sem sveitin syngur á ensku. „Þetta er mjög hefð- bundið. Við erum að reyna að koma okkur á framfæri og spila fyrir áhuga- sama aðila,“ segir Bergur hæstánægð- ur með útkomuna. „Við sungum alltaf á ensku til að byrja með,“ segir hann og bætir við: „Fyrsta lagið sem við tókum upp var á ensku. Það var síðan þýtt yfir á íslensku.“ Meðlimir sveitarinnar ákváðu svo á endanum að gefa út plötu á móð- urmálinu. „Okkur fannst vera meira „af hverju?“ í því.“ Bergur tekur einnig fram að þrjú lög af plötunum tveim- ur voru upprunalega á ensku, þar á meðal hið geysivinsæla Verum í sambandi, sem heitir á enskri tungu Worry ´till Spring. Sveitin er full til- hlökkunar fyrir ferðina og segir Berg- ur sveitina hæfilega bjartsýna. „Okkur langar að gefa út plötu í Bandaríkjunum og við þurfum að sannfæra útgáfufyrirtæki með alvöru dreifingu um að gefa okkur út,“ segir hann. Aðspurður segist Bergur hafa litlar áhyggjur af efnahagsástandinu þó að ferðin sé dýr. „Besti tíminn er oft óhentugasti tíminn.“ hanna@dv.is Í ögrandi kjól Sprengjuhöllin í Ameríkutúr í næStu viku: Idol StjörnuleIt: Fegurðardrottningin fyrrver- andi Manuela Ósk Steinsson er byrjuð að blogga á fréttavefn- um pressa.is. Hennar fyrsta færsla nefnist Út með gömul gildi, þar sem hún undrar sig á hvers kyns fatasamsetningum, hvað má og hvað ekki. Manúela Ósk hvetur fólk til þess að stíga út fyrir rammann og prófa nýja hluti. Manuela er búsett í Bolton á Englandi þar sem eiginmað- ur hennar, Grétar Rafn Steins- son, spilar fótbolta. Marta María Jónasdóttir, fyrrverandi ritstjóri Föstudagsins, er einnig byrjuð að skrifa á Pressunni. Í Veröld Mörtu má finna allt það nýjasta um hönnun. manúela Í pressunni Stundum þarf að fórna ýmislegu fyr- ir frægðina eins og keppendur í Idol- Stjörnuleitinni hafa komist að. Meðal þess sem keppendurnir þurfa að fórna er Fésbókin. Flestir þeirra tuttugu sem nú keppa um að komast í Smáralindina eru skráðir í Fésbókina en þeim hefur nú öllum verið gert að eyða aðgangi sínum að síðunni á meðan á keppn- inni stendur. Þór Freysson, framleið- andi Idol-Stjörnuleitar, segir þetta gert til að allir fá jafna umfjöllun. „Í rauninni er Facebook bara eins og að fara í viðtal en við leggjum upp með það að passa að allir keppendur fái jafna umfjöllun en eins og við vit- um eru oft einn eða tveir í keppninni sem kannski blaðamenn eru spenntari fyrir,“ segir Þór sem nú undirbýr fyrstu símakosningu þáttanna en hún fer fram á föstudaginn. „Þetta hefur fylgt keppninni frá upp- hafi. Það er ekkert mál fyrir fjölmiðla að fá viðtal við keppendur en það verður þá að vera á jafnréttisgrundvelli,“ segir Þór. Þegar blaðamaður tjáði Þór að enn væru þó nokkrir keppendur skráðir inn á Fésbókina sagði hann að miðað sé við fyrstu símakosningu. Það þýð- ir að allir þeir tuttugu keppendur sem nú eru eftir verða að vera búnir að eyða Fésbókar-aðgangi sínum fyrir keppn- ina á föstudaginn. Eftir því sem DV kemst næst er að- eins einn sem hefur verið rekinn úr Idolinu fyrir að brjóta „fjölmiðla“- ákvæðið í samningi keppenda Idol- Stjörnuleitarinnar en það var í fyrstu þáttaröðinni sem fór í loftið árið 2003. Keppanda að nafni Arnar Dór Hannes- son var vísað úr keppninni eftir að við- tal við hann birtist í Víkurfréttum og á vef blaðsins á meðan á keppninni stóð. Í fréttatilkynningu frá Stöð 2 kom fram að þetta hafi verið gert til að keppendur hái ekki kosningabaráttu. Þeir tuttugu sem nú eru eft- ir verða því að láta sér nægja að tala við vini og vandamenn í gegnum síma eða textaskila- boð því samkvæmt heimild- um DV falla Myspace-síður keppenda einnig undir „fjöl- miðla“-ákvæðið í samningum. Eins og áður segir heldur Idol- Stjörnuleitin áfram á Stöð 2 næsta föstudag en þá ríða stelpurnar á vaðið en þær eru tíu talsins rétt eins og strákarnir. Úrslitin ráðast síðan í símakosningu sem fer fram strax eftir þáttinn en þjóðin kýs bestu fimm stelp- urnar sem síðan keppa við fimm bestu strákana á sviði Smáralindarinnar. Tólf manna úrslitin hefjast síðan 20. mars næstkomandi. Í idolinu Þeir tuttugu keppendur idol-Stjörnuleitarinnar sem nú keppast um að komast í Smáralindina verða að eyða Facebook-vefsíð- unni sinni. Þetta er hluti af samningi sem þau skrifuðu undir en ákvæðið á að tryggja öllum keppendum jafna umfjöllun. Heppinn! aron Pálmi datt út úr idol- stjörnuleit tiltölulega snemma og má því halda í Fésbók-síðuna sína. þeir tuttugu sem nú eru eftir eru ekki jafnheppnir. Þór Freysson Framleiðandi idol- stjörnuleitar vill jafna umfjöllun um alla keppendur og bannar því Fésbókar-síður. Sprengjuhöllin Heldur til ameríku í næstu viku með von um að fá plötusamning þar vestra. vonast eFtir samningi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.