Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2009, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2009, Blaðsíða 2
Kettlingurinn Smári gistir hjá Kattholti þessa dag- ana eftir að honum var bjargað af þaki Smáralindarinnar en þar var hann í sjálfheldu. Smári var ómerktur og hafði lítið sem ekk- ert ofan í sig í þessa viku sem hann er talinn hafa verið uppi á Smáralindinni. Sigríður Heiðberg, formaður Kattholts, telur lík- legt að Smára hafi verið kastað út af heimili sínu en enginn hefur gefið sig fram sem eigandi hans. Smári er því líklega enn eitt fórn- arlamb kreppunnar. föstudagur 6. mars 20092 Fréttir hitt málið Þetta helst - þessar fréttir bar hæst í vikunni LögguM boðnar Mútur Tvö mál gegn fasteignasalan- um fyrrverandi Andrési Pétri Rúnarssyni voru þingfest fyrir héraðsdómi í vikunni. Hann er meðal annars ákærður fyrir meiri háttar hegningarlaga- og skattalagabrot, ölvunarakstur og fyrir að reyna að múta lögreglumönnum. Hann er þekktur sem einn helsti stuðnings- maður og kosningasmali Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og stofnaði stuðningssíðu þingmannsins á Facebook. Andrés Pétur hefur áður hlotið dóm fyrir ölvunarakstur og annað. Andrés Pétur Rúnarsson vildi ekki tjá sig um málin tvö þegar DV hafði samband við hann. „Hvaða mál eru það?“ spurði hann. Þegar blaða- maður sagði honum hvaða mál væri um að ræða sagði Andrés Pétur: „Ég vil ekki tjá mig um þetta. Ég sé enga frétt í þessu.“ kaddi í boði Lífeyrissjóðs Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunar- manna, hefur þegið þrjá- tíu milljónir á ári í laun fyrir störf sín en auk þess keyrir hann um á tíu milljóna króna Cadillac Escalade í boði sjóðsins. Á sama tíma og forstjórinn keyrir um á bandarískum lúxusbíl af dýrustu gerð tapar sjóðurinn þrjátíu og tveimur milljörðum vegna fjárfestinga sinna. Bíllinn var keyptur í janúar í fyrra en samkvæmt upplýsing- um frá bílasala sem þekkir til banda- rískra lúxusbíla er núverandi mat hans í kringum níu til tíu milljónir. Vélin í lúxusjeppanum er átta strokka og fram- leiðir fjögur hundruð hestöfl án fyrirhafnar. „Þetta er hluti af mínum starfskjörum,“ segir Þorgeir. Aðspurður hvort eldsneyti sé innifalið í þeim starfskjörum segir Þorgeir svo vera. „Það er rekstrarkostnaður bifreiðarinnar. Síðan eru mér reiknuð bif- reiðahlunnindi vegna bílsins sem ég greiði síðan af tekjuskatt.“ hótað útLegð af Lista Sigmundur Ernir Rúnarsson gerðist brotlegur við reglur prófkjörs Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Hann lét prentsmiðju prenta kynn- ingarrit fyrir sig á meðan aðrir frambjóðendur eru með svarthvít ljós- rit. Allir frambjóðendur skrifuðu undir samþykkt þess efnis að stilla kostnaði prófkjörsbaráttunnar í hóf. Sigmund- ur var áminntur fyrir brot sín og verður vísað frá prófkjörinu gerist hann brot- legur aftur. „Það var einfaldlega þannig að það var ódýrara að renna þessu í gegnum prentsmiðju en litaprentara og því var ákveðið að fara þessa leið,“ segir Sigmundur Ernir. Hann segist ekki hafa heyrt af því að brotin vörðuðu brottvísun úr prófkjörinu. Hann segist ekki ætla að hætta að dreifa kynningarritum um sjálfan sig en hann muni hins vegar prenta þau með öðrum hætti í kjölfar áminningarinnar. icesave-Lygin Mánudaginn 6. október sagði efna- hagsráðgjafi Geirs H. Haarde forsætisráðherra honum frá samskiptum þá um nóttina við Landsbankamenn vegna möguleika á flýtimeðferð �ce- save-reikninganna inn í breska lögsögu. Geir hefur aftur á móti neitað því afdráttarlaust að hafa vitað nokkuð um málið. Breska fjármálaeftirlitið hef- ur nú staðfest að viðræður um flýtimeð- ferð vegna �cesave-reikninganna fóru fram með þátttöku forstjóra eftirlitsins. „Ég ræddi við Sigurjón Árnason, banka- stjóra Landsbankans, seint um kvöld- ið og síðast klukkan þrjú um nóttina,“ segir Tryggvi Þór Herbertsson hagfræðingur um samskipti sín við Landsbankamenn aðfaranótt 6. október síðastliðins áður en Lands- bankinn var yfirtekinn af ríkinu og Bretar beittu hryðjuverkalögum gegn Íslendingum. Tryggvi segir að Sigurjón hafi lýst því að Lands- bankamenn væru að vinna að því að fá 200 milljóna punda lán hjá Seðlabankanum. „Ég skildi Sigurjón þannig að þetta væru samskipti á milli Landsbankans og Seðlabankans og þetta væri viðleitni þeirra til að fá 200 milljóna punda lán hjá Seðlabankanum til þess að tryggja að þeir fengju hraða afgreiðslu �cesave-reikninganna yfir í breska lög- sögu. Þetta var ekki þannig að verið væri að biðja mig um eitt eða neitt heldur halda okkur upplýstum. Eins og Sigurjón sagði mér frá þessu var frestur gefinn fyrst til klukkan sex um morguninn.“ 2 3 1 dv.isF r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ðþriðjudagur 3. mars 2009 dagblaðið vísir 38. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 13 miLLjÓNa cadiLLac Í BOði LÍfeyrissjÓðs Kynþátta- fordómar taldir vera orsökin hrOttaLeg árás á piLt Í saNdgerði Kreppir að áLiNu Andrés Pétur rúnArsson, fyrrverandi fasteignasali, ákærður: Löggum boðnar mútur stÓrfeLLd sKattsviK, öLvuN- araKstur Og mútutiLrauN KOsNiNgasmaLi dregiNN fyrir tvO dÓmstÓLa Í dag fréttirfréttir fréttir áLframLeiðeNdur reiKNa með LaNgviNNum samdrætti þOrgeir eyjÓLfssON fOrstjÓri Leiddi LÍfeyrissjÓð vr Í 32 miLLjarða tapfær 30 miLLjÓNir á ári Í LauN Og LúxusBÍL tiL að aKa KÍLÓmetra Í viNNuNa idOL-stjörNum settur stÓLLiNN fyrir dyrNar fÓLKidOL BaNNar faceBOOK dv.is F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð miðvikudagur 4. mars 2009 dagblaðið vísir 39. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 Þarfnast eiganda HÓTAÐ BROTTVIKNINGU ÚR PRÓFKJÖRI: sigmundur skammaður fyrir bruðl fréttirfréttir fréttir fólk fréttirfréttir Áminntur fyrir að brjóta reglur prófkjörs „ég Ákvað að koma inn af auðmýkt og algjörlega hrokalaus“ örlÁtur við sitt eigið kjördæmi stal senunni ólafur f. Á teknóballi pólverjar rÁðnir – íslendingar reknir „bara einhvertilviljun“ bjargað eftir viku uppi Á smÁralind andrés pétur fjarlægður Úr faCebook-hópi guðlaugs Þórs keyrði Á próflaus Á flótta „nei“ björn ingi ekki aftur í stjórnmÁl 4dv.isF r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ðfimmtudagur 5. mars 2009 dagblaðið vísir 40. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347HVER KLÚÐRAÐI HVERJU? fréttir fréttir ICESAVE LYGIN „OrÐsPOr ÞJÓÐar ÞiNNar BÍÐur HrÆÐiLEgaN HNEKKi“ mENNiNgarvErÐLauNiN Í 30. siNN tÍu sigurvEgarar KyNNtir Í gÆrHJaLtaLÍN féKK NEtvErÐLauNiN sara BJörK „PaKKaÐi“ NOrEgi samaN ÍsLaNd vaNN 6. BEsta LiÐ HEims sPOrt „ÞEtta Er fráBÆrt“ áNÆgJa mEÐ ÓLaf f. á tEKNÓBaLLi fÓLK KrúNu- KúgariNN viLdi afHJúPa NauÐgara tErry Og HENry tJá sig um Pétur fréttir HÓtuN uNdir rúÐuÞurrKu „sJáumst Í HrauNBÆ“ Hvarf frá LitLu BarNi „viÐ HöLdum Í vONiNa“ fÓLK Lífslöngunin hélt kettlingnum Smára á lífi í heila viku þegar hann festist uppi á Smáralind en starfs- menn verslunarmiðstöðvarinn- ar náðu honum niður eftir að hafa reynt að bjarga honum í rúma viku. Smári var að vonum mjög hvekktur enda mikið lagt á sex mánaða kett- ling að fá hvorki vott né þurrt. Harð- fiskurinn sem starfsfólk Smáralind- ar gaf Smára reyndist þó lífgjöf en hann var grindhoraður þegar Sig- ríður Heiðberg, formaður Kattholts, og hennar fólk tóku við honum á þriðjudaginn. Enginn hefur gefið sig fram sem hugsanlegur eigandi Smára en þar sem hann var ómerktur er vonlaust að hafa uppi á honum. Sigríður Heiðberg, formaður Kattholts, telur jafnvel að Smára hafi verið kastað út af heimili sínu en því miður fá dýrin líka að finna fyrir kreppunni. Blíður og góður Eftir því sem DV kemst næst er ekk- ert um „villikettlinga“ hér á landi og því má leiða líkum að því að Smári hafi fengið að fjúka þegar kreppan fór að gera vart við sig á heimili hans. Til marks um það var Smári með brúna ól en hún var ekki merkt. Sigríður Heið- berg er því sammála. „Hann var grindhoraður greyið, ómerktur og ógeldur. Honum hef- ur eflaust verið hent út enda væri hann ekki svona blíður ef hann hefði aldrei umgengist mannfólk,“ seg- ir Sigríður sem nú sér um Smára á meðan hann nær sér að fullu eftir vikudvöl uppi á verslunarmiðstöð Smáralindarinnar. „Hann er mjög góður og blíður en ég ætla að láta hann ná sér,“ segir Sigríður og bætir við að Smári fái nóg að borða í Katt- holti. Gott heimili fyrir Smára Smári er svartur og hvítur en sam- kvæmt upplýsingum frá Kattholti er hann eitthvað í kringum sex mán- aða gamall. Eins og áður segir er hann blíður og góður og því kjörið fyrir fjölskyldu að taka hann að sér. Ef leit að eigandanum gengur ekki upp mun Sigríður finna frábæra fjöl- skyldu handa honum en áhugasöm- um, sem vilja taka Smára að sér, er bent á að hafa samband við Kattholt. „Hann er búinn að ganga í gegn- um svo mikið, þetta litla grey. Ég ætla að leyfa honum að ná sér en síðan læt ég gelda hann og merkja. Þegar það er búið ætla ég að koma honum á gott heimili,“ segir Sigríður. fórnarlamb kreppunnar Eftir því sem DV kemst næst er ekkert um „villi- kettlinga“ hér á landi og því má leiða líkur að því að Smári hafi fengið að fjúka þegar kreppan fór að gera vart við sig á heimili hans. Atli Már GylfASon blaðamaður skrifar: atli@dv.is Sigríður Heiðberg formaður Kattholts segir líklegt að smára hafi verið kastað út af heimili sínu en enginn eigandi hefur gefið sig fram. átt þú mig? Kettlingurinn smári fékk nafn- ið hjá starfsfólki smáralindarinnar sem bjargaði honum af þaki verslunarmiðstöðv- arinnar en þar hafði hann verið fastur í rúma viku. þriðjudagur 3. mars 20098 Fréttir Á sama tíma og Lífeyrissjóður verslun- armanna þarf hugsanlega að skerða lífeyrisréttindi sjóðsfélaga sinna keyr- ir forstjóri sjóðsins, Þorgeir Eyjólfsson, um á þrettán milljóna króna banda- rískum lúxusjeppa af gerðinni Cadillac Escalade – allt í boði sjóðsins. Bíllinn var keyptur í janúar á síð- asta ári en samkvæmt upplýsingum frá bílasala sem er kunnur banda- rískum lúxusbílum er núverandi mat hans í kringum níu til tíu milljónir. Vél- in í lúxusjeppanum er átta strokka og framleiðir fjögur hundruð hestöfl án fyrirhafnar. Fyrirtækið Toms ehf. flutti jeppann til landsins en samkvæmt upplýsingum á vefsíðu fyrirtækisins sérhæfir það sig í innflutningi á banda- rískum bílum. 100 ár að borga bílinn „Þetta er hluti af mínum starfskjörum,“ segir Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Líf- eyrissjóðs verslunarmanna. Aðspurð- ur hvort eldsneyti sé innifalið í þeim starfskjörum segir Þorgeir svo vera. „Það er rekstrarkostnaður bifreiðar- innar. Síðan eru mér reiknuð bifreiða- hlunnindi vegna bílsins sem ég greiði síðan af tekjuskatt.“ Eftir því sem DV kemst næst eyð- ir lúxusjeppinn um það bil 25 lítrum á hundraðið í akstri innanbæjar en get- ur þó farið upp í 30 lítra á hundraðið ef allur kraftur hans er notaður. „Bíllinn kostaði 7,9 milljónir fyr- ir rúmu ári, þetta er hluti af mínum hlunnindum síðustu tuttugu og fimm árin sem ég hef verið forstjóri lífeyr- issjóðsins,“ segir Þorgeir spurður út í lúxusjeppann. Eins og áður segir tjáðu matsmenn DV að lúxusjeppinn væri metinn á níu til tíu milljónir. Miðað við það verð sem Þorgeir nefnir tekur það íslenska láglaunamanneskju hundrað og fimm ár að borga lúxusjeppa Þor- geirs með iðgjöldum sínum sé miðað við fjögur prósent gjöld. Kílómetri í vinnuna Gunnar Páll Pálsson, formaður VR og jafnframt formaður stjórnar Lífeyr- issjóðs verslunarmanna, mundi ekki eftir því hvernig bifreiðahlunnindum Þorgeirs væri hagað. „Ég verð að viðurkenna að það hefur ekki verið samið um þessi bif- reiðahlunnindi frá því ég varð stjórn- arformaður þannig að það hefur svo sem ekki komið inn á mitt borð,“ segir Gunnar Páll. Blaðamað- ur DV tjáði Gunnari Páli að Lífeyris- sjóður verslun- armanna hefði keypt lúxus- jeppann í fyrra, það er þeg- ar hann var stjórnarfor- maður. „Ég vissi að hann endurnýjaði bílinn en það átti bara að vera eitt- hvað sambærilegt því sem hann hafði ver- ið á,“ segir Gunnar Páll sem vissi ekki nánari deili á bílnum. Þess má geta að Þorgeir býr rúman kílómetra frá vinnustað sínum sem er í Húsi verslunarinnar við Kringluna. Lækkaði laun Lífeyrissjóður verslunarmanna tapaði gríðarlega háum upphæðum á síðasta ári vegna fjárfestinga félagsins sem margar hverjar urðu að engu í banka- hruninu. Sjóðurinn tapaði 32 milljörð- um króna á síðasta ári og eignir hans rýrnuðu um 20 milljarða á sama tíma- bili. Samkvæmt ársskýrslu sjóðsins fyrir árið 2007 átti sjóðurinn um- talsverða fjármuni í íslensk- um fyrirtækjum sem sum hver eru komin í þrot eða eru í greiðslu- stöðvun. Meðal þeirra fyr- irtækja sem sjóð- urinn átti í er FL Group, Glitnir banki hf., Kaupþing banki hf., Landsbanki Íslands hf. Bakkavör Group hf. og Straumur- Burðarás Fjárfestingabanki hf. Aðspurður hvort hugmyndir séu uppi um að skera niður í bifreiða- hlunnindum eða öðru segir Þorgeir að svo hafi verið gert: „Við erum búin að lækka hér laun á skrifstofunni og stjórnin er búin að lækka launin sín. Þá hafa launin mín lækkað um fjórðung. Við erum að gera það sem við getum til að halda rekstri skrifstofunnar í lágmarki.“ Þorgeir segir að laun sín hafi lækkað frá og með áramót- um en samkvæmt upplýsingum frá honum sjálfum er hann nú með 1.875 þúsund á mánuði. Þorgeir Eyjólfsson SJÓÐURinn SKAFFAR STJÓRAnUM CADiLLAC HEIMILI ÞORGEIRS HÚS VERSLUNARINNAR 1 km AtLi Már GyLfAson blaðamaður skrifar: atli@dv.is forstjórinn þorgeir Eyjólfsson segir bifreiða- hlunnindi sín tuttugu og fimm ára gömul en hann keyrir um á tíu milljóna króna Cadillac. stjórnarformaðurinn gunnar Páll Pálsson mundi ekki eftir því hvernig bifreiðahlunn- indum þorgeirs var háttað. Það tekur láglaunamanneskju rúm 105 ár að borga Cadillac Escalade með iðgjaldi sínu: Lágmarkslaun: 156.000 kr.- iðgjald 4%: 6.240 kr.- Cadillac 7,9 m.kr.- / 6.240 kr.- = 1266 mánuði = 105,5 ár „Þetta er hluti af mín- um hlunnindum síðustu tuttugu og fimm árin sem ég hef verið for- stjóri lífeyrissjóðsins.“ Lífeyrissjóður verslunarmanna Tapaði 32 milljörðum í fyrra en kostar lúxusjeppa fyrir forstjórann sem hefur notið bifreiðahlunninda í 25 ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.