Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2009, Side 18
Tími TeheTTunnar
Það fyrsta sem stjórnmálafólk gleymir þegar það kemst til áhrifa er að það starfar í um-boði almennings og er þjón-
ar fólksins. Þegar ilmurinn af kjötkötl-
unum fyllir vitin og glampinn af gulli
alþýðunnar í ríkissjóði slær menn
blindu er þeim sem áður voru auð-
mjúkir frambjóðendur fyrirmunað að
sinna þeim skyldum sem þeir voru
kosnir til að gegna. Allt í einu fer allt
að snúast um að halda völdunum til
þess að geta hlaðið undir gæðinga og
vini og dreifa peningum annars fólks í
gæluverkefni og kjördæmapot.
Á fjögurra ára fresti fær bless-að fólki þó minnið af illri nauðsyn, stígur niður úr fílabeinsturninum, ávarpar
múginn, hreykir sér af ein- hverju
sem það gerði ekki,
lofar meiru upp í
ermina á sér og
síðast en ekki síst
skemmtir það okk-
ur með því að láta
eins og bjánar. Þess
á milli eru pól-
itíkusarn-
ir á flótta
undan
fjöl-
miðl-
um.
Svara ekki símum eða það sem verra
er, með skætingi ef í þá næst.
Nú er hins vegar lag og fólk sem fyrir nokkrum vikum hljóp við fót undan mynda-tökufólki situr nú nánast fyr-
ir ljósmyndurum við heimili þeirra og
grátbiður um athygli. Og takmörkin
fyrir því sem hægt er að fá stjórnmála-
menn til að gera eru eiginlega engin.
Svarthöfða er alltaf í fersku minni þegar Jón Ársæll Þórðar-son fékk Ólaf Ragnar Gríms-son, nú forseta en þá for-
mann Alþýðubandalagsins, til að setja
forláta rússneska tehettu á hausinn í
sjónvarpsþætti. Nú var Ólafur Ragnar
enginn sérstakur djóker áður en hann
flutti á Bessastaði en í aðdrag-
anda kosninga
var hann til
í að bregða
á leik. Siv
Friðleifs-
dóttir hefur
undanfarið skellt sér í sjósund með
í það minnsta fulltrúum þriggja fjöl-
miðla, Þorgerður Katrín er búin að tala
um kjaftasögurnar og hvaðeina á Skjá
einum og eiginkona Bjarna Benedikts-
sonar hefur talað fjálglega um frammi-
stöðu hans við eldhúsvaskinn á Stöð 2.
Þetta ball er rétt að byrja og um að gera fyrir okkur að njóta þessara augnablika sem stjórnmálafólkið nennir
að láta ná í sig. Auðvitað er veik von
í því að hrunið mikla og hugmynd-
ir um djúpstæða siðbót verði til þess
að þeir sem nú fara fram á umboð til
að stjórna landinu sýni sóma sinn í
að gefa raunverulegt færi á sér næstu
fjögur árin. Líklegra er samt að fátt
breytist og að þau sem komast á þing
telji sér stætt á að láta
sig hverfa og vinna
sín myrkraverk í
hljóði gegn því
að þau geri sig að
fíflum eftir fjög-
ur ár.
föstudagur 6. mars 200918 Umræða
Sandkorn
n Gísli Marteinn Baldursson
borgarfulltrúi hefur verið í mik-
illi herferð við að rétta ímynd
sína vegna REI-málsins sem
hann telur vera eitt mesta spill-
ingarmál síðari tíma. Hann gef-
ur til kynna
á bloggi sínu
að hann búi
yfir stórum
leyndarmál-
um. „... við
sem stóð-
um í fárinu
miðju og
höfuðpaur-
arnir gerðu að blórabögglum,
fáum sífellt meiri upplýsingar
um óhreinindin í málinu. Sú
saga hefur ekki enn verið sögð.“
Væntanlega er Gísli meðal ann-
ars að vísa til þáttar Vilhjálms
Þ. Vilhjálmssonar, fyrrverandi
leiðtoga síns.
n Það eru fleiri með athygl-
isverðan þátt í REI-málinu.
Guðlaugur Þór Þórðarsson er
sagður vera guðfaðir útrásar-
hugmyndar REI sem formað-
ur stjórnar
Orkuveitu
Reykjavíkur
lagði hann
grunn að
ævintýrinu
sem seinna
fór eftir-
minnilega úr
böndunum.
Hugsanlegt er að Gísli Marteinn
Baldursson sé að senda honum
viðvörun með því að segja frá
því að hann búi yfir skuggaleg-
um upplýsingum.
n Eftir bankahrunið hefur Ísland
þótt ákjósanlegt umfjöllunarefni
í kreppufræðum í háskólum um
allan heim. Mikil uppgrip eru
því hjá íslenskum fræðimönn-
um í hagvísindum sem nenna á
ráðstefnur
erlendis þar
sem fjallað
er um fjár-
málakrepp-
una. Þetta
á raunar
einnig við
um þá sem
vilja gefa út
bækur um
bankahrunið. Þannig vinnur
Guðni Th. Jóhannesson sagn-
fræðingur hörðum höndum að
bók fyrir Forlagið um banka-
hrunið og gæti sú bók komið út
innan nokkurra vikna.
n Einnig heyrist að Styrmir
Gunnarsson, fyrrverandi rit-
stjóri Morgunblaðsins, hafi lagt
til hliðar ævisögu sína og vinni
að bók um bankahrunið. Styrm-
ir var um tíma sem grár köttur í
Seðlabank-
anum við
hlið Davíðs
Oddssonar,
fyrrverandi
seðlabanka-
stjóra. Eng-
um sögum
fer af erindi
hans þar en
líklegt er að hann hafi þar bergt
af fróðleiksbrunni Davíðs og
safnað í sarpinn fyrir bók um
hrunið.
LyngháLs 5, 110 reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 70 50.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Sjáumst í Hraunbæ 44“
n Stóð í hótunarbréfi til Axels Inga Viðarssonar,
nema í Kvikmyndaskóla Íslands. Miðanum var búið
að koma fyrir á framrúðu bíl hans sem búið var að
mölbrjóta. – DV
„Maður verður að
passa vel upp á
sjálfan sig og
sýna aldrei merki
um veikleika.“
n Krúnukúgarinn Paul Einar Aðalsteinsson sem
nýsloppinn er úr öryggisfangelsi í Bretlandi. – DV
„Við höldum í
vonina“
n Lögreglan um hvarf Aldísar
Westergren sem ekkert hefur
spurst til í síðan 24. febrúar. - DV
„Það styttist í að teknótæf-
urnar verði ömmur.“
n Helgi Már Bjarnason hjá Party Zone segir
raftónlistina eldast eins og aðra tónlist. – DV
„Þetta verður
svona desertinn á
eftir lambalærinu
á sunnudögum.“
n Villi Naglbítur mun stýra Helgarútgáfunni á Rás
2 frá og með næsta sunnudegi. – Fréttablaðið
„Fólki finnst svolítið spes að
fá lögmanninn í lúguna.“
n Magnús Jónsson, leikari í Rétti, leysti systur sína
af í veikindum í sjoppunni Skalla sem er í eigu
fjölskyldu hans. – Séð og heyrt
Falsspámenn
Leiðari
Í komandi kosningum er full ástæða fyrir kjósendur til að vera á varðbergi gagn-vart einstaklingum sem bjóða sig fram til starfa í þágu þjóðarinnar án þess
að hafa fram að færa nokkuð það sem get-
ur nýst þjóðinni. Við þá uppstokkun sem
nú fer fram skýtur upp kollinum fólk sem
er að sækjast eftir þægilegri innivinnu án
þess að hafa til þess þá þekkingu, heiðar-
leika eða ástríðu sem nauðsynleg eru góð-
um stjórnmálamanni. Hvert frægðarmenn-
ið af öðru stígur nú fram á sviðið og þykist
ætla að bjarga þjóðinni með froðusnakkið
eitt í ferilskránni. Útbrunnar stjörnur vilja
komast á þing til að fara þar með innihalds-
lausa frasa sína. Menn sem hafa steypt fyr-
irtækjum í þrot standa nú hrópandi uppi á
kössum sínum og þykjast þess umkomnir að
bjarga þjóð úr fjármálakrísu. Útigangsmenn
hafa risið upp og viljað fá þingsæti. Hrun Ís-
lands og siðferðislegt þrot stjórnmálanna
má ekki verða til þess að salur Alþingis fyllist
af enn fleiri liðleskjum. Endurnýjun á þingi
er nauðsyn en það þýðir ekki að hafna eigi
öllum þeim sem þar sitja nú. Aðalatriði er að
róttæk hugarfarsbreyting verði meðal allra
stjórnmálamanna. Eini flokkurinn sem sýnt
hefur einhverja viðleitni í þá átt er Sjálfstæð-
isflokkurinn sem skiptir út nær allri forystu
sinni. Undir forystu Vilhjálms Egilssonar,
fyrrverandi alþingismanns, horfist flokkur-
inn nú í augu við syndir sínar og afglöp. Aðr-
ir spillingarflokkar ættu að fara í sambæri-
lega naflaskoðun. Kjósendur bera þá ábyrgð
að hafna falsspámönnum og vanda val sitt.
Aldrei fyrr hefur verið eins nauðsynlegt og
nú að velja rétta fólkið til að stjórna landinu.
Ef fagurgali hinna innihaldslitlu fleytir þeim
á Alþingi er það á ábyrgð kjósenda. Prófkjör-
in fram undan og kosningarnar eru nauð-
synleg til þess að greina hismið frá kjarnan-
um. Þjóðin verður að nota tækifærið til að
hafna innihaldslausri pólitík og velja gott
fólk til starfa. Þar verður hver maður að axla
sína ábyrgð og nota atkvæði sitt með það
markmið skýrt að siðvæða stjórn Íslands.
Lýðskrumið verður að víkja fyrir stjórnfestu
og góðu siðferði.
reynir TrausTason riTsTjóri skrifar. Hvert frægðarmennið af öðru stígur nú fram á sviðið.
bókStafLega
AÐ RANNSAKA RANNSÓKN
Núna er víst einhver rannsókn í
gangi. Okkur er sagt að ætlunin sé
að rannsaka aðdraganda banka-
hrunsins og hrunið sjálft. Okkur er
einnig sagt, að ef menn komi sjálf-
viljugir til þeirra sem rannsaka eiga
málið og láti þeim í té upplýsingar
um glæpi sína megi ekki nota þá
vitneskju gegn þeim þegar sekt skal
endanlega sönnuð. Ef við hefðum
á tilfinningunni að menn væru að
rannsaka eitthvað annað en sjálfa
rannsóknina, sem er ekki farin af
stað, væri kannski í lagi að leyfa
mönnum að reyna að komast að því
hvort eitthvað gerðist eða ekki. En
það er ekki verið að yfirheyra neinn.
Jafnvel þótt einn af okkar fyrrver-
andi bankamönnum haldi því fram
að hann sitji á upplýsingum sem
varpað geti ljósi á margt í aðdrag-
anda hrunsins er hann ekki einu
sinni kallaður inn til yfirheyrslu.
Ja, ef ég héldi því nú fram hérna í
pistli mínum að ég gæti upplýst allt
um það hvert allir peningarnir fóru
og segjum að ég héldi því fram að
ég hefði sannanir fyrir því að hér
hefðu menn verið að þvo illa feng-
ið rússneskt klink í áraraðir. Já, ef ég
segðist vita allt um alla skúrkana og
ef ég gæti sannað að samtrygging-
in og helmingaskiptaveldið leyfðu
þjófum að blekkja okkur hin. Já, ef
ég héldi þessu fram – væri þá ekki
nauðsynlegt að kalla mig til yfir-
heyrslu og athuga hvort fullyrðing-
ar mínar gætu hugsanlega verið á
rökum reistar?
Núna eru Sjálfstæðisflokkur og
Framsókn, þeir stjórnmálaflokkar
tveir sem spillingunni hafa stjórn-
að síðustu tvo áratugi, að nudda
saman nefjum og með lygum og
uppspuna eru einstaklingar innan
flokkanna uppteknir við að afvega-
leiða þá björgunarleiðangra sem
ríkisstjórn Jóhönnu er að reyna að
koma í verk.
Núna er andlitslyfting það her-
bragð sem spillingaröflin ætla að
bjóða þjóðinni. Sannir leiðtogar
einsog Geiri smart, Guðni Ágústs-
son, Valgerður Sverrisdóttir og Árni
dýralæknir stíga af stalli og í skörð
þessa fólks koma ný andlit með ná-
kvæmlega sömu samtrygginguna,
sömu bitlingana, sömu vinavæð-
inguna og nákvæmlega sömu spill-
inguna að leiðarljósi.
Núverandi samstarfsflokkar í rík-
isstjórn geta ef til vill tryggt áfram-
haldandi stjórnarsamstarf með því
að ganga til kosninganna í banda-
lagi. Þannig má segja að valkostir
þjóðarinnar verði skýrir – uppbygg-
ing eða spilling.
Kemur góssið hingað heim,
er hægt að borga gjöldin,
mun réttast vera að refsa þeim
sem réttu þjófum völdin?
kristján hreinsson
skáld skrifar
„Núna er andlits-
lyfting það her-
bragð sem spill-
ingaröflin ætla
að bjóða þjóðinni. “
SkáLdið Skrifar
Svarthöfði