Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2009, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2009, Side 17
föstudagur 3. apríl 2009 17Umræða Hver er konan? „Bara venjulegur tannlæknir, eiginkona og móðir.“ Hvaðan ertu? „frá Húsavík. Þar var fínt að alast upp. Maður fékk að gera allt sem maður vildi.“ Hvað drífur þig áfram? „Börnin mín og ánægjan af því að fá að gera eitthvað gott og skapandi í lífinu.“ Hvers vegna bjóða tannlæknar upp á þessa ókeypis þjónustu fyrir börn og unglinga? „Ég held að okkur tannlæknum sé bara nóg boðið. Það hafa verið litlir samn- ingar í gangi á milli tannlækna og sjúkratryggingastofnunar þannig að kostnaðarhlutdeild foreldra er alltaf að aukast. Það virðist enginn vera að hugsa almennilega um börnin og þá foreldra sem eiga í engin hús að venda með tannheilsu barna sinna.“ Vitið þið um mörg dæmi þess að börn fái ekki viðunandi tann- læknaþjónustu vegna fjárskorts foreldra? „Já, allt of mörg dæmi þess og afskaplega sorgleg.“ Hvernig er almenn tannheilsa íslenskra barna og unglinga? „Ekki mjög góð. frá því árið 2005 hefur tannheilsuástand íslenskra barna farið síversnandi og er ástandið orðið helmingi verra en annars staðar á Norðurlöndunum. Og það hefur ekkert verið gert. Mikið hefur verið auglýst og lofað fyrir kosningar en eftir þær hefur verið skellt í lás og ekkert verið gert.“ Þetta eru nokkrar helgar í apríl og maí sem boðið er upp á þjón- ustuna; er ekki inni í myndinni að gera þetta lengur? „Jú. Þetta stjórnast af því að það eru sumarfrí hjá tannlæknadeild Hí þannig að hún er lokuð í sumar. En það er mjög góður vilji fyrir því að taka aftur upp þráðinn í haust.“ Er mögulegt að fullorðnum verði boðið upp á svona fría þjónustu líka? „Ég á ekki von á því, nei.“ Hvort tannkremið er betra, Colgate eða Sensodyne? „alveg sama, svo framarlega sem það er flúor í tannkreminu.“ Ferðu í kirkju um páskana? „Kannski.“ Kjartan BjarnaSon 37 ára atHafNaMaður „Nei.“ Pétur BirgiSSon 25 ára rafvirKi „Það er sama svarið. Nei.“ jón BjörnSSon 47 ára sJóMaður „ósköp einfalt svar. Nei.“ Finnur óSKarSSon 65 ára starfsMaður á plaNi Dómstóll götunnar ingiBjörg S. BEnEdiKtSdóttir er formaður tannlæknafélags íslands. tilkynnt var í gær að tannlæknafélag íslands og tannlæknadeild Háskóla íslands ætluðu að bjóða ókeypis tannlæknaþjónustu fyrir börn og unglinga nokkrar helgar í apríl og maí. Tannlæknum nóg boðið „Já.“ aðalHEiður SVanHildardóttir 49 ára KENNari maður Dagsins Besti vinur spillta mannsins Nú í vikunni eru 60 ár liðin frá því að Ísland gekk í NATO. Sumir hafa talið þetta einhverja afdrifarík- ustu ákvörðun lýðveldisins. Þó má segja að hún hafi skipt minna máli en margir bjuggust við. Ísland hef- ur ekki dregist með beinum hætti í hernaðarátök af völdum NATO (þó vissulega séu Íslendingar í Afgan- istan), né heldur er líklegt að Sovét- ríkin hefðu ráðist á landið hefði það áfram verið hlutlaust. Árið 1949 spáðu bölsýnismenn því að NATO-aðild myndi leiða til þess hingað kæmi amerískur her. Þetta rættist tveimur árum síðar og ekki er hægt að neita því að Ísland hafi lent á áhrifasvæði Bandaríkj- anna. Bandaríski herinn hafði mikil áhrif á íslenska menningu, heil kyn- slóð ólst upp við Kanasjónvarpið og sumir vilja rekja upphaf íslenska rokksins til herstöðvarinnar, enda var Keflavík lengi rokkbær Íslands. Ísland hvarf þó ekki inn í Bandarík- in eða varð bein bandarísk nýlenda eins og sumir höfðu óttast. Menn- ingaráhrifin hefðu að mestu komið hvort eð er, eins og þau gerðu í Finn- landi og Svíþjóð. Herinn fór svo loks eftir 55 ára dvöl án þess að Suðurnes- in færu á hausinn, að minnsta kosti ekki fyrr en landið allt gerði það. Erfðasynd íslenska lýðveldisins Þó má segja að inngangan í NATO hafi haft grundvallaráhrif á íslensk stjórnmál. Andri Snær Magnason segir til dæmis í Draumalandinu: „Hin klofna heimsmynd Kalda stríðsins skemmdi heila kynslóð stjórnmálamanna og enn í dag falla óskyld mál í „kaldastríðs skotgrafir“, þær hafa orðið að sjálfvirku flokkun- arkerfi fyrir hugsun margra.“ Í Noregi og Danmörku ríkir al- menn sátt um veruna í NATO, í Finnlandi og Svíþjóð ríkir sátt um að standa fyrir utan. Það var aðeins á Íslandi sem þjóðin var klofin í herð- ar niður eftir afstöðunni til banda- lagsins, og hefur hún að mörgu leyti verið það síðan. Slagorð mótmælenda á Austur- velli 30. mars 1949 var um þjóðar- atkvæðagreiðslu. Ákvörðunin var að mörgu leyti ólýðræðisleg, ákveð- ið var að hafa umræðuna á Alþingi eins stutta og hægt var og því fengu ekki öll sjónarmið að heyrast. Ekki er að undra að komið hafi til óeirða. Hálftímagluggi til byltingar Í bókinni Örlög Íslands velti Bene- dikt Gröndal því fyrir sér hvort mót- mælin hefðu getað leitt til valda- ráns kommúnista. Hann talar um hálftímaglugga sem hafi myndast á bilinu 13.00 til 13.30 30. mars 1949, þegar allt lögreglulið Reykjavíkur var statt á Austurvelli. Segir hann byltingarmenn hafa orðið að ráðast inn í lögreglustöð- ina til að verða sér úti um vopn og samtímis hefðu menn þurft að leggja undir sig Ríkisútvarpið og Stjórnarráðið. Hefði þetta endað með því að lögreglan á Austurvelli yrði yfirbuguð, ráðist inn í Alþing- ishúsið, alþingismenn handteknir og lýst yfir stofnun alþýðulýðveld- is. Þó að Bandaríkin hefðu ekki af- skipti af stofnun alþýðulýðvelda í Austur-Evrópu er þó ekki líklegt að þeir hefðu slíkt látið viðgangast hér og ef til vill hefði komið til innrás- ar. En þessar vangaveltur Benedikts eru út í bláinn, ef svo má að orði komast, enda höfðu íslenskir sósí- alistar lítinn hug á byltingu þennan hálftímann jafnt sem aðra. Vegurinn til framtíðarinnar Til byltingar kom ekki árið 1949, hún varð ekki fyrr en 60 árum síðar og var þá táragasi beitt á Austurvelli í annað sinn. Slagorð búsáhalda- byltingarmanna voru, eins og mót- mælenda 60 árum áður, um aukið lýðræði og kosningar. Hefði þjóðin fengið að kjósa árið 1949 hefði lík- lega komist á hefð sem hefði verið haldið í varðandi seinni tíma deilu- mál eins og Kárahnjúkavirkjun og EES-samninginn. Aðferðafræðin við inngönguna í NATO varð þannig líklega skaðlegri en inngangan sjálf. Á fyrri hluta 20. aldar voru haldn- ar fjórar slíkar á Íslandi, á lýðveld- istímanum ekki ein einasta. Það er líklega löngu orðið tímabært að endurvekja þær sem bestu leiðina til að skera úr um helstu deilumál þjóðarinnar. Var 30. mars þess virði? mynDin Flottir skór fullt var út úr dyrum á tískusýningu fatahönnuðarins Munda í Hafnarhúsinu og gestir flottir í tauinu frá toppi til táar. róbert reynisson ljósmyndari notaði tækifærið og tók mynd fyrir vikulega ljósmyndakeppni ljósmyndadeildar Birtíngs. Þema vikunnar var „fætur“ og var þessi mynd róberts valin mynd vikunnar. Frelsari vor fæddur er ... kjallari Valur gunnarSSon rithöfundur skrifar „Þó má segja að inngangan í NATO hafi haft grundvallar- áhrif á íslensk stjórnmál.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.