Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2009, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2009, Side 18
föstudagur 3. apríl 200918 Fókus um helgina Barnaleiðsögn í Þjóðminjasafninu Boðið verður upp á barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands á sunnudaginn klukkan 14. Leiðsögnin er að þessu sinni ætluð börnum á aldrinum 5 til 8 ára. Ferðalagið hefst á slóðum landnámsmanna á 9. öld og þaðan liggur leið- in gegnum 1.200 ára sögu þjóðarinnar fram til nútímans. Meðal þess sem verður skoðað er 800 ára gamall skór, dularfullur álfapottur, gömul hurð með fallegum myndum, beinagrindur, hringabrynja og galdramunir. Yrsa á araBísku Réttindastofa Bjarts & Veraldar hef- ur gengið frá samningi við Arab- esque Publishing Press í Egyptalandi um útgáfu á Þriðja tákninu eftir Yrsu Sigurðardóttur. Þessi fyrsta glæpa- saga Yrsu er því væntanleg á meira en þrjátíu tungumálum um víða veröld. Eftir því sem næst verður komist hefur íslenskt skáldverk ekki verið gefið út á arabísku, að minnsta kosti ekki í háa herrans tíð, segir í til- kynningu frá Bjarti-Veröld. Egypska forlagið hefur jafnframt tryggt sér rétt til að dreifa Þriðja tákninu um allan hinn arabíska heim. Bókin hef- ur nú þegar komið út víða um lönd og fengið góðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda, meðal annars í Bandaríkjunum og Bretlandi. skakkamanage í Borginni Hljómsveitin Skakkamanage heldur tvenna tónleika í höfuð- borginni um helgina en það telst tíðinda þar sem þorri hljóm- sveitarinnar býr þessi misserin á Austurlandi. Í kvöld, föstudags- kvöld, kemur sveitin fram í Nor- ræna húsinu á Norræna tískutví- æringnum. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og er frítt inn. Á morg- un heldur Skakkamanage partí í tjaldinu á Klapparstíg 38 við veit- ingastaðinn Basil & Lime (áður Pasta Basta). Austfirska sveita- ballanýbylgjan Létt á bárunni kemur þar fram með Skakkam- anage-ingum og plötusnúðarn- ir Pasta & Basta. Lætin hefjast klukkan 22, standa til klukkan 1 og kostar 500 kall inn. ljósmYndasýn- ing í leifsstöð Sýning á ljósmyndum eftir Kristján Inga Einarsson var opnuð í Leifsstöð á dögunum. Myndirnar eru allar úr bókinni Kjarni Íslands / The Ess- ence of Iceland sem gefin verður út á þremur tungumálum hjá Bókaút- gáfunni Sölku innan tíðar og sýna íslenskt landslag. Kristján Ingi hefur haldið sex ljósmyndasýningar og gefið út nokkrar barnabækur. Einnig hefur hann tekið ljósmyndir í fjölda kennslubóka. Seinni árin hefur Kristján Ingi lagt áherslu á lands- lagsljósmyndun. Um miðjan maí hefst tveggja vikna þéttskipuð dagskrá Listahátíðar í Reykjavík með fjölbreyttum við- burðum. Viðburðirnir eiga sér stað á götum úti, í leikhúsum, sýningarsöl- um, óperuhúsum, listasöfnum, gall- eríum, vitum, heima í stofu og teygja einnig anga sína út á land. Listahá- tíð verður sett á Kjarvalsstöðum 15. maí og stendur út mánuðinn. Meira en sjötíu viðburðir koma við sögu með þátttöku um fimm hundruð innlendra og erlendra listamanna á Listahátíð í ár. Hátíðin spannar allt litróf listarinnar en þó má segja að tónlistin verði sérlega fyrirferðarmikil. Margir tónlistarhá- punktar eru á hátíðinni, þar á meðal einsöngstónleikar bandarísku sópr- ansöngkonunnar Deborah Voigt í Háskólabíói. Tónleikar mexíkósk/ kanadíska söngvaskáldsins Lhasa de Sela, ásamt hljómsveit, teljast til mikilla tíðinda enda hennar fyrstu um árabil, sem og einleikstónleikar Víkings Heiðars Ólafssonar píanó- leikara í Háskólabíói, að ógleymd- um tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn rússnesku goð- sagnarinnar Gennadí Rosdestven- skíj. Þá eru ónefndir tónleikar breska tríósins Tiger Lillies. Tónlist þess er lýst sem blöndu af Berlínarkabarett millistríðsáranna, anarkískri óperu og sígaunatónlist. Myndlistin verður einnig fyrir- ferðarmikil á Listahátíð í ár. Má þar nefna fimm skúlptúra frá Noregi sem taka á sig mynd hjólhýsakvenna og birtast hér og þar um borgina á meðan hátíðin stendur yfir. Heildardagskrá og ítarlegar upp- lýsingar um alla viðburði er að finna á listahatid.is. Miðasala á alla við- burði Listahátíðar er á sama stað og á midi.is. goðsagnir og anarkismi Tiger Lillies Þetta stórskemmtilega breska tríó sem spilar á listahátíð átti tónlistina í íslensku myndinni sveitabrúðkaupi. „Ég er alltaf að spila og halda tónleika þó að ný plata sé ekki væntanleg frá mér,“ segir Eivör Pálsdóttir söngkona sem heldur tónleika á NASA í kvöld við mikinn fögnuð aðdáenda. Eivör hefur verið ein af ástsælustu söngkonum landsins allt frá því að Krákan, hennar fyrsta breiðskífa sem gefin var út hér á landi, kom út fyrir sjö árum. Hún vakti um leið athygli fyrir seiðandi söng, ómótstæðilegan þokka, einlægt hugarfar. Sama ár og Krákan kom út var hún tilnefnd til Íslensku tónlistaverð- launanna þar sem hún hreppti með- al annars verðlaun sem besta söng- kona ársins og besti flytjandi ársins. Með útkomu Krákunnar stimplaði Eivör sig inn í íslenskt tónlistarlíf með hvelli. Þremur plötum síðar er Eivör löngu orðin vinsælasta söng- kona landsins þrátt fyrir að búa ekki á landinu. Síðasta breiðskífa hennar, Mannabarn, var á toppi flestra vin- sældalista er hún kom út fyrir tveim- ur árum. Eivör er nú stödd hér á landi og ætlar að halda tónleika ásamt hljóm- sveit en það hefur hún ekki gert síð- an platan Krákan kom út. Hún ætl- ar sér að spila með þeim út árið og jafnvel eitthvað lengur. Hljómsveit- ina skipa Benjamin Petersen á gítar og Mikael Blak á rafmagnsgítar og kontrabassa, báðir tveir eru frá Fær- eyjum. Á trommum er síðan Mambo frá Finnlandi. „Ég hef unnið mikið sóló undanfarin ár þannig að fá að spila með bandi er búið að vera rosa- lega gaman,“ viðurkennir hún. „Mér hefur alltaf fundist gaman að vinna með öðru fólki.“ Áður en Eivör kom til landsins eyddi sveitin viku saman í Færeyjum sem að Eivarar sögn var „mjög intense“. Hún segir þau hafa unnið mjög náið saman síðastliðna viku og æft öll lögin inn og út. „Það er mjög gam- Eivör Pálsdóttir kom til Íslands aðeins 17 ára til þess að hefja söngnám. Færeyska söngkonan endaði með því að dvelja hér á landi í rúm fjögur ár. Á þeim tíma komu út þrjár breiðskífur hér á landi sem allar nutu mikilla vinsælda. Eivör flutti aftur til Færeyja eftir margra ára flakk og hefur sjaldan liðið betur. Þráði friðinn og færeysku náttúruna Eivör Ein ástsælasta söngkona landsins mun túra um landið á næstu dögum. Þetta ku vera í fyrsta sinn sem söngkonan fer í tónleikaferðalag um ísland. Eivör verður með hljómsveit með sér sem samanstendur af tveimur færeyingum og finna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.