Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2009, Side 25
föstudagur 3. apríl 2009 25Helgarblað
sviðinu. Það fólk sem nú er í forystu-
sveitinni vill nálgast málin með öðr-
um hætti – og ég skynja hvarvetna
góðar undirtektir. Framsókn hefur
á síðustu misserum farið í gegnum
þann hreinsunareld sem flokknum
var mikilvægur og nú skynja ég nýtt
upphaf.“
Dýralæknir eins og Árni
Meðal Sunnlendinga hefur dýra-
læknirinn Sigurður Ingi á stundum
verið lagður að líku við kollega sinn,
Árna M. Mathiesen. Sá gefur ekki
kost á sér til endurkjörs í Suðurkjör-
dæmi, dró framboð sitt í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins til baka þegar
hann skynjaði dræmar undirtektir.
Ýmsum hefur þótt Árna hafa verið
mislagðar hendur í bankahruninu og
kjölfar þess og hefur þingmannsefni
framsóknarmanna af þeim sökum
verið lagt til lasts að vera dýralækn-
ir. Sigurður Ingi segist þekkja þennan
orðróm og hafa ýmsar glósur fengið
að undanförnu. Þær séu væntanlega
þó meira settar fram í gamni en al-
vöru.
„Án þess að ég sé að kveinka mér
nokkuð finnst mér ekki sanngjarnt að
setja hlutina fram með þessum hætti.
Þetta er hótfyndni. Ég hef alltaf lit-
ið svo á að dýralækningar séu mjög
hagnýt menntun enda hafa þeir sem
leggja fræðin fyrir sig komið að ýms-
um störfum, eins og dæmin sanna.
Annars er það svo að pólítísk gagn-
rýni vill í dag verða svolítið hömlulaus
og lítt málefnaleg. Einhverjir veltu því
upp á dögunum hvort jarðfræðing-
ur eða dýralæknir væri betri í emb-
ætti fjármálaráðherra og hvort leik-
ari gæti sinnt umhverfisráðuneytinu.
Mér finnst miður þegar svona er tal-
að. Með þessu er bæði verið að gera
lítið úr menntun fólks og eins því að
það eru í raun persónulegir eiginleik-
ar sem ráða einna mestu um hvernig
stjórnmálamanninum tekst upp. Þú
þarft að skynja þarfir fólksins og hafa
þá verkhyggju að sjá hvernig koma
skal brýnum hlutum í framkvæmd.
Eins og málum er komið í dag er hins
vegar erfitt fyrir þá sem fara með lög-
gjafarvaldið að lofa neinum miklum
framkvæmdum, þótt nauðsynlegar
séu. Í rauninni er miður að opinber-
um aðilum hafi í góðæri síðustu ára
ekki tekist að safna einhverjum fjár-
munum í hlöður svo hægt væri að
fara í þau verkefni sem aðkallandi
eru, meðal annars til atvinnusköp-
unar.“
Útgönguleiðir mikilvægar
Þær erfiðu aðstæður sem nú eru uppi
í íslensku efnahagslífi segir Sigurður
Ingi að hafi hitt bændur jafnilla fyr-
ir og alla aðra. Fjölmargir bændur,
meðal annars á Suðurlandi, hafi á síð-
ustu árum farið út í mikla uppbygg-
ingu og fjárfestingar, meðal annars
fyrir erlent fé. Óhagstætt gengi krón-
unnar og háir vextir af þeim sökum
hafa hitt marga illa fyrir – svo í óefni
stefnir. Mikilvægt sé að bregðast við
stöðu þessa hóps rétt eins og annarra
þeirra sem orðið hafa fyrir búsifjum í
kreppunni að undanförnu.
„Í núverandi stöðu er mikilvægt
að lækka vexti og finna einhverjar
útgönguleiðir fyrir bændur rétt eins
og aðra sem eru fastir í gildru mynt-
körfulána. Atvinnulífið þarf að vera
sjálfbært. Við náum okkur seint eða
aldrei út úr yfirstandandi þrenging-
um ef ríkið verður í aðalhlutverki í
öllum atvinnurekstri, hvort sem það
eru flugfélög, bílaumboð, bygginga-
fyrirtæki og svo framvegis. Sama gild-
ir um landbúnaðinn. Í tímans rás
hefur íslenskur landbúnaður byggst
á fjölskyldubúunum sem ég tel að
flestu leyti mjög góðar rekstrarein-
ingar. Það er engum greiði gerður ef
ríkisbankarnir yfirtaka skuldusettan
búrekstur í stórum stíl. Íslensk þjóð-
arsál leyfir ekki að hér séu rekin ein-
hvers konar samyrkjubú eða ríkisbú.“
Rimpaði félagann saman
Sigurður Ingi og fjölskylda hans búa í
dag á bænum Syðra Langholti í Hruna-
mannahreppi og eru með hross, hund
og nokkra ketti. „Ætli slíkur smábú-
skapur sé ekki nokkuð það sem telja
má dæmigert fyrir dýralækni. Við erum
með skepnurnar okkur helst til gam-
ans og ein helsta skemmtun mín er að
fara í góðar hestaferðir á sumrin. Í slík-
um ferðum er sjúkrakassi fyrir hross-
in að sjálfsögðu meðferðis. Reyndar
hefur sá kassi einnig komið ferðafé-
lögunum vel og hef ég þurft að sauma
saman skurð á ferðafélaga enda langt
í aðra viðurkenndari læknisþjónustu.
Saumaskapurinn gekk vel og ferðinni
að sjálfsögðu haldið áfram. Hann ber
að minnsta kosti engin ör eftir aðgerð-
ina. Í dýralækningum koma annars
oft upp skemmtileg mál sem þarf að
leysa úr. Líklega er með eftirminni-
legri vitjunum mínum skoðun á mús
sem var með jafnvægistruflun, mér er
nefnilega meinilla við mýs og sem bet-
ur fer er þetta í eina skiptið sem ég hef
þurft að framkvæma læknisskoðun á
slíku kvikindi. Eina jólanóttina gerði
ég keisaraskurð á smátík sem var kom-
in að goti. Það fylgdi ákveðin jólagleði
að hjálpa sprækum hvolpi í heiminn.
Af þessu má ráða að ég hef verið í afar
skemmtilegu starfi. En nú er það pólít-
íkin og ég hlakka til að takast á við þau
viðfangsefni sem þar bíða þó verkefn-
in séu risavaxin. En ætli ég titli mig
samt ekki áfram sem dýralækni í síma-
skránni.“
Sigurður Bogi Sævarsson
Foreldramissirinn
óskaplegt högg
Sigurður Ingi Jóhannsson
Er dýralæknir og býður sig
fram fyrir framsókn.
PÁSKA Á HÓTEL
STYKKISHÓLMI
Gisting 2 nætur í tveggja manna herbergi.
Glæsilegt Páskahlaðborð Sunnudag.
Morgunmatur innifalinn báða daga.
aðeins 12.350 kr.*
HRINGHOTELS.IS
Snjósleðaferðir frá
Arnarstapa um páskana
á Snæfellsjökul.
NOTARLEGA
SKEMMTILEGA
UPPLIFÐU
LADDI
um páskana
laugardagskvöldið
11. apríl kl.20.00
Miðaverð 2.900 Kr.
* Per mann