Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2009, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2009, Blaðsíða 34
FÖSTUDAGUR 3. ApRíl 200934 Helgarblað HIN HLIÐIN Langar á trúnó með Davíð Oddssyni Nafn og aldur? „Ásgeir Erlendsson, 20 ára.“ Atvinna? „Sjónvarpsmaður.“ Fjöldi barna? „Engin.“ Hefur þú átt gæludýr? „Já, ég átti einu sinni páfagauk sem var alveg ofboðslega taugaveiklaður. Kunni ekki að fljúga og ég gafst mjög fljótt upp. Það er langt þangað til ég geri mér ferð í dýrabúðina aftur. “ Hvaða tónleika fórst þú á síðast? „Ég fór á minningartónleikana um Vil- hjálm Vilhjálmsson og þeir voru stór- kostlegir.“ Hefur þú komist í kast við lögin? „Ekki enn.“ Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju? „Hvíti Roger Whitaker-jakkinn minn sem ég keypti fyrir tveimur árum og hef aldrei farið í. Er að bíða eftir rétta augnablikinu.“ Hefur þú farið í megrun? „Nei, sem betur fer ekki.“ Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mót- mælum? „Ég fór eins og flestir í janúar til að fylgj- ast með.“ Trúir þú á framhaldslíf? „Já, ég geri það. Ég held að það hljóti að vera eitthvað sem tekur við.“ Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa haldið upp á? „Ég hækkaði alltaf eilítið og söng með þegar væmnasta lag allra tíma hljóm- aði í útvarpinu, I Don’t Wan’t to Miss a Thing.“ Hvaða lag kveikir í þér? „Can‘t Walk Away með Herberti Guð- mundssyni.“ Til hvers hlakkar þú núna? „Ég hlakka til að borða hreindýraborg- ara og sjá Lagarfljótið í ferð minni til Egilsstaða.“ Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur? „Ég get horft aftur og aftur á tímamóta- myndina Með allt á hreinu. Ástæðan er sú að ég og pabbi horfðum oft á hana og hún er ótrúlega fyndin og skemmtileg.“ Afrek vikunnar? „Að hafa komist áfallalaust í gegnum hana.“ Hefur þú látið spá fyrir þér? „Nei, ég er ekki viss hvort ég myndi þora að láta spá fyrir mér.“ Spilar þú á hljóðfæri? „Nei, ég hef samt alltaf viljað læra á gítar. Læt einhvern tímann verða af því.“ Viltu að Ísland gangi í Evrópusambandið? „Nei.“ Hvað er mikilvægast í lífinu? „Að eiga góða fjölskyldu og vera hamingju- samur.“ Hvaða íslenska ráðamann myndir þú vilja hella fullan og fara á trúnó með? „Davíð Oddsson. Ég held að hann sé mjög skemmtilegur í glasi.“ Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta og af hverju? „Barack Obama. Ástæðan er einföld. Hann er forseti Bandaríkjanna og örugglega mjög skemmtilegur maður.“ Hefur þú ort ljóð? „Ekki nýlega. Ætti kannski að fara að gera meira af því.“ Nýlegt prakkarastrik? „Fór framhjá handritinu í vinsælum spurn- ingaþætti.“ Ertu með einhverja leynda hæfileika? „Ég hef mjög gaman af því að reyna að herma eftir fólki. Kannski svolítið langsótt að tala um þetta sem hæfileika en ég hef gaman af því að reyna.“ Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi? „Nei.“ Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn? „Þingvellir að sumarlagi eru ótrúlega flott- ur staður.“ Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? „Slekk ljósin.“ Hver er leið Íslands út úr kreppunni? „Þetta reddast. Sá frasi mun koma okkur út úr kreppunni.“ Ásgeir erlendsson starfar sem íþróttafréttamaður Á rÚV og er fyrsti karlkyns stigaVörðurinn í gettu betur, spurningakeppni framhaldsskóla. hann Átti eitt sinn taugaVeiklaðan pÁfagauk og Viðurkennir að lagið Can‘t Walk aWay með herbert guðmundssyni kVeiki í honum. mynd heiða helgadóttir 30 days Apótekin & Heilsubúðirnar www.leit.is · Smellið á ristilvandamál Á gamla gamla verðinu. 30 days Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman. Oxy tarm Apótekin & Heilsubúðirnar www.leit.is · Smellið á ristilvandamál Á gamla gamla genginu. Oxy tarm Endurnærir og hreinsar ristilinn Allir dásama oxy tarmið Bæjarflöt 8E · 112 Reykjavík SÍMI: 567 4262 · GSM: 893 3236 FAX: 567 4267 · sagtaekni@sagtaekni.is www.sagtaekni.is STEYPUSÖGUN KJARNABORUN MÚRBROT Sími: 567 4262 sagtaekni@sagtaekni.is · www.sagtaekni.is ... á Dalveg 16a Sími: 554 3430 Erum fluttir...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.