Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2009, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2009, Page 12
Þriðjudagur 30. júní 200910 Neytendur Mest kvartað vegna verð- Merkinga Í fyrra bárust Neytendastofu alls 446 ábendingar til Neytendastofu í gegnum Rafræna Neytendastofu á netinu. Flestar ábendingar voru vegna verðmerkinga í verslun- um, eða 120 ábendingar alls. Þar á eftir komu verðlagsábending- ar, sem voru 110 á síðasta ári, og kvartanir vegna auglýsinga eða 99 talsins. Þetta kemur fram í árs- skýrslu Neytendastofu. Langflest- ar ábendingar sem Neytenda- stofa fékk inn á borð til sín voru nafnlausar. Banna erfða- Breytta úti- ræktun Neytendastofa hefur greint frá því að löggjafaþing í Maine í Banda- ríkjunum hafi sett lög sem banna útiræktun erfðabreyttra lyfja- og iðnaðarplantna. En slíkum plönt- um er ætlað að framleiða lífvirk prótein sem notuð eru í öflug lyf. Hættulegt er talið að rækta þess- ar plöntur utandyra. Neytenda- stofa telur þessa áhættu hér á landi einskins metna. Umhverf- isstofnun veitti fyrirtækinu ORF Líftækni hf. nýlega leyfi til fimm ára ræktunar á erfðabreyttu lyfja- byggi á allt að 10 hekturum. n Reykingamaður hafði samband við DV og kvartaði sáran yfir háu verði á sígarettum. Reykingamaðurinn borgaði 870 krónur fyrir Marlboro Lights á BSÍ um helgina og segist hafa hreinlega verið í sjokki. Hann kveðst ætla að hætta að reykja muni þetta ekki lækka á næst- unni. n Á Flúðum gefst ferðamönnum kostur á að kaupa grænmeti beint frá bónda. Það fyrirkomulag er haft á að að vegfarendur geta keypt grænmeti í bás við vegkantinn og afgreitt sig sjálfir með því að setja pening í bauk. Þetta er skemmtilegt fyrirkomulag sem gengur út frá því vísu að viðskiptavinurinn sé heiðarlegur. SEndið LOF Eða LaST Á nEYTEndur@dV.iS Dísilolía algengt verð verð á lítra 176,8 kr. verð á lítra 179,6 kr. skeifunni verð á lítra 175,3 kr. verð á lítra 178,2 kr. algengt verð verð á lítra 176,8 kr. verð á lítra 179,7 kr. bensín Hveragerði verð á lítra 173,2 kr. verð á lítra 176,1 kr. selfossi verð á lítra 173,0 kr. verð á lítra 175,9 kr. algengt verð verð á lítra 176,8 kr. verð á lítra 179,6 kr. umSjón: VaLgEir örn ragnarSSOn, valgeir@dv.is / neytendur@dv.is el d sn ey t i MP Banki býður hæstu innlánsvextina á óverðtryggðum reikningum þegar fólk vill binda að minnsta kosti eina milljón króna í eitt ár. Mikill munur er á vaxtakjörum eftir bönkum. Ingólfur H. Ingólfsson hjá spara.is, ráðleggur fólki að geyma peninga ekki á debetkortareikningum, sem hafa mjög lága vexti. Verðtryggðir reikningar eru betri en óverðtryggðir ef spara á peninga til langtíma. HÆSTU INNLÁNS- VEXTIRNIR „Til að hafa vaðið fyrir neðan sig, þá ertu alltaf með jákvæða vexti á verðtryggðu reikningunum.“ Hæstu innlánsvextirnir á óverð- tryggðum innlánsreikningum, mið- að við að eiga eina milljón króna í sparifé og hafa í hyggju að binda það til eins árs, eru hjá MP Banka. Hjá MP fæst 10,20 prósenta ársávöxtun á MP 12 reikningnum, miðað við að innlánið sé á bilinu ein til fimm millj- ónir króna. Innistæðan er bundin í eitt ár og er 1 prósents úttektargjald hjá gjaldkera. Hjá Byr eru Net12 óverðtryggðu reikningarnir með 9,24 prósenta árs- ávöxtun miðað við innistæðu á bil- inu 1 til 10 milljónir króna. Vextir eru hins vegar borgaðir út 12 sinnum á ári og eru 8,87 prósent. S24 er með þriðju hæstu vextina á sparnaðarreikningum miðað við eina milljón í innistæðu og bind- ingu í 12 mánuði. Í 2. þrepi á sparn- aðarreikningum sem miðast við 1 til 5 milljónir króna, fást 8,50 prósenta ársvextir. Hætta á neikvæðri ávöxtun „Fyrir þá sem eiga eitthvað und- ir koddanum er langbest að geyma það inni á bankareikningi eða ríkis- skuldabréfum, það er það eina sem hægt er að gera. Bestu kjörin færðu yfirleitt á netreikningum og þá er það einna helst líklega hjá S24 eða MP Banka. Svo eru það ríkisskulda- bréfin, ef menn eru sannfærðir um að ríkið sé ekki að fara á hausinn,“ segir Ingólfur H. Ingólfsson, ráðgjafi hjá spara.is. Hann segir að raunar sé lítið annað í boði en að nota þessar sparnaðarleiðir. „Ef þú ert tilbúinn að ávaxta sparifé þitt til langtíma, þá eru verð- tryggðu reikningarnir betri en þeir óverðtryggðu, þar sem bankarnir hafa verið að keyra niður vexti um- fram það sem Seðlabankinn hefur verið að gera,“ segir Ingólfur. Hann bendir á að verðtryggingin gagn- ist alltaf þeim sem eiga peninga og fólk fái alltaf jákvæða raunvexti inn á verðtryggða reikninga, en eins og staðan sé nú um stundir sé hætta á neikvæðum raunvöxtum á vissum reikningum. „Til að hafa vaðið fyrir neðan sig, þá ertu alltaf með jákvæða vexti á verðtryggðu reikningunum.“ Aðspurður hvar fólk eigi ekki að geyma sparifé sitt bendir hann á að hefðbundnir debetkortareikningar gefa ekki góða ávöxtun. „Fólk ætti aldrei að geyma peningana sína á slíkum reikningum,“ segir Ingólfur. Stóru bankarnir með lægri vexti Athygli vekur að stóru ríkisbankarn- ir sem féllu síðasta haust bjóða al- mennt lægri innlánsvexti en S24, Byr og MP Banki. Hjá Íslandsbanka eru 7,50 prósenta vextir í boði fyrir innistæðu á bilinu 1 til 5 milljón- ir króna á óverðtryggðum sparir- eikningi sem kallast Vaxtaþrep. Hjá Kaupþingi er 7,23 prósenta ávöxtun á ári á MX 12, óverð- tryggðum innlánsreikn- ingum. Innistæðan þar er bundin í 7 daga. Landsbank- inn býður 9,05 prósenta ársá- vöxtun á vaxta- reikningi fyr- ir innistæðu á bilinu 200 þúsund til 2 milljón- ir króna. Innistæðan er bundin í 7 daga. Hjá Íslandsbanka er boðið upp á 7,50 prósenta ársávöxtun á óverð- tryggðum reikningi fyrir 1 til 5 millj- ónir króna. valGEIR ÖRN RaGNaRSSON blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is vExtIR á INNláNS- REIkNINGum ÓvERÐtRYGGÐIR INNláNSREIkNINGaR mP Banki mP 12 10,20% Byr net12 9,24% landsbanki Vaxtareikningur 9,05% S24 Sparnaðarreikningur 2. þrep 8,50% Íslandsbanki: Vaxtaþrep 7,50% kaupþing mx12 7,23% *miðað Við inniSTæðu að LÁgmarki 1 miLLjón króna Og möguLEika Á ÁrS SkuLdbindingu. vERÐtRYGGÐIR INNláNSREIkNINGaR S24 Verðtryggður sparnaðarreikningur í 36 mánuði 5,50% Byr netreikningur bundinn í 36 mánuði 5,40% mP Banki mP 36 – bundinn í 36 mánuði 5,25% Íslandsbanki Sparileið 60, bundinn í 60 mánuði 5,20% landsbanki Landsbók – 60 mánaða binding 4,70% kaupþing Orlofsreikningur 4,50% mP Banki mP býður upp á hæstu óverðtryggðu innlánsvextina. mYNd HEIÐa HElGadÓttIR Ingólfur H. Ingólfsson „Ef þú ert tilbúinn að ávaxta sparifé þitt til langtíma, þá eru verðtryggðu reikningarnir betri en þeir óverðtryggðu, þar sem bankarnir hafa verið að keyra niður vexti umfram það sem Seðlabankinn hefur verið að gera.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.