Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2009, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2009, Blaðsíða 23
Transformers: Revenge of the Fallen er beint framhald af myndinni Trans- formers sem kom út árið 2007. Það er Michael Bay sem er í leikstjórastóln- um líkt og áður og ungstirnin Shia LaBeouf og Megan Fox eru mætt aft- ur sem Sam og Mikaela. Í fyrri mynd- inni tókst Optimus Prime og félögum hans Autobots að sigra illa vélmenn- ið Megatron og félaga hans Decept- icons. Sam vill nú lifa eðlilegu lífi og ætlar í háskóla meðan Optimus og vélmennafélagar hans skipa sér- staka sérsveit ásamt mönnum sem berjast gegn Decepticons sem eru ekki dauðir úr öllum æðum. Innan skamms fara fleiri þeirra að láta á sér bera og lífga við hinn ógurlega Mega- tron sem er með ill áform í huga. Líkt og í fyrri myndinni er útlit myndarinnar nánast óaðfinnanlegt og hverjar stórorrusturnar reka aðra. Mögnuð sena þar sem Shanghai er lögð í rúst og epískur bardagi Opt- imus Prime við The Decepticons í skóglendi nokkru eru ógleymanlegar senur. En það er bara svo og svo mik- ið af sprengingum og vélmennum að skipta um ham sem maður nennir að horfa á. Þetta á svo við allt í myndinni Transformers: Revenge of the Fallen. Það er of mikið af öllu. Það er of mik- ill hasar, of mikið drama, of mikið af lélegum húmor, myndin er of löng og það er farið „over the top“ í nánast öllu. Þetta væri fín framhaldsmynd ef fyrsta hálftíma myndarinnari hefði verið sleppt, foreldrar Sam skrifaðir út úr myndinni og ef annað hvert vél- menni léti ekki eins og slakur „comic relief“-svertingi úr mynd frá tíunda áratugnum. Þegar Sam heimsækir svo vélmennahimnaríki langar mann hreinlega að slá sjálfan sig í rot. Ég hef alltaf verið tilbúinn að gefa Michael Bay séns eftir að hann gerði myndina The Rock með Nichol- as Cage og Sean Connery. Frábær spennumynd og Bad Boys á líka allt- af smá gúddvill hjá manni. Svo komu myndir eins og Armageddon og Pearl Harbor sem voru alltof dram- atískar og amerískar. En Bay topp- ar allt í þessari. Ég er eiginlega bara sár því ég hafði mjög gaman af fyrri myndinni. Myndin er heilt yfir mjög slök og ég á erfitt með að trúa því að ein- hverjum eldri en 14 ára finnist hún góð. En ótrúlega flott er hún. Það er bara ekki nóg. Maður er búinn að fá upp í kok af innihaldslausum tækni- brelluræmum. Það verður að vera jafnvægi annars gengur dæmið bara ekki upp. Hversu óþolandi er líka að fara í bíó á Íslandi og þurfa að horfa á aug- lýsingar í hálftíma áður en myndin byrjar? Þetta var sérstaklega slæmt að þessu sinni. Ofan á það bætist svo korters hlé þannig að þegar upp er staðið er maður að eyða í kring- um 40 mínútum í auglýsingaáhorf. Glatað. Ásgeir Jónsson Þriðjudagur 30. júní 2009 21Fókus á þ r i ð j u d e g i Vinsæl Vélmenni Transformers: Revenge of the Fallen kom beint inn í fyrsta sæti yfir vinsælustu myndir helgarinnar eins og við var að búast. Frá föstudegi til sunnudags sá rúmlega 6.500 manns myndina sem þénaði tæpar sex milljón- ir. 12.600 manns hafa séð myndina frá því að hún var frumsýn en 41.000 hafa séð Hangover sem er í öðru sæti. Þriðjudags- ganga í Viðey Íslenski fjallahjólaklúbburinn stend- ur fyrir fjölskylduferð til Viðeyjar í dag. Þarna sameinast í eina, þriðju- dagsgöngur Viðeyjar og þriðjudags- ferðir Íslenska fjallahjólaklúbbs- ins. Siglt er frá Skarfabakka klukkan 19.15 í kvöld og er reiknað með því að það fari um tveir tímar í að hjóla um eyjuna. Eini kostnaðurinn er ferjugjaldið sem er 1000 krónur fyrir fullorðna og 50 fyrir börn yngri en 16 ára. Ferðin er öllum opin. Álrún í Þjóð- minjasafninu Skartgripir Jóns Bjarna Baldurs- sonar eru til sýnis á sýningunni Álrún sem nýlega var opnuð í Þjóðminjasafni Íslands. Álrún er íslenskt skartgripafyrirtæki sem vinnur mikið með íslenskar rúnir. Jón hannaði gripina úr band- rúnum sem voru notaðar hér á landi allt frá landnámi fram á 19. öld. Bandrúnir eru tegund rúna þar sem ein eða fleiri rúnir eru dregnar saman í eitt tákn. Sýn- ingin stendur til 9. ágúst. amiina og shugo Japanski tónlistarmaðurinn Shugo Tokumaru og íslenska strengjasveit- in Amiina koma fram í Norræna húsinu á miðvikudagskvöld. Tón- leikarnir eru partur af menningar- hátíðinni 101 Tokyo sem stendur yfir í Norræna húsinu dagana 13. júní til 13. júní. Tónleikarnir eru sagðir hápunktur hátíðarinnar en þeir hefj- ast klukkan 20.00. Hátíðin er núna hálfnuð en fjölbreytt dagskrá er fram undan.Shugo hefur gefið út þrjár breiðskífur en sú síðasta var valin fjórða besta plata ársins af vefsíð- unni metacritic.com. Tónlistarmennirnir KK og Magn- ús Eiríksson halda í tónleikaferð um landið í júlímánuði. Þeir félagar halda eina níu tónleika á ferðalagi sínu en túrinn hefst í Lindakirkju í Kópavogi á miðvikudaginn. Linda- kirkja þykir hinn ákjósanlegasti tón- leikastaður en þar var meðal annars sett upp Töfraflautan auk þess sem Carl Jenkins hélt tónleika þar. KK og Maggi hafa verið gríðar- lega vinsælir undanfarin ár en þeir hafa sent frá sér þrjár plötur saman með hinum svokölluðu Ferðalögum. Plöturnar hafa selst í meira en 30.000 eintökum. Fyrir síðustu jól voru disk- arnir þrír svo gefnir út í einum pakka sem með fylgir sérstök söngbók með textum og gítargripum. Eftir tónleikana í Lindakirkju halda þeir félagar norður á Akureyri og halda tónleika á Græna hattinum 2. júlí. Því næst er það hinn sögu- frægi Kántrýbær í Skagafirði, Bragg- inn á Hólmavík, Edinborgarhúsið á Ísafirði, Félagsheimilið á Patreks- firði, Duushús í Reykjanesbæ, Borg í Grímsnesi og loks í Úthlíð í Biskups- tungum. asgeir@dv.is Maggi Eiríks og KK í tónleikaferðalag: Ferðast um landið Transformers 2 Hittir engan veginn í mark en lítur stórkostlega út. Transformers: revenge of The fallen Leikstjóri: Michael Bay Aðalhlutverk: Shia LaBeouf og Megan Fox. kvikmyndir of mikið öllu KK og Maggi Eiríks Fara í ferðalag með Ferðalögin. DAgsKráin í júLí 1. júlí – Lindakirkja, Kópavogi 2. júlí – græni hatturinn, akureyri 3. júlí – Kántrýbær, Skagaströnd 4. júlí – Bragginn, Hólmavík 5. júlí – Edinborgarhúsið, ísafirði 9. júlí – Félagsheimilið, Patreksfirði 16. júlí – duushús, reykjanesbæ 17. júlí – Borg í grímsnesi 18. júlí – úthlíð í Biskupstungum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.