Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2009, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2009, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 30. júní 2009 17Sport Xavi vill halda Eto‘o Kamerúninn Samuel Eto‘o hefur verið sterklega orðaður við ríkis- bubbana í Manchester City en liðið er sagt ætla að greiða honum ævintýraleg laun fyrir þjónustu sína. Miðvallarleikmaðurinn Xavi sem leikur einnig með Barcelona hefur látið mikið í sér heyra í fjölmiðlum að undanförnu um ýmis mál en hann vill ekki að Kamerúninn fari frá félaginu. Eto‘o var markahæstur leikmanna Barcelona í spænsku deildinni. „Sem betur fer er það gáfað fólk sem stýrir Barcelona og á síðasta tímabili var allt fullkomið. Við vitum allir að hann getur spilað aftur eins og á síðasta tímabili. Ég veit ekki hvað gerist í sumar en ef við leikmennirnir fengjum að ráða væri að halda honum það fyrsta sem við myndum gera,“ segir Xavi Hernandez. Brasilíski knattspyrnusnillingurinn Kaká er ekki enn kominn með númer hjá spænska stórliðinu Real Madrid sem keypti hann í sumar á 56 milljón- ir punda. Þrátt fyrir það hafa selst yfir 2.000 númerslausar treyjur með nafni hans og bíða stuðningsmenn eftir því að fá að vita hvaða númer hann fær hjá félaginu. Það kemur í ljós í kvöld þegar hann verður kynntur til sög- unnar á Santiago Bernabeu-leikvangi þeirra Madrídar-manna. Kaká var dýrasti knattspyrnu- maður heims í skamma stund áður en Real Madrid toppaði sjálft sig og eyddi 80 milljónum punda í Cristiano Ronaldo, Portúgalann hjá Manchest- er United. Hugmynd Florentinos Per- ez, forseta Real Madrid, er að eyða pening til þess að græða pening en það er svo sannarlega komið af stað. Treyja, með nafni og númeri leik- manns áprentuðu, kostar nefnilega 85 evrur, eða ríflega fimmtán þúsund krónur. Búist er fastlega við að allir muni setja númer leikmannsins aftan á treyjuna og reiknað er með gífur- legum fjölda kaupenda í búðum í Madrid eftir að númer Kaká verður kynnt. Þá fer væntanlega allt á hvolf 6. júlí þegar Cristiano Ronaldo verð- ur kynntur til sögunnar. Ekki er búist við jafnmiklu fjaðrafoki þegar varnar- maðurinn Raul Albiol verður kynntur, þó traustur leikmaður sé. tomas@dv.is Kaká vinsæll í Madrid: 2.000 trEyjur sEldar ÍBV Í ÁrBæinn dregið var í átta liða úrslit ViSa- bikars kvenna í gær þar sem tvö fyrstudeildarlið voru í pottinum, íBV og Völsungur. Þau drógust ekki gegn hvort öðru heldur mætir íBV liði Fylkis í Árbænum en Eyjastúlkur hafa til þessa lagt tvö úrvalsdeildar- lið að velli. Hitt fyrstu deildarliðið, Völsungur, fékk eins erfiðan leik og hægt var að hugsa sér en íslands- meistarar Vals fara til Húsavíkur. Stórleikur átta liða úrslitanna er leikur Breiðabliks og Þórs/Ka en þau mætast á Kópavogsvelli. annar úrvalsdeildarslagur var svo dreginn síðastur þar sem Stjarnan tekur á móti bikarmeisturum síðustu tveggja ára, Kr. allir leikirnir fara fram 7. júlí klukkan 19.15. drátturinn í 8 liða úrslit Völsungur - Valur íBV - Fylkir Breiðablik-Þór/Ka Stjarnan-Kr 7,5 Á Suður- AfrÍku Sepp Blatter, forseti alþjóðaknatt- spyrnusambandsins, FiFa, er ánægður með framfarir í Suður- afríku en landið heldur heimsmeist- arakeppnina í knattspyrnu á næsta ári. Á sunnudaginn lauk Álfukeppn- inni sem var hálfgerð æfing fyrir landið og fékk það góða dóma fyrir. „Við mætum alltaf jákvæðir til leiks þegar við metum staðina. Eitt sem við höfum haft miklar áhyggjur af er öryggisgæsla, en hún var í fínu lagi. gestrisnin var líka ótrúleg. Við vitum að aðrir hlutir eins og flutningar á milli staða og hýsing á eftir að komast í betri horfur en þetta er allt á réttri leið. Ef ég ætti að gefa þessu einkunn frá einum upp í tíu stendur Suður-afríka í svona sjö komma fimm. uMSjón: tóMaS Þór ÞórðarSon, tomas@dv.is Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Birkilauf Kaká Strax farinn að borga sig. Eiður Smári Guðjohnsen er enn leikmaður Spánar- og Evrópu- meistara Barcelona þó allt útlit sé fyrir að hann yfirgefi félagið í sum- ar. Hann fékk nær ekkert að spila með liðinu eftir jól og hefur verið þrálátlega orðaður við lið um alla Evrópu. Eins og þegar hann gekk í raðir Barcelona fyrir þremur árum heyrist ekkert frá Eiði en á sínum tíma kom það eins og þruma úr heiðskýru lofti þegar hann samdi við Katalónana. Fjölmiðlar hafa gengið svo langt að spinna upp viðtal við Eið en breska blaðið Daily Star gerðist svo djarft í síðustu viku. Í gær bætt- ist enska úrvalsdeildarliðið Sund- erland í hóp þeirra sem hafa áhuga á Eiði Smára en hann lék á Eng- landi um árabil. Sunderland nýtt á listanum West Ham hefur verið það enska lið sem mest hefur borið á þegar rætt er um framtíð Eiðs Smára. Þar er við stjórnvölinn Ítalinn Gian- franco Zola sem lék með Eiði hjá Chelsea. Annar gamall þjálfari Eiðs, Sam Allardyce, sem fékk Eið til Bolton á sínum tíma hefur einn- ig verið nefndur til sögunnar en hann stýrir Blackburn í dag. Sund- erland, sem er stýrt af fyrrverandi Manchester United-varnarmann- inum Steve Bruce, var í gær nefnt í sambandi við Eið á vefmiðlin- um goal.com en sú síða hefur ver- ið dugleg að flytja fregnir af Eiði Smára og rætt oftar en margir aðr- ir miðlar við hann. Sunderland er afar vel stætt peningalega en að því stendur hópur sjö auðmanna sem dæla peningum í félagið. Áhugi um alla Evrópu „Við skulum sjá til hvað gerist með þá Martin Caceres, Aleksander Hleb og Eið Smára en mörg lið hafa áhuga á þeim,“ sagði forseti Barce- lona, Juan Laporta, í samtali við spænska blaðið Diaro Sport. Stað- festi hann þar það sem vitað er, að Eiður er eftirsóttur um alla álfuna. Helst hefur Eiður verið orðað- ur við tyrkneska liðið Besiktas en það vann deildina í heima- landinu í ár og ætlar sér að mæta sterkt til leiks í meist- aradeildina á næsta tíma- bili. Það keypti þó um helgina Tyrkjann Nihat sem er ekki ólík- ur leikmaður og Eiður og gæti því sá möguleiki verið fyrir bí. Einnig hefur Eiður Smári ver- ið orðaður við lið eins og Panat- hinaikos, Lyon, Marseille og Gal- atasaray. Sjálfur hefur Eiður lítið gefið út, ekkert frekar en umboðs- maður hans og faðir Arnór Guð- johnsen, sem er eins og áður segir keimlíkt því þegar Eiður, nær upp úr þurru, skrifaði undir samning við stórlið Barcelona á Spáni. Spánar- og Evrópumeistarinn Eiður Smári Guðjohnsen hefur ekki enn fært sig um set þrátt fyrir þrálátan orðróm þess efnis. Þessi markahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi á enn eftir eitt ár af samningi sínum hjá Barcelona en í hverri viku virðast ný lið sýna honum áhuga. Enska úrvalsdeildarliðið Sunderland bættist í gær í hóp þeirra sem eru sögð hafa áhuga á Eiði. BætiSt Við liStAnn hjÁ Eiði TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Evrópumeistari Eiður var Evrópumeistari með Barcelona í maí. MyNd AFP Eiður Smári orðaður við nýtt félag í hverri viku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.