Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2009, Qupperneq 9
fréttir 14. júlí 2009 þriðjudagur 9
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
Opnunartímar Mánud. til Laugard. 10 - 18 Sunnudaga 12 - 17
FAXAFEN 8 OUTLET CENTER
KOMDU, SJÁÐU OG SPÁÐU Í VERÐIÐ...
Sími: 5684892 klinkid@klinkid.is
“Chateau”
hvítvínsglös
2 í pakka
Mjög góð gæði
799,-
“Disney”
Hnakkapúði
fyrir litlu elskurnar
flottur í fríið
699,-
Wipe-A-Way
Góð og rakadræg
pappírsrúlla
Flott í fríið
299,-
Kók í dós 0,33 ml. 12 stk. 749,- Speedo sundgleraugu 399,-
Fullt af barnaleikföngum á frábæru verði
Golfkylfur frá 1.999,-
Golfkúlur Tommy Armour/Penn/Diamond Tek verð frá 99,-
Golf”TEE” 100 stk. 199,-
Minnum á hreinlætisvöruna FRÁBÆR VERÐ
“Spalding”
Körfubolti
úti og inn
1.999,-
“Dunlop”
Fótbolti 1.499,-
Strandblak-
og strandfótbolti
999,-
Garðluktir
2 saman
Stór 62 cm
Lítil 42 cm
3499,-
óstöðvandi hrunadans
hraði Íslands á dansgólfinu væri orð-
inn hættulega mikill. En stöðvaði ein-
hver dansinn? Slökkti einhver á tón-
listinni?“
ESB, Holland og Bretland
eiga að sýna lit
Fallan bendir á að evrópskum stjórn-
málamönnum hafi verið bent á, ekki
síst af yfirvöldum á Norðurlöndum,
að illa fjármagnaðir tryggingasjóðir og
regluverk ESB þyrfti að endurskoða.
Þrátt fyrir það hafi enginn vilji verið til
þess að breyta neinu á afgerandi hátt.
„Í öðru lagi er ekki að sjá að yfirvöld í
gistilöndum íslensku
bankanna, fyrst og
fremst þau bresku
og hollensku,
hafi hirt
um að upplýsa eigin þegna um verkan
innistæðutryggingakerfisins. Hefðu
sveitarstjórnir, eftirlaunaþegar og aðr-
ir lagt fé sitt inn í íslenska banka hefðu
þeir verið upplýstir um að innistæð-
ur þeirra nytu tryggingar 9 milljarða
króna í íslenskum tryggingasjóði, sem
væri jafn mikið og 1.000 milljarðar til
tryggingar bresku bönkunum?“
Fallan segir að ábyrgðin á eftirlit-
inu sé á herðum heimalandsins (Ís-
lands). En gistilandið geti vitanlega
brugðist við og leiðrétt villandi upp-
lýsingar. „Það var ekki gert þrátt fyrir
þá staðreynd að þessir bankar buðu
mjög háa vexti sem
er sígilt merki og að-
vörun um áhættu-
sækni.“
Sársaukafullt og
niðurlægjandi
Niðurstaða Fridu
Fallan er skýr:
„Gistilönd ís-
lensku bankanna
innan ESB eiga
einnig sök á ís-
lenska banka-
hruninu. Þar af
leiðandi væri
sanngjarnt að þau
bæru nokkurn
hluta af byrðun-
um sem af hrun-
inu hlutust […]
Og hvað um að
þróunarbanka
Evrópu yrði fal-
ið að taka þátt í
endurfjármögnun íslensku bank-
anna gegn því að þeir gætu eignast
hlutina aftur innan til dæmis fimm
ára á nafnverði? […] Þetta mundi
bæta möguleika Íslendinga veru-
lega. Með þessu væri stigið stærra
skref en gert er í samningi landsins
við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þar er
enda um að ræða lán sem þarf að
endurgreiða […] Á tímum þegar við
biðjum eigendur banka um að end-
urgreiða bónusa og arð á siðferðis-
legum grundvelli er ekki til of mik-
ils mælst að farið sé fram á hið sama
af ríkjunum. Og það ætti að gera án
þess að neyða Ísland til þeirrar sárs-
aukafullu og niðurlægjandi aðgerð-
ar að leita á náðir Parísarklúbbsins
þar sem lánardrottnar og skuldarar
gera upp málin á grundvelli þrota-
meðferðar.“
Frida Fallan segir að boðskap-
urinn felist í siðferðisskuldbinding-
unni gagnvart Íslandi. „Brestir eru
í ríkjandi innistæðutryggingakerfi
(ESB) og það þarfnast endurskoð-
unar. Það getur ekki skapað íbúum
Evrópu nauðsynlegt öryggi og þá til-
trú sem þeir eiga heimtingu á. Eftir-
litskerfið er ekki einu sinni til þess
fallið að finna hætturnar.“
Niðurstaða Fridu Fallan er í aðal-
atriðum sú að afnema verði ríkjandi
innistæðutryggingakerfi ESB. „Nýtt
kerfi ætti að taka mið af því sem aug-
ljóst hefur orðið í ríkjandi banka-
kreppu; að aðeins ríkið getur tekist
á við innistæðutryggingar [...] Fyrir
þetta hlutverk ríkisins eigi bankarn-
ir að greiða sérstakt iðgjald.“
Evrópusambandið Stjórnmálamenn innan ESB verða
að kasta gamla innistæðutryggingakerfinu fyrir róða enda
ljóst að ríkin ábyrgjast í reynd sjálf innistæður í stóráföllum.
Glaðbeitt á Bessastöðum Ískaldur
veruleiki Icesave-málsins og grafalvar-
leg skuldastaða þjóðarinnar hefur
máð brosið af andlitum ráðherranna.