Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2009, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2009, Blaðsíða 15
Hver er maðurinn? „Jón Gunnar Benjamínsson, 34 ára gamall eyfirskur sveitapiltur.“ Hvar ertu uppalinn? „Á Ytri-Tjörnum í Eyjafjarðarsveit.“ Hvað eldaðir þú síðast? „Ég eldaði ferskt lambalæri með hvítlauk og timjan að hætti Fjalla-Eyvindar. Nema hann notaði nú líklega blóðberg og sleppti hvítlauknum.“ Hvar langar þig helst að búa? „Í augnablikinu langar mig helst að búa í Danmörku því ég var þar 2001-2003 og líkaði mjög vel.“ Býrðu yfir einhverjum leyndum hæfileikum? „Ég get brett upp á augnlokin á mér.“ Hver eru þín helstu áhugamál? „Útivist, skotveiði og stangveiði, það er númer eitt, tvö og þrjú. Svo hálendisakstur þar á eftir.“ Hefurðu alltaf verið mikill útivistarmaður? „Já, alveg bara frá því ég man eftir mér. Ég er náttúrulega uppalinn í sveit og þar fór maður um allar koppagrundir eins og fuglinn.“ Hvað kom til að þú fórst í þessa ferð? „Það var eiginlega tvennt. Fyrst var það þessi leiðangursstyrkur sem 66° Norður úthlutaði mér. Svo var það bara áhugi minn og vilji til að komast aftur upp á hálendið í fyrsta skiptið eftir slysið sem ég lenti í.“ Var þetta sérútbúið fjórhjól sem þú ferðaðist á? „Í raun og veru ekkert sérstaklega. Það er bara gírkassalaust. Öll stjórn hjólsins fer fram í stýrinu. Ég sérsmíðaði bara koll sem ég get dregið mig upp á. Það er algjörlega nauðsynlegt að vera ekki öðrum háður þegar maður vill fara út að hjóla.“ Hvernig kom hálendið út fyrir fatlaða? „Það byrjaði mjög vel en síðan fór að halla undan fæti eftir því sem við komum í aðeins eldri skála. En ég hvet alla til þess að kíkja inn á acrossiceland.is og vil minna á söfnunarsímann 901 5001 til styrktar bættu aðgengi fyrir fatlaða á hálendinu.“ Hvert er best fyrir fatlaða ein- staklinga sem vilja fara í ævin- týraferðir um Ísland að snúa sér? „Ég yrði bara fús til þess að gefa öllum sem hafa áhuga á því leiðbeiningar og vona að fólk geti haft gagn af því.“ Kvíðir þú haustinu? „Ég kvíði ekki haustinu, bara kuldanum.“ Bára Kristjánsdóttir 44 Ára NEmi „Nei, ég hef fulla trú á þjóðinni, við búum á gullnámu.“ rúna dögg Cortez 34 Ára BirTiNGarSTJóri hJÁ auGlýSiNGamiðluN „Nei, það geri ég ekki.“ sigrún HjaltalÍn 52 Ára JóGakENNari „Nei, ég hlakka til að byrja aftur í skólanum.“ Berglind andrésdóttir 23 Ára NEmi Dómstóll götunnar „Já og nei, vonandi bara að hlutirnir fari að lagast.“ Hildigunnur einarsdóttir 21 ÁrS haNDBolTakoNa jón gunnar BenjamÍnsson er lamaður fyrir neðan mitti. hann fór þó á fjórhjóli yfir hálendi Íslands til þess að kanna aðgengi fatlaðra á hálendinu. hægt er að fara inn á acrossiceland.is til þess að kanna málefnið betur. Vildi komast upp á hálendið aftur maður Dagsins Svokölluð dómstólaleið hefur mikið verið rædd vegna Icesave-ævintýrs- ins. Eðli málsins samkvæmt ætti Ís- lendingum að hugnast betur sú leið fremur en ríkisábyrgð sem veltir pakkanum yfir á hinn almenna skattborgara. Reyndar furðulegt að samninganefnd ríkisins hafi ekki boðið viðsemjendum skotleyfi á gerendurna, þ.e. fjárglæframennina sjálfa. megum vera ósammála Dómstólaleiðina segja margir ófæra vegna andstöðu Evrópubandalags- ríkja, líka norrænna nágranna. Í svo rómuðu ríkjabandalagi hlýtur hver þjóð, þó lítil sé, að geta skot- ið ágreiningsmálum til dómara. Og sé ekkert dómstig að finna hljótum við samt að mega vera ósammála. Með því erum við ekki að ganga á rétt nokkurs, einungis að halda fram okkar sjónarmiði og í þessu risa- vaxna máli veitir sko ekki af. Leiði dómstólaleiðin í ljós ágalla á reglu- verki ESB komumst við ekki bara undan þessum ábyrgðum heldur öðlumst einnig virðingu margra. Töpum við málinu þarf auðvit- að að semja en sá ferill gæfi okkur dýrmætan tíma sem gæti fært okk- ur miklu betri samningsaðstöðu en núna í miðjum öldudal. Þjóðin gefi álit Láti þingmenn skeika að sköpuðu og samþykki fyrirliggjandi Icesave- samning eru þeir í raun að kaupa sér frið og sumir hugsanlega vel- vild Evrópusambandsins en hætta í staðinn efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar. Með gengisbreytingar í huga er þessi samningur óútfylltur víxill og þó Björgólfsfeðgar vilji sín- ar skuldir afskrifaðar er slíkt tálvon í alþjóðasamskiptum og fari Ísland í greiðsluþrot eru auðlindirnar okkar eina veð. Kannski eru sumir þeirrar skoð- unar að Íslendingar séu einfald- lega ekki stjórntækir og því brýnt að koma fullveldinu eitthvert ann- að. Eðlilegt er þó að fá álit þjóð- arinnar sjálfrar áður en lengra er haldið. Þjóðaratkvæðagreiðsla er brýn, bæði fyrir fylgjendur og and- stæðinga ESB því einungis hún gef- ur stjórnmálamönnum umboð til mjög ólíkra leiða. Varðar framtíð Íslands Ég mæli því með sumarfríi þing- manna án tafar og að samþykkt Ic- esave og ESB-umsóknar verði slegið á frest. Bæði málin eru ráðandi um framtíð landsins og mega ekki ganga í gegnum þingheim hroðvirknislega unnin, óupplýst og í flaustri. Og allra síst í einhverjum ótta við alþjóða- samfélagið sem þarf miklu meira á okkur að halda en við því. Höfum það hugfast í hvert skipti sem við skrúfum frá kalda vatninu, hellum í pott, setjum steinbítinn ofan í og sjóðum ásamt ásakandi gullauga. Sumarfrí þingmanna án tafar kjallari 1 Hefur misst 92 kíló Víví kristófersdóttir sagði frá því í Vikunni að hún hefði farið úr 168 kílóum í 76 kíló. 2 sængar hjá strákunum í hljómsveitinni lady GaGa er nýhætt með kærastanum og segist núna sænga hjá hljómsveitinni sinni. 3 jessica simpson: „ég elska að eldast“ Þetta skrifaði hin 29 ára gamla Simpson á Twitter-síðu sína. hress að vanda enda á allra besta aldri. 4 löðrandi í kynþokka - myndir myndir af Beckham-hjónunum að halda upp á tíu ára brúðkaupsafmæli sitt á Seychelles-eyjum. Þau David og Victoria, fyrrverandi kryddpía, eru alltaf sæt en alveg sérstaklega krúttleg um þessar mundir. 5 Best heppnaða útrásin Feðgarnir Árni oddur Þórðarson og Þórður magnússon voru kosnir bestu útrásarvíkingarnir af DV þegar blaðið gerði úttekt á 20 stærstu víkingunum. 6 morðingjar og nauðgari á ævintýralegum flótta lögregluyfirvöld í indiana leita nú þriggja manna sem tókst að flýja úr hámarksör- yggisfangelsi í ríkinu um helgina. 7 Húsnæðislánið hækkar um 200 þúsund á mánuði húsnæðislán þeirra sem tóku 20 milljóna lán fyrir ári hafa hækkað um 200 þúsund á mánuði frá bankahruninu. mest lesið á DV.is lÝÐur árnason heilbrigðisstarfsmaður skrifar „Kannski eru sumir þeirrar skoðunar að Íslendingar séu einfaldlega ekki stjórntæki. “ umræða 14. júlí 2009 þriðjudagur 15 mynDin Bongóblíða Það er ekki á hverju kvöldi sem hægt er að njóta veitinga utandyra í reykjavík en hlýir geislar kvöldsólarinnar gældu við mannskapinn í hafnarstræti í gær þannig að borð gesta veitingastaðarins Balthazars flæddu nánast út á götu. mynd róBert

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.